Morgunblaðið - 24.07.1988, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 24.07.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988 35 Klukkuturninn frá tímum Hettumunkanna. Greinarhöfundur með fósturbarn sitt, apann „Titi“. Þjálfun prestlinga hefst því á ung- um aldri, oft þegar neminn er aðeins fárra mánaða gamall. Nemum er kennt að sofa á daginn og vaka á nóttunni. Þeir mega aðeins neyta þeirrar fæðu sem „hinir görnlu" létu sér til munns og þeir verða að læra „el teiju“ eða mál hinna gömlu til að geta haldið við hinum gömlu söghum. Þeir verða að kunna góð skil á ættfræði til að geta ráðlagt um giftingar. Þeir verða að læra alla helgidansa og helst verða þeir að geta skorið út þær grímur sem notaðar eru við dansana. Eftir níu ára þjálfun er framtíð bamsins endurmetin og ef framtíð- arspáin er björt og neminn sjálfur vill halda náminu áfram þá taka við önnur níu ár í læri. Við 12 ára aldur fær hinn verð- andi „mama" „poporo“ að gjöf, en svo nefnist áhald það er mylur coca- blöð saman við kalk. Allan þjálfun- artímann lítur lærlingurinn er ekki dagsins ljós og ekki fyrr en hann er talinn fullnuma og reiðubúinn að taka vjð embætti sínu sem „mama“. Öll menning fólksins byggir á „el mama“, hann er and- legur ráðgjafí jafnt sem lögvaldur og í hofunum eru teknar allar ákvarðanir er varða þjóðfélagshætti íbúanna. Hofið Hofín eru öll sömu gerðar, um það bil 7—8 metra há og um 8 metrar í þvermál. Hálmþakið nær til jarðar, inngangar eru tveir en gluggar engir. ímynduð lína tengir inngangana tvo og skiptir hofinu í tvo hluta, í gott og vont, ljós og myrkur, karlkyn og kvenkyn. Hið góða er talið blátt að lit, snýr í norðaustur og þar býr ætt refsins með ætt konu sinnar beltisdýrsins. Hið vona er rautt, snýr í suðvestur og þar býr púman með konu sinni dádýrinu. Ættimar hafa hvor sitt eldstæðið. Þriðja eldstæði hofsins snýr í suðaustur og þar búa eigend- ur dagsins, jagúarinn og kona hans villisvínið. Einkennislitur þeirra er hvítur. Fjórða eldstæðið snýr í norð- vestur og þar búa eigendur nætur- innar, uglan og kona hans slangan. Einkennislitur þeirra er svartur. ímyndaðar línur milli hinna fjög- urra eldstæða ákvarða miðpunkt kofans og þar sest „el mama“ til að ræða við guðina. Staðsetning hinna fjögurra eldstæða byggist á stjamfræðilegum útreikningum. Efst á þaki kofans er lítið gat sem beinir litlum ljósgeisla inn í kofann. Þann 21. júní klukkan níu að morgni fellur hann beint á eldstæð- ið í suðvestri. Geislinn hreyfist um 1,4 metra á klukkustund og klukk- an 3 beinist hann að eldstæðinu í suðaustri. Þann 21. mars og 21. september ferðast ljósgeislinn milli innganganna tveggja og á vetrar- sólhvörfum í desember hreyfíst hann frá eldstæðinu í norðvestri til þess í norðaustri. Enn er til fólk sem f innur til ábyrgðar gagnvart öllum heimi Gerardo Reiche-Dolmatoff nefn- ist mannfræðingur einn er dvalist hefur meðal Coquis og Ijcas. Er hann sneri aftur til „menningarinn- ar“ eftir langa dvöl meðal þeirra flutti hann þau skilaboð frá þeim að „litlu bræðumir" þyrftu ekki að SJÁ NÆSTU SÍÐU Ritvinnslukerfið WordPerfect WordPerfect er eitt best hannaða ritvinnslukerfi sem til er. Orðasafn á íslensku. Kennslubók á ísl. fylgir. Dagskrá: * Byrjendaatriði íWordPerfect * Helstu skipanir við textavinnslu * Verslunarbréf og töflusetning * Dreifibréf *Gagnavinnsla * íslenskaorðasafitið og notkun þess * Umræðurog fyrirspumir Tími: 26.-29. júlí kl. 17-20 Leiðbeinandi: MatthíasMagnússon rithöfundur Innritun og nánari upplýsingar í símum 687590 og 686790 VR og BSRB styðja sína félaga til þátttöku á námskeiðinu. Tölvufræðslan Borgartúni 28 Vestur-þýskir vörulyftarar G/obus? LÁGMÚLA 5. S. 681555 BINDINDISMÖTÐ GA VERSLUNARMANNAHELCIN 29.JULI - l.ACUST GUNNA 15ARA Eitthvað FYRIR ALLAt DANSSYNING UNjGLINGA- , HLIQMSVEITIR I STORATJALDINU DÖNSK UNGLINGAHLJOMSVEIT SÉR UNGLINGA- TJALDSTÆÐI HÆFILEIKAKEPPNI ALLI 9 ARA ARA FRITT FYRIR 12 OG YNGRI BARNADANSLEIKIR HJÓLREIÐAKEPPNI BARNASKEMMTUN TÍVÖLÍ FRÁBÆR LEIKTÆKI ÚR dAGSl<RÁNÍNÍ HLJÓMSVEIT BIRGIS GUNNLAUGSSONAR ÓMAR RAGNARSSON PÁLMI GUNNARSSON FjÖRKARLAR KVASS QUE JÓN PÁLL JÓHANNES KRISTJÁNSSON ÖKULEIKNI BRÚÐUBÍLLINN ÞORVALDUR HALLDÓRSSON FINE COUNTRY KIDS LEIKIR OG KEPPNI ÍSLANDSMEISTARAR í DANSI O.M.FL. _______ Ski.-mmtun AN ÁrKNtitS ^SL. SIGGI 39ARA GÓÐ JJAfD- OG HJOLHYSASTÆÐI 3 DANSJLEIKIR A PALLI KVÖLDVÖKUR GÖNGULflÐIR í NAGRENNI KEPPNI í ÖKULEIKNI AÐ ÓGLEYMDU;1. VEITINGAHÚS VATNSSALERNI FLUGELDASÝNING VARÐELDUR HELGISTUND RÚTUFERÐIR BSÍ SVÆÐISÚTVARP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.