Morgunblaðið - 24.07.1988, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988
21
Eistland:
Nektamý-
lenda við-
urkennd
Moskvu, Reuter.
LÍTILL en einarður hópur nátt-
úruunnenda vann mál gegn yfir-
völdum fyrir hæstarétti Eist-
lands, en embættismenn höfðu
bannað fólkinu að stunda sól- og
sjóböð á Adamsklæðum einum.
Þetta kom fram í föstudagsútg-
áfu Prövdu, málgagni sovéska
kommúnistaflokksins.
Pravda, sem hingað til hefur
þótt með alvarlegri blöðum svo ekki
sé dýpra í árinni tekið, kastaði í
gær fyrir róða þeim þurra og
pólitíska fréttastíl, sem þar hefur
ráðið ríkjum, og birti frétt með
gamansömum blæ. Fréttin var
reyndar ekki í ferskara lagi, því hún
er árs gömul.
Fyrirsögn fréttarinnar var: „Hin-
ar nöktu staðreyndir" og sam-
kvæmt henni upphófst málið fyrir
nokkrum árum þegar nokkur pör
„klædd að hætti Adams og Evu“
gerðu sig heimakomin á baðströnd
við Eystrasalt, en embættismenn á
staðnum brugðust ókvæða við og
neituðu að láta fólkinu í té af-
markaða strandspildu. Það lét sér
þó ekki segjast og leigðu skurð-
gröfu til þess að moka upp sand-
vegg svo þau væru óhult fyrir for-
vitnum augum og saklaus augu
óhult fyrir þeim.
Pravda gerði óspart gys að við-
brögðum stjómvalda, en æðri
stjómvöld fyrirskipuðu embættis-
mönnunum að „krefjast reglu í sam-
ræmi við almannareglu."
í framhaldi af því var hinum
kviknöktu skipað að jafna sand-
vegginn við jörðu. Þau harðneituðu
og lögsóttu yfírvöld. Þegar fólkið
tapaði málinu í undirrétti gafst það
síður en svo upp og áfrýjaði til
Hæstaréttar Eistlands. Úrskurður
hans var sá, að fólkinu væri frjálst
að stunda strandariðju sína
TAKTU EKKI
óþarfa Áranru
Umsækjendur um
húsnæðislán!
Gangið ekki til
samninga um
íbúðarkaup fyrr en
þið hafið fengið
tilkynningu okkar um
afgreiðslu láns.
Takið ekki óþarfa
áhættu.
c§p Húsnæðisstofnun
ríkisins
Sumarbústaðir tii sölu
í Hvammslandi í Norðurárdal eru til sölu tveir sumarbú-
staðir ca 25 fm hvor. Bústöðunum fylgir girt eignarland
1,5 ha. Landið er að mestu kjarrivaxið og vel fallið til
skógræktar.
Allar nánari upplýsingar gefur undirritaður:
Gísli Kjartansson hdl.,
sími 93-71700 og heimasími 93-71260.
Nýi miðbærinn
3ja herb. - sérinngangur
100 fm 3ja herb. glæsileg íb. á 1. hæð (jarðhæð) við
Ofanleiti. Þvottaherb. og geymsla í íb. Danfoss.
Sérinng. Sérverönd. Sérgarður. Mjög vönduð og falleg
eign. Einkasala. Verð 6,9 millj.
Opið Agnar Gústafsson hrl.,
kl. 1-3 Eiríksgötu4, símar12600og21750.
Barnafataverslun
Höfum til sölu við Laugaveg eina virtustu og elstu barna-
fataverslunina með mikinn innflutning. Verslunin er í
eigin húsnæði sem getur selst með. Góð greiðslukjör.
Upplýsingar gefur:
Húsafell ®
FASTEIGNASALA Langhottsvegi 115 Þorlákur Einarsson
(Bæjarleiðahúsinu) Simi:681066 Bergur Guðnason
i
DAGVIST BARIVA
FOSTRUR
Það vantar fóstru/fóstrur á Hlíðaborg,
hálfan eða allan daginn í haust eða eftir
samkomulagi.
Einnig vantar aðstoðarfólk frá sama tíma.
Hlíðaborg er 2ja deilda leikskóli með fjöl-
breytta starfsemi, vel mannaður fóstrum og
öðru góðu starfsfólki.
Komið eða hríngið í síma 20096 og fáið upplýsingar.
Lóa og Sesselja forstöðumenn.
WMav»t2
Verslun/iðnaður/þjónusta
Til leigu er 145 fm atvinnuhúsnæði. Húsnæðinu má
skipta í 70 fm eða 75 fm einingar. Góð aðkoma. Góð
bílastæði. Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
merkt: „K - 8738“.
Matstofan Þristurinn,
Hólagötu 15, Njarðvík n.h.,
er til sölu, húseign og rekstur.
Hér er um mjög góðan veitingarekstur að ræða, í fullum
gangi. Veitingasalur er fyrir 45 manns, sem er allur
nýstandsettur og hinn glæsilegasti.
Allar nánari upplýsingar um söluverð og greiðsluskil-
mála eru gefnar á skrifstofunni.
Fasteignasalan,
Hafnargötu 27, Keflavík,
sími 92-11420.
Landspítalinn
-félagsráðgjafadeild
Féíagsráögjafar
Deildarfélagsráðgjafi óskast til starfa frá 1. sept-
ember í hlutastarf á dagvinnutíma. Um er að
ræða hefðbundið félagsráðgjafastarf, aðallega við
krabbameinsdeild. Starfsreynsla er æskileg.
Umsóknir sendist til yfirfélagsráðgjafa Landspít-
ala. Nánari upplýsingarveitirfélagsráðgjafi í síma
601198.
RÍKISSPÍTALAR
STARFSMANNAHALD
fmmköllun
ULFARSFELL
HAGAMEL 67