Morgunblaðið - 05.08.1988, Qupperneq 1
80 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
175. tbl. 76. árg.
FÖSTUDAGÚR 5. ÁGÚST 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Palestínumenn geta enn ferðast yfir Allenby-brúna á ánni
Jórdan þrátt fyrir ákvörðun Jórdana um að draga úr tengslum
við vesturbakka árinnar. Jórdanir kalla brúna Husseins-brú
og hafa ekki litið á hana sem landamærabrú heldur segja að
hún tengi tvö Iandsvæði innan Jórdaníu. Á stærri myndinni
má sjá Palestínumann hjálpa ísraelskum hermanni að ýta far-
angri yfir brúna. í baksýn er hópur jórdanskra hermanna. Á
innfelldu myndinni eru palestínskar mæðgur frá Jeríkó á
Vesturbakkanum. Móðirin sýnir vegabréf eftir að hafa komið
yfir Allenby-brúna frá Jórdaníu.
Vitnaleiðslur í Ebbe Carlsson-málinu:
Ovarleg meðferð
ríkisleyndarmála
- segir Ingvar Carlsson forsætisráðherra
Stokkhólmi. Reuter.
INGVAR Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar, varði í gær gjörðir
stjórnar sinnar í Ebbe Carlsson-málinu svokallaða er hann kom fyrir
fund rannsóknarnefndar sænska þingsins. Hann gagnrýndi vinnubrögð
nefndarinnar og sakaði hana um óvarlega meðferð rikisleyndarmála.
Kosið verður i Sviþjóð um miðjan september og gengur kosningabarátt-
an að mestu leyti út á þátt ríkisstjórnar Jafnaðarmannaflokksins í
leynilegri rannsókn á morðinu á Olof Palme.
,Ég held að málið hafi hlotið rétta stjórann Nils-Erik Áhmansson.
meðferð ríkisstómarinnar. Ég full-
vissa nefndina um að ég er ekki að
veija ólöglegt athæfi," sagði forsæt-
isráðherrann og var augljóslega heitt
hamsi. Spumingar neftidarmanna,
sem em úr öllum þingflokkum, vom
beinskeyttar og var umræðum út-
varpað og sjónvarpað beint. Ingvar
Carlsson bar nefndarmönnum á brýn
að vilja uppskera pólitískan ávöxt
af viðkvæmu og alvarlegu máli.
Fyrr um daginn sat Anna-Greta
Leijon fyrir svömm í sex klukku-
stundir en hún varð að segja af sér
embætti dómsmálaráðherra er upp
komst að hún hafði lagt blessun sína
yfir leynilega rannsókn á morðinu á
Palme. Aðferðir hans vom um margt
reyfarakenndar; fólust m.a. í því að
smygla hlemnarbúnaði inn í landið.
Leijon sagðist hafa breytt í góðri trú
og skellti skuldinni á ríkislögreglu-
Afstaða Yitzhaks Shamirs, forsætisráðherra ísraels:
Hafnar hugmyndum um
innlímun Vesturbakkans
Hussein stöðvar launagreiðsiur vestur yfir Jórdanfljót
Jerúsalem. Reuter.
YITZHAK Shamir, forsætisráð- við íbúa Vesturbakkans. I gær
herra ísraels, hafnaði í gær fylgdu stjórnvöld í Jórdaníu þess-
áskorunum frá hægrimönnum um ari ákvörðun eftir með því að
3.500 opinberum starfs-
að vesturbakki Jórdanár yrði inn
limaður í ísrael. Shamir sagði
stjórnina bundna af Camp-David
samkomulaginu frá árinu 1978
milli ísraels og Egyptalands þar
sem segir að framtíð hernumdu
svæðanna skuli ráðast í samning-
um. Krafan frá hægrimönnum
kemur í kjölfar þess að Hussein
Jórdaníukonungur sagðist á
sunnudaginn ætla að ijúfa tengsl
seg]a
mönnum á Vesturbakkanum upp
störfum og hætta fjárhagslegum
stuðningi við 16.000 aðra.
Shamir hitti fjóra þingmenn úr
Tehiya-flokknum í gær en þeir hafa
skorað á stjórnina að innlima Vest-
urbakkann með því að aflétta her-
námslögum og innleiða borgaraleg-
an rétt á svæðinu. „Við munum
semja um framtíð hemumdu svæð-
Ríkisstjórn Belgíu:
Vilja sambandsríki
Brussel. Rcuter.
Á NÆSTUNNI verður afgreitt frá
belgiska þinginu stjórnarfrum-
varp sem miðar að þvi að dreifa
ríkisvaldinu til ólikra málahópa i
landinu. Wilfried Martens, forsæt-
isráðherra, segir að um það sé að
ræða að Belgíu verði breytt í sam-
bandsríki og hér séu á ferðinni
„stærstu umbætur i sögu lands-
ins“.
. ' \
Erjur frönsku og flæmskumælandi
Belga hafa ætíð torveldað stjórnun
í landinu. Slíkar deilur urðu stjórn
Martens að falli í október í fyrra og
leiddu til lengstu stjómarkreppu í
sögu Belgíu. I lagafrumvarpinu er
gert ráð fyrir að aukið vald verði
lagt í hendur þremur stjórnskipunar-
svæðum; Vallóníu þar sem töluð er
franska, Flandri þar sem er töluð
flæmska og Brussel þar sem bæði
tungumálin em við lýði. Bið kann
þó að verða á því að Belgía verði
sambandsríki því stjómarandstaðan
og margir frönskumælandi stjómar-
þingmenn leggjast gegn fmmvarp-
inu.
anna innan ramma Camp-David-
samkomulagsins," er haft eftir for-
sætisráðherranum. Hann sagði að
alþjóðleg fordæming slíkrar ráðstöf-
unar sem þeirrar er þingmenn Tehi-
ya krefjast yrði mjög víðtæk. Yosser
Achimeir, aðstoðarmaður Shamirs,
sagði í gær að sú ákvörðun Husseins
að hætta að greiða starfsmönnum á
Vesturbakkanum laun myndi engin
áhrif hafa á stefnu' ísraels.
Á ísraelska þinginu var deilt um
viðbrögð við þeirri ákvörðun Jórd-
aníumanna að slíta tengslin við Vest-
urbakkann. Ariel Sharon, hinn
hægrisinnaði viðskiptaráðherra,
hvatti eindregið til þess að hemaðar-
lega mikilvæg svæði á Vesturbakk-
anum, þar sem fáir byggju, yrðu
innlimuð.
Verkamannaflokkurinn er hlynnt-
ur því að þessum svæðum sé haldið
eftir en afgangnum verði skilað til
Jórdaníu í skiptum fyrir friðarsam-
komulag. Shimon Peres, utanríkis-
ráðherra, hefur ekki opinberlega
svarað ræðu Husseins sem þykir
mikið áfall fyrir stefnu flokksins.
Fulltrúi Frelsissamtaka Palestínu,
PLO, í Amman í Jórdaníu hitti Zeid
al-Rifa, forsætisráðherra Jórdaníu,
í gær. Þeir sömdu um að nefnd á
vegum PLO myndi á næstu dögum
ræða við jórdönsk stjómvöld um
framtíðarsamskipti þessara aðilja.
Var þetta í fyrsta skipti sem Jórd-
aníustjórn ræðir við Frelsissamtökin
síðan Hussein hélt hina óvæntu ræðu
á sunnudag.
Sjá ennfremur „Af erlendum
vettvangi" á bls. 41.
Stjómmálaskýrendur eru flestir á
því að fjaðrafokið út af rannsókninni
á morðinu á Palme verði jafnaðar-
mönnum síst til framdráttar í þing-
kosningunum. Ekki hafa verið birtar
skoðanakannanir um fylgi flokka frá
því Anna-Greta Leijon sagði af sér
en áður en til þess kom virtist draga
saman með jafnaðarmönnum og
bandalagi borgaralegra flokka.
Sjá „Leijon skellir skuldinni
. . .“ á bls. 27.
Júgóslavía:
Skógareld-
ur á ferða-
mannastað
Belgrað. Reuter.
ÞÚSUNDIR manna börðust í gær
við skógareld við ferðamannabæ-
inn Sibenik á Adriahafsströnd
Júgóslavíu. Sfðdegis f gær var
rætt um að flytja 130 þúsund
manns, innfædda og ferðamenn,
sjóleiðis frá Sibenik en skyndileg
breyting á vindátt bægði mestu
hættunni frá f bili.
Stærstur hluti byggðar í Sibenik
er vestan við Adríahafshraðbrautina
sem liggur meðfram ströndinni. í
gærkvöldi hafði eldurinn ekki náð
að teygja sig yfir þjóðveginn. Útvarp-
ið í Zagreb sagði að vindur væri aft-
ur að snúast til norðanáttar og væri
þá voðinn vís. Rafmagn hefur verið
tekið af Sibenik í varúðarskyni og
ökumenn beðnir að beina umferð frá
hraðbrautinni sem girðir bæinn af.
Reuter
Afmæli drottningarmóður
Elísabet, móðir Elísabetar Eng-
landsdrottningar, fagnaði
sfnum 88. afmælisdegi í gær.
Eins og venja stendur til fór
drottningarmóðirin út á meðal
þegnanna á afmælisdaginn,
heilsaði börnunum og tók á
móti hamingjuóskum.