Morgunblaðið - 05.08.1988, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988
5
Bóndi kærir Land-
helgisgæsluna fyr-
ir spjöll á æðarvarpi
ÞORVARÐUR Julíusson, bóndi á Söndum við Miðfjörð í Vestur-
Hunavatnssýslu, hefur lagt fram kæru á hendur Landhelgis-
gæslunni fyrir að hafa eyðilagt æðarvarp í landi Sanda og
Heggstaða í Miðfirði og Bálkastaða í Hrútafirði. Segir Þorvarð-
ur þyrlu Landhelgisgæslunnar hafa flogið lágflugi yfir æðar-
varpinu þegar verið var að kanna netalagnir fyrir lax og
bleikju á þessum slóðum. Þorvarður segir að 30 hreiður af
um 150 hafi verið yfirgefin og að mörg ár líði áður en varpið
jafni sig. Sýslumaðurinn á Blönduósi tók við kærunni föstudag-
inn 29. júlí og hefur hann fyrirskipað lögreglurannsókn í
málinu. Að sögn Jóns fsbergs sýslumanns verða gerðar lög-
regluskýrslur um málið og þær eftir atvikum sendar ríkissak-
sóknara eða Landhelgisgæslunni til umsagnar.
Bændur á umræddu svæði hafa
undanfarin ár reynt að koma upp
auknu æðarvarpi á þessum slóð-
um. Að sögn Þorvarðar hefur það
gengið illa og ekki bæti verk Land-
helgisgæslunnar þar úr skák. Tel-
ur Þorvarður að flogið hafi verið
til að kanna hvort lagt hafi verið
net fyrir lax. Samkvæmt friðunar-
V estur-í slendingar:
Styrkja
skógrækt
á Islandi
Þjóðræknisfélag Manitoba og
Vestur-íslendingar í Kanada
hafa síðastliðin 10 ár komið til
íslands og afhent Skógræktar-
félagi íslands fjárupphæð til
styrktar skógrækt í landinu.
Nú er staddur á landinu 250
manna hópur Vestur-íslendinga
á þriggja vikna ferðalagi og
þeirra á meðal er Jóhannes B.
Thórdarson, sem hefur undan-
farin ár afhent Skógræktarfé-
lagi íslands fjárupphæðina í
nafni þjóðræknisfélagsins. Frá
íslandi fór jafn stór hópur á
vegum þjóðræknifélagsins til
Kanada.
Jóhannes B. Thordarson er
fæddur í Kanada og býr nú í Gimli
en hann talar íslensku reiprenn-
andi. Hann er á 91. aldursári og
hefur komið 17 sinnum til íslands.
Foreldrar Jóhannesar eru frá
Svarfaðardal í Eyjafirði og fóru
þau vestur um haf í kringum 1890.
Skagafjörður:
Ohagstæð
tíð og
heyskaðar
ÓHAGSTÆTT tíðarfar hef-
ur verið í Skagafirði síðast-
liðnar þijár vikur, en aftur
á móti var þar feykigóð hey-
skapartíð fyrripartinn í júlí,
og þeir sem gátu hafið slátt
þá fengu nyög góð hey.
Að sögn Borgars Símonar-
sonar bónda í Goðdölum var
mikið af heyjum orðið hrakið
hjá þeim sem voru með meira
en hálfþurrt hey þegar ótíðin
byijaði, og víða voru hey orðin
mjög léleg.
„Veður hefur verið mjög gott
hér um slóðir þó heyskapartíðin
hafi verið óhagstæð. Það hafa
verið hlýindi og engin stórúr-
felli og er jörð ákaflega þurr,
þó alltaf hafi verið einhver
væta. Það eru ekki margir
bændur búnir með fyrri slátt,
og sumir eru rétt nýlega byijað-
ir. Þetta hefur þó verið mjög
góð tíð fyriir þá sem heyja í
vothey."
lögum verður að taka upp net á
föstudagskvöldi. Bannað er að
leggja þau aftur fyrr en á þriðju-
dagsmorgni og er verið að kanna
hvort farið sé að þeim lögum. Að
sögn Þorvarðar er þarna viðvar-
andi norðanátt og fyllast netin
fljótt af þangi. Þess vegna sé úti-
lokað að menn séu að leggja net
fyrir lax á þessu svæði. Sagði
Þorvarður að aka hefði mátt á
jeppa meðfram ströndinni á Hesta-
nesi og Vatnsnesi til að athuga
netalagnir.
Helgi Skúlason fer fyrir flokki illmenna i Leiðsögumanninum.
Regnboginn:
Góð aðsókn að Leiðsögumanmnum
Margfalt betri en að öðrum norrænum myndum
AÐSÓKN hefur verið góð að
Leiðsögumanninum, samísku
kvikmyndinni, sem Helgi Skúla-
son leikur eitt aðalhlutverkið í.
myndir fái yfirleitt, en Regn-
boginn hefur sýnt mikið af
myndum frá hinum Norðurlönd-
Að sögn Jóns Ragnarssonar,
framkvæmdastjóra Regnbog-
ans, hafa 12.000 manns séð
myndina og hún er enn í fullum
gangi. Jón segir þetta margfalt
meiri aðsókn en norrænar
„Þessi góða aðsókn er að miklu
leyti leik Helga Skúlasonar að
þakka,“ sagði Jón.. „Hann er
þekktur leikari og á stórgóðan leik
í myndinni. Myndin er líka spenn-
andi og heldur mönnum vakandi,
auk þess sem hún er „öðruvísi“.“
Að sögn Jóns mun myndin verða
sýnd víða úti á landi er sýningum
á henni lýkur í Reykjavík. „Það
er ætlunin að sýna hana nánast
alls staðar þar sem eru bíóhús,
enda hafa menn úti á landi sýnt
myndinni mikinn áhuga,“ sagði
Jón.
Laugardalsvöllur
sunnudag 7. ágúst kl. 19.00
ÍSLAND - BÚLGARÍA
Forsala aðgöngumiða f rá kl. 12.00 á leikdag á Laugardalsvelli.
HVERNIG GENGUR STRÁKUNUM GEGN HINU
Friðrik, Guðmundur H., Atli, Ólafur, Péti r P., Sævar, Viðar, Sigurður J., Halldór, Þorvaldur,
Ómar, PéturO., Péti r A., Ragnar, Guðni, SigurðurG.
Hornaflokkur Kópavogr
leikurfrá kl. 18.30 undv
stjórn Björns Guðjónsjonar.
m
Dómari: Erik Fredriksson frá Svíþjóð.
Línuverðir: Óli P. Ólsen og Gísli Guðmundsson.
Aðgöngumiðaverð:
Stúka 600 kr.
Stæði 400 kr.
Börn 150 kr.
KNATTSPYRNUSAMBAND ISLANDS'
m - • ýía> ) i>m a ac
i