Morgunblaðið - 05.08.1988, Side 20

Morgunblaðið - 05.08.1988, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988 Sundlaugin í Reykjar- firði N-ís. fimmtíu ára Búið að draga fána að hún 16. júlí sl. Sundlaugin tilbúin til hátíða- halda. eftirJónu Valgerði Kristjánsdóttur Hornstrandir Fyrir 50 árum þegar Hornstrand ir voru nefndar á nafn, sá fólk fyr- ir sér harðbýlt landsvæði, umgirt háum fjöllum — jöklum, og ófænim jökulvötnum, kolmórauðum. — Úfið haf eða hafís undan landi. Maðurinn í smæð sinni yrði að lúta þessum náttúruöflum, og laga sig að þeim. Það fólk sem þarna bjó var líka mótað af umhverfinu á vissan hátt. Það hafði kjark og þrautseigju, það gafst ekki svo auðveldlega upp, þó á móti blési, en tókst á við erfiðleik- ana, og hafði sigur í þeirri viður- eign. Það fara ekki sögur af mörgu sem þannig var unnið, þó vert væri að færa í letur. En af einu stórvirki sem unnið var fyrir 50 árum sést árangurinn enn í dag. Það var stór- virki að reisa sundlaug í Reykjar- firði við Geirólfsgnúp árið 1938. Og 2. júlí sl. voru liðin 50 ár frá vígslu hennar. í tilefni þess er rétt að rekja hér lítillega sögu sundlaug- arbyggingar í Reykjarfirði. Frumkvöðull að byggingu laug- arinnar var Jóhannes Jakobsson í Reykjarfírði. Þegar hann var 12 ára gamall, voru honum og fleiri ungl- ingum í Reykjarfírði kennd sund- tökin. En sundlaug var engin svo ekki gafst mikið færi á að æfa þessa nýju íþrótt. En unglingarir dóu ekki ráðalausir frekar þá en nú. Með Jóhannes sem fyrirliða, hlóðu þeir stíflugarð fyrir afrennsli volgrar tjamar sem var í Firðinum og myndaðist þá allgóð sundlaug. Við hana undu þeir sumarlangt, en næsta vor ruddi jökuláin stíflugarð- inum burt. En þeir hlóðu hann að nýju, og gekk þannig allmörg ár. En nú höfðu ýmsir málsmetandi menn tekið eftir þessu fmmkvæði unglinganna í Reykjarfirði og á sýslufundi N-ísa§arðarsýslu vetur- inn 1935 fékk sr. Jónmundur Hall- dórsson prestur á Stað í Gmnnavík því til leiðar komið að fjárveiting fékkst til endurbóta á sundlaug í Reykjarfirði og byijun sundkennslu þar. Hann fékk síðan Jóhannes til að standa fyrir framkvæmdum og byija kennslu. Jóhannes gekk í ungmennafélag sveitarinnar 1936 og lagði þar fram tillögu um sundlaugarbyggingu. Var samþykkt að tilnefna í nefnd til að undirbúa málið. I henni áttu sæti Jóhannes Jakobsson, Reykjar- fírði, Guðmundur Árnason, Fum- fírði og Dagbjartur Majasson, Höfðaströnd. Vorið 1937 vom kosningar til Alþingis, og var haldinn framboðs- fundur á Amgerðareyri. Jóhannes sem þá var 19 ára gamall fór á fundinn af forvitni, því ekki hafði hann kosningarétt. Meðal ræðu- manna var Vilmundur Jónsson landlæknir, sem þá var að bjóða sig fram til Alþingis í fyrsta sinn. Að fundi loknum gaf hann sig á tal við Jóhannes, og spurði hvað svo ungum manni fyndist að þingmenn ættu helst að gera. Jóhannes svar- aði því að lítið vissi hann um það, en sitt áhugamál væri bygging sundlaugar í Reykjarfirði, en til þess vantaði Qármagn. Vilmundur kvaðst heita á hann að ef hann næði kosningu skyldi hann útvega ijárveitingu frá ríkinu til sundlaug- arbyggingar. Leikar fóm svo að Vilmundur hlaut kosningu, og um sumarið 1937 veitti Alþingi styrk að upphæð kr. 600 til sundlaugarbyggingar í Reykjarfírði, fyrir forgöngu Vil- mundar, og seinna 300 kr. við- bótarstyrk. En Vilmundur gerði ekki þar með endasleppt, hann út- vegaði teikningu af sundlaug og sendi sement með vitaskipinu til Reykjarfjarðar síðla sumars. I bréf- um sem hann skrifaði Jóhannesi í júlí og ágúst sama ár, hvetur hann til að vel verði vandað til byggingar- innar, grafíð vel fyrir og að notuð verði næg járnbinding í steypuna og efnið verði að vera fyrsta flokks. Um haustið þegar sumarverkum lauk í Reykjarfírði var hafíst handa og unnið var eins lengi og hægt var fram eftir hausti. Næsta vor hófust framkvæmdir að nýju og lokið við byggingu sundlaugarinn- ar. Og 2. júlí 1938 rann upp sá langþráði dagur, sundlaugin var vígð að viðstöddum 73 gestum. Og næsta dag hófst sundnámskeið með 25 nemendum. Landeigendur í Reykjarfirði gáfu land undir laugina. Jóhannes stóð fyrir byggingu hennar og naut dyggilegrar aðstoðar Guðfínns bróður síns. Mikið var gefíð af vinnu við bygginguna, ekki síst af þeim Reykjarfjarðarbræðmm. Mun þar vera um að ræða meira en 100 dagsverk. Nokkrir sveitunga þeirra lögðu einnig fram vinnu, sem í flest- um tilfellum var unnin endurgjalds- laust, en það sem greitt var af vinnulaunum greiddi Jóhannes sjálfur, því fjárveiting Alþingis fór eingöngu til efniskaupa. Síðar vom byggðir búningsklefar við laugina, sem nauðsynlegt var ekki síst vegna þess að á hveiju vori fóm þar fram sundnámskeið fyrir böm úr hreppnum. En bún- ingsklefamir hafa fyrir löngu orðið að falla fyrir tímans tönn og vom hreinsaðir burt fyrir nokkmm ámm. Þá var líka orðið sýnt að gera þyrfti átak til að endurbyggja sund- laugina, því steypan, þó góð væri árið 1938, var farin að láta á sjá, og botninn tekinn að leka. Og enn sem fyrr var það Jóhann- es sem vakti athygli á málinu, skrif- aði greinar í bíöð, og benti á að úrbóta væri þörf. Hann fékk þannig bæði loforð um einhver framlög frá velunnumm laugarinnar og skát- amir á Isafírði lofuðu vinnu, þegar verkið hæfíst. Sumarið 1986 var sundlaugin endurbyggð. Lögðu menn úr Hjálparsveit skáta á ísafírði leið sína norður í Reykjar- flörð og hjálpuðu til við verkið. Gekk það bæði fljótt og vel. Bakkar laugarinnar vom svo pússaðir og tyrft í kring, og laugin máluð hvít. Þar með var hún aftur tilbúin að taka á móti gestum sem leið eiga um Homstrandir, enda leggja margir leið sína í Reykjarfjörð og njóta þar ókeypis hvfldar og hress- ingar í þessari perlu Hornstranda. Hvít og glampandi fögur með létta gufubólstra sem stíga upp úr hreinu og tæm laugarvatninu, því brenni- steinslykt finnst ekki, mun sund- laugin næstu áratugina hvíla marg- an þreyttan ferðalang. Ekki er hægt að ljúka svo þess- ari frásögn að ekki sé getið ábú- enda í Reykjarfírði, sem ár eftir ár meðan búið var í Firðinum tóku á móti öllum nemendum sem sóttu sundnámskeiðin á vorin. Oft var þá fjölmennt í heimili hjá Matthildi og Jakobi í Reykjarfirði, sem höfðu flesta nemendur í fæði og húsnæði meðan námskeiðin stóðu. Má t.d. nefna að þegar sundlaugin var vígð árið 1938 tóku þau á móti öllum þeim gestum sem þangað komu og allir vom í mat og kaffi, og nokkr- ir gistu. Eins og áður sagði vom 73 gestir við vígslu laugarinnar. Margt fleira mætti sjálfsagt hafa mörg orð um, en það verður þó ekki gert að sinni. Sú sem þetta ritar átti þess kost að vera einn af nemendum Jóhannesar á sundnám- skeiði árið 1942, og fékk þar fyrsta sundskírteinið. Hér hefur í stómm dráttum verið rakin saga af sundlaugarbyggingu á Homströndum fyrir 50 ámm. Sú saga vitnar um stórhug og bjart- sýni þess fólks, sem þar lagði hönd á plóginn. Það sama fólk hefur haldið lauginni við, í öll þessi ár, og eins og áður sagði hefur hún nú verið endurbyggð. En víkjum nú til nútímans. Það var svo sannarlega fullt til- efni til að minnast þessara tíma- móta í sögunni og það var líka gert á myndarlegan hátt hinn 16. júlí sl. Þá var samankominn í Reykj- arfirði hópur fólks á öllum aldri, alls um 50 manns, en hefðu verið fleiri ef veðurguðirnir hefðu verið hliðhollari. í Fumfirði vom um 15 manns sem ekki komust því ekki gaf sjóleiðina og einhveijir vom væntanlegir austan að en urðu sömuleiðis að bíða. Eins og segir í sögunni, það er ekki nóg þó kóngur vilji sigla, því byr verður að ráða. En þeir sem vom svo heppnir að vera mættir tímanlega fóm einskis á mis. Hátíðahöldin hófust kl. 14.00 með hátíðarsamkomu við sundlaug- ina, þar var rakin saga byggðar í Reykjarfirði í 200 ár, og saga sund- laugarbyggingarinnar. Laugin formlega tekin í notkun eftir miklar endurbætur og gerði það ung og spengileg sunddrottning 10 ára gömul, dóttir Ragnars, eins af eig- endum Reykjarfjarðar. Síðan var skellt á boðsundi með 8 ungmenn- um, piltum og stúlkum, sem vom á staðnum, og var það afar skemmtilegt. Og því næst afhenti Jóhannes þeim félagasamtökum sem styrkt hafa endurbyggingu laugarinnar með vinnu og/eða fjár- munum veggskildi með áletmn til minningar. Og ekki nóg með það heldur fengu allir viðstaddir sinn minnispening með áletmn, í tilefni dagsins. Vafalaust eiga þessir grip- ir eftir að verða verðmætari eftir því sem árin líða, því upplagið var takmarkað við það að vera handa þeim, sem þarna væm. Að lokinni þessari eftirminnilegu dagskrá, sem krydduð var með söng og harmonikuspili, var boðið til | Háskólanám í kerfisf ræði Markmið kerfisfræðinámsins er að gera nemendur hæfa til að skipuleggja og annast tölvuvæðingu hjá fyrirtækjum og annast kennslu og þjálfun starfsfólks sem notar tölvur. Hægt er að hefja nám í september og janúar. Stúdentar af hag- fræðibraut Ijúka námi á þremur önnum en aðrir geta þurft að sækja tíma í fornámi, sem er ein önn til viðbótar. Áhersla er lögð á að fá til náms fólk, sem í dag starfar við tölvuvinnslu og í tölvu- deildum fyrirtækja auk nýstúdenta. Sérstaklega skal bent á að þeir, sem hafa þriggja mánaða uppsagnarfrest í starfi, þurfa að sækja nú þegar um innritun á vorönn. Nemendur, sem vilja halda áfram að vinna hluta úr degi jafnframt námi, þurfa að ræða við kennslustjóra um möguleika á því. Eftirtaldar námsgreinar verða kenndar: Fornám: Bókfærsla Rekstrarhagfræði Tölvufræði Stærðfræði Vélritun Fyrsta önn: Grunnnámskeið Turbo Pascal Almenn kerfisfræði Stýrikerfi Verkefni Önnur önn: Kerfishönnun Kerfisforritun Gagnasöfn og upplýsingakerfi Forritun í Cobol Gagnaskipan Þriðja önn: Lokaverkefni Stutt námskeið í ýmsum greinum svo sem: Tölvufjarskipti, verkefnisstjórnun, forritun- armálið ADA, „Object-oriented" forritun, þekkingarkerfi, OS/400 stýrikerfi. Innritun á haustönn stendur yfir til 15. ágúst en umsóknarfrestur fyrir vorönn er til 16. september nk. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Verzlunarskólans, Ofanleiti 1. Kennslustjórinn verður til viðtals á skrifstofu skólans fyrir hádegi meðan innritun stend- ur yfir og í síma 688400. TÖLVUHÁSKÓLI V.í.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.