Morgunblaðið - 05.08.1988, Side 21

Morgunblaðið - 05.08.1988, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988 21 baksýn. ert botnað í þessum mannverum sem lögðu undir sig yfirráðasvæði þeirra. En nú var yngsta kynslóðin farin að verða hvíldar þurfí, sem eðlilegt var. Ekki voru þó allir búnir með orkuskammt dagsins, því flestir þáðu boð húsmóðurinnar í gamla bænum, sem búið var að gera svo ósköp notalegan með nýrri eldavél og hvítri og blárri málningu á rétt- um stöðum. Það var sem sé farið í stofuna og dansað af krafti fram á nótt, og eldra fólkið sagði að þetta hefði einmitt verið gert fyrir 50 árum, en þá var húsið nýbyggt og ekki búið að stúka sundur í her- bergi. En þá voru líka 100 manns á staðnum, en 50 nú, svo þetta var allt í besta lagi. Hátíðahöld í tilefni 50 ára af- mælis sundlaugarinnar stóðu því í 12 tíma samfellt, og hefðu áreiðan- lega ekki tekist betur, þó nær hefði verið hinni svokölluðu menningu. Þama var fólk sem kunni þá list að skemmta sér af lífi og sál án þess að þurfa til þess neina vímu- gjafa, sem þykja oftast, illu heilli, ómissandi. Væri óskandi að sem flestir ættu þess kost að kynnast því, hvemig er hægt að auðga líf sitt með heilbrigðum skemmtunum, sem skilja eftir minningar sem geymast um aldur og ævi. Það er a.m.k. víst að allir þeir sem þarna fóru, fóru til síns heima, ríkir af góðum og glöðum minning- um. Minningum um afreksverk sem unnið var fyrir 50 ámm, minningum um hlýjar móttökur og vináttu heimamanna. Og minningum um ógleymanlegan viðburðaríkan og framúrskarandi skemmtilegan dag. Höfundur er fædd i Reykjarfirði, en ernú skrifstofumaður á ísafirði. kaffiveislu á heimili Ragnars og Sjafnar, og þar var nú ekki ætlast til að menn færu svangir frá borði, enda húsmóðirin rómuð fyrir gest- risni, og sérlega gómsæta rétti bara dags-daglega. Borðin svignuðu undan flatkökum og fínu brauði, ilminn lagði um húsið af nýbökuð- um tertum, og brátt sátu allir og dæstu af vellíðan. Síðan varð auð- vitað að reyna að hjálpa til við að melta þetta, með því að fara aftur út, og nú var farið í leiki á gras- flötinni fyrir utan húsið, og þar var ekkert kynslóðabil, allir tóku þátt í leikjunum. En einmitt þegar meltingarfærin voru um það bil að sigra í barátt- unni við allt sem var innan þeirra vébanda, er þá ekki klukkan orðin sjö og boðið til kvöldverðar á sama stað. Og enginn stóðst mátið, því hváð gerir maður ekki þegar svið, hangikjöt og grillaðir kjúklingar eru annars vegar. Um kvöldið var kveiktur varðeld- ur á Sandinum og þá var sungið og dansað í heila 2 tíma og aldrei blásið úr nös. Það mátti heita að heil hljómsveit léki undir þó ekki ætti hún margra vikna æfingar að baki, því sumir höfðu aldrei sést áður, en það gerði ekkert til, söng- og danslög bókstaflega spruttu undan fingrum þeirra Einars Hreinssonar, Lovísu fararstjóra og Hermanns Þórs. Kríurnar og aðrar fuglategundir lögðu líka sitt af mörkum, þó þær hafí annars ekk- (loayt TVÖFALT OG ÞREFALT SÓLARPLAST FYRIR GRÓÐURHÚS OG SÓLSKÁLA GÓÐEINANGRUN v !Mífl|L ereinfalt í uppsetningu með álprófilum. dCKIl|t erúrAcryl plastgleri sem hefur meira veðrunarþol en önnur plastefni. H Háborg hf Skútuvogi 4 S: 82140 & 680380. Ekki án feröatryggingar Ekkert fær raskað ró þinni á ferðalaginu ef þú ert með Ferðatryggingu SJÓVÁ upp á vasann. Farðu því ekkert án Ferðatryggingar SJÓVÁ. Hún sameinar allar tryggingar sem ferðamenn þurfa á að halda: Ferðaslysatryggingu, ferðasjúkratryggingu, farangurstryggingu, ferðarofstryggingu og SOS neyðarþjónustu. Þú getur keypt þér trygginguna um leið og þú sækir gjaldeyrinn því Ferðatrygging SJÓVÁ fæst líka á öllum afgreiðslustöðum Landsbanka Islands. Tryggingarfélag í einu og öllu. Sjóvátryggingarfélag Islands hf., Suðurlandsbraut 4, sími (91)-692500.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.