Morgunblaðið - 05.08.1988, Síða 24

Morgunblaðið - 05.08.1988, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988 Bretland: Líffæri úr svín- um grædd í menn? St.Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. HÓPUR lækna við Dulwich- sjúkrahúsið i London hyggst gera tilraunir með að græða iíffæri úr svínum í menn. Ymsir talsmenn dýraverndunarsam- taka hafa mótmælt þessum fyr- irætlunum. Bresku læknasam- tökin ætla að setja reglur um notkun líffæra úr dýrum. Skurð- læknirinn sem upplýsti fjölmiðla um málið hefur sagt sig úr rann- sóknarhópnum vegna óánægju samstarfsmanna sinna. í frétt The Sunday Times síðast- liðinn sunnudag kemur fram að tilraunir með að græða nýru úr svínum í fé hefjast í september og munu standa í sex mánuði. Ef sú tilraun gengur vel munu tilraunir heijast með menn. Nú þegar hefur vísindamönnum í þessum hóp tek- ist að sýna fram á að nýra úr svíni starfar vel með mannsblóði. Michael Bewick, einn af fremstu skurðlæknum Breta, sagði að tækjust þessar tilraunir, leysti það mikinn vanda, því að mikill skortur væri á líffærum. Hann sagði einn- ig að svín væru sérstaklega vel til þess fallin að ljá mönnum líffæri, því að þau væru eins konar „lárétt- ir menn“: 100 kílóa svín hefði nýru, sem hæfðu 100 kflóa manni. Aðalerfiðleikamir við að græða líffæri úr öðrum tegundum í menn eru þeir að líkaminn hafnar þeim. Læknunum við Dulwich-sjúkra- húsið hefur tekist að þróa síu, sem hreinsar þau efni úr blóðinu, sem stjóma þessum viðbrögðum. Þeir telja einnig að þeir hafi náð tökum á þeim vanda að fmmur í svínslíffærinu hafna nýjum líkama. Michael Bewick segir að sig skipti ekki miklu máli hvort hann skeri upp svín eða mann, en hann eigi hins vegar eftir að telja skurð- hjúkrunarkonumar á að hleypa svíni inn á skurðstofuna. Læknamir hafa fengið leyfí hjá siðanefnd sjúkrahússins til þessara tilrauna og eru nú að sækja um leyfi til innanríkisráðuneytisins. Ef menn á annað borð telja rétt að neyta svína virðast engar skyn- samlegar siðrænar ástæður mæla á móti þessum tilraunum. Ýmis dýravemdunarsamtök hafa mótmælt þessum tilraunum á þeim forsendum að það að ala svín sem líffærabanka væri nær hryll- ingssögu en læknavísindum. Ekki er talið að stjómmálamenn geti gert sér mat úr þessu máli þar sem dýr séu almennt nýtt í tilraunir að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Á mánudag síðastliðinn sagði Michael Bewick sig úr rannsóknar- hópnum vegna óánægju sam- starfsmanna sinna sakir þess að hann hafði ekki ráðfært sig við þá um ummæli sín við fjölmiðla fyrir- fram. Ýmsir aðrir hafa einnig látið í ljósi ótta um að þessar fréttir dragi úr því að fólk gefí líffæri sín. Einnig hafa aðrir læknar látið í ljósi efasemdir um að ígræðsla líffæra úr svínum geti orðið varan- leg og það sé fráleitt að ætla að slík ígræðsla geti hafíst á næsta ári. Þumall íyfirstærð Vegfarandi í Seoul virðir fyrir sér bronzþumal í yfirstærð, sem koma á fyrir i Ólympiugarðinum í suðurhluta borgarinnar. Höggmyndin, sem heitir „Þumallinn“ og er eftir franska höggmyndasmið- inn Cesar, er meðal fjölda listaverka sem verða til sýnis á meðan Ólympíuleikunum i Seoul stendur. Framlög til landvarna: Reagan forseti gegn til- lögum Bandaríkjaþings Demókratar segja ákvörðunina tilraun til að kasta rýrð á þá Wookínfftnn Pnnlnr ** * Washington. Reuter. TALIÐ er að sú ákvörðun Reagans Bandaríkjaforseta að beita neitunarvaldi sínu gegn tillögum meirihluta demókrata í báðum deildum þingsins um framlög til landvarna geti leitt til nýrra átaka milli forsetans og þingsins. Þingið lækkaði ekki niðurstöðutölur þær sem áður hafði náðst samkomulag um milli stjórnarinnar og þingsins, tæplega 300 milljarða Bandaríkjadala, en breytti hins vegar skiptingu fjárins til hinna ýmsu verkefna, m.a. var framlag til geimvarnaáætlunarinnar lækkað. Frammámenn demókrata segja að forsetinn sé með ákvörðun sinni að reyna að gefa Ge- orge Bush, forsetaframbjóðanda repúblikana, vopn í hendur í kosningabaráttunni; markmiðið sé að fá kjósendur til að draga vilja demókrata til að halda uppi nauðsynlegum vörnum i efa. „Ég hef auðsýnt þolinmæði þeg- og forsetanum skipað að fara að ar vinstrisinnar í þinginu hafa reynt að skaða vamarmátt okkar, þann vamarmátt sem verið hefur grundvöllur árangurs okkar í al- þjóðastjómmálum, en þolinmæði mín er á þrotum. Þessar tillögur myndu merkja einhliða eftirgjöf gagnvart Sovétmönnum. Þær yrðu hættulegt fordæmi þess að binda hendur forsetans í komandi af- vopnunarviðræðum," sagði forset- inn á fréttamannafundi á miðviku- dag er hann skýrði frá ákvörðun sinni. í tillögum þingsins er framlag til geimvamaáætlunarinnar og MX-kjamaflauganna, sem koma á fyrir á jámbrautarvögnum, minnkað úr 4,9 milljörðum Banda- ríkjadala í 4,1 milljarð. Aukið er framlag til Midgetman-flauganna vissum ákvæðum samnings risa- veldanna frá 1979 um takmörkun kjamavígbúnaðar (SALT 2). Einn- ig verður hann að hlíta hinni svo- nefndu „þröngu túlkun“ á ákvæð- um gagnflaugasamningsins frá 1972 um bann við vopnatilraunum í geimnum. Séu tveir þriðju hlutar þingmanna í hvorri þingdeild sam- mála geta þeir hrundið neitunar- valdi forsetans en við atkvæða- greiðslu um tillöguna náðist sá meirihluti aðeins í öldungadeild- inni. Einn þingmanna demókrata, Alan Cranston, sagði að ætlun Reagans væri að gefa George Bush, varaforseta, vopn í hendur með því að koma af stað umræðu um lítinn vamarvilja demókrata. „Það sem helst veldur áhyggjum ingabaráttu Bush,“ sagði Crans- ton. Formaður vamarmálanefndar öldungadeildarinnar, demókratinn Sam Nunn, lét svipaðar skoðanir í ljós á þriðjudag en þá var kom- inn á kreik orðrómur um ákvörðun Reagans forseta. George Bush sagðist á miðvikudag eindregið styðja forsetann í málinu. Reuter Reagan forseti sést hér skiptast á gamnyrðum við fréttamenn á fundi i Hvíta húsinu á miðviku- dag. Þar skýrði hann frá því að hann hygðist beita neitunarvaldi sínu gegn tillögum þingsins um framlög til landvarna. ... er að þegar íjallað er um við- kvæm og vandasöm mál er snerta vamir landsins reynist Hvíta húsið vera orðið að aðalstöðvum kosn- Bílslys í Ástralíu: Systrum dæmdar 100 milljónir í skaðabætur Kröfu tryggingafélags um meðábyrgð stúlkn- anna, sem voru ekki í öryggisbeltum, synjað. HÆSTIRÉTTUR Ástralíu dæmdi i gær tveimur banda- rískum stúlkum skaðabætur að upphæð 2,8 milljónir ástr- alskra dollara, eða jafnvirði 102 milljóna islenzkra króna, vegna bUslyss. Stúlkurnar stórslösuðust og misstu for- eldra sína i bilslysinu. Bandariska fjölskyldan var á ferðalagi í New South Wales í Ástralíu sumarið 1984 og lenti í árekstri við bfl, sem ekið var á móti á röngum vegarhelm- ingi. Móðir stúlknanna ók bflnum og lét lífið samstundis en faðir þeirra, sem komst aldr- ei til meðvitundar, dó af völdum meiðsla sinna tveimur árum eft- ir áreksturinn. Bílstjóri bifreið- arinnar, sem árekstrinum olli, beið einnig bana. Systumar eru nú 13 og 18 ára. Sú eldri lamaðist fyrir neð- an mitti en sú yngri mjaðmar- grindarbrotnaði og skarst mikið í andliti og á höfði svo að taka varð 150 spor til að loka sáran- um. Dómarinn, sem kvað upp úr- skurðinn, neitaði að taka til greina kröfu tryggingafélags bifreiðarinnar, sem árekstrinum olli, um að stúlkumar bæra að hluta til ábyrgð á 'meiðslum sínum þar sem þær hefðu ekki verið í öryggisbeltum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.