Morgunblaðið - 05.08.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988
27
Yfirheyrslurr í Carlssons-málinu:
Leijon skellir skuldinni
á yfirmann lögreglunnar
Stokkhólmi. Reuter og Erík Liden, fréttarítari Morgunblaðsins.
VIÐ yfirheyrslur rannsóknarnefndar sænska þingsins i Ebbe Carls-
sons-málinu i gær var Anna Greta-Leijon, fyrrum dómsmálaráð-
herra, yfirheyrð í sex stundir. Leijon leyfði í embættistíð sinni að
bókaútgefandinn Ebbe Carlsson hæfi sjálfstæða rannsókn á morði
Olofs Palmes, forsætisráðherra Svíþjóðar, í febrúar 1986. Leijon var
þvinguð til að segja af sér embætti fyrir tveim mánuðum vegna
afskipta sinna af málinu. Ráðherrann fyrrverandi sagði að yfirmað-
ur sænsku ríkislögreglunnar, Nils-Erik Áhmansson, bæri ábyrgð á
athæfi Carlssons.
Ne Win, fyrrverandi formaður sósíalistaflokksins í Burma, ög Sein
Lwin, núverandi formaður flokksins.
Burma:
Herlögum mót-
mælt í Rangoon
Bangkok. Reuter.
„Það var ekki ég heldur yfirmað-
ur ríkislögreglunnar sem hafði sam-
band við Carlsson. Mitt hlutverk
var ekki að meta gildi þeirra upplýs-
inga sem Carlsson hafði aflað. Ah-
mansson átti að annast það,“ sagði
Anna-Greta Leijon. Hún viður-
kenndi þó að það hefðu verið mis-
tök að hún skyldi rita meðmælabréf
handa Carlsson til að auðvelda hon-
um að fá upplýsingar _hjá bresku
leyniþjónustunni, MI6. í bréfínu er
ítrekað að Carlsson starfí fyrir
sænska dómsmálaráðuneytið. Lei-
jon sagði að Carlsson hefði komist
á hnotskóg um samsæri um að
myrða annan sænskan stjómmála-
mann.
Þingnefndin reynir að grafast
fyrir um það hver hafí gefíð fyrir-
mæli um að ólöglegum hlustunar-
tækjum yrði smyglað inn í landið
af Carlsson. Áhmansson og Sune
Sandström, yfirmaður öryggislög-
reglunnar, Sápo, eru taldir hafa um
fímm mánaða skeið skipulagt ólög-
legt eftirlit með kúrdískum stjórn-
málasamtökum, PKK. Lögfræðing-
ar í Svíþjóð telja nú margir að
málið geti leitt til afsagnar Áh-
manssons.
Á miðvikudag kom fram að
kvöldið sem forsætisráðherrann var
myrtur fór hann ekki eftir þeim
reglum sem hann hafði samið um
Bandaríkin:
Ekkert lát
á skógar-
eldunum
Chicago. Reuter.
Á MEÐAN steikjandi hiti er í aust-
urhluta Bandaríkjanna halda
slökkviliðsmenn f vesturhluta
landsins áfram að beijast við
skógarelda sem þegar hafa farið
yfir þúsundir hektara af landi.
Þar af hafa 50.000 hektarar i
Yellowstone-þjóðgarðinum í Wy-.
oming orðið eldinum að bráð.
Talið er að eldarnir hafi enn ekki
náð hámarki sfnu.
Að sögn. Amolds Harigans, tals-
manns eldvamaeftirlitsins í landinu,
hefur verið tilkynnt um 45% fleiri
elda í ár en í fyrra. Ellefu þúsund
slökkviliðsmenn hafa verið kallaðir
út til að vinna bug á þeim.
„Það sem við raunverulega þurf-
um núna er rigning og síðan langur,
kaldur og votur vetur, snjóavetur,"
er haft efír Harigan í vikunni.„ Lítil
snjókoma síðastliðinn vetur gerði það
að verkum að skógamir vom sérstak-
lega þurrir í sumar.“
Nú hefur að nýju borið á þurrkum
í austurhluta Bandaríkjanna en eins
og kunnugt er ollu þeir miklu tjóni
fyrr í sumar. Bændumir eiga þó von
á nokkmm sárabótum því að í síðustu
viku samþykkti Bandaríkjaþing að
veita þeim aðstoð. Fmmvarp um
stuðning til bændanna hefur þó ekki
verið endanlega afgreitt í þinginu
því að deildir þingsins eiga enn eftir
að koma sér saman um hvemig haga
beri stuðningi við kjötframleiðendur
auk þess sem enn á eftir að ákveða
hvort verð á mjólk verði hækkað.
Búist er við að frumvarpið verði end-
anlega afgreitt frá þinginu í næstu
viku.
Talið er að stuðningur til bænd-
anna muni nema á milli 4,3 og 5,3
milljörðum dala (198-244 miljörðum
íslenskra króna).
við sænsku öryggislögregluna,
Sápo. Fyirum yfirmaður lögregl-
unnar, Sven-Áke Hjelmroth, sagði
að Palme hefði lofað að hringja til
lífvarðanna ef hann færi úr íbúð '•
sinni í miðborg Stokkhólms. Um
kvöldið fór hann í kvikmyndahús
með konu sinni, án þess að hringja,
og var skotinn til bana af óþekktum
tilræðismanni.
Hjelmroth staðfesti orðróm þess
efnis að Palme hefði verið illa við
að vera undir eftirliti lífvarða, hvort
sem hann var í Svíþjóð eða erlendis.
Hjelmroth og Holger Romander,
fyrrum yfírmaður ríkislögreglunn-
ar, vísuðu á bug fullyrðingum Ebbe
Carlssons um að lögreglunni hefðu
borist morðhótanir í garð forsætis-
ráðherrans. Carlsson segist hafa
rætt hótanimar í síma við Hjelm-
roth.
„Eg nota aldrei venjulegan síma
til að ræða mál af þessu tagi," sagði
Hjelmroth við yfirheyrslumar.
Hann sagði að ekki hefðu borist
neinar hótanir sem réttlættu aukna
varðgæslu til handa Palme.
Áhmansson kom fyrir rannsókn-
arnefndina í annað sinn í gær, í
þetta skipti að eigin ósk,- Sagði
hann fyrri yfírheyrsluna ekki hafa
varpað nógu skím ljósi á gerðir sín-
ar í máli Ebbe Carlssons. Áhmans-
son var sveittur og leið greinilega
ekki vel í skjannabirtu sjónvarps-
lampanna er hann svaraði hvössurfi
spumingum nefndarmanna. Hann
neitaði harðlega ásökunum þess
efnis að Ebbe Carlsson hefði hann
í vasanum og flutti langa og ítar-
lega vamarræðu fyrir sjálfan sig
sem hann lauk með því að vitna til
þess mikla álits er hann hefði notið
sem lögréglustjóri í Málmey. Hins
vegar virtist hann ekki geta gefið
nefndinni neinar gagnlegar upplýs-
ingar um athafnir Carlssons.
ÞTJSUNDIR manna söfnuðust
saman í Rangoon, höfuðborg
Burma, í gær til að mótmæla
herlögum sem Sein Lwin, hinni
nýi leiðtogi Burma, lýsti yfir á
þriðjudag. Hermenn hleyptu af
viðvörunarskotum til að dreifa
mannfjöldanum. Ekki er ljóst
hvort einhver slasaðist.
Fólk safnaðist saman í Rangoon
og. mestur mannfjöldi, um það bil
10.000 manns, kom saman um-
hverfis pagóðu sem staðsett er í
miðri borginni. Fljótlega birtust 25
jeppar, hlaðnir hermönnum, á svæð-
ið og dreifðu hermennimir mann-
fjöldanum með því að skjóta upp í
loftið.
Hermenn hafa verið á ferli í mið-
borg Rangoon frá því á þriðjudag
þegar Sein Lwin, sem fyrir tíu dög-
um tók við formennsku sósíalista-
flokksins í Burma, lýsti yfír herlög-
um í landinu. Hermenn standa vörð
við allar helstu byggingar í borg-
inni.
Að sögn íbúa í Rangoon hefur
útgöngubanni ekki verið lýst yfír í
borginni og skólar eru enn opnir.
Undanfama mánuði hafa hundruð
manna fallið í átökum við lögreglu-
menn sem bælt hafa niður mót-
mælaaðgerðir stúdenta og annarra
andófsmanna af mikilli grimmd.
Um síðustu helgi voru nokkrir for-
ystumenn andófsmanna, þ.á m.
nokkrir fyrrverandi sendiherrar,
hnepptir í varðhald.
Brugðið á leik
Reuter
Malasiski slöngusafnarinn hér að ofan segist að
minnsta kosti eyða tveimur tímum á dag í að leika
sér við slöngurnar sinar. Þetta segir hann að sé
nauðsynlegt til þess að þær viti hver er húsbóndinn!
Virtur sérfræðingur ritar grein í sovéskt vikurit:
Samyrkjubúskapur Stalíns
leiddí hörmungar yfir þjóðina
Vikið að hörmungunum og hungursneyðinni í Úkraínu 1932-1933
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKUR landbúnaðarsér-
fræðingur segir í grein sem
birtist í nýjasta hefti tímarits-
ins Liieratúmaja Gazeta að
samyrkjubúskapur, sem Jósef
Stalín þröngvaði upp á þjóðina,
hafi lagt landbúnað í Sovétríkj-
unum i rúst og leitt matvælas-
kort yfir þjóðina. 15 milljónir
manna hafi misst heimili sín,
þar af hafi ein milljón verið
send i þrælkunarbúðir en 12
milljónir manna hafi verið
fluttar til Síberíu. Athygli vek-
ur að greinarhöfundur minnist
á hungursneyðina í Úkraínu á
árunum 1932-1933, sem talið
er að hafi kostað milljónir
manna lífið.
í grein sinni segir Vladímír
Tíkhonv að smábændur hafí þurft
að færa miklar fómir er Stalín
innleiddi samyrkjubúskap í Sov-
étríkjunum á árunum 1929-1933.
„Smábóndinn var sviptur landi
sínu og fékk engu að ráða um
hvemig framleiðslu hans var ráð-
stafað. Hann hætti að vera eigin
herra og varð þess í stað að verk-
færi sem framkvæmdi skipanir".
Thíkonov getur þess að hung-
ursneyðin 1932-1933 hafi kostað
milljónir manna lífið í Ukraínu og
í Norður-Kákasus. Smábændur
hafi dáið „í kyrrþey“ er hermenn
neyddu þá til að afhenda upp-
skeru sína. Hingað til hefur ekki
verið fjallað á svo opinskáan hátt
um hörmungarnar í Úkraínu en
talið er að allt að sjö milljónir
manna hafí týnt lífí þar á þessu
tímabili. Thíkonov, sem á sæti í
Vísindaakademíu Sovétríkjanna,
getur þess sérstaklega að
Vladímír Lenín hafi ákveðið árið
1921 að afhenda smábændum
aftur ríkisjarðir eftir að hafa gert
sér ljóst að afskipti ríkisvaldsins
væm ekki til þess fallin að auka
landbúnaðarframleiðslu. Enda
hafí framleiðslan aukist strax í
kjölfar þessa, íbúar í hinum ýmsu
borgum hafi ekki lengur þurft að
líða skort og unnt hafi reynst að
he§a útflutning á landbúnaðaraf-
urðum. Stalín hafi hins vegar
ákveðið að innleiða samyrkjubú-
skap árið 1928. Það hafi verið
pólitísk ákvörðun og margir ráða-
menn innan kommúnistaflokksins
hafi lagst gegn henni. Margir
þessara manna voru leiddir fyrir
aftökusveitir, að sögn Tíkonovs.
Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovét-
leiðtogi hefur hingað til haldið því
fram að samyrkjubúskapur hafi
reynst vel í Sovétríkjunum og
harðlínumenn í kommúnista-
flokknum eru almennt þessarar
skoðunar. Gorbatsjov virðist hins
vegar hafa skipt um skoðun ef
marka má ummæli hans á mið-
stjómarfundi sovéska kommúni-
staflokksins um síðustu helgi þar
sem hann hvatti til þess að smá-
bændum yrðu fengnar ríkisjarðir
á leigu í því skyni að uppræta
skort á nauðsynjavörum og auka
frumkvæði í röðum bænda.