Morgunblaðið - 05.08.1988, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988
31
Norræna kvennaþingið í Osló:
Heimur karlmannsms er deyj-
andi og komið til kasta kvenna
- segir Helen Caldicott stofnandi samtaka lækna gegn kjamorkuvá
Osló, frá Þórunni Þórsdóttur, blaðamanni
NÚ ÞEGAR sígnr á seinni hluta
norræna kvennaþingsins í Osló
mun óhætt að segja að fyrir-
lestrar erlendra gesta séu með-
al þess sem vakið hefur hvað
mesta athygli. Rætt var stutt-
lega við ástralska barnalækninn
og baráttukonuna Helen Caldic-
ott sem stofnaði samtök lækna
gegn kjarnorkuvá og talaði hér
í Osló í vikunni.
Helen Caldicott hefur barist
gegn kjarnavopnum frá því hún
var læknanemi í Ástralíu og átti
hún frumkvæði að stofnun sam-
taka lækna gegn kjamorkuvá
1978 og var formaður þeirra til
1983. Hún segir að þá hafi sér
verið bolað frá og síðan hafi sam-
tökin orðið að þunglamalegu
pappírsbákni sem lítið gagn sé í.
Hún héfur nú hætt störfum sem
bamalæknir við Harvardháskóla
og einbeitir sér að baráttunni gegn
kjamorkuvopnum. Caldicott segir
að kjamorkustríð sé ekki fyrst og
fremst stjómmálalegur, efnahags-
legur eða tæknilegur vandi heldur
læknisfræðilegur.
„Ég vil segja frá læknisfræði-
legum áhrifum kjarnorkustríðs,"
segir Caldicott. „Nú em til 63.000
vetnissprengjur í heiminum og
þótt aðeins 1.000 væm sprengdar
myndi að líkindum ganga í garð
kjarnorkuvetur og þorri lífs á jörð-
inni slokkna. í Bandaríkjunum ein-
um em framleiddar fimm nýjar
atómbombur á hverjum degi, Bret-
land og Frakkland bæta stöðugt
við sprengjuforðann, Pakistan,
Suður-Kórea, Brasilía, Argentína
og Suður-Afríka em um það bil
að heija atómvopnaframleiðslu og
ísrael á nú þegar 200 bombur.
Það kaldhæðnislega er að kjarn-
orkustyijöld gæti hafist hvenær
sem er. Fyrir tæknimistök, vegna
þess einfaldlega að tölvur geta
bmgðist. Við viljum ekki horfast
í augu við þennan vemleika, það
er óþægilegt og við höfum næstum
sjúklega þörf fyrir þægindi. Hins
vegar hræðast flest börn kjam-
orkustríð og óttast að ná aldrei
fullorðinsaldri. Þau beita sig ekki
sömu sjálfssefjun og foreldrarnir.
Annað dæmi um hættuna sem
felst í þægindasýki nútímamanna
er að við keppumst við að eyða
ósonlaginu og reynum að hugsa
ekki um áhrifin; ónýta uppskem,
blindu manna og skepna og húð-
krabbamein. Það er alveg ljóst að
ef við horfumst ekki í augu við
þessar staðreyndir og breytum
þeim mun heimurinn deyja.
Mér er önnur staðreynd, sem
ekki er heldur óumbreytanleg, of-
arlega í huga: Konur hafa engin
völd. Undantekningin er líklega
norrænar konur. En konur em
Hanna María Karlsdóttir og Sigurður Karlsson i hlutverkum sínum
í leikþætti sem Ásdís Skúladóttir tók saman og hún nefnir „Undar-
leg ósköp að vera kona“.
Konur og völd
Staða kvenna í fjölmiðlaheiminum
„KONUR og völd“ er efni sem
rætt hefur verið daglega á nor-
rænu kvennaþingi í Osló. Sam-
tök kvenréttindafélaga á Norð-
urlöndum standa að fundaröð-
inni og hefur eitt land annast
framkvæmd hvers fundar.
Kvenréttindafélag íslands
skipulagði þriðjudagsfundinn,
en þá var Ragnheiður Harðar-
dóttir, fulltrúi Jafnréttisráðs,
frummælandi og ræddi um kon-
ur og völd í fjölmiðlum.
Ragnheiður fjallaði annars veg-
ar um völd kvenna í fjölrmðlum
út frá hvaða störfum þær gegndu
þar og hins vegar hvemig konur
birtast í efni fjölmiðlanna. Ræddi
hún meðal annars um könnun á
stöðu kvenna innan íslenska
Ríkisútvarpsins, rannsókn frá
kanadíska ríkisútvarpinu og at-
hugun Sigrúnar Stefánsdóttur á
hlut kvenna í sjónvarpsfréttum.
Ragnheiður nefndi ýmsa þrösk-
ulda á vegi kvenna í fjölmiðlaheim-
inum. Hindranir er felist til að
mynda í að karlar sem taka
ákvarðanir um stöðuhækkanir hafi
úreltar hugmyndir um konur al-
mennt og hæfni þeirra. Konum
væri skammtað þröngt starfssvið,
framavonir þeirra væru litlar,
einkanlega ef þær væm giftar.
Tekjur kvenna væru lægri en karla
og starfsþjálfun minni. Um ímynd
kvenna í sjónvarpi væri ljóst að
konur sæjust þar fremur vegna
útlits en frétta. Sagði Ragnheiður
Svía hafa lögfest að sjónvarp og
útvarp ættu í fréttaflutningi að
virða jafnrétti, veita konum og
körlum jafnmikla athygli.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 4. ágúst.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 38,00 35,00 35,89 56,154 2.015.338
Ufsi 17,00 13,00 16,21 0,704 11.415
Undirmál 13,00 13,00 . 13,00 0,048 0,624
Samtals 35,63 56,906 2.027.377
Selt var úr Jóni Vídalin. ( dag verða seld 5-10 tonn af blönduð-
um afla úr ýmsum bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 37,00 33,50 34,74 210,379 7.309.387
Ýsa 100,00 58,00 93,01 4,610 428.797
Karfi 26,00 15,00 21,55 1,389 29.934
Ufsi 18,50 17,50 18,15 27,368 496.856
Steinbítur 23,00 23,00 23,00 0,013 299
Hlýri 21,00 19,00 19,87 2,746 54.548
Lúöa(stór) 180,00 180,00 180,00 0,054 9.720
Lúða(smá) 160,00 160,00 160,00 0,060 9.600
Skarkoli 35,00 35,00 35,00 0,085 2.975
Samtals 33,81 246,704 8.342.115
Selt var úr Vigra RE og Jóni Baldvinssyni RE. I dag verða seld
20 tonn af þorski úr Jóni Baldvinssyni.
Grænmetlsverð á uppboðsmörkuðum 4. ágúst.
SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA
Gúrkur 76,43 2,855 218.220
Sveppir 415,09 0,416 172.676
Tómatar 112,97 6,204 700.872
Paprika(græn) 271,43 0,940 255.140
Paprika(rauð) 340,25 0,400 136.100
Paprika(gul) 403,00 0,090 36.270
Paprika(blá) 325,00 0,020 6.500
Gulrætur(pk) 170,59 2,510 428.170
Gulrætur 160,51 0,370 59.390
Blómkál 180,66 2,800 505.841
Kínakál 140,53 2,718 381.954
Rófur 141,17 4,750 670.575
Hvítkál 84,06 6,440 541.320
Sellerí 175,13 ' 0,200 35.025
Annað 269.433
Samtals 4.417.466
„Undarleg ósköp“
flutt í gærkvöldi
Osló, frá Þórunni Þórsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
53% jarðarbúa, vinna tvo þriðju
hluta starfa heimsins fyrir 10%
launa sem fást, eiga 1% eigna, öll
bömin og hafa engin völd. Þessu
verður að breyta. Helmingur allra
starfa — einnig stjómunarstarfa —
innan fyrirtækja, stofnana og fjöl-
miðla þarf að vera unninn af kon-
um. Við höfum ekki mikinn tíma,
heimur karlmannsins er deyjandi
og komið til kasta kvenna.“
Þegar hér var komið leit Caldi-
cott rannsakandi á blaðamann og
sagði: „Sumir halda að þetta séu
aðeins stór, innihaldslaus orð.
Auðvitað er það rangt, reið kona
er óstöðvandi. Það er nafn bókar
sem ég ætla að skrifa um sjálfa
mig næsta ár handa konum sem
halda að heimurinn verði að fá að
deyja í friði, konur geti engu breytt
og ekkert geti breytt stöðu
kvenna.“
FRAMLAG Bandalags kvenna í
Reykjavík til norræna kvenna-
þingsins heitir „Uiidarleg ósköp
að vera kona“. Um er að ræða
dagskrá þar sem spaklegur texti
víðsvegar að tengir saman atriði
úr nokkrum leikritum. Undarleg
ósköp voru sýnd í Osló í gær-
kvöldi og gerður góður rómur
að._
Ásdís Skúladóttir tók dagskrána
saman, safnaði í og samdi milli-
texta og stjómaði flutningi. Leik-
endur atriðanna voru þau Hanna
María Karlsdóttir og Sigurður
Karlsson en Hanna María söng að
auki tvö lög.
Textinn er tengir saman atriðin
er tekinn úr Biblíunni, íslandssög-
unni, stjómmálasögunni, kirkjusög-
unni og bókmenntasögunni. I hon-
um em líka gullkom ýmissa ágætra
manna um konur og hlutverk
þeirra. I Undarlegum ósköpum eru
leikin atriði úr Reykjavíkursögum
Ástu Sigurðardóttur í leikgerð
Helgu Bachman, Guðrúnu Ósvífurs-
dóttur eftir Þómnni Sigurðardóttur,
Blýhólknum eftir Svövu Jakobs-
dóttur, Jóa eftir Kjartan Ragnars-
son og Saumastofunni eftir sama
höfund.
ll
i 1
1
'
n'\s
v mm \ 1
Morgunblaðið/Ót. K. Magnússon
Iðnnemar brjóta múrana
FJÓRAR íslenskar stúlkur sem taka þátt í sam-
norræna verkefninu „Brjótum múrana“ eru
staddar á kvennaþinginu í Osló. Þær eru Elín
H. Gísladóttir húsgagnasmíðanemi frá Akur-
eyri, Kristín Sigurgeirsdóttir smíðalærlingur
frá Ólafsfirði, Kristín Petra Guðmundsdóttir
gullsmiður frá Akureyri og Hanna Siguijóns-
dóttir rafeindavirkjunarnemi frá Vopnafirði.
„Bijótum múrana" er fjögurra ára langt
verkefni á vegum norrænu ráðherranefndar-
innar. Það er jafnréttisverkefni sem byggist á
því að konur, ekki síst ungar konur sæki inn
í hefðbundin karlastörf. Markmiðið er að auka
fjölbreytni, bæta menntun kvenna og tryggja
þeim atvinnu. Hér á norrænu kvennaþingi
vekja umræður og sýningar í tengslum við
verkefnið „Brjótum múrana" talsverða at-
hygli. Verkefnisfreyja, en svo er formaður
þess nefndur, er Drude Dahlerup frá Dan-
mörku sem skrifaði bókina „Blomster og
spark“ með viðtölum við stjórnmálakonur á
Norðurlöndum.