Morgunblaðið - 05.08.1988, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988
Fjárhús brennt til grunna
Mikinn reyk lagði yfir Akureyrarbæ kvöld eitt
í vikunni og hélt margur Akureyringurinn að
um stórbruna væri að ræða. Þegar betur var
að gáð stóðu tveir brunaliðar fyrir íkveikju á
vegum bæjarins í gömlu fjárhúsi við Klettaborg-
ir, skammt hjá vistheimilinu Sólborg. Verið var
að rýma fyrir nýrri götu, sem liggja mun á þess-
um slóðum og stóðu gömlu fjárhúsin í vegi fyr-
ir væntanlegri gatnagerð. Múgur og margmenni
dreif að enda fuðraði vel í kofanum og var
myndin tekin skömmu eftir að eldur hafði verið
borinn að húsunum.
Stefán bóndi á Siglunesi:
Leggur veg út í Siglu-
nes á eigin kostnað
STEFÁN Einarsson, bóndi á
Siglunesi, fékk nýlega heimild
bæjarstjórnar Siglufjarðar til að
leggja veg út í Siglunes, en það
hyggst Stefán gera á eigin kostn-
að. Bæjarstjórnin samþykkti
vegagerðina með fimm atkvæð-
„A heima-
slóðum“
í sumarfrí
ÞÁTTUR Eyfirska sjón-
varpsfélagsins „Á heimaslóð-
um“, sem sendur hefur verið
út vikulega á fimmtudags-
kvöldum, er nú 'kominn í
sumarfrí. Þátturinn hefur
verið sendur út reglulega í
hálft annað ár og er áformað
að fara af stað aftur með
haustinu.
Að sögn Bjama Haíþórs
Helgasonar sjónvarpsstjóra
verður norðlenskt efni sent út
í vetur, eins og áður, en vænt-
anlega með breyttu formi.
Bjami sagði að eyfirskir aug-
lýsendur gætu eftir sem áður
nýtt sér þjónustu Sjónvarps
Akureyrar þar sem auglýsingar
á þess vegum yrðu fyrst um
sinn sendar út á undan frétta- ■
þætti Stöðvar 2, 19:19, á
fimmtudagskvöldum.
um gegn fjórum. Hingað til hefúr
Stefán og fjölskylda hans ferðast
á gúmbátum á milli. Liðið er
hálft annað ár frá því að Stefán
sótti fyrst um leyfi fyrir vegar-
lagningunni og hefur mál þetta
„þvælst í kerfinu" siðan, að sögn
Stefáns. Með samþykkt bæjar-
stjómarinnar er þó ekki allt
fengið, því nú þarf Stefán að fá
„grænt ljós“ frá Skipulagsstjórn
ríkisins og síðast samþykki fé-
lagsmálaráðherra.
„Ég veit hreinlega ekki hvenær
ég get hafist handa. Af fyrri skipt-
um mínum við kerfíð yrði ég alls
ekki hissa á frekari töfum,“ sagði
Stefán. „Á meðan ligg ég með dýr-
ar vinnuvélar heima fyrir og mikla
fjárfestingu, sem ég hef ráðist í
vegna verksins. Þetta er mikill floti,
grafa, hjólaskófla, tvær jarðýtur og
vörubíll auk þess sem ég á aðgang
að ýmsum öðrum tækjum." Stefán
vildi ekki tilgreina hve mikil fjár-
festing lægi í vinnuvélunum.
Stefán á tvo báta, átta og tutt-
ugu tonna. „Ég hef alltaf lagt
stærri bátnum vegna kvótaleysis
Veitingastaðurinn Staupið
stendur fyrir hæfileikakeppni
annað kvöld, laugardagskvöld,
og er öllum þeim sem áhuga
hafa fijálst að taka þátt í keppn-
inni.
Skráning er nú þegar hafin og
yfir sumarið og í sumar hef ég sjálf-
ur verið að vinna í landi á vinnuvél-
unum. Það borgar sig engan veginn
að gera út á færi héðan á sumrin.
Það er svo steindautt og svarar
ekki kostnaði að reyna það. Þetta
hefur þó aldrei verið eins slæmt og
nú,“ sagði Stefán.
Arnaldur Arnarson gítarleikari
heldur tónleika í Akureyrar-,
Húsavíkur- og Reykjahlíðarkirkj-
um næstu daga. Tónleikarnir eru
liður í sumartónleikaröð, sem far-
ið hefur fram í kirkjunum í sum-
ar og eru þetta jafnframt lokatón-
leikarnir að þessu sinni. Búast
má við að framhald verði á næsta
sumar vegna mjög góðrar aðsókn-
ar í sumar, að sögn Björns Stein-
ars Sólbergssonar organista sem
ásamt fleirum hefur staðið að
undirbúningi. Hann sagði að sá
hafa úóúr Akureyringar látið skrá
sig til keppni og einn Flateyringur.
Sigurvegari hlýtur tíu tíma í upp-
tökuveri. Útvarpsstöðin Hljóðbylgj-
an mun útvarpa frá keppninni.
Keppnin byijar á tíunda tímanum.
TVEIR ungir hjólreiðaáhuga-
menn ætla að hjóla frá Reykjavík
til Akureyrar, laugardaginn 13.
ágúst n.k., um 440 kílómetra leið.
Lagt verður af stað frá Reykjavík
klukkan fjögur aðfaranótt laug-
ardagsins, en áætlaður hjólareið-
atími til Akureyrar er 15 klukku-
stundir.
Það eru þeir Einar Jóhannsson,
27 ára og Sigurgeir Vilhjálmsson,
21 árs, sem ætla að taka sér þessa
ferð á hendur. Upphaflega stóð til
að fara um næstu helgi, en sökum
veikinda annars þeirra verður ferð-
inni frestað um viku. Einar og Sigur-
geir tóku báðir þátt í hjólareiða-
keppnum meðan þær voru enn
haldnar hér á Iandi, en tilgangur
þessarar ferðar er m.a. að vekja
athygli á hjólareiðaíþróttinni, sagði
Einar í samtali við Morgunblaðið.
Einar og Sigurgeir ætla að skipt-
ast á um að hjóla og hjólar hvor
þeirra 2 og 1/2 klukkustund í einu.
Einar sagði að þeir reiknuðu með
því að meðalhraðinn yrði 30 km/klst.
Fjögur reiðhjól verða til taks fyrir
þá félaga á leiðinni, fyrir mismun-
andi aðstæður á þjóðveginum. „Við
verðum með tvö keppnishjól fyrir
bundna slitlagið, eitt fyrir malarveg-
ina og fjallahjól fyrir kafla sem eru
sérlega slæmir," sagði Einar. „Hjólin
eru 12-18 gíra.“ Bíll fylgir þeim
félögum eftir á leiðinni tii að geyma
hjólin og varagjarðir ef það skyldi
springa.
Einar sagði að þeir hefðu báðir
hjólað svipaðar vegalengdir áður og
t.d. hefði hann hjólað 220 km á
tæpum 7 klukkutímum um síðustu
helgi. Þá hefðu þeir hjólað nokkrum
sinnum austur fyrir fjall á ýmsa
staði, en annars væru aðstæður til
hjólareiða ekki góðar hér á landi.
Samt segjast þeir hjóla um 450 km
í hverri viku. Þeir kvíða því ekki
vegalengdinni, heldur miklu fremur
umférðinni og því hvort ökumenn
sýni þeim nóga tillitssemi.
Ef veðurspáín verður hagstæð
leggja þeir félagar af stað frá Lækj-
háttur væri hafður á áð aðgangur
að tónleikunum væri ókeypis, en
öllum væri frjálst að styrkja
framtakið. Góð framlög hefðu
borist frá sóknarnefndum kirkn-
anna þriggja auk þess sem ýmis
fyrirtæki hefðu lagt sitt af mörk-
um.
Arnaldur Arnarson fæddist í
Reykjavík árið 1959. Hann hóf
gítamám í Svíþjóð tíu ára gamall
og hélt því síðar áfram í Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar hjá
Gunnari H. Jónssyni. Hann tók loka-
próf frá Royal Northern College of
Music í Manchester árið 1982. Kenn-
arar hans þar voru Gordon Cros-
skey, George Hadjinikos og John
Williams. Hann var eitt ár við fram-
haldsnám hjá José Tomas í Alicante
á Spáni og hefur sótt námskeið hjá
Alirio Díaz, Oscar Ghiglia, David
Russell og Hopkinson Smith.
Arnaldur hefur haldið tónleika í
Englandi, á Spáni og í flestum Norð-
urlandanna. Hann er nú kennari og
artorgi kl. 4, aðfaranótt 13. ágúst
og ljúka ferðinni á Ráðhústorginu á
Akureyri um kvöldið. Það gæti þó
farið svo, ef spáð verður norð-aust-
anátt, að þeir aki fyrst norður og
fari hjólandi þaðan aðfaranótt
sunnudagsins 14. ágúst.
130 keppendur á
krakkamóti KEA
HÁTT í 130 keppendur taka þátt
í krakkamóti KEA í knattspyrnu
sem haldið verður á Akureyri á
morgun, laugardag. Krakkarnir
koma frá Siglufirði, Ólafsfirði,
Dalvík, Akureyri og Grenivík.
Krakkamót KEA er árlegur við-
burður á Akureyri á sumrin, en það
er Kaupfélag Eyfirðinga sem stend-
ur fyrir mótinu. Keppt verður í
knattspyrnu eingöngu og hefst mó-
tið kl. 10.30. Áætlað er að því ljúki
um kl. 16.30. KEA veitir vegleg
verðlaun, farandbikara og verð-
launapeninga.
Skemmdarverk
á sumarbústað
BROTIST var inn í mannlaust hús
á Siglunesi fyrir skömmu og þar
unnin skemmdarverk. Húsið hef-
ur verið notað sem sumarbústað-
ur. Allar rúður voru brotnar í
húsinu og þakmálningu hellt yfir
allt.
Farið var inn í húsið að nætur-
lagj, en það er í um eins km fjar-
lægð frá bænum á Siglunesi og í
hvarfi þaðan. Málið var sent rann-
sóknarlögreglunni á Akureyri til
meðferðar og er það nú fullrannsak-
að. Það verður síðan sent ríkissak-
sóknara.
Um svipað leyti og skemmdirnar
voru unnar á húsinu voru símastaur-
ar í eigu Pósts og síma sagaðir nið-
ur á Siglunesi.
Arnaldur Arnarsson gítarleikari
aðstoðarskólastjóri við Luthier-tón-
listarskólann í Barcelona.
■ Arnaldur heldur tónleika í Akur-
eyrarkirkju kl. 17.00 á sunnudag, í
Húsavíkurkirkju kl. 20.30 á mánu-
dagskvöld og á sama tíma á þriðju-
dagskvöld í Reykjahlíðarkirkju. Á
efnisskránni eru verk eftir Silvius
Leopold Wess, John Dowland, Fern-
ando Sor, Toru Takemitsu, Heitor
Villa-Lobos og Joaquín Rodrigo.
Hæfileikakeppni í Staupinu
Amaldiir Amarson held-
ur tónleika á Norðurlandi
Hjóla frá Reylga-
vík til Akureyr-
ar á 15 tímum
ALLTAF A UPPLEIÐ
Landsins bestu . °Pnunartími
PIZZUR
opið um helgar fró kl 11.30 - 03.00
Virka daga fró kl. 11.30-01.00