Morgunblaðið - 05.08.1988, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988
33
„Breiðfirðingur “,
46. árg. kominn út
eftir Bergsvein
Skúlason
Óvenju efnismikið og gott hefti
er komið út af Breiðfirðingi, tímariti
Breiðfirðingafélagsins í Reykjavík.
Veldur þar mestu ritgerðir eftir tvo
breiðfirska fræðimenn, dr. Lúðvík
Kristjánsson og Ágúst Ólaf Georgs-
son.
Ekki minnist ég að hafa lesið neitt
áður eftir Ágúst Ólaf, en ritgerð
hans lofar góðu, enda af fræðimönn-
um lcominn og staðkunnugur á þeim
slóðum sem hann skrifar um.
Það spillir oft landslags- og nátt-
úrulýsingum skálda og rithöfunda,
að þeir bera við að lýsa stöðum og
leiðum, sem þeir hafa lítil eða engin
kynni af, fara þá nær eingöngu eftir
bókum sem þeir hafa lesið eða frá-
sögnum annarra. Koma, þegar best
lætur, eins og Qandinn úr sauðar-
leggnum. En nóg um það hér.
Agúst Ólafur lýsir Vaðstakksey á
Breiðafirði. Þar var ég við heyskap
nokkur sumur fyrir mörgum árum,
í umboði höfuðklerksins séra Sigurð-
ar Lárussonar í Stykkishólmi, meðal
allra drauganna sem Þormóði sáluga
Eiríkssyni voru sendir meðan hann
bjó þar, og leið hveijum deginum
betur. En glettnir geta þeir verið
enn, þótt ekkert verði sagt af þeim
hér.
Hálfnað er verk þá hafíð er. Nú
ætti Ágúst Ólafur að snúa sér að
því að kanna fleiri eyjar á Breiða-
fírði, sem vitað er að búið hefur ver-
ið í, þótt byggð sé þar löngu fallin
niður, og gera þeim ekki verri skil
en Vaðstakksey.
Detta mér þá fyrst í hug Stagley,
Fagurey í Skáleyjalöndum, Hafna-
reyjar við Skarðströnd, að ógleymdu
Oddbjamarskeri, sem bíður þess, að
í sandhaugnum þar verði rótað í til
grunna af kunnáttumönnum. Þar
þyrfti Lúðvík Kristjánsson að vera
nálægur.
Um ritgerð Lúðvíks fer ég engum
orðum hér. Hann er svo þjóðkunnur
af verkum sínum, efnismiklum og
ágætum, að orð frá mér um þau eru
algerlega óþörf. Og efnið sem hann
tekur þama til meðferðar er mér
alveg framandi. Aðeins eitt af stór-
mennum kirkjunnar, sem hann nefn-
ir í grein sinni, hef ég heyrt nefnt
áður svo mér sé eftirminnilegt. Hús-
postilla Jóns Vídalíns biskups var
kyijuð á hveijum helgum degi árið
um kring yfír fólkinu heima þegar
ég var strákur. Það gerði móðir mín.
Síðan ekki söguna meir! — Upp-
fræðingarfísk hef ég aldrei heyirt
nefndan áður. Mun svo um fleiri fá-
fróða.
Þá má nefna dável gerða sögu um
reiðhestinn Óspak í Mávahlíð, eftir
Elínborgu Ágústsdóttur. Og fleira
er vel læsilegt í þessum árgangi
Breiðfírðingsins, þótt hér sé ekki
nefnt.
Loks kem ég að því, sem mér
finnst aðfínnsluvert í heftinu, bæði
Ijótt og ósmekklegt, og get ómögu-
lega fellt mig við. Einum góðum
Breiðfírðingi hefur orðið það á, að
líkja Breiðafírði við keldu, eða jafn-
vel nefna hann keldu (man ekki hvort
Allar gerðir
Tengið aldrei
stál-í-stál
Stetaaogxiflr ®
VESTURGOTU 16 SÍMAR 14680 21480
heldur er). Ansi er það stór kelda.
Líkingin er alveg fráleit. Fjörðurinn
ber ekkert svipmót af keldu. — Ég
freistast helst til að halda, að höfund-
urinn hafi ekki gert sér grein fýrir
hvað kelda er. Hafí ef til vill aldrei
séð keldu. Lítið var um slík náttúru-
fyrirbæri í Flatey á hans æskuárum
þar og er honum þá vorkunn.
Breiðaíjörður til lands og eyja, er
meðal byggilegustu héraða landsins,
þótt ekki hafí blásið þar byrlega um
sinn.
En þá má líka minna á það að:
„hver einn bær á sina sögu,
sigurljóð og raunabögu."
Og hver veit nema að raunabagan
sé nú fullkveðin.
Höfundur er rithöfundur.
ICELAND’S
ANDCULTURE
Fjórða útgáfa upplýs-
ingarits dr. Hannesar
By Dr. Hanncs jonjsou
Photo* by Rjfn Halnfjón)
LITBRÁ hefur gefið út fjórðu
útgáfu af upplýsingariti dr.
Hannesar Jónssonar, sendi-
herra, „Iceland’s Unique Hi-
story and Culture". Ritið er auk-
ið og endurskoðað og prýtt
fjölda litmynda sem Rafn Hafn-
fjörð hefur tekið.
Ritið er skrifað sem stutt alhliða
kynning á íslandi, sögu landsins
og menningu, og skiþtist í 29
kafla. Ritið er ætlað erlendum
ferðamönnum og öðrum ensku-
mælandi mönnum sem áhuga
kunna að hafa á landi og þjóð.
Efni ritsins byggir á fjórum fyr-
irlestrum sem dr. Hannes Jónsson
flutti fyrir Bókmenntastofnunina í
London árið 1960. Þriðja útgáfa
ritsins sem gefin var út árið 1964
varð uppseld fyrir um 20 árum
síðan.
(Ur frettatilkynningu).
Höfðar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
r r
ENN KEMUR T0Y0TA A OVART
- NÚ BÆÐI NOTAÐIR 0G NÝIRI!
m
mmmm SBbnmm aí
B |--m ; •-
ncbmmuun
ÚTOGRESTIN
VERÐTRY
T0Y0TA býður nú hin einstöku greiðslukjör á takmörkuðum fjölda bíla af, ^
’88 árgerð og að sjálfsögðu einnig á notuðum bílum í eigu umboðsins. //
50% af kaupverði greiðast við samning en eftirstöðvar eru lánaðar
í 12 mánuði, vaxta- og verðtryggingarlaust!
Og ekki nóg með það... þeir sem staðgreiða nýjan bíl fá
13% afslátt.
Verið velkomin í sýningarsal okkar að
Nýbýlavegi 8 og einnig í Toyota bílasöluna,
Skeifunni 15.
Umboðsmenn okkar eru um allt land.
TOYOTA
Í04Z cJ
Nýbýlavegi 8, 200 Kópavogi, Sími 91-44144
AUK/SlA k109-88