Morgunblaðið - 05.08.1988, Síða 40

Morgunblaðið - 05.08.1988, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988 Þessi eini Bjarni Artch með Erfk Hauksson primus inter pares. ÞAÐ var eftirminnileg stund þegar Bjarni Arason „sló í gegn“ á Stuð- mannakvöldinu á Sögu í fyrrasum- ar, þegar flestir héldu að „krakk- inn“ vœri bara að látast og Egill væri á bak við með hljóðnemann. Frá þeirri stundu varð ég mikill aðdáandi Bjarna og ekki minnkaði hrifning hins gamla og rótgróna Presley-aðdáanda þegar Bjarni tók „kónginn" með stfl á skemmti- kvöldi í Súlnasal síðar um haustið. Siðan þetta var hefur Bjarni sung- ið nokkur lög inn á hljómpiötur, sem flest hafa notið vinsælda. Á fyrstu sólóplötu sinni „Þessi eini þarna“ heldur Bjarni uppteknum hætti og syngur sig upp í efstu sæti vinsældarlistanna með laginu „Það stendur ekki á mér“, gömlum erlendum slagara við texta Sverris Stormsker. Platan er enda fag- mannlega unnin undir stjórn Jakobs Magnússonar, sem hefur stutt Bjarna á framabrautinni frá því hann sigraði í „látúnsbarkakeppni" Stuð- manna síðastliðið sumar. „Smellur- inn“ er sem sagt á sínum stað og sum hinna laganna vinna á við hlust- un þótt ekki hafi mér þótt platan i heild neitt sérstaklega skemmtileg þegar ég hlustaði á hana í fyrsta skipti. Lag Valgeirs Guðjónssonar „Á hverjum degi“ er til dæmis prýð- isgott og sömu sögu er að segja um lag Bubba Morthens „Undir tungunnar rót". Eins þykir mér skemmtileg „jass-blússveifla" Jak- obs Magnússonar „Til hamingju" ekki síst vegna þess aö þar bregður fyrir firnagóðum píanóleik. Ýmsir nafntogaðir tónlistarmenn hafa lagt hönd á plóginn við tónsmíðar og textagerð á þessari plötu og tekst þeim misjafnlega upp eins og gengur. í sumum tilfellum hafa þeir þó kastað höndunum til verksins og maður hefur á tilfinning- unni að þeir hefðu ekki notað slíkt efni á eigin plötum. Lítum til dæmis á eftirfarandi: „Með lambhúshettu á haus, ég lent’á vegi hennar í vor/og ég vona bara að ég hafekki verið með hor/ég var líkastur trúði, eða verri- eins og dúðaður lúði." Það er varla hægt að komast mikið neðar í marklausu bulli. Þessi texti er við lagið „Kæri sáli", gam- alt erlent lag sem mér finnst ekki eiga erindi á þessa plötu. Það hefur verið tekið í ótal útgáfum áður og flestum betri en þessari. En þrátt fyrir þessa agnúa, sem hér hafa verið tíndir til, geta að- standendur plötunnar vel við unaö þegar á heildina er litið. Hljóðfæra- leikur er allur til fyrirmyndar en þar eiga hlut að máli Friðrik Karlsson gítarsláttumeistari, Gunnlaugur Bri- em ásláttartröll, Birgir Bragason bassagígjuhross, Jakob Magnússon organfitlari, Uffe Markussen lúðra- þyrill frá Jótlandi, Jón Kjell Seljeseth undrabarn frá Þrándheimi, Gary Bromham rythmasveinn frá Sax- landi og Pétur Hjaltested tölvu og takkameistari (nafngiftir eru af plötuumslagi). Ekki er heldur i kot vísað með kórsöng á plötunni þar sem Ragnhildur Gísladóttir frá Arn- arholti er. Sjálfur er Bjarni i hópi efnilegustu söngvara sem fram hafa komið hér á landi í langan tíma. Á plötunni má þó finna hættumerki sem hann ætti að íhuga í framtíðinni. Hann þarf að losa sig við Presley, með fullri virðingu fyrir því látna stór- menni. í mörgum laganna er hann of neðarlega í tónstiganum, að mínu mati, sem stundum endar í remb- ingi þannig að textinn heyrist varla. Eins má Bjarni líka vara sig á eftir- hermuhæfileikanum. í lagi Bubba Morthens hefur Bjarni til dæmis ekki getað stillt sig um að líkja örlít- ið eftir höfundi. Bjarni þarf hins veg- ar ekkert á því að halda að herma eftir einum eða neinum. Hann hefur alla burði til þess að verða söngvari í sérflokki með því að líkja bara eft- ir sjálfum sér. Sveinn Guðjónsson. Hlutskipti rokksöngvarans Hlutskipti Eiríks Haukssonar f íslensku rokki hefur speglað vel fæð rokkáhugamanna hér á landi. Hann hefur verið að sfðan hann var sext- án ára og alla tfð leitast við að spila hraða og þunga rokktónlist. Ekki hefur það gengið að óskum, enda er til Iftils að halda úti hljómsveit jem heldur tvenna eða þrenna tónleika á ári fyrir 100 til 200 manns og sel- ur ámóta af plötum. Erfkur hefur þvf þurft að syngja þá tónlist sem fallið hefur til þá og þá stundina og oft á tfðum verið f hlutverki sem erfitt er að átta sig á. Allt stendur það þó til bóta því 31. ágúst næstkomandi tekur Eirík- ur saman hafurtask sitt og flytur til Frederiksstad í Noregi þar sem hann mun starfa með norsku þungarokksveitinni Artch sem hyggur á heimsyfirráö. Ekki er hann þó alfarinn, því í smíðum er hljóm- plata sem Steinar gefur út í haust og Eiríkur kemur til landsins til að kynna þá plötu fyrir jólin með sveit sinni Villingunum. Rokksíðan hitti Eirík í kjallaraíbúð í Laugarásnum. Byrjaðu á byrjuninni. Kveikjan að samstarfi mínu og Artch var platan sem Drýsill gerði fyrir tveimur árum. Eftir að hún var komin út sendi ég eintak til Noregs þar sem eitt lag á henni, Little Star, var eftir gítarleikarann ÍTNT Ronnie Tegro. Hann leyfði ritstjóra þunga- rokkblaðsins Street Fighter að heyra og hann varð mjög hrifinn. Hann hafði samband við mig og bað um grein um Drýsil, sem ég vann fyrir hann. Strákarnir í Artch lásu greinina og höfðu samband við mig, enda höfðu þeir átt í vandræðum með söngvara. Þeir buðu mér út og við tókum upp saman tvö lög og í kjölfar þess vildu þeir fá mig í hljómsveitina. Ég hef síðan flakkað á milli og komiö fram á tvennum tónleikum með sveitinni og síöasta sumar tókum við upp stóra plötu sem er nú tilbúin til útgáfu. Það er breskt fyrirtæki sem gef- ur plötuna út. Já, það er breskt fyrirtæki sem heitir Axis sem gefur plötuna út og fer með Evrópuréttinn, en sennilega mun fyrirtækið Metal Blade gefa plötuna út í Bandaríkjunum og Bret- landi. Nú hefur sænsk rokksveit, Europe, náð miklum vinsældum f Bandarfkjunum; eruð þið á svip- aðri línu í tónlist? Nei, við erum að spila þyngri tón- list, þá tónlist sem kölluð er þunga- rokk, tónlist sem er einhvers staðar á milli Iron Maiden og Metallica. Þessi gerð tónlistar er ekki mikið leikin í útvarpi, en það skiptir okkur miklu að vera komnir á samning. Það er þannig í þungarokkinu að Fimmtudaginn 21. júlí var haldið svonefnt Bat-kvöld f Zanzibar, þvf er um helgar kall- ast Casablanca. Þar komu fram hljómsveltirnar Svölurnar, E-X og Risaeðlan. Voru tónleikarnir vel sóttir, en illa heppnaðir að mörgu öðru leyti. Svölurnar flytja stökkbreytt hip-hop í þyngri og örvæntingar- fyllri kantinum. Tveir piltar miðla af hljóðabrunni samplers, trommuheila og eigin radda. Er Ljósmynd/BS Morgunblaðiö/BAR Vængstýfðar leðurblökur skemmst frá því að segja að segja að mér þóttu þeir hrútleið- inlegir; áhugaverð tóntilraun var algerlega eyðilögð af lélegum lagasmíðum (eða engum), klisju- kenndum og lágkúrulegum text- um (á ensku) og blæbrigða- snauðum og titrandi röddum. Synd að menn skuli ekki geta gert betur með svona góð tæki á milli handanna: heilu tonnin af ágætum vél- og hugbúnaði. E-X voru pottþéttir eins og vanalega, en alls ekki meira. Tón- listin óx ekki eðlilega út úr hljóm- sveitinni eins og hún á að gera, heldur þurfti að sárbæna hana og nauða í henni svo hún iyppað- ist fram í sal. Og þegar þangað var komið fór hún bara í fýlu og nennti ekki að tala við mann. — Ennfremur var hljóðblöndunin hjá E-X langt frá því að vera full- komin, gítar t.d. of hár á kostnað raddar — nokkuð sem fellur illa að stíl hljómsveitarinnar. Risaeðlan var tvímælalaust besta og skemmtilegasta hljóm- sveit kvöldsins, flutti gleðiríkt og persónulegt álfarokk með rokka- billíívafi. Fiðla, saxófónn og hljómborð huldu trommur, bassa og gítar heillandi Ijósbroti; heild- arútkoman var litrík og hlý, skemmtileg og tilgerðarlaus. Baldur A. Kristinsson plötumarkaðurinn er allt öðruvísi en í poppinu og það skiptir miklu máli að komast inn á markaðinn með alvöru fyrirtæki á bak við sig. Þó fyrsta plata hljómsveitar slái ekki í gegn með það sama, þá getur plat- an samt selst mjög vel á löngum tíma. Bandaríkjasamningurinn, sem er reyndar ekki alveg frágengin, hljóðar uppá fimm plötur. Er þetta þín tónlist sem þið eruð að spila? Strákarnir hafa sent mér grunna og ég hef bætt við melódíum og textum, þannig að tónlistin er skrif- uð á okkur alla. Þetta er auðvitað ekki æskilegt samstarf og meðal annars út af því er ég að flytja út. Ætlar þú þér að lifa á tónlistinni úti? Til að byrja með þarf ég að vinna með tónlistinni en ég er vanur því héðan. Hvað með plötuna sem þú ert að taka upp fyrir Steinar? Ekki er þungarokk á henni? Þetta verður tvímælalaust rokk- plata, þó ekki verði það þungarokk. Þetta verður allt önnur blaðsíða en það sem ég var að gera með Mod- el á síðasta ári. Tómas Tómasson og Ásgeir Jónsson sjá um upptöku og Tómas leikur á bassa, Sigurgeir á gítar og Ásgeir Óskarsson á trommur. Einvala lið. Hver semur? Það stefnir í það eins og er að lögin verði öll eftir mig, eða 80 til 90% í það minnsta. Textarnir verða líka flestir eftir mig en nokkrir eru í smíðum úti í bæ. Þér hefur gengið ágætlega í tón- listinni hér heima, hvað er það sem rekur þig til Noregs? Það sem ég hefði helst viljað fást við í tónlistinni hér heima er eins og það sem ég var að gera með Drýsli, en markaðurinn hér heima er svo einhæfur að það gekk ekki upp. Frá því að Drýsill lagði upp laupana hef ég verið að gera ýmis- legt sem ég hafði ekki beint gaman af að gera. Nú hefur borið nokkuð á því f seinni tfða að stórfyrirtæki hafi spurst fyrir um íslenskar hljóm- sveitir i kjölfar vinsælda Sykurmol- anna. Þér hefur ekki dottið i hug að endurreisa Drýsil og nýta með- byrinn til að gera sveitina að út- flutningsvöru? Eftir að ég byrjaði að vinna með strákunum úti bá hef ég lagt allar slíkar pælingar á hilluna, því þeir eru svo góðir og andinn í hljómsveit- inni er mjög góður. Með smá heppni og með góðri stjórn ætti þessi sveit að geta náð í fremstu röð í þessari deild. það byggist allt á því að vera iðinn við að spiia og þeir hafa starf- að það lengi saman og eru það ákveðnir að það ætti allt að geta gengið upp. Ert þú reiðubúinn í það að fara kannski í tónleikaferð um Bretiand og Bandarfkin og skpila 200 sinn- um á ári? Já, að minnsta kosti fyrsta árið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.