Morgunblaðið - 05.08.1988, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988
4
fclk í
fréttum
CHER
Ásökunum vísað á bug
Söng- og leikkonan Cher og
kærastinn hennar, Rob Cami-
letti, héldu blaðamannafund þann
28. júlí.
Sá orðrómur hefur verið á kreiki
að Rob hafi nýlega reynt að keyra
niður áhugaljósmyndara sem gerð-
ist heldur nærgöngull við hann.
Ljósmyndarinn segir að Rob hafi
verið á bifreið af gerðinni Ferrari
sem er í eigu Cher.
Rob er vanur að halda sig í hæfi-
legri fjarlægð frá hnýsnum blaða-
mönnum en í þetta skiptið sá hann
sig tilneyddan til að mæta og svara
fyrir þær sakir sem hafa verið born-
ar á hann.
Rob þverneitar að hafa nokkurn
tíma reynt að keyra á ljósmyndar-
ann og Cher gerir allt sem í hennar
valdi stendur til að sanna sakleysi
elskunnar sinnar.
mmmmmmmmmmm !
FJÖLSKYLDUMÁL
Bræður
verða
systur
Þeir hétu Patrick og Yannick.
Nú heita þær Dominique og
Alix, og eru systur, en ekki bræður
eins og hafði verið um árabil. Ann-
ar þeirra hefur skipt um kyn og
hinn bíður eftir að síðasta hluta
meðferðar ljúki áður en hann getur
látið kalla sig konu.
Dominique er nú tuttugu og sex
ára. Þegar hann var átján ára ákvað
hann að gangast undir kynskipt-
ingu, þar eð honum fannst hann
ætíð vera kona, þrátt fyrir karl-
mannskropp. Hormónagjöfum- og
Bræður hafa breytt um svip.
Elizabeth Taylor
Starfsemi
Vinnuskóla
Reykjavík-
ur lokið
amkvæmt venju lauk starfsemi
Vinnuskóla Reykjavíkur um mán-
aðamótin júlí-ágúst. Að þessu sinni
var farin dagsferð að Laugarvatni.
Þátttaka var ágæt, en um níu
hundruð unglingar mættu ásamt
leiðbeinendum.
Farið var í ýmiss konar leiki, og
þeir sem vildu gátu leigt bát og
seglbretti eða farið í gufubað. Hald-
in var grillveisla og tókst þátttak-
endum að sporðrenna 2.000 pylsum
og skoluðu þeir hálsinn með ískóla
og svala.
Ferðinni lauk með reiptogi milli
hverfishópa Vinnuskólans, og að
endingu afhenti skólastjóri Vinnu-
skólans, Arnfinnur Jónsson, verð-
laun fyrir íþróttaafrek. Þakkaði
hann síðan unglingum og verkstjór-
um fyrir vel unnin störf á sumrinu.
Morgunblaðið/Einar Faiur