Morgunblaðið - 05.08.1988, Page 52
52
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988
HANDKNATTLEIKUR / SPÁNARMÓTIÐ
Ísland-Austur Þýskaland
23 : 24
Irun — Spánarmótið í handkhattleik, fimmtudaginn 4. ágúst 1988.
Gangur leiksins: 0:3, 2:3, 2:5, 3:5, 4:6, 5:7, 6:7, 7:8, 7:10, 8:10, 8:11,
9:11, 9:12, 11:12, 12:13, 12:14, 13:14, 14:15, 15:16, 16:17, 16:18, 18:18,
19:18, 19:19, 19:21, 21:21, 21:22, 22:22, 22:24, 23:24.
Mörk íslands: Alfreð Gíslason 8, Atli Hilmarsson 5/3, Guðmundur Guð-
mundsson 4, Þorgils óttar Mathiesen 3, Bjarki Sigurðsson 2, Kristján-
Arason 1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 7, Guðmundur Hrafnkelsson 2.
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Spánar: Frank Wahl 7, Riidiger Borchardt 4, Holger Winselmann
3, Andreas Neitzel 3, Jens Fiedler 3, Stephan Hauck 2, Bernd Metzke 1
og Holger Schneider 1.
Varin skot: Peter Hoffman 11, Wieland Schmidt 2.
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Amigo og Costas frá Spáni. Þeir dæmdu vel lengst af en
mis8tu tökin á leiknum undir lokin.
Áhorfendur: Um 1.500.
Alfreð Gíslason átti hreint frábæran leik f gærkvöldi. Skoraði átta mörk
og skyggði á sjálfan Frank Wahl. Guðmundur Guðmundsson, sem er á mynd-
inni til hliðar, lék einnig mjög vel. Hann var inni á vellinum allan tímann og
sýndi gamla takta.
Lánið lék við
Spánveija
Svíar gáfu þeim sigurinn á silfurfati
Lánið leikur enn við gestgjafana.
Þeir byijúðu betur gegn Svíum
í gær en gegn íslendingum í fyrsta
leik og náðu fimm marka forskoti
um miðjan fyrri hálfleik. Þá setti
Roger Carlsson, þjálfari Svía, Bjöm
Jilsen inná. Hann átti næstu sex
mörk Svía með glæsilegm línusend-
ingum ogí leikhléi var jafnt, 13:13.
í síðari hálfleik héldu Svíar upp-
teknum hætti. Hallgren varði vel
og um miðjan hálfleikinn höfðu
þeir náð fjögurra marka forskoti,
21:17. Þá tóku Spánverjar við sér
á ný og Serrano jafnaði 22:22, er
rúmar fimm mínútur voru til leiks-
loka. Staffan Olsson, í liði Svía,
gerði nú hverja vitleysuna á fætur
annarri, var vikið útaf og kórónaði
vitleysuna með því að fara of
snemma inná aftur - fékk aðrar
tvær mínútur fyrir vikið og fjórir
Svíar máttu ekki við margnum.
Spánverjar gerðu tvö mörk, en
Bjöm Jilsen átti lokaorðið á síðustu
sekúndu, 24:23.
Alfreð
skyggði
Wahl
á
og Brynjar Kvaran hvíldu og Júlíus
Jónasson kom ekki inn á.
Hraði
Gífurlegur hraði einkenndi leikinn.
Boltinn gekk vel manna á milli í
báðum liðum og sóknimar vom
stuttar. íslenska liðið var átta
mínútur í gang en það missti aldrei
móðinn og leikur þess varð æ betri
eftir því sem leið á.
Peter Hoffman varði þrjú vítaköst,
frá Sigurði Sveinssyni, Alfreð og
Kristjáni í byijun leiks og munar
' um minna í leik svo jafnra liða. Þá
fóru góð færi forgörðum í fyrri
hálfleik, en eftir hlé var sóknarnýt-
ing íslenska liðsins mjög góð og
mörg árangursrík hraðaupphlaup
sáu dagsins ljós.
Barátta
Barátta íslenska liðsins var í einu
' orði sagt frábær. Hvergi var gefið
eftir en eins og mótheijarnir áttu
í erfiðleikum með Alfreð var erfitt
að stöðva Wahl, sem virtist geta
skorað þegar hann vildi. Að öðm
leyti var vörnin samstillt nema í
byijun. Wahl var yfirburðamaður
hjá Austur-Þjóðveijum. Peter Hoff-
man var frábær í fyrri hálfleik en
varði ekki skot eftir hlé og skipti
fljótlega við Schimrock, en Wieland
Schmidt horfði á.
Spænsku dómaramir dæmdu frekar
með íslenska liðinu í byijun en snér-
ust á sveif með Austur-Þjóðveijum
> undir lokin.
ISLENSKA landsliðið í hand-
knattleik sýndi í Irun í gær-
kvöldi að leikurinn gegn Spán-
verjum ífyrrakvöld boðaði ekki
svartnætti. Strákarnir létu
samkeppni um sæti í liðinu
sem vind um eyru þjóta,
studdu hvern annan í vörn sem
sókn og uppskáru nær allt
nema sigur. Leikurinn var æsi-
spennandi frá 8. mínútu til
síðustu sekúndu en Austur-
Þjóðverjar hrósuðu happi þeg-
ar upp var staðið og sigruðu
með einu marki.
Alfreð Gíslason átti stórleik og
skyggði á Frank Wahl, sem
almennt er talinn vera einn besti
handknattleiksmaður heims. Kristj-
án Arason lék sem
fyrr nær allan leik-
inn og vann vel fyrir
liðið. Guðmundur
Guðmundsson fór
aldrei útaf og sýndi gamla takta.
Auk þeirra léku Einar, Bjarki, Þorg-
ils Óttar og Geir lengst af, og náðu
vel saman, en þrátt fyrir góða
markvörslu á stundum var þetta
ekki dagur Einars. Karl Þráinsson
Steinþór
Guöbjartssan
skrifar
frá Spáni
Hvað sögðu þeir í Irun?
AHreð Gíslason
„Við áttum ekki skilið að tapa.
Reyndar tók okkur útispilarana
smátíma að finna réttu ieiðina,
en síðan gekk nær allt upp. Gegn
Spánveijun vorum við einstakl-
ingar en nú lið. Baráttan var mik-
il, ég fékk góða aðstoð og nú er
málið að halda fengnum hlut og
gera betur.“
Bogdan Kowalczyk lands-
llðsþjálfari íslands
„Mér líður vel og er í góðu skapi.
Þetta var frábær leikur, sá besti
í keppninni til þessa. Okkar menn
léku mjög vel, góð samvinna í
vöm og sókn - mikil barátta og
leikgleði. Með öðrum orðum allt
annað lið en gegn Spánveijum.
Ég hef hinsvegar ekki svar við
þessari snöggu breytingu, en leik-
urinn sýndi að liðið er í nægri
þrekþjálfun. Alfreð var óstöðv-
andi, Guðmundur [Guðmundsson]
góður, en fyrst og fremst var
heildin sterk og þess vegna hefð-
um við getað sigrað. Dómararnir
fóru illa með okkur í lokin, en það
skiptir ekki máli heldur er aðalat-
riði að við virðumst vera á réttri
braut og verðum að halda settu
marki.“
Poul Tidemann, þjálfari Aust-
ur Þýskalands
„Liðin eru mjög ámóta og í síðustu
leikjum þeirra hefur aldrei munað
miklu. Leikurinn var spennandi
og skemmtilegur til síðustu sek-
úndu, sóknarleikur okkar var góð-
ur; en við réðum alls ekki við
Alfreð. Eins og við mátti búast
gerðu leikmenn beggja liða mistök
en hvað okkur varðar þá fórum
við stundum á taugum og sam-
vinnan var ekki nægilega góð,
einkum í vöminni. Það má segja
að við höfum sloppið með skrekk-
inn að þessu sinni því^dómararnir
voru okkur hliðhollir í lokin eftir
að hafa verið frekar á bandi
íslenska liðsins."
Kristján Arason
„Við tókum leikinn gegn Spán-
veijun alvarlega eins og vera ber,
héldum aukafund og vorum stað-
ráðnir í að ná leikgleðinni og vinna
saman. Við gáfum allt í leikinn
og Alfreð batt vei endahnútinn.
Austur-Þjóðveijarnir eru ámóta
góðir og Spánveijar og liðin koma
til með að beijast um sæti í sínum
riðli í Seoul."
Guómundur Guðmundsson
„Sjálfstraustið er að koma. Ég
hef ekki „fundið mig“ að undanf-
ömu en mér fínnst þetta vera að
koma hægt og sígandi. Leikurinn
var mjög erfiður, loftleysið al-
gjört, en við gerðum góða hluti
þrátt fyrir tapið."
Einar ÞorvarAarson
„Það er ailtaf sárt að tapa, einkum
með einu marki. En við sýndum
allt annan og betri leik en gegn
Spánveijum og vonandi verður
framhald á. Við hefðum unnið
með betri markvörslu en ein-
hverra hluta vegna fann ég mig
ekki og missti strax taktinn."