Morgunblaðið - 25.08.1988, Page 1
64 SIÐUR B
192. tbl. 76. árg.
FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Verkföllin í PóIIandi:
Námamenn í fimm kola-
námum hefja vinnu að nýju
Varsjá. Reuter.
NÁMAMENN í fimm kolanám-
um í Póllandi hættu verkfalli í
gær, en harðlínumenn innan
Samstöðu — hinna ólöglegu
verkalýðssamtaka — hvöttu til
þess að gripið yrði til verkfalla
í Lenín-stálsmiðjunum nærri
Japani
kaupir
vélRusts
Bonn, Daily TelegTaph.
JAPANSKUR fésýslumaður
hefur fest kaup á Cessnu
Mathiasar Rusts, en í henni
lenti Rust á Rauða torginu í
Moskvu eftir að hafa komist
óhindraður í gegnum loft-
vamakerfi Sovétríkjanna í
fyrravor. Ekki hefur verið
látið uppi hversu mikið Japan-
inn gaf fyrir flugvélina.
Vélin, sem er einshreyfils
Cessna 172 og var í eigu Flug-
klúbbs Hamborgar, var á sínum
tíma seld til snyrtivörufyrirtækis
í Munchen fyrir litlu meira en
raunvirði, en fyrirtækið notaði
hana í auglýsingaskyni með litl-
um árangri. Ákvað fyrirtækið
því að selja vélina.
Hinn nýi eigandi, sem ekki
vill láta nafns síns getið, hefur
gert ráðstafanir til þess að vélin
verði flutt til Japans, en ekki
er vitað hvað af henni verður
þar.
Rust kom heim til Vestur-
Þýskalands fyrr í mánuðinum
eftir að MíkhaíbGorbatsjov Sov-
étleiðtogi náðaði hann. Þá hafði
Rust setið af sér eitt ár af fjór-
um í sovésku fangelsi.
Kraká til þess að viðhalda mestu
verkalýðsólgu Póllands frá ár-
inu 1981, en þá lauk henni með
setningu herlaga.
Að sögn leiðtoga verkfalls-
manna skipuðu óeirðalögreglu-
þjónar námamönnum, sem voru í
setuverkfalli í tveimur kolanámum
í suðurhluta landsins, að fara úr
þeim og voru a.m.k. sjö hand-
teknir. Engu valdi var beitt við
aðgerðir þessar.
Lögregla greip til svipaðra að-
gerða víðar, en hvergi kom til vald-
beitingar.
„Verkfallsástandið er riðandi,"
sagði Adam Michnik, einn af
frammámönnum Samstöðu, í hafn-
arborginni Gdansk (Danzig), en
þar eru meira en 2.000 hafnar-
verkamenn og skipasmiðir í verk-
falli.
Engan bilbug var að ftnna á
Búrma:
Lech Walesa, leiðtoga Samstöðu:
„Við verðum að láta þá lúða, sem
hindra okkur og hafa komið þessu
landi á vonarvöl, fá pokann sinn.“
Undir þetta tók Qöldafundur
verkamanna í Gdansk hástöfum.
Miðstjóm kommúnistaflokksins
kemur saman til fundar um
ástandið á laugardag, en stjóm-
málaráð flokksins samþykkti á
þriðjudag að grípa yrði hið fyrsta
til nýrra ráðstafana til þess að
lappa upp á efnahaginn. Hveijar
þær ráðstafanir eru hefur ekki
verið upplýst enn.
VerkfaUsmaður í Lipcowy-
námunni fær son sinn i heimsókn
í gær, en um svipað leyti hófst
vinna á ný í fimm kolanámum
öðrum.
brutust út víðtækar óeirðir og er
talið að þúsundir manna hafi fallið
í þeim.
Með ræðu Maungs lauk dags-
langri spennu í höfuðborginni, en í
miðborg hennár vom allar götur
stíflaðar af mótmælendum, sem
hrópuðu í sífellu: „Lýðræði, lýð-
ræði!“
Ljóst er af ávarpi Maungs að
hann hyggst styðja tillögur um Qöl-
flokkakerfi til fulls, en það var lagt
til hliðar eftir valdatöku hersins
árið 1962. Þá komst Ne Win, fyrr-
verandi leiðtogi landsins, til valda,
en hann sagði af sér 23. júlí síðast-
liðinn. Maung Maung bætti við að
enginn núverandi Ieiðtoga landsins
gæti boðið sig fram i kosningunum,
sem sigla kynnu í kjölfar þeirra
breytinga í lýðræðisátt, sem hann
vill koma á.
Reuter
Sósíalistar hyggjast ræða
afnám einsflokkskerfsins
Rangoon, Rcuter.
LEIÐTOGAR sósíalistaflokksins i Búrma létu í gær undan þrýstingi
almennings um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um afnám eins-
flokkskerfisins, sem þar hefur verið við lýði í meira en aldarfjórð-
ung. Maung Maung, sem tók við embætti þjóðhöfðingja síðastliðinn
föstudag, boðaði til skyndifundar flokksins hinn 12. september og
verður þar ákveðið hvort efnt verður til þjóðaratkvæðagreiðslunnar
eður ei. Maung sagði í útvarpsávarpi að hann og fleiri helstu leið-
togar ríkisins myndu segja af sér ef flokkurinn hafnaði hugmyndinni.
Sams konar flokksfundur og I síðasta mánuði sömu tillögu, en í
Maung hefur í huga hafnaði í I kjölfar þeirrar synjunar fundarins
Bandaríkjamenn tilkynna tíma-
mótauppgötvun í samrunavísindum
Orkan í einu vatnsglasi nægir fjölskyldu 1 tvo mánuði
Rómarbore, Reuter.
BANDARISKUR visindamaður skýrði frá því í gær að banda-
rískum rannsóknarhópi hefði tekist að sannreyna kjarnasam-
runa, en vonast er til að í framtfðinni verði hægt að beita honum
til orkuframleiðslu í miklum mæli, án þess að um geislavirkan
úrgang sé að ræða.
Eðlisfræðingurinn Eric Storm 'T heldur hvenær við getum notfært
okkur þessa tækni til þess að
við Lawrence Livingstone-rann-
sóknarstofuna í Kalifomíu skýrði
frá tilrauninni á málþingi eðlis-
fræðinga á Sikiley, en hann hafði
fengið leyfí bandarískra yfirvalda
ti} þess að tjá sig um málið.
„Við höfum í raun sannað að
samrupi getur átt sér stað. Nú
snýst spumingin ekki lengur um
það hvort samruni virkar eða ekki,
framleiða orku mannkyni til
handa."
Storm sagði að með því að
notfæra sér kjamorkusprengingu
til þess að framleiða gífurlega
röntgen-geislun hefðu þeir valdið
sammna og í raun búið til „agn-
arsmáa stjömu".
Samruni, sem verður einungis
við gífurlega hita gefur frá sér
orku. Kjarnorkuhráefni til hans
er óþrjótandi og ólíkt kjamaklofn-
un skilar hann ekki af sér geisla-
virkum úrgangi.
Þorri stjömuorku kemur frá
kjamasamruna. „Við erum að
reyna að leika eftir Móður Nátt-
úru með því að búa til litla stjömu
í rannsóknarstofunni. Undanfarin
ár höfum við sankað að okkur
upplýsingum um þetta, sem við
höfum ekki getað deilt með öðrum
vísindamönnum þar til nú,“ sagði
Storm.
í framtíðinni verða kjamorku-
sprengjur ekki notaðar til þess
að valda samruna, en hennar
þurfti með nú þar sem leysigeislar
þeir, sem til eru, eru ekki nógu
öflugir til þess að hita hráefnið
svo að úr verði samruni. Hráefnið
yrði vetni og nefndi Storm til við-
miðunar að eitt vatnsglas hefði
að geyma orku, sem nægði fjög-
urra manna bandarískri fjölskyldu
í um tvo mánuði. Þó eru Banda-
ríkjamenn orkufrekastir Jarð-
arbúa á nef hvert.
Storm vildi ekki spá fyrir um
hvenær samruni kynni að nýtast
mönnum. „Þessar tilraunir hafa
tekið mörg ár og ég get ekkert
sagt frekar á þessu stigi.“
Mikil ringulreið hefur ríkt í
landinu að undanfömu, en bætt
hefur úr skák að sjálfboðaliðar hafa
gengið í mörg störf, sem annars
væri ekki sinnt. Hafa búddamunkar
t.a.m. tekið' við rekstri margra
stjómarskrifstofa eftir að embætt-
ismenn sósíalista flúðu þær.
Fyrir tveimur vikum settu ýfír-
völd herlög og sendu herlið á götur
Rangoon, sem skipað var að skjóta
á mótmælendur, en í gær yfirgaf
herinn borgina. Fjöldi mótmælenda
kvaddi hermennina með handa-
bandi og gætti greinilegs léttis í
borginni.
Það kann að há uppbyggingu
lýðræðis í landinu að stjómmála-
starf hefur nær gjörsamlega legið
niðri í landinu í 26 ár, ef undan er
skilið flokksstarf sósíalista. Eigi að
síður töldu erlendir stjórnarerind-
rekar að um stórt skref í rétta átt
væri að ræða: „Þetta er vonargeisli
í myrkrinu," sagði einn þeirra.
„Þetta mun friða manninn á göt-
unni nokkuð, en hvort hann er svo
reiðubúinn til þess að bíða frekar
eftir umbótum er annað mál.“