Morgunblaðið - 25.08.1988, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1988
Sovétlýðveldið Eistland:
Fá ný stjómmála-
samtök að starfa?
Breytingar á stj órnarskrá landsins ræddar
Tallinn. Reuter.
SVO gæti farið að yfirvöld í Eistlandi breyttu stjórnarskrá Sovétlýð-
veldisins til að ný pólitísk hreyfing, sem berst fyrir því að Eistlend-
ingar öðlist meira sjálfræði, verði lögleg, að því er háttsettur embætt-
ismaður kommúnistaflokksins í Eistlandi sagði í gær.
Indrek Toome,
ingur • flokksins í
hugmyndafræð-
Eistlandi, sagði
að hreyfingin, sem nefnist Alþýðu-
fylkingin, nyti stuðnings innan
kommúnistaflokks Eistlands en
væri hins vegar ólögleg samkvæmt
núgildandi stjómarskrá lýðveldis-
ins. Hreyfingin, sem stofnuð var
fyrir fjórum mánuðum, hefur þegar
fengið tvo menn kjöma í sveitar-
stjómir og hefur í hyggju að bjóða
fram í eistlensku þingkosningunum
í haust, að sögn félaga í hreyfing-
unni.
„í þeim greinum stjómarskrár-
innar þar sem fjallað er um stjóm-
kerfið er ekkert minnst á hreyfing-
ar eins og alþýðufylkinguna," sagði
Toome. „Við erum raunsæismenn í
stjómmálum. Komi nýjar hreyfíng-
ar fram á sjónarsviðið verðum við
að sjá til þess að þær verði löglegar
samkvæmt stjómarskránni," bætti
hann við.
Toome sagði að sett hefði verið
á laggimar nefnd eistlenskra lög-
fræðinga og félaga f kommúnista-
flokknum til að kanna málið og
leggja tillögur um stjómarskrár-
breytingar fyrir eistlenska þingið.
Hann sagði að ekki væri ætlunin
að koma á fjölflokkakerfi heldur
„pólitísku fjölræði."
Þessi áform endurspegla vaxandi
stuðning hreyfíngarinnar meðal al-
mennings og innan kommúnista-
flokksins, en Alþýðufylkingin berst
fyrir því að Eistland öðlist meira
pólitískt, menningarlegt og efna-
hagslegt sjálfræði. Hreyfingin hef-
ur hafíð baráttu fyrir því að eist-
neska verði opinbert tungumál í
Eistlandi og dregið verði úr miðstýr-
ingu frá Moskvu í eistlensku atvinn-
ulífi.
„Annaðhvort verðum við áfram
þjónar eða gemmst sjálfráða hús-
bændur í eigin landi,“ sagði Edgar
Savisaar, leiðtogi hreyfíngarinnar,
á fjöldafundi í Tallinn á þriðjudag-
dagskvöld, þar sem minnst var 49
ára afmælis samnings Sovétmanna
og nazistastjómarinnar í Þýska-
landi. Samningurinn leiddi til þess
að Eystrasaltsríkin Eistland, Lett-
land og Litháen voru innlimuð í
Sovétríkin. Fundurinn var haldinn
í hljómleikahöll í Tallinn og voru
um 8.000 manns í höllinni auk þess
sem 5.000 hlustuðu á ræðuhöldin
fyrir utan.
Leiðtogar hreyfingarinnar neita
því að þeir vilji aðskilnað frá Sov-
étríkjunum og segjast styðja um-
bótastefnu Míkhaíls Gorbatsjovs
Sovétleiðtoga. Hreyfingin nefnist
fullu nafni Alþýðufylkingin til
stuðnings „perestrojku".
100.000 manns á
fjöldafundi í Vilnu
Nokkur þúsund félaga í álíka
hreyfingum söfnuðust saman til að
minnast samnings Sovétmanna og
Þjóðvetja í Riga, höfuðborg Lett-
lands, á þriðjudag, að sögn TASS-
fréttastofunnar. Stærsti fundurinn
var þó haldinn í Vilnu, höfuðborg
Litháens, þar sem um 100.000
manns hlustuðu á hljóðritun af
ræðu Juozas Urbsis, sem var ráð-
herra í stjóm Litháens fyrir inn-
limunina árið 1940.
í frétt TASS segir að fjöldafund-
imir í Eystrasaltsríkjunum beri vott
um aukið andóf og bent er á að
kröfur um aukið sjálfræði hafi
ákveðnar hættur í för með sér.
„Enginn kemst hjá því að taka eft-
ir neikvæðri þjóðemishyggju, sem
kemur aðeins þeim til góða sem
beijast gegn umbótastefnu Gor-
batsjovs," segir í fréttinni.
Reuter
Talið er að um 750 hafi farist og 1.600 slasast í jarðskjálftanum í
Nepal og Indlandi á sunnudag. Mikill skortur er á hjálpargögnum
______________ í Nepal.
Náttúruhamfarirnar í Nepal og á Indlandi:
Fórnarlömb jarðskjálftans
færri en óttast var í fyrstu
Dharan í Nepal. Nýju Delí. Reuter.
ERLENDAR hjálparsveitir
komu i gær til jarðskjálftasvæð-
anna í Nepal. Fórnarlömb
skjálftans, sem varð á sunnudag
og mældist 6,7 á Richter-
Sovétríkin:
Nefnd fjallar um nafnabreyt-
ingar á bæjum o g borgum
Moskvu. Reuter.
SETT hefur verið á laggirnar
nefnd í Sovétríkjunum til að
hafa umsjón með breytingum
og endurbótum á nafngiftum á
bæjum, götum og byggingum,
að því er segir í sovéska dag-
Nagorno-
Karabakh:
Þúsundir
manna á mót-
mælafundi
Moskvu. Reuter.
ÞÚSUNDIR manna komu saman
til fundar fyrir utan þinghúsið í
Stepanakert, helztu borg héraðs-
ins Nagomo-Karabakh í Sovét-
lýðveldinu Azerbajdzhan, í gær
og mótmæltu því að fá ekki að
sameinast Armeníu.
Þing Nagomo-Karabakh var
kvatt saman í gær og gagnrýndu
þingmenn bæði stjóm héraðsins og
yfirvöld lýðveldisins fyrir að tefja
fyrir framgangi sérstakrar um-
bótaáætlunar fyrir héraðið.
í ályktun, sem þingið samþykkti,
sagði að sérstök áætlun um endur-
reisn efnahagslífs í héraðinu hefði
ékki skilað árangri vegna slakrar
stjómunar og áhugaleysis embætt-
isrpanna.
í viðtali við vikublaðið Moskvu-
fréttir 10. ágúst sl. sagði Genrikh
Pogosjan, leiðtogi kommúnista-
flokksins í Nagomo-Karabakh, að
verkfóllum væri lokið í héraðinu og
allar verksmiðjur væru starfræktar.
blaðinu Moskovskíj Komsomo-
lets.
Míkhaíl Gorbanovskíj, formaður
nefndarinnar, sagði í samtali við
dagblaðið að markmið nefndarinn-
ar væri að tryggja varðveislu, end-
umýjun og endurbætur á sovésk-
um ömefnum og staðaheitum.
„Það er nauðsynlegt að taka tillit
til sögulegs, málfræðilegs og laga-
legs bakgrunns þegar verið er að
breyta nöfnum á götum, borgum
eða bæjum. Hingað til hefur engin
stofnun haft yfimmsjón með
slíkum nafnabreytingum," sagði
Gorbanovskíj. Sagði hann að
nefndinni hefðu þegar borist
hundmð bréfa frá fólki sem býr í
bæjunum. Kírov, Zhanov og Kúj-
byshev, er bera nöfn samstarfs-
manna Stalíns. Vilja íbúar þessara
bæja að nöfnunum verði breytt.
Landakort ekki
minnismerki
„Landakort eiga ekki að vera
minnismerki _um leiðtoga eða
fræga menn. Ég myndi styðja það
að bærinn Gagarín, sem heitir eft-
ir fyrsta sovéska geimfaranum,
fengi sitt gamla nafn, Gzhatsk,"
sagði formaðurinn. Sagðist hann
telja eðlilegra að farartæki og
stofnanir væm nefnd eftir mikil-
mennum og sagðist hann ekki telja
það niðurlægjandi þótt nöfn mikil-
menna væm látin víkja fyrir uppr-
unalegum staðanöfnum.
í janúarmánuði síðastliðnum,
var skipt um nöfn á götum og
stofnunum sem bám nafh Leoníds
Brezhnevs. Margar götur og bæir
auk verksmiðja vom kennd við
hann. Þessi sérkennilegi siður, að
nefna bæi, borgir, verksmiðjur og
samyrkjubú eftir stjómmálaleið-
togum, varð til á stjámarárum
Stalíns. Khrústsjov lét þennan sið
liggja í láginni en Brezhnev var
ötull við' að nefna bæi og götur
eftir samstarfsmönnum sínum.
kvarða, eru nú talin vera um
750. í fyrstu var talið að yfir
eitt þúsund manns hefðu farist
í skjálftanum.
Björgunarmenn unnu að því í
gær að grafa fólk úr húsarústum.
Enn hefur ekki tekist að koma
hjálpargögnum til suðvesturhluta
Nepals þar sem búist er við að
miklar skemmdir hafi orðið.
Hercules-flutningavél breska hers-
ins flutti lækna og lyf til borgar-
innar Dharan í gær.
Talið er að 551 Nepal-búi hafi
látið lífið í jarðskjálftanum og lík
198 Indveija hafa fundist í Bihar-
héraði á Indland, að sögn opin-
berra embættismanna.
Fjármálaráðherra Nepals,
Bharat Bahadur, sagði að efna-
hagur landsins réði ekki við að
standa straum af björgunar- og
uppbyggingarstarfi eftir skjálf-
tann. Nepal hefur ekki opinberíega
beðið erlend ríki og hjálparstofn-
anir um aðstoð, en opnaður hefur
verið bankareikningur sem hverj-
um, er vill leggja Nepal-búum lið,
er heimilt að leggja inn á. „Stjóm-
völd munu taka við hjálp frá öllum
sem vilja aðstoða okkur,“ sagði
ráðherrann.
Reuter
Komist hjá myndatöku
Menn bregða á ýmis ráð til að
komast hjá myndatökum og hið
sama virðist einnig eiga við um
apa. Þessi litli api gerði sér
t.a.m. lítið fyrir og klifraði upp
á myndavél ljósmyndarans.
Apinn, sem heitir Rudí, er
fæddur í dýragarðinum í Vest-
ur-Berlín.
Sovétríkin:
Blaðamenn
fordæma
mnrásinaí
Tékkósló-
vakíu 1968
Moskvu. Reuter.
SEX sovéskir blaðamenn, sem
störfuðu í Tékkóslóvakíu þegar
innrás sovéska hersins 1968 var
gerð, kröfðust þess í gær að
innrás af þessu tagi yrði ekki
endurtekin og sögðu að virða
þyrfti rétt ríkja til að ráða
sínum málum sjálf.
Blaðamennimir hittust í hring-
borðsumræðum, sem birtar vom í
vikublaðinu Moskvu-fréttir í tilefni
þess að 21. ágúst síðastliðinn vora
20 ár liðin frá innrásinni í Tékkó-
slóvakíu.
„Við getum ekki sætt okkur við
þá hættulegu hugmynd að eitt ríki
geti leyst vandamál annars ríkis
með hemaðarmætti sínum," sagði
einn blaðamannanna, Míkhaíl Polj-
akov. Starfsbróðir hans, Vladímír
Lukín, sagði að undir engum
kringumstæðum væri hægt að
réttlæta það að eitt kommúnist-
aríki tæki sér það bessaleyfi að
taka ákvarðanir fyrir annað
kommúnistaríki.
Lögreglumenn og KGB-liðar
bældu niður mótmæli í Moskvu
sem efnt var til á sunnudag í til-
efni 20 ára afmælis innrásarinnar
í Tékkóslóvakíu. 99 voru hand-,
teknir.