Morgunblaðið - 01.09.1988, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988
O.N. Olsen gjaldþrota:
Skuldir 57 milljón-
ir umfram eignir
í SKIPTARÉTTI ísafjarðar var í gær kveðinn upp úrskurður um
að bú Rækjuverksmiðju O.N. Olsen hf. á ísafirði skuli tekið ti)
gjaldþrotaskipta. Bústjóri hefur verið skipaður Skarphéðinn Þóris-
son hæstaréttariögmaður.
Stjóm fyrirtækisins óskaði eftir
gjaldþrotaskiptum og lagði fram,
beiðninni til stuðnings, bráða-
biigðauppgjör miðað við 2. júní
sl. Þar kom fram að eignir fyrir-
tækisins væru metnar á um 121
milljón króna en skuldir á um 178
milljónir. Skuldir umfram eignir
eru samkvæmt því um 57 milljón-
ir króna. Auk be'ðnar stjómarinn-
ar lögðu Vélsmiðjan Oddi á Akur-
eyri og Skipasmíðastöð Marsel-
líusar á Ísafírði fram kröfu um
gjaldþrotaskipti yfír O.N. Olsen.
Urskurður Bjöms Jóhannssonar,
fulitrúa sýslumanns, var byggður
á kröfii stjómarinnar og Odda en
krafa skipasmíðastöðvarinnar
þótti ekki fullbnægja ákvæðum
laga. Krafa Odda og Skipasmíða-
stöðvar Marsellíusar nam hvor um
sig 2 milljónum króna að höfuð-
stóli. Aðrar kröfur hafa enn ekki
verið gerðar á hendur búinu.
Nokkrir forsvarsmanna O.N. Ols-
en munu hafa tekist á hendur
ábyrgðir fyrir hluta af skuldbind-
ingum fyrirtækisins.
O.N. Olsen hefur rekið eina
stærstu rækjuverksmiðju landsins
og haft um 20 manns í vinnu.
Fyrirtækið hafði ekki stundað
framleiðslu undanfamar vikur eða
frá því að lokað var fyrir orkusölu
til þess vegna vangoldinna reikn-
inga. Starfsfólki hafði þó ekki ver-
ið sagt upp.
Skörðótt girðing á skólalóð
Þessi steingirðing stendur milli Austurbæjar- og Vörðuskóla.
Eins og myndin sýnir er hún brotin á kafla og á að giska 4
metra fall niður á steypt ieiksvæði barna í Austurbæjarskóla.
Band með endurskini hefur verið strengt í skarðið til að vekja
athygli á þeirri hættu sem af getur stafað. Nægir það vonandi til
að aftra bömum frá þvi að fara sér þama að voða, verði við-
gerð ekki lokið áður en skólastarf hefst á næstu dögum.
Eyrarbakki: __
BrúinyfirÖlf-
usárósa vígð
á laugardag
Eyrarbakka.
NÝJA brúin yfir Ölfusaárósa
verður vígð næstkomandi laugar-
dag klukkan 15. Athöfnin verður
við eystri brúarsporðinn og hefst
með leik Lúðrasveitar Selfoss
klukkan 14.45 en klukkan 15 mun
samgönguráðherra opna brúna til
almennrar umferðar.
Brúin hefúr verið lengi á óskalista
og komst á brúarlög 1952, fyrir 36
árum. í tilefni vígslunnar verður opn-
uð sýning í samkomuhúsinu Stað á
Eyrarbakka þar sem baráttusagan
vegna brúarinnar verður rakin. Þá
verður verksmiðjan Alpan opin gest-
um allan september af sama tilefni
og geta þeir sem koma í heimsókn
fengið að kaupa framleiðsluvörur á
verksmiðjuverði. Þær húsmæður sem
eiga afmæli daginn sem þær heim-
sækja verksmiðjuna fá auk þess að
velia sér pönnu í afinælisgjöf.
I sumar hefur verið unnið mikið
að gatnagerð á Eyrarbakka en er
ekki ljóst hvort tekst að leggja slitlag
á götur fyrir laugardaginn.
— Óskar
VEÐURHORFUR í DAG, 1. SEPTEMBER
1988
YFIRLIT í GÆR: Skammt út af suðausturströndinni er hægfara 985
mb lægð sem grynnist, en 1016 mb hæð er milli Svalbarða og
Noröur-Grænlands. Hiti breytist lítið.
SPÁ: Norðaustan gola eða kaldi víðast hvar á landinu. Súld eða
rigning við norður- og austurströndina en annars smáskúrir. Hiti
5—12 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUOAG OG LAUGARDAG: Norðlæg átt og fremur
svalt. Skýjað og dálítil rigning norðanlands en þurrt að mestu fyrir
sunnan.
TÁKN:
Q
s, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
■J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir
er 2 vindstig. y El
Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
/ / / Þokumóða
Hálfskýjað * / * 9 9 9 Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur
* * * 4 Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavik hhi 8 10 veður rigning hálfskýjað
Bergen 14 rigning
Helsinki 15 Hgning
Kaupmannah. 18 hálfskýjað
Narssarssuaq 10 léttskýjað
Nuuk 6 súld
Ósió 18 skýjað
Stokkhólmur 20 hélfskýjað
Þðrshöfn 11 skúr
Algarve 26 léttskýjað
Amsterdam 18 rignlno
Barcelona 27 skýjað
Chicago 16 hálfskýjað
Feneyjar 25 léttskýjað
Frankfurt 22 skýjað
Glasgow 15 skúr
Hamborg 21 skýjað
Las Palmas vantar
London 17 skýjað
Los Angeles 17 poka
Lúxemborg 20 hálfakýjað
Madríd 29 hálfskýjað
Malaga 29 mistur
Mallorca 29 léttskýjað
Montreal 13 léttskýjað
NewYork 19 léttskýjað
Þarís 22 skýjað
R6m 26 hálfskýjað
San Diego 20 pokumóða
Winnipeg 15 skýjað
Framhaldsskólarnir settir:
Búið að koma flest-
nm nemendum fyrir
FLESTIR framhaldsskólar landsins verða settir í dag, en þeir fyrstu
voru settir í gær. Að sögn Stefáns Ólafs Jónssonar, deildarstjóra fram-
haldsskóladeildar menntamálaráðuneytisins, er búið að leysa vanda
langflestra þeirra nemenda, sem ekki höfðu fengið skólavist í þeim
skólum sem þeir óskuðu eftir. Einhvetjir verði þó að bíða fram að
áramótum. Mun fleiri nemendur sóttu um skólavist i framhaldsskólum
landsins í haust en nokkru sinni fyrr, að sögn Stefáns Ólafs. Fjölgunin
er talin vera á milli 500 og 1000, þótt endanlegar tölur liggi ekki fyr-
ir enn, þar sem umsóknir eru enn að berast. Gert er ráð fyrir að nem-
endur í þessum skólum verði þá um 16 þúsund talsins á komandi vetri.
„Við vissum að um fjölgun yrði
að ræða, en hún er talsvert meiri en
við bjuggumst við. Skýringamar eru
fyrst og fremst þtjár. Árgangurinn,
sem lauk grunnskóla í vor, er óvenju-
lega stór. Færri tefjast í námi, þar
sem færri féllu á grunnskólaprófi á
þessu ári. Og svo skiluðu nemendur
nýir nemendur sér illa í framhalds-
skólana í fyrra, sem rekja má til
skattlausa ársins. Svo gæti líka verið
að áhugi á menntun sé að aukast,**
sagði Stefán.
Það voru þrír skólar sem skáru
sig úr hvað fjölda umsókna varðar,
Menntaskólinn við Hamrahlíð, Fjöl-
brautarskólinn í Breiðholti og
Menntaskólinn í Reykjavík. Stefán
sagði, að um þrjár umsóknir hefðu
verið um hvert pláss sem losnaði í
MH.
Haft var samband við Ömólf
Thorlacius, rektor MH, og sagði hann
að þar hefðu verið teknir inn nokkuð
fleiri nemendur en þeir raun og vem
gætu miðað við það húsnæði, sem
skólinn hefur yfir að ráða. Verið
væri að líta á ýmsar hugsanlegar
lausnir í því sambandi, sem ekki
væri séð fyrir endann á. Vandræða-
ástand gæti skapast ef lausn finndist
ekki fljótlega. Sömu sögu er að segja
af fleiri skólum.
Ömólfur sagði að þegar væri kom-
inn biðlisti umsókna um skólavist um
áramót. Vandi allflestra hefði verið
leystur nú með því að vísa þeim á
aðra skóla. „Það em oft svolítil vand-
ræði með þá nemendur, sem koma
utan af landi. Það á oft ekki kröfú
um skólavist neins staðar. En ég
veit ekki annað en að þetta hafi að
mestu gengið," sagði Ömólfur.
Eigendaskipti til-
kynnt í pósthúsi
NÝTT fyrirkomulag á tilkynning-
um um eigendaskipti ökutækja tíl
bifreiðaskrár tekur gildi í dag, 1.
september. í stað þess að menn
þurfi að gera sér ferð til Bifreiða-
eftirlits og greiða þar gjald munu
framvegis liggja frammi í póstaf-
greiðslum sérstakir seðlar.
Á þá skal rita nafn kaupanda og
fyrri eiganda, kennitölu þeirra og
fast númer bíls samkvæmt skráning-
arvottorði. Einnig upplýsingar um
tegund og árgerð bfls og trygginga-
félag kaupanda. Afgreiðslkustaðir
Pósts og síma veita seðlinum viðtöku
og koma í réttar hendur gegn
greiðslu 1500 króna gjalds til bif-
reiðaskrár.
Bílnúmer;
Nýju plötumar í október
NÝ tegund bílnúmera er væntan-
leg á markað i októbermánuði að
sögn Björns Friðfinnssonar að-
stoðarmanns dómsmálaráðherra.
Nú er unnið að því á vinnuhælinu
Litla-Hrauni að koma fyrir tækjum
sem notuð verða við framleiðslu núm-
eraplatanna og gera nauðsynlegar
breytingar á húsnæði hælisins. Vist-
menn Litla-Hrauns munu vinna að
framleiðslunni. Bjöm Friðfinnsson
sagði að þegar nýju númerin yrðu
til staðar verði þau send bifreiðaum-
boðum, sem muni setja þau á nýja
bíla við sölu og senda hlutaðeigandi
yfírvöldum tilkynningar um eigend-
ur.
Bjöm sagði að skipt yrði um núm-
er á öllum eldri bílum í eigu erlendra
sendiráða, svo og á bflum Vamarliðs-
ins en öðrum yrði í sjálfsvald sett
hvort þeir haldi eldri númerum á
bflum sínum eða fái hin nýju.