Morgunblaðið - 01.09.1988, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988
.17
Reykjanesbraut:
Gúmmímalbik á 400m
kafla við Kúaarerði
Keflavík. ^
sinnum á undanfomum árum og
nú væri svo komið að vegurinn
þyldi ekki frekari fræsingu. Því
væri leitað nýrra leiða til viðhalds
á veginum og virtist mönnum sem
gúmmímalbikið gæti verið heppi-
legur kostur.
Sigurður sagði að í malbikið
væru notuð niðurspænd bíldekk
sem gæfu malbikinu þá eiginleika
að geta þanist á alla vegu. Virtist-
það gefa góða raun á vegum þar
sem hætta væri á ísingu, sem ein-
faldlega brotnaði af malbikinu við
umferðarþunga.
Lagning vega með gúmmímalbiki
er á tilraunastigi enn sem komið
er og er hið danska fyrirtæki leið-
andi á því sviði. Sigurður sagði að
tilraunir hefðu verið gerðar bæði í
Danmörku og Svíþjóð með efnið og
lofuðu þær góðu. Danir notuðu ekki
nagladekk, en það gerðu Svíar og
hefði gúmmfmalbikið staðist vel
áníðslu nagladekkjanna.
- BB
STARFSMENN Hlaðbæjar og
Colas unnu á mánudag og þríðju-
dag við að setja svokallað
gúnunímalbik á 400 metra kafla
á Reykjanesbraut við Kúagerði.
Að sögn Sigurðar Sigurðarsonar
verkfræðings þjá Hlaðbæ er hér
um tilraunakafla að ræða og er
verkið unnið í samvinnu við
danska fyrirtækið Colas sem
sendi sérfræðing hingað til lands
til að stjórna verkinu.
Sigurður sagði að Reykjanes-
brautin hefði verið fræst nokkrum
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Unnið við lagningu gúmmímalbiks á Reykjanesbraut. Malbikið er 4
sm á þykkt og er 20 gráðum heitara þegar það er lagt en venjulegt
malbik eða 180 gráður.
Orgeltón-
leikar í Dóm-
kirkjunni
FRANSKI orgelleikarinn Loi'c
Mallié heldur tónleika á vegum
Alliance frangaise í Dómkirkj-
unni í Reykjavík I kvöld klukkan
20.30.
Þetta _ verða síðustu tónleikar
hans á íslandi að þessu sinni, en
áður lék hann á Prestbakka á Síðu
og á Akureyri eins og fram hefur
komið í §ölmiðlum.
Tónleikamir hefjast á þremur
sálforleikjum og Prelúdíu og fúgu
í G-dúr eftir J.S. Bach. Síðan eru
þættir úr Fæðingu frelsarans og
úr Uppstigningunni eftir Olivier
Messiaen. Loks eru þættir úr Þrett-
ándanum eftir Loíc Mallié sjálfan.
í lok tónleikanna ieikur Loi'c Mallié
af fíngrum fram út frá steflum sem
. honum verða fengin á staðnum.
(Fréttatilkynning)
Leiðrétting
í frétt Morgunblaðsins laugar-
daginn 27. ágúst frá ferð forseta
íslands, Vigdísar Finnbogadótt-
ur, um Húnavatnssýslu var faríð
rangt með nokkur atriði. Þau eru
leiðrétt hér á eftir.
í fréttinni segir frá því að í Borg-
arvirki, sem er milli Vesturhóps og
Víðidals, hafí eitt sinn varist maður
sem eftir langa umsát kastaði
síðasta matarbitanum út úr virkinu.
í Heiðarvíga sögu er sagt frá deilum
Barða Guðmundssonar við Borg-
firðinga og því er Borgfirðingar
komu með her að sunnan. Flutti
Barði sig þá ásamt liði sfnu til virk-
isins en Borgfirðingamir gerðu
umsátur og ætluðu að svelta Barða
inni. Þegar liðsmenn Barða vom
orðnir matarlitlir vildu þeir láta
Borgfirðingana halda að þeir ættu
enn nógan mat og hentu slátur-
keppum úr virkinu. Hurfu þá Borg-
firðingamir á brott.
Minnisvarðinn á Breiðabólsstað {
Vesturhópi var reistur til minningar
um Hafliða Másson, lögmann og
höfðingja sem færði fslensk lands-
lög fyrst í letur árið 1117. í frétt-
inni var ranglega sagt að minnis-
merkið væri um fyrstu prentsmiðju
landsins. Það var Lögmannafélagi
íslands sem lét reisa varðann árið
1974.
Þá var Ólafur Óskarsson, oddviti
í Þorkelshólshreppi ranglega sagð-
ur hreppstjóri.
Fróðleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
HINN EINI OG SANNI
■ ■
STORUTSOLUMARKAÐUR
HEFSTÍDAG KL. 13 E.H.
Á DRAGHÁLS114-16
Gífurlegt vöruúrval
□ Tískufatnaðurn Efni
o Herra- og dömufatnaður
□ Barnafatnaður
o Herra-, dömu-og barnaskór
o Sportvöruro Blóm
□ Skartgripiro Hljómplötur
□ Kassetturo Hljómtæki
o Sængurfatnaður
□ Rúmfatnaðuro.m.fl.
FJOLDI
FYRIRTÆKJA
□ KARNABÆRo STEINAR o HUMMEL
o GEFJUNo RADÍÓBÆRo BÓNAPARTE
□ MÍLANÓ □ SKÓGLUGGINNo THEÓDÓRA
o MÆRAo NAFNLAUSA BÚÐIN o KÁRI
o BLÓMALISTo ÁNARO.FL.
^w5bor»°9
(ríttkaHi-
\j\deóV\orn
tyrk
Gaas\a
börntn.
unattím'
nsWÓ
Fos
V_ao
Aftta
Iták'
A3-19
l9atd
(táVl
daga
VtáVJ'
13-18
sw*'
6129»