Morgunblaðið - 01.09.1988, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 01.09.1988, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988 Bæir frönsku fiskimann- anna taka upp vinasamband Bæjarstjórn og bæjarstjórínn á Fáskrúðsfírði og hins vegar borgar- stjórinn í frönsku borginni Gravelines ákváðu á mánudag að taka upp vinasamband milli þessara tveggja bæja, sem á 19, öld og fram að seinni heimstyrjöldinni komu svo mjög við sögu þorskveiða Frakka við ísland. M. Albert Denvers, borgarstjórí í Gravelines og forseti Sambands sveitarstjórna á Dunkerquesvæðinu hafði ámálgað vina- bæjarsamband og flaug með 16 manna hóp Frakka til Fáskrúðs- fjarðar á mánudag, þar sem bæjarstjómin tók á móti þeim. Byijaði M. Denvers á að leggja í ausandi rígningu blómsveig að minnismerk- inu um franska sjómenn í Franska kirkjugarðinum á Krossum innan við þorpið. Þá skoðuðu gestirnir elsta franska spitalann frá 1895, sem nú er vel við haldið ibúðarhús, og eftir hádegisverð í boði bæjarstjómar var skoðuð i grunnskólanum ljósmyndasýning með gömlum myndum frá þeim tíma sem franskir fiskimenn vom á Fá- skrúðsfirði og reistu og ráku þar stóran franskan spítala á árunum 1902-1925, svo og sjómannaheimili og vom komur frönsku skútanna stór þáttur í bæjarlifinu. Albert Denver sagði í ávarpi sínu til bæjarstjómar Fáskrúðsfjarðar að þegar hann fyrir tilviljun kjrnnt- ist hjónunum Leonardo og Lilju Skaftadóttur Banatov, sem er íslensk, hefði hann hugsað til físki- mannanna frönsku sem fóru frá Dunkerque og Gravelines og voru 6 mánuði á ári hér norður í höfum. ’ Og sögðu svo við heimkomuna frá í hádegisverðarboði hjá bæjarstjórninni á Fáskrúsfirði. Lengst til vinstri bæjarstjórinn Þröstur Sigurðsson, Caillavet þingmaður, M. Delahay, höfundur bókar um frönsku Islandsfarana, M. Denvers borgarstjórí og aftan við þá má sjá Sigurð Þorgeirsson, bæjarfulltrúa. ísiandi og lífí sínu hér við land. Sjálfur kvaðst hann hafa orðið vitni að því þegar þeir vora að kveðja og halda á miðin og einnig þegar þeir komu aftur. Það hafí verið áhrifamikil stund, ekki síst fyrir það að fyrir þessa sjómenn á skútunum og fjölskyldur þeirra var hafið kring um Island haf Dauðans. Hann sagði að þau væra lengi búin að velta fyrir sér hvað hægt væri að gera til að halda við þessum minningum, sem bæði væra enn lifandi á Is- landi og Frakklandi. Það væri ein- faldlega ekki hægt að fara frá ís- landi og gleyma því, eins og ekkert hefði gerst. Nú hefði verið fundin leið til að hafa samband á allt öðr- um forsendum en áður var. Ekki þyrfti mikla skriffínsku eða form- legheit til að tengja vinasambandi þessa tvo bæi. Þarna væri ekki um að ræða að þú gerir þetta fyrir okkur og við geram hitt fyrir ykk- ur. Stærðarmunur bæjanna ætti ekki að skipta þarna neinu máli. Aðalatriðið væri að bytja smátt að skiftast á vináttutengslum, með samskiptum íþróttafólks, með gagnkvæmum heimsóknum bama frá bæjunum og gagnkvæmum skiptum á menningar- og listasvið- inu, enda hefði hann með sér í ís- landsferðinni bæði M.Delahay, menningarfulltrúa í Gravelines sem er að ljúka við bók um íslands- fiskimennina frá þeim bæ, svo og Madame Dominique Tonneau, for- stöðumann listasafnsins þar, svo strax sé hægt að þreifa fyrir sér við aðila á íslandi, bæði á Fáskrúðs- fírði og söfnum Reykjavíkur. Og á endanum gætu samskiptin við ís- land orðið að siglingakeppni á stór- an mælikvarða, þar sem siglt yrði austur fyrir og vestur fyrir landið og til Reykjavíkur. En slíkt væri ekki ákveðið svona á stundinni. Sagði hann að báðir aðilar gætu bara byijað á að stinga upp á því sem þeir hefðu áhuga á og Graveli- nesbær byði eftir að taka á móti gestum frá Fáskrúðsfírði. Albert Kemp, oddviti bæjar- stjómar, hafði boðið gesti velkomna fyrir hönd bæjarins og þakkaði M. Denvers fyrir að hafa lagt svona stóra lykkju á leið sína til að koma til Fáskrúðsfjarðar. Minntist hann þeirra tíma er Frakkar vora tíðir gestir á Fáskrúðsfirði og hann af- henti M. Denvers fallega mynd af Búðakaupstað tii að taka með sér GÓLFFLfSAMARKAÐUR Seljum næstu daga takmarkaö magn af gæöa Höganás flísum, á lækkuöu verði. Flísar í andyrið, á stofuna eða jafnvel á allan gólfflötinn Þetta er tækifæri sem kemur ekki aftur! HÉÐINN SEUAVEGI 2.SÍMI 624260

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.