Morgunblaðið - 01.09.1988, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988
27
Genfar-viðræðurnar:
Bandaríkjamenn segja Kras-
nojarsk hamla samningum
NYT
Hluti ratsjárkerfisins, sem tengt verður Krasnojarsk-ratsjánni. Gert er
ráð fyrir að Sovétmenn ljúki byggingu kerfisins i upphafi næsta árs, en
þá er þeim fátt að vanbúnaði til þess að geta stýrt gagnflaugakerfi.
SAMNINGAMENN Bandaríkja-
stjórnar vöruðu við því í gær, að
endurtekin höfnun Sovétmanna á
þeirri kröfu að umdeild ratsjár-
stöð í Krasnojarsk i Síberiu verði
lögð niður, myndi koma i veg fyr-
ir að samningar næðust um fækk-
un langdrægra kjarnavopna
[START] og vopnakerfa í geimn-
um. í yfirlýsingu frá samninga-
nefnd Bandarikjamanna, sem gef-
in var út eftir vikulangar viðræð-
ur við Sovétmenn um sáttmála frá
1973 um takmarkanir á gagn-
flaugakerfum (ABM-sáttmálinn),
sgaði að Bandarikjamenn áskildu
sér enn þann rétt að skilgreina
ratsjárstöðina sem „efnislegt
brot“ á sáttmálanum. Samkvæmt
alþjóðalögum myndi slik yfirlýs-
ing veita Bandarikjamönnum rétt
til þess að ógilda ABM-sáttmálann.
Bandaríkjastjóm hefur einnig látið
þá afstöðu sína afdráttarlaust í ljós,
að tilvist ratsjárstöðvarinnar í
Krasnojarsk gerir það ómögulegt að
ná frekari afvopnunarsamningum í
START-viðræðunum eða hvað varð-
ar önnur vamar- og geimvopna-
kerfi," sagði meðal annars í yfirlýs-
ingunni, sem undirrituð var af Terry
Shroeder, talsmanni smaninga-
nefnda Bandaríkjastjómar í Genf.
í yfirlýsingunni sagði ennfremur
að ratsjárstöðin í Krasnojarsk væri
ósvífið brot á ABM-sáttmálanum, en
hann kveður á um að aðeins megi
koma upp vamarkerfi gegn lang-
drægum kjamaflaugum á einum stað
í aðildarríkjum sáttmálans. Opin-
berlega hafa Sovétmenn slíkt vopna-
kerfí einungis við Moskvu, en Banda-
ríkjamenn gáfust fljótlega upp á að
starfrækja sitt kerfi, þar sem það
var bæði óhemjukostnaðarsamt og
ólíklegt að það skipti sköpum í kjam-
orkuárás.
„Krasnojarsk-brotið er mjög alvar-
legt, sérstaklega þegar litið er til
þess að ratsjárstöðin er hiuti víðtæks
ratsjárkerfis, sem nota má til þess
að meta kjarnorkuárás til stuðnings
gagnflaugakerfis."
Bandaríkjamenn em þó ekki einir
um að telja brot á ABM-sáttmálanum
hafa átt sér stað. Sovétmenn segja
að geimvamaáætlun Bandaríkja-
manna bijóti í bága við hann og segja
ratsjárstöðvar Bandaríkjamanna í
Thule á Grænlandi og í Fylingdale á
Norður-Englandi.
START-viðræðumar um takmörk-
un langdrægra kjamorkuflauga hóf-
ust í Genf árið 1981 að tillögu Ron-
alds Reagans Bandaríkjaforseta.
Árið 1985 féllust Sovétmenn á þá
uppástungu Bandaríkjastjómar að
viðræðumar skyldu miða að því að
fækka langdrægum kjamorkuflaug-
um svo um munaði, en ekki einungis
að því að draga úr fjölgun þeirra.
A leiðtogafundi risaveldanna í
Genf árið 1985 féllust þeir Reagan
og Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi
á að gmndvöllur viðræðnanna skyldi
vera helmingsfækkun langdrægra
kj amorkuflauga.
Við undirritun Washington-sátt-
málans um upprætingu skamm- og
meðaldrægra kjamorkuflauga í des-
ember á síðasta ári urðu leiðtogamir
ásáttir um að START-sáttmálinn
skyldi gmndvallaður á 50% fækkun
langdrægra kjamorkuflauga, en auk
þess sömdu þeir ýmsar takmarkanir
aðrar. Þær snemst meðal annars um
1.600 flauga hámark og mega þær
ekki bera fleiri en 6.000 kjamaodda.
Þá var samið um þak á burðarmestu
flaugamar og mega 154 slíkar ekki
bera meira en 1.540 kjamaodda alls.
VERÐIAGSSTOFNUN
Liður í efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar
er bann við hækkun vöru og þjónustu út
september.
Nú reynir á, að neytendur haldi vöku sinni
og fylgist grannt með verðlagi.
Verðgæsla almennings er öflugasta vopnið.
Ef fólk verður vart við, að verð vöru og þjón-
ustu hækki í september getur það snúið sér
til Verðlagsstofnunar.
Vegna VERÐSTÖÐVUNARINNAR hefur
Verðlagsstofnun opnað sérstakan verð-
gæslusíma: 62 21 01