Morgunblaðið - 01.09.1988, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988
Svíþjóð:
Einkaaðilar safna upplýs-
ingum um Sovét-njósnara
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaösins.
FJARMALAMAÐURINN Tom-
as Fischer studdi á sínum tíma
sjálfstæða rannsókn bókaút-
gefandans Ebbe Carlssons á
morðinu á Olof Palme með
tveim milljónum sænskra króna
(14,5 milljónum ísl. kr.). Fischer
hefur nú viðurkennt að hafa
greitt eina milljón (7,2 milljónir
ísl. kr.) til hóps sem safnar
upplýsingum um ferðir flutn-
ingabíla frá Austantjaldsríkj-
unum á leið um Svíþjóð.
Einn af félögum hópsins er
Hans von Hofsten, skipherra í
sænska flotanum, en hann er
þekktur fyrir hvassa gagnrýni
sína á meint viljaleysi stjóm-
málamanna til að stöðva kaf-
bátaferðir Sovétmanna í sænskri
landhelgi.
Að sögn Tomas Fischers er það
augljóst að flutningabílum frá
Austantjaldsríkjunum, einkum
Sovétríkjunum, er ekið um vegi í
nánd við mikilvægar herstöðvar
þar sem bílstjórarnir eiga ekkert
erindi. Hópurinn hefur staðfest
að stundum hafa bílstjórarnir ekið
meira en 320 kílómetra fyrir utan
áætlaða akstursleið um Svíþjóð. I
meira en ár hefur hópurinn notað
fullkomin tæki til að fylgjast með
ferðum bílstjóranna. Markmiðið
er að safna upplýsingum um þetta
framferði svo að ríkistjóm og
heryfirvöld geri gangskör að því
að uppræta njósnir flutningabfl-
stjóranna.
Fjölbreytt úrvai af rokki, nýbylgju, blús, djassi
o.fi.
Smá sýnishorn:
gramm
Laugavegi 17,
n?)
sími 12040.
Hljómplötur:
Annie Anxiety - Jackomo
Al Green - Allar
Black Flag - Flestar
B.B. King - Best Of Vol. 1 & 2
Creedence Clearwater Revival
- 5 titlar
Clannad-5titlar
Cocteau Twins - Flestar
Elvis Costello - Out Of Our
Idiot
Del-Lords - Based On A T rue
Story
Death In June - Oh How We
Laughed & Brown Book
Erasure - The Innocents
Martin Stephenson -
Gladsome, Humour & Blue
Prefab Sprout - From Langley
ParkTo Memphis
The Men They Couldn’t Hang
- Waiting For Bonaparte
VanHalen-OU812
Smithereens - Green
Thoughts
Bobby McFerrin - Simple
Pleasures
Minutemen - Flestar
Ýmsir-LaBamba2
New Order - Substance
Velvet Underground - Live '69
Soft Cell - Non Stop Erotic
Cabaret
Throwing Muses - Throwing
Muses
Ýmsir - Lonely Is An Eyesore
This Mortal Coil - Filigree &
Shadow
Loudness - Disillusion 8c
Thunder In The East
Imperiet-Flestar
Luxuria - Unanswerable Lust
Jimi Hendrix - Flestar
Pat Metheny- Flestar
Depeche Mode - Music For
Masses
The Woodentops -
Woodenfoot Cops On...
New Order - Flestar 12 tommur
Geisladiskar:
Bubbi - Dögun
Bubbi- Kona
Sykurmolarnir - Cold Sweat
New Order - Movement
New Order - Brotherhood
Nick Cave - The Firstborn Is
Dead
Woodentops - Giant
Woodentops - Woodenfoot
Cops...
Cocteau Twins - Flestar
This Mortal Coil -
Filigree & Shadow
Mojo Nixon & Skid Roper -
Bodayshus
íslenskar hljómplötur:
Súld - Búkólíki
Megas - Loftmynd
Bubbi- Dögun
Das Kapital - Lilli Marlene
Sogblettir- E.P.
Bleiku Bastarnir
Bubbi-Nýspor
HÖH/Current 93 -
Crowleymass
Bubbi/Sykurmolarnir/Skytturnar
Reuter
Krani lyftir kínversku Trident-þotunni upp úr sjónum við Viktoríu-
höfn í Hong Kong, þar sem hún hrapaði í gær. Sex úr áhöfn þotunn-
—ar og einn farþegi fórust í slysinu.
Hong Kong:
Sj*ö manns fórust í
flugslysi við höfnina
Hong Kong. Reuter.
KÍNVERSK þota, með 89 manns innanborðs, hrapaði í sjóinn við
höfnina í Hong Kong í gær með þeim afleiðingum að hún rifnaði í
tvennt og sex úr áhöfninni og einn farþegi létu lífið.
Slæmt veður var þegar slysið
átti sér stað, þoka, rok og úrhelli.
„Ég sá eldtungur aftast í þotunni.
Hún opnaðist fyrir ofan mig og ég
stökk strax í sjóinn,“ sagði einn
þeirra sem komust af í samtali við
fréttaritara Reuters. Annar sagði
að nokkrir farþeganna hefðu kvart-
að yfir því að sætisbeltin hefðu
verið í ólagi þegar þegar hóf sig
til flugs' 35 mínútum áður en slysið
varð. „Þegar þotan hrapaði lyftust
þeir upp sem ekki gátu spennt
sætisbeltin."
Bátar voru notaðir við björgun
þeirra sem komust af og kafarar
björguðu tveimur úr stjórnklefa
þotunnar, sem var allur undir yfir-
borði sjávar. Aðrir úr áhöfninni fór-
ust í slysinu. Stór krani var notaður
til að lyfta þotunni úr sjónum.
Kai Tak-flugvöllurinn í Hong
Kong er talinn einn af tíu erfiðustu
flugvöllum heims vegna hæða og
háhýsa grenndinni.
Sovétríkin:
Segja enga geisla-
hættu af gervihnetti
Moskvu, Reuter.
SOVESKUR embættismaður sagði
í gær að engin hætta væri á geislá-
virkni vegna sovésks gervihnatt-
ar, sem talið er hrapa muni til
jarðar á næstu tveimur mánuðum.
Evgeníj Kúlov, sem er embættis-
maður við Kjarnorkunefnd ríkis-
ins, sagði í viðtali við vikublaðið
Moskvufréttir að tvær ráðstafanir
myndu koma í veg fyrir að geisla-
hættu stafaði af gervihnettinum
Cosmos 1900, sem skotið var á
braut um jörðu i desember síðast-
liðnum. Ekkert samband hefu ver-
ið við hnöttinn frá í apríl.
„í fyrsta lagi losnar kjamaofninn
sjálfkrafa frá gervihnettinum í 800
km hæð yfír jörðu, þar sem hinum
geislavirku hlutum hnattarins verður
splundrað," sagði Kúlov.
Hann sagði að þetta myndi eiga
sér stað ef hnötturinn færi af réttri
sporbraut, þrýstingur félli í tækja-
hólfínu eða eldsneytisvandræði
kæmu upp.
Einnig sagði Kúlov að ef þetta
sjálfvirka kerfi stæði á sér myndi
kjamaofninn splundrast í efri lögum
lofthjúpsins (í 115-120 km hæð)
vegna hitans, sem myndaðist við
núningsmótstöðu lofthjúpsins.
„Miðað við útreikninga okkar
myndi bmni kjamaofnsins og eyðing
í þéttari lögum lofthjúpsins ekki auka
geislavirkni á yfirborði jarðar svo
neinu nemi,“ sagði Kúlov. „Þess
vegna er engin ástæða til þess að
óttast geislavirkni vegna Cosmos
1900.“
Sérfræðingar Evrópsku geim-
ferðastofnunarinnar (EPA) í París
sögðu fyrr í mánuðinum að þeir
fylgdust grannt með falli gervihnatt-
arins, en kváðust enn ekki geta spáð
fyrir um hvort kjarni kjamaofnsins
myndi losna frá hnettinum, brenna
upp eða lenda á yfirborði Jarðar.
Talið er að gervihnötturinn muni
hefja innreið sína í lofthjúpinn í sept-
ember eða október, en hvar hann
mun bera niður er ekki hægt að segja
um nema með eins til tveggja daga
fyrirvara.
Annar sovéskur gervihnöttur,
Cosmos 954, brotlenti í óbyggðum
Kanada árið 1978 og dreifðust
geislavirk efni úr honum yfír mikið
svæði. Árið 1983 lenti kjaminn úr
kjamaofni Cosmos 1402 í Indlands-
hafí, en náið hafði verið fylgst með
honum af löndunum, sem hann átti
braut yfír.
Sovétríkin:
Átök milli
Azerbaíj#ana
og Moskvubua
Moskvu. Reuter.
LÖGREGLAN .í Moskvu handtók
33 menn eftir að átök höfðu brot-
ist út milli Azerbaíjana og ungra
Moskvubúa i gær, að því er Prav-
da, málgagn sovéska kommún-
istaflokksins greindi frá í gær.
Blaðið skýrði frá því að átökin
hefðu hafist þegar Moskvubúarnir
hefðu veist að Azerbaíjönum sem
voru að selja vörur fyrir framan
fataverslun. Ekki var greint frá því
hvort einhvetjir hefðu slasast.
Að sögn blaðsins söfnuðust um
150 Azerbaíjanar og Moskvubúar
saman við verslunina síðar um dag-
inn, en lögreglan kom í veg fyrir
frekari átök. Blaðið hafði það eftir
lögreglumönnum að lög heimiluðu
þeim ekki að grípa til aðgerða sem
dygðu til að koma í veg fyrir að
slíkir atburðir endurtækju sig. Þeir
kröfðust ennfremur harðari refs-
inga.