Morgunblaðið - 09.10.1988, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Bifvélavirki
Óskum að ráða sem fyrst bifvélavirkja með
réttindi til Ijósastillinga.
Skorrihf.,
sími 686810.
Gott starfsfólk
Viljum ráða nú þegar gott starfsfólk til eftir-
talinna starfa:
Mikligarður við Sund:
- starfsmann í bakarí
- starfsmann í söluturn
- starfsmann í grænmetistorg
- starfsmann til að sjá um uppfyllingu á öli
og gosi
- starfsmann á lager
Mikligarður vestur í bæ
- starfsmann á kassa
- starfsfólk til alhliða verslunarstarfa
Starfsmannafríðindi og góð vinnuaðstaða í
glæsilegum verslunum. Upplýsingar veitir
starfsmannastjóri í Kaupstað í síma 675000
milli kl. 10.00 og 12.00 og í Miklagarði milli
kl. 14.00 og 16.00.
AIIKLIG4RÐUR
Starfsfólk óskast
Einar J. Skúlason hf. er öflugt og ört vaxandi
fyrirtæki á sviði tölvu- og skrifstofutækni.
Vegna aukinna verkefna og umsvifa þurfum
við að bæta við starfsfólki í eftirtaldar tvær
stöður:
í þjónustudeild:
Starfið er fólgið í uppsetningu á tölvubúnaði
og aðstoð við notendur tölva.
í söludeild:
Starfið felst í sölu á tölvubúnaði og þjónustu
við viðskiptamenn.
Við leitum að ungu og hressu fólki sem hef-
ur umtalsverða þekkingu á PC vél- og hug-
búnaði og getur starfað sjálfstætt. Stúdents-
próf er áskilið.
Upplýsingar veitir Örn Andrésson (ekki í
síma). Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál.
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 686933.
Dagheimili
ríkisspítala
Sólhlíð/dagheimili
Starf forstöðumanns Sólhlíðar í Engihlíð er
laust til umsóknar. l' Sólhlíð er rekið 5 deilda
dagheimili fyrir börn starfsfólks ríkisspítala.
Skóladagheimili Vífilsstaða
Starf forstöðumanns er laust til umsóknar
frá 1. janúar 1989. Skóladagheimilið er ein
deild og er rekið fyrir börn starfsfólks
ríkisspítala.
Umsóknir skulu sendar dagvistarfulltrúa,
Mörtu Sigurðardóttur, Engihlíð 8, fyrir 24.
október.
Upplýsingar gefur dagvistarfulltrúi, í síma
601590.
Töl vu na rf ræði nga r
Tölvunarfræðingur (B.S.) óskar eftir starfi.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„T - 4764“ fyrir 20. október.
Sölumaður
fasteigna
Fjölskyldumaður sem starfað hefur sem sölu-
maður fasteigna hjá virtri fasteignasölu í
Reykjavík, óskar eftir starfi. Góð þekking á
öllu því er snertir viðskipti.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir kl.
17.00 þriðjudaginn 11. október merkt: „J -
7511“.
íþróttakennari -
Bolungarvík
Af sérstökum ástæðum vantar íþróttakennara
nú þegar til starfa við Grunnskóla Bolungarvík-
ur. Fyrir hendi er einstaklega góð aðstaða til
starfa. Nýtt og fullbúið íþróttahús og mjög
góð sundlaug. Hiunnindi í boði.
Upplýsingar gefa formaður skólanefndar í síma
94-7540 og skólastjóri í símum 94-7249 og
94-7288.
Skólanefnd.
RSK
Rgnnsókngrdeijd
Lögfræðingur
Staða lögfræðings hjá rannsóknardeild ríkis-
skattstjóra er laus til umsóknar.
í boði eru áhugaverð verkefni á sviði skatt-
rannsókna og skatteftirlits, góð vinnuað-
staða, sveigjanlegur vinnutími og góður
starfsandi.
Starfið veitir innsýn í túlkun og framkvæmd
skattalaga ásamt möguleika á að kynnast
bókhaldi og reikningsskilum fyrirtækja.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf óskast sendar rannsóknardeild ríkis-
skattstjóra, Laugavegi 166, Reykjavík, fyrir
21. október 1988.
Nánari upplýsingar veitir Oddur Gunnarsson,
í síma 623300 eða 19169.
Skattrannsóknarstjóri
Kópavogshæli
Deildarþroskaþjálfar óskast til starfa sem
fyrst á deildir 8 og 20.
Fræðslustjóri óskast í 50% starf.
Menntun: Þroskaþjálfi eða sambærileg
menntun.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.
Starfsmenn óskast við umönnun og
aðhlynningu vistmanna. Um er að ræða
100% störf á dagvöktum og 70% störf á
næturvöktum á ýmsum deildum.
Upplýsingar um ofangreind störf veita yfir-
þroskaþjálfi og hjúkrunarforstjóri í síma
41500.
Gott starfsfólk
Viljum ráða nú þegar gott starfsfólk í eftir-
taldar deildir:
- í dömudeild
- í bóka- og ritfangadeild
- í sportvörudeild með hlutastarfi á sérvöru-
lager
í boði eru:
Störf í einni glæsilegustu deildarskiptu sér-
vöruverslun landsins. Góð starfsmannaað-
staða og starfsmannafríðindi.
Kröfur:
Viðkomandi þurfa að vera stundvísir, reglu-
samir, þjónustuliprir og geðgóðir.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í Kaup-
stað í síma 675000.
KAUKTAÐUR
ÍMJÓDD
|P DAGVI8T BARIVA
Fóstrur, þroska-
þjálfar, áhugasamt
starfsfólk!
Dagvist barna í Reykjavík óskar eftir starfs-
fólki í gefandi störf á góöum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir
hádegi.
Uppiýsingar veita forstöðumenn eftirtalinna
dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar
barna, sími 27277:
Vesturbær - miðbær
Ægisborg Ægisíðu 104 s. 14810
Austurbær
Nóaborg Stangarholti 11 s. 29595
Stakkaborg Bólstaðarhlíð 38s. 39070
Árbær
Árborg Hlaðbæ 19 s. 84150
Landspítali
Sjúkraþjálfari
Sjúkraþjálfari óskast í fullt starf á barnaein-
ingu. Um framtíðarstarf er að ræða.
Nánari upplýsingar gefur Unnur Guttorms-
dóttir, yfirsjúkraþjálfari, í síma 601425.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast á Lyflækninga-
deild 14 E (hjartadeild). Um er að ræða
80-100% starf unnið í vaktavinnu.
Hjúkrunarfræðingur óskast á göngudeild
krabbameinslækninga. Um er að ræða
80-100% starf unnið í dagvinnu.
Nánari upplýsingar um ofangreind störf veit-
ir Hrund Scfi. Thorsteinsson í síma 601290.
Starfsmenn
Starfsmenn óskast nú þegar til starfa við
ræstingar og í býtibúr. Um er að ræða dag-
vinnu, 100% starf.
Upplýsingar gefa ræstingastjórar í síma
601530.
RÍKISSPÍTALAR
STARFSMANNAHALD
RÍKISSPÍTALAR
KÓPAVOGSHÆU
RÍKISSPÍTALAR
LANDSPÍTAUNN