Morgunblaðið - 12.10.1988, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1988
Bush spáð meirihluta
meðal kjörmannanna
Frá ívari Guömundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins i Washington.
GEORGE Bush, frambjóðandi
repúblikana, hefir unnið allveru-
lega á í kosningabaráttunni und-
anfarið og hefir nú 12% fram-
yfir Michael Dukakis í 15 Suð-
urríkjum samkvæmt skoðana-
könnun, sem Atlanta Journal-
Constitution stendur að og birti
á mánudag. Blaðið telur, að Bush
hafi unnið 9 stig í suðurhluta
landsins og hefir þar að auki
fylgi 49% kjósenda í Massac-
husettes, heimaríki Dukakis,
gegn 37% en þar hafa 12% kjós-
enda ekki enn ákveðið hvorn
þeir ætla að kjósa.
um spádómi er reiknað með því,
að Bush vinni Kalifomíu, sem hefir
flesta kjörmenn, 47, Flórída með
21, IHinois 24, Pennsylvaníu með
25 og Texas 29. Dukakis er spáð
mestu fylgi meðal kjörmanna í New
York, sem hefur 36 fulltrúa.
Það eru kjörmennimir, sem end-
anlega kjósa forsetann og varafor-
setann. Eru þeir kjömir eftir föstum
reglum í hveiju ríki fyrir sig og fer
tala fulltrúa frá hveiju ríki eftir
íbúafjölda þeirra. Kjörmennimir em
samtals 538, þannig að það þarf
minnst 270 samhljóða atkvæði til
að kjósa forsetann. Það er hugsan-
legt — en ólíklegt — að kjörmenn
kjósi forsetaframbjóðanda, sem
ekki hlaut meirihluta atkvæða í al-
mennu forsetakosningunum. Hefir
það komið fyrir þrisvar sinnum í
stjómmálasögu Bandaríkjanna.
Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, í ræðustóli í gær á 43.
allsheijarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Ræða utanríkisráðherra á allsheijarþingi SÞ;
Bandarísku forsetakosningarnar:
Mikilvægt að draga úr hern-
aðaruppbyggingu á höfunum
JÓN Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, situr nú 43. allsheijar-
þing Sameinuðu þjóðanna og flutti í gær ræðu í hinni almennu
umræðu þingsins. Ráðherrann lagði m.a. áherslu á mikilvægi þess
að samningar um niðurskurð langdrægra kjarnavopna á landi yrðu
tfl þess að draga úr hernaðaruppbyggingu á og í höfúnum. Af þess-
um sökum væri það íslendingum ánægjuefni að stórveldin skyldu I
meginatriðum verða sammála um það á leiðtogafúndinum f Was-
hington að leita leiða tfl að takmarka langdrægar kjamorkustýri-
flaugar, sem skjóta má af sjó. „Það er alkunna, að ísland leyfír
ekki kjarnavopn innan síns landsvæðis og gerir einnig ráð fyrir að
skip sem koma til hafiiar virði íslenskt fullveldi," sagði ráðherrann
ennfremur.
í Texas, sem er heimaríki George
Bush, virðist hann hafa 15 stig
framyfir Dukakis. í Flórída gengur
honum enn betur með 26 stig fram-
yfir mótheijann. Skoðanakönnunin
bendir til þess, að 73% þeirra, sem
kusu Reagan, muni kjósa Bush og
40% svokallaðra Reagan-demó-
krata. Þá er Bush talinn hafa unn-
ið á meðal kvenna. 46% kvenna eru
nú fyigjandi Bush en 37% með
Dukakis. 53% karla ætla að kjósa
Bush en 37% hallast að Dukakis.
Stuðningurinn við báða frambjóð-
endur er þó talinn „hálfvolgur" hjá
flestum. Nærri helmingur þeirra
sem spurðir voru sögðust hafa
ákveðið sig, annaðhvort sökum
skorts á betra vali eða vegna þess
að þeir hefðu andúð á öðrum fram-
bjóðandanum.
Bush 387, Dukakis 151
atkvæði
Kunnur hópur blaðamanna úr
báðum flokkum og fulltrúar ólíkra
skoðana í stjómmálum, sem John
McLaughlin stjómar og kemur
vikulega fram í NBC-sjónvarpinu,
varð sammála um það um helgina,
„að eins og væri" mætti fullyrða
að George Bush fengi atkvæði 387
kjörmanna en Dukakis 151. í þess-
Utanríkisráðherra vék að því í
ræðu sinni að samningurinn um
útrýmingu meðaldrægra kjama-
vopna á landi, sem fagnað hefði
verið sem tímamótaáfanga á ís-
landi, hefði eflt trú manna á mögu-
leikum afvopnunar almennt. Engu
þýðingarminni væri sá árangur sem
náðst hefði með hjálp Sameinuðu
þjóðanna í svæðisímndnum deilu-
málum.
„Þrátt fyrir þann árangur sem
náðst hefur í tvfhliða afvopnunar-
viðræðum, eykst kostnaður vígbún-
aðarkapphlaupsins jafnt og þétt og
sömuleiðis nákvæmni og eyðingar-
máttur kjamavopna. Auðsætt er
því, að kjamavopn munu enn um
sinn hafa forgang í viðræðum um
vígbúnaðarmál. Jafnframt því sem
reynt er til hins ýtrasta að ná samn-
ingum um langdræg kjamavopn,
verður að hamla gegn útvíkkun
vígbúnaðarkapphlaupsins til nýrra
svæða og tegunda vígbúnaðar. Að
mati íslenskra stjómvalda er afar
mikilvægt að samningar um niður-
skurð langdrægra kjamavopna á
landi verði til þess að draga úr
hemaðaruppbyggingu á og í höfun-
um. Af þessum sökum var íslend-
ingum það ánægjuefni að stórveldin
skyldu í meginatriðum verða sam-
mála um það á leiðtogafundinum í
Washington að leita leiða til að tak-
marka langdrægar kjamorkustýri-
flaugar, sem skjóta má af sjó.
ísland leyfir ekkl
kjarnavopn
Það er alkunna, að ísland leyfir
ekki kjamavopn innan síns land-
svæðis og gerir einnig ráð fyrir að
skip sem koma til hafnar virði
íslenskt fullveldi. Þarf ekki að fara
um það mörgum orðum að slys með
kjamavopn á sjó gætu haft geig-
vænlegar afleiðingar fyrir þjóð eins
og íslendinga, sem byggir lífsaf-
komu sína á lífrænum auðlindum
sjávar.
Þörfin á að leiðrétta það misvægi
sem nú ríkir á sviði hefðbundinna
heija og vígbúnaðar hefur aukist
eftir því sem líkur á umtalsverðum
niðurskurði kjamavopa hafa orðið
raunhæfari. Island hefur, ásamt
öðmm aðildarríkjum Atlantshafs-
bandalagsins, tekið þátt í samn-
ingaviðræðum við Varsjárbanda-
lagið um umboð fyrir nýjar viðræð-
ur á sviði hefðbundins vígbúnaðar
og vonast til að fljótlega náist um
það samkomulag, sem tryggir að
þessar mikilvægu viðræður geti
hafist á árinu eins og áætlað var,"
sagði ráðherrann.
Utanríkisráðherra lýsti einnig
yfir fullum stuðningi við tillögu
Reagans Bandaríkjaforseta á alls-
heijarþinginu fyrir tveimur vikum
um að kalla saman alþjóðaráðstefnu
til styrktar Genfarsáttmálanum frá
1925, sem bannar beitingu efna-
vopna.
Deila Araba og
Israelsmanna
Jón Baldvin vék því næst að
friðarumleitunum í Mið-Austur-
löndum. „Friðsamleg Iausn á
ágreiningsefnum Araba og ísraels-
manna er háð því að deiluaðilar
ráði ráðum sínum í anda gagn-
kvæmrar hófsemi og sáttfýsi. Það
er lágmark að ísrael viðurkenni
rétt Palestínumanna til að ákveða
framtíð sína sjálfir og að Arabar
hætti jafnframt að draga í efa óum-
deilanlegan tilverurétt Israelsríkis."
Ráðherra minntist nú á umhverf-
ismál. „Vandamál, sem telja verður
í eðli sínu alþjóðleg, verður að leysa
með samstilltu átaki allra jarð-
arbúa, hvort sem um er að ræða
mengun, „gróðurhússáhrif' eða
eyðingu ósonlagsins, ef koma á í
veg fyrir að þau spilli lífsgæðum
jarðarkringlunnar alvarlega."
Ráðherra sagði aðkallandi að
auka þróunaraðstoð í Afríku til að
útrýma fátækt og hungursneyð.
Skuldabyrði Þriðja heimsins kæfði
ekki einungis nauðsynlegan hag-
vöxt heldur ógnaði viðkvæmum
undirstöðum Iýðræðis í mörgum
ríkjum. Það er „óskynsamleg hag-
fræði og siðferðilega óveijandi að
iðnríkin skuli árlega draga að sér
milljarða Bandaríkjadala frá þróun-
arríkjunum f formi skulda- og
vaxtagreiðslna," sagði ráðherrann.
Því næst tók Jón Baidvin undir „þá
skoðun sem félagsmálaráðherra Is-
lands lýsti á Norrænu kvennaráð-
stefnunni í Ósló í ágúst síðastliðn-
um, að stofna bæri sérstök jafnrétt-
issamtök Sameinuðu þjóðanna."
Að lokum hét utanríkisráðherra
fullum stuðningi íslands við þá við-
leitni að ná fram markmiðum stofn-
skrár Sameinuðu þjóðanna.
Hryðju-
verkí
Punjab
Nýju Delhi. Reuter.
Frammámaður i Kongress-
flokknum, stjórnarflokknum á
Indlandi, var skotinn til bana í
gær í Punjab-ríki. Eru hryðju-
verkamenn og aðskilnaðarsinnar
af trúflokki sikha grunaðir um
verknaðinn.
Bhagwan Dass, varaforseti Kon-
gressflokksins í Punjab, var að
störfum í komvöruverslun, sem
hann hefur rekið í bænum Jaito,
þegar þrír menn ruddust inn í versl-
unina og myrtu hann. Lífvörður
hans og annar maður til féllu einnig.
Það, sem af er árinu, hafa rúm-
lega 2.000 menn misst lífíð í óöld-
inni í Punjab en sikhar, sem þar
em fjölmennastir, vilja sumir stofna
sjálfstætt ríki. Rajiv Gandhi, for-
sætisráðherra Indlands, hefur reynt
að kveða niður starfsemi hryðju-
verkamannanna en hefur ekki enn-
þá haft erindi sem erfiði.
Lubomir Strougal:
„Kameljónið44 sem vissi
hvaðan vindurinn blés
Prag. Reuter.
LUBOMIR Strougal, forsætis-
ráðherra Tékkóslóvakíu, sem
sagði af sér embætti á mánu-
dag, hefúr verið kallaður „kam-
eljónið í Austur-Evrópu", mað-
ur, sem jaftian hefúr áttað sig
á því hvaðan vindurinn blæs og
kunnað að haga seglum í sam-
ræmi við það. Hann tók við
forsætisráðherraembætti árið
1970 og hafði þvi gegnt því í
18 ár, lengur en nokkur annar
starfebróðir hans austan jám-
(jaldsins.
Ferill Strougals og frami hófust
á stalínstimanum, þegar Antonin
Novotny var við stjómvölinn í
Tékkóslóvakíu, en þegar Alexand-
er Dubcek beitti sér fyrir „Vorinu
í Prag“ tók hann því fagnandi og
fordæmdi harðlega innrás Var-
sjárbandalagsríkjanna 1968. Hún
var þó varla um garð gengin þeg-
ar hann sneri við blaðinu, gekk
til liðs við Gustav Husak og átti
þátt í að uppræta þær efnahags-
legu umbætur, sem Dubcek hafði
komið á.
Strougal var skipaður forsætis-
ráðherra árið 1970 og gerðist þá
ástundum furðu opinskár boðberi
efiiahagslegra umbóta þótt hann
legði jafnframt áherslu á, að ekki
yrði um að ræða neinar pólitískar
Reuter
Lubomir Strougal í ræðustól í
tékkneska þinginu.
eða hugmyndafræðilegar tilslak-
anir. I Tékkóslóvakíu hefur al-
mennt verið litið á Strougal sem
hæfan og tiltölulega raunsæjan
mann og þegar Míkhaíl Gorbatsj-
ov sovétleiðtogi fór að boða sína
„perestrojku" var hann ekki seinn
að taka undir með honum.
Að undanfömu virtist sem
umbótaáhugi Strougals snerist
ekki aðeins um efnahagsmálin,
heldur einnig um mannréttinda-
mál og harðneskju stjómvalda
gagnvart andófsmönnum. í júní
sl. ávítaði hann lögregluna opin-
berlega fyrir að hleypa upp fundi
tékkneskra og vestrænna friðar-
sinna og í viðtali við austurrískt
dagblað spurði hann sem svo:
„Var þetta nauðsynlegt?" Lög-
reglan og forystumenn í komm-
únistaflokknum hafa síðan svarað
spumingunni með því að herða
enn tökin á andófsmönnum.
Strougal er fæddur árið 1924
í bænum Veseli nad Luznici í
Bæheimi, sonur jámbrautastarfs-
manns, og gekk í kommúnista-
flokkinn árið 1945. Hann varð
innanríkisráðherra 1961 og 1965
var hann skipaður einn af ritumm
miðstjómarinnar. í janúar sl. átti
Strougal óvehjulega opinskátt við-
tal við vestur-þýskan blaðamann
þar sem hann viðurkenndi, að
sjálfur ætti hann nokkra sök á
því, að efnahagslegum umbótum
hefði ekki verið hrint í fram-
kvæmd.
„Efnahagslegar umbætur em
okkur lífsnauðsyn en því miður
hefur forystan alltaf bmgðist,
hver sem hún hefur verið. Nú er
hins vegar svo komið, að hjá
umbótum verður ekki komist."