Morgunblaðið - 25.10.1988, Blaðsíða 15
15
arbrag og volduga fas sem Sigríður
hlýtur að hafa, Helga Bachmann
er með minnsta kvenhlutverkið en
sýnir í nokkrum atriðum djúpa
móðurást og hlýju til Trausta. Mest
mæðir á Tinnu, sem útnefnd hefur
verið til hinna nýju Evrópuverð-
launa fyrir leik í besta kvenhlut-
verki, en túlkun hennar á ísold er
mögnuð, heit og tilfinningarík í ást
og sterk í hatri. Svipsterk og gull-
falleg gerir Tinna ísold að konu sem
karlmenn voru og eru sennilega enn
tilbúnir að deyja fyrir.
Helgi Skúlason, sem útnefndur
hefur verið til sömu verðlauna og
Tinna fyrir bestan leik í aukahlut-
verki, er hér ekki alfarið sá illi sad-
isti sem við eigum að venjast úr
Hrafninn flýgur og Leiðsögumaður-
inn þótt hann sé grimmur í orði,
æði og athöfnum; Reine Brynolfs-
son leikur Trausta ágætlega með
hjálp Valdimars Amar Flygenrings,
sem talar inná myndina fyrir hann,
eins og Kristinn Hallsson talar fyr-
ir Sune Mangs, sem gerir spilltum
biskupnum góð og spaugileg skil
(það er eins og talsvert mikið sé
talað inná myndina (,,voice-over“)
og oft er greinilegt að ekki fara
saman varahreyfingar og talhljóð
sem vill líka vera óþarflega há-
vært). Þá er Hjörleifur Egils Ólafs-
sonar heldur seinheppinn og ráð-
villtur óþokki, sem á þó til kænsku
í lokin.
Hrafn hefur stillt sig nokkuð í
leikstjóminni frá því hann gerði
Böðulinn og skækjuna, sérstaklega
hvað varðar sóðalegt kjötát og klúrt
orðbragð. Hér er ekkert slíkt. Hann
dregur athyglina aldrei frá persón-
unum og afdrifum þeirra en heldur
sér fast við efnið, stórbrotna ástina
og stórbrotnar persónur. Tónlist er
mikið notuð til áhrifsauka, jafnvel
um of, og klippingu er stundum
ábótavant, það er eins og vanti
samtengingar á milli atriða t.d.
þegar Edda deyr. Búningar Karls
Júlíussonar eru annálaðir og allt
ytra útlit og leikmynd er afburða-
góð. Bardagaatriðin og brennumar
eru vel sviðsettar og myndatöku-
staðimir hafa verið valdir af kost-
gæfni og útsjónarsemi og mynda-
takan dregur mjög fram tign og
fegurð landsins og nábýli persón-
anna við það. Tónlistin eftir Hans-
Erik Philip er áhrifamikil útfærsla
á laginu um Suðumesjamenn.
Hrafti vinnur úr þeim menningar-
arfi sem mikilvægastur er okkur
íslendingum og verður sífellt mikil-
vægari. Hann sækir efnivið í óþijót-
andi bmnn sagnanna okkar, það
má allt eins segja að hann sé kvik-
myndalegur arftaki íslendinga-
sagnahöfundanna. Stórar tilfínn-
ingar, stórar persónur, mikilfengleg
mynd.
Ólöf Ketilbjarnar
anda og tisku. Hún yrkir lítt um
ákveðin tilefni, rifjar ekki upp minn-
ingar um stundir og staði. Það er
hið almenna — lifssannindin yfír-
höfuð — sem hún leitast við að tjá
í ljóði fremur en hið sértæka og
áþreifanlega.
Bækur eins og Gullregn minna
sífellt á hversu tamt íslendingnum
er að tjá í ljóði hugsanir sínar og
tilfínningar.
Formálann ritar Ólöf Guðmunds-
dóttir Salmon þar sem hún rekur i
stómm dráttum æviferil ömmu
sinnar.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÖBER 1988
Utlínur sögunnar
__________BÓK
Erlendur Jónsson
Einar Laxness: ÍSLANDS-
SAGA, a-k. 2. útg. 287 bls. Bóka-
útgáfa Menningarsjóðs og Þjóð-
vinafélagsins. Reykjavik, 1987.
Þessi 2. útgáfa íslandssögu er i
ýmsum greinum aukin. Ennfremur
hafa sumir kaflamir verið endur-
samdir. Myndeftii hefur lika verið
aukið. Þar sem hér er um alfræði
að ræða er efninu að sjálfsögðu skip-
að i stafrófsröð. Þetta er því hand-
bók fyrst og fremst. Og sem slik er
þessi íslandssaga bæði nákvæm og
itarleg og því ómissandi hveijum
þeim sem eitthvað gluggar i sögu,
t.d. skólanemendum. Upphaflega
skyldi þetta vera hluti af geysimik-
illi íslenskri alfræðiorðabók. Þegar á
striðsámnum var byijað að safna
áskrifendum að sliku riti ef ég man
rétt. En þegar til kom hafði lýðveld-
ið ekki efni á að gefa út þvílíkt stór-
verk. Þvi mun hafa orðið að ráði að
gefa hveija grein út sérstaklega og
var það vissulega heppileg lausn ■
málanna úr þvi sem komið var. A
öld sérhæfíngar er það að sumu leyti
þægilegra en að fletta upp í margra
binda doðranti sem inniheldur allar
heimsins fræðigreinar. Hér er sagan
í samþjöppuðu formi og afar hand-
hæg þegar leita þarf svara við spum-
ingum sem í hugann koma þá stund-
ina. Maður skoðar þá söguna frá lit-
ið eitt öðm sjónarhomi en við sam-
felldan lestur. Söguþráður er vitan-
lega enginn eins og i hefðbundnum
ritum sem heflast á Hrafna-Flóka
og eiida einhvers staðar í nánd við
nútimann. Slikt má kalla klassiska
söguritun þar sem hér er á hinn
bóginn skýrt og skilgreint. Sá er
helsti munur samfelldrar frásögu og
alfræði sem þessarar að fyrmefnda
sagan rekur atburði en i þessari em
útlinur dregnar. Á þvi var ekki held-
ur nein vanþörf þvi fyöldi hugtaka,
sem fyrram töldust hversdagsleg,
vilja nú orðið vefjast fyrir sögules-
endum, sérstaklega hinum ungu.
Hvað var, svo dæmi sé tekið, ás-
mundaijám? Hvi var smíðajámið
kallað svo? Svarsins má leita hér.
Sama máli gegnir um hundrað sem
fyrir kemur á hverri siðu, svo að
segja, i venjulegri sögubók. Jarðir
vora metnar I hundruðum. Sums
staðar mun hliðsjón jafnvel höfð af
þvi mati enn þótt verðlagning sé vit-
anlega undir fleiri þáttum komin.
En eftir á að hyggja: Hundruðum
af hveiju? Hvað var þetta hundrað?
Og myntin gamla, dalur til að
mynda? Hvers vegna var hann nefnd-
ur svo og hvert var verðgildi hans
miðað við krónur og aura þegar sú
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsdeild
Barðstrending’afélagsins
Lokið er þremur umferðum í
tvímenningskeppninni og er staða
efstu para þessi:
Ragnar Björnsson -
Skarphéðinn Lýðsson 534
Hörður Hallgrímsson —
Hallgrímur Kristjánsson 527
Kristján Ólafsson —
Stefán Ólafsson 527
Úrslit í A-riðli siðasta spila-
kvöld:
Eggert Einarsson —
Anton Sigurðsson 190
Sigurður Kristjánsson —
Jóhann Sigurvinsson 178
Hörður Davíðsson —■
Þorleifur Þórarinsson 178
Úrslit í B-riðli:
Jón Ingi Jónsson —
Gunnlaugur Gunnlaugsson 185
Garðar Jónsson —
Ingimundur Guðmundsson 177
Leifur Jóhannsson —
Elísabet Jónsdóttir 173
mynt kom til sögunnar? Þessum og
þvilíkum spumingum er útþrykkilega
svarað í alfræði þessari. Þann, sem
skilur ekki undirstöðuatriði af þvi
tagi sem hér vora nefnd, hlýtur einn-
ig að bresta skilning á mörgu i hinni
samfelldu sögu. Fróðleik þennan er
auðvitað viðar að fínna. En hér er
allt á einum stað.
Sá er að mínum dómi meginkostur
þessa rits hversu gagnort það er og
hlutlægt. Höfundar samfelldrar sögu
hyllast oft til að segja i löngu máli
frá litlu efni, og þá gjaman í þeim
vændum að skemmta lesandanum,
og skal það síst lastað þar sem þess
háttar á við. Hér er það ramminn
sem markaður er eða það sem menn
kalla gjaman sagnfræðilegar stað-
reyndir, það er að segja þekking sú
sem fræðimenn hafa komið sér sam-
Einar Laxness
an um að reist sé á svo traustum
granni að við -megum trúa þvi og
treysta.
Það kann að vera álitamál í al-
fræði sem þessari hvaða orð skulu
valin til fyrirsagnar (uppflettingar).
Höfundur hefur séð þann kost vænst-
an að sleppa nöfnum, fara eingöngu
eftir máleftiaflokkum þess i stað. Þvi
tjóir ekki að fletta upp á Tryggva
Gunnarssyni svo dæmi sé tekið. Hans
er þó rækilega getið. Við finnum
hann meðal annars undir fyrirsögn-
inni »Bankamálið«. Sé málefnis getið
i fleiri köflum er jafnframt visað til
þeirra.
Höfundur komst svo að orði i
formála fyrir 1. útgáfu að hann hefði
valið þá leið að hafa uppflettigrein-
amar »fremur lengri en styttrk. Að
mínum dómi hefur hann ratað meðal-
hófíð i þeim efnum miðað við að hér
er á ferðinni sérstakt rit. Væri allt
þetta efni hins vegar fellt inn í al-
fræðiorðabók þar sem aðrar greinar
fengju viðlíka rúm er hætt við að
fyrirferðin yrði nokkuð mikil! Þvi
má segja að umfang og gagnsemi
sé hér útmælt í ákjósanlegum hlut-
föllum. Þannig má rit þetta gagnast
að jöfnu við fræðiiðkanir og áhuga-
lestur og síðast en ekki síst við skóla-
nám.
TELEFAX
lConica
U-BIX
FT5100
Vantar þig TELEFAX, en hefur ekki of mikið pláss aflögu?
Ef svo er þá ættirðu að athuga KONICA U-BIX FT 5100
sem tekur minnsta borðpláss allra telefax tækja á mar-
kaðnum.
Nú ef borðplássið er ekkert þá má festa KONICA U-BIX Ft
5100 beint á vegg.
:v |V ( .
■:j. •.-.:■.■■.■■
(... .-nl^ MýNO QiÁ'ý. A 3Œ® ;
( ; >
ðiB ■
fXííOi- :
<f> í. 'ý. - '
...................Illlllll.........
KONICA U-BIX FT 5100 ----Verð kr. 99.800.
★ CCITTStaðall: Samþykktaf Alþjóða póst og síma-
málastofnunni.
★ G3 category: Sendingarhraði allt að 9600 bps.
★ Sendir frumrit í öllum stærðum að B4. Breidd
25,7cm.
★ Tekur 10 blöð til sendingar í sjálfvirka pappírs-
mötun (ADF).
★ Sjálfvirkur pappírsskurður.
★ Thermal pappírsrúlla: 50m. (A4) að lengd 21,6
cm að breidd.
★ Upplausn 8x3,85 (standard) 8x7,7 (fine).
★ Innbyggtnúmeraminni: 16númereinshnappaval.
16 númer
tveggjahnappaval.
★ Sjálvirkt endurval x3 (ef lína er upptekin).
★ Fyrirferðalítið (tekur minnsta borðpláss af öllum
fax tækjum á markaðnum).
★ Aukahlutur: Veggfesting.
Telefax er traustvekjandi
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
%
^ Hvertisgötu 33, simi: 62-37-37