Morgunblaðið - 25.10.1988, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988
UTFLUTNINGS
OG MARKAÐSSKÓLIÍSLANDS
THE ICELANDIC INSTITUTE OE MARKETING AND EXPORT
Veitir færni í sölu og samningagerð, þar
sem áhersla er lögð á mannleg samskipti
Efni:
• íslenskur markaður
• Uppbygging og mótun sölustefnu
• Skipulagning söluaðgerða
• Val á markhópum
• Símsala
• Starfsaðferðir sölufólks
• Samskipti og framkoma
• Mótbárur og meðferð þeirra
• Söluhræðsla
• Markaðsrannsóknir og áætlanagerð
Leiðbeinandi:
Haukur Haraldsson,
sölu- og markaðsráðgjafi.
Tími og staður: 27.-28. október
kl. 9-17 í Ánanaustum 15.
Athugið!
VR og starfsmenntunarsjóður BSRB
styrkja félagsmenn sína til þátttöku í
námskeiðum SFÍ.
10% KYNNINGAR
AFSLÁTTUR
VÖRUHÚS KÁ
SELFOSSI
Listasafii Sigurjóns Ólafssonar.
Tónleikar í Listasaftii
Signrjóns Olafssonar
Tönlist
Jón Ásgeirsson
Nýbyggt Listasafn Siguijóns
Ólafssonar er kjörið kammertón-
leikahús, með góða hljóman. Sýn-
ingarsalurinn er ekki stór en býð-
ur af sér einstæðan þokka. Auk
þess er í húsinu notaleg kaffi-
stofa, svo vel er hugsað fyrir
væntanlegar gestkomur til safns-
ins. Það eru þó listaverk Siguijóns
sem gera húsið að stórhýsi, höll
mikillar listar.
í tengslum við opnun hússins
fyrir helgi voru haldnir tónleikar
sl. sunnudagskvöld og komu þar
fram Maijorie Melnick, mezzo-
sópran söngkona, Hlíf, dóttir Sig-
uijóns, David Tutt píanóleikari og
hjónin Margarita Reizabal píanó-
Ieikari og Freyr, sonur Siguijóns,
en Freyr starfar sem flautuleikari
á Sjjáni.
A efnisskránni voru fyrir hlé
aría úr Mattheusarpassíunni eftir
J.S. Bach, lagaflokkurinn Frauen,
Liebe und Leben eftir Schumann
og tveir söngvar op. 91, eftir
Brahms, fyrir lágfíðlu og altrödd.
Maijorie Melnick er ágæt mezzo
og söng margt vel í lagaflokki
Schumanns. David Tutt lék frá-
bærlega vel undir á píanóið. Auk
hans lék Hlíf á fíðlu í Back-
aríunni og á lágfíðlu í lögunum
eftir Brahms.
Eftir hlé var samleikur á flautu
og píanó. Freyr Siguijónsson og
kona hans, Margarita Reizabal,
fluttu sónötu op. 85 eftir Kuhlau
og lauk tónleikunum með því að
þau fluttu einnig Rómönsu eftir
Brun. Freyr er góður flautuleikari
og lék bæði verkin af öryggi en
það var skemmtilegur og músik-
alskur leikur Margaritu Reizabal
sem kom á óvart. Kuhlau-sónatan
er töluvert erfíð fyrir píanóið en
mótun hendinga og „fraseringa"
var einstaklega skýr og samspilið
frábært. í Rómönsunni naut sín
sérlega vel fallegur flaututónninn
hjá Frey.
í heild voru þetta góðir tónleik-
ar, þó flutningurinn á Kuhlau-són-
ötunni væri það sem upp úr stóð.
Yfír tónleikunum vakti andi Sig-
urjóns en ljómi hússins er tryggð
Birgittu Spur við listheiður manns
sfns og henni má þakka að ísland
á sér þama smáhús, sem er upp-
ljómað af þeirri mannlegu reisn,
sem bjarmar af, langt út fyrir
þann litla blett sem safnið tekur
af Laugamestanganum.
Talaðu við
okkur um
þvottavéíar
SUNDABORG 1 S. 68 85 88 -6885 89
Talaðu við
okkur um
eldhústæki
l
SUNDABORG 1 S. 688588-688589
TÖLVUSKÓLI GJJ
Námskeið
Microsoft EXCEL
31. okt. - 3. nóv., kl. 8.30 -12.30
Skráning og upplýsingar í síma 641222
GÍSLI J. JOHNSEN
n
Nýbýlavegi 16, Kópavogi Sími 641222