Morgunblaðið - 25.10.1988, Síða 33
33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTOBER 1988
ramtíðariim-
ir lægðinni
talsvert héma og ég var mjög leið-
ur yfír því að geta ekki gengið á
skákstað. Þegar veðrið skánaði fór
mér líka að ganga betur. Eftir skák-
ina snæði ég kvöldverð og undirbý
viðureign morgundagsins. Ég reyni
að vera sofnaður milli klukkan eitt
og tvö.
Þijátíuþúsundskákabanki
Mér skilst að þú eigir mikið safn
skáka á tölvudiskum, hafðirðu þá
með þér til íslands?
Slíkur gagnabanki er mjög hjálp-
legur en í þessu móti þekki ég alla
andstasðingana og þá notast ég
ekki svo mikið við hann. Hann kem-
Morgunblaöið/Siguijón Jóhannsson
Skákútsendingar Stöðvar 2
hafa vakið mikla athygli
almennings undanfarnar
vikur. Það er ekki síst að
þakka Kasparov
heimsmeistara, sem hefur
verið óþreytandi að skýra
skákir i sjónvarpinu á
sérstæðan og skemmtilegan
hátt. Þessi myndaröð sýnir
Kasparov við skákskýringar
og þannig hefur þjóðin séð
hann að undanförnu.
Kasparov hefur svo gaman
af því að skýra skákir í
sjónvarpinu að hann hefur
komið þar firam óbeðinn!
ur frekar að gagni þegar teflt er
gegn andstæðingum sem maður
þekkir ekki. En það mikilvægasta
er náttúrulega að tefla vel.
Er þetta kerfí algengt meðal sov-
éskra skákmanna?
Já. Fæstir búa þó eins vel og ég.
Ég hef þijá aðstoðarmenn sem sjá
um að halda gagnabankanum við,
tvo skákmenn og einn forritara.
Enn sem komið er eru bara skákir
í gagnabankanum en mig langar
til að bæta alls kyns öðrum upplýs-
ingum við. Ég á mikinn stafla af
minnisbókum með alls kyns hug-
myndum sem þarf að færa inn í
tölvuna. Það eru um það bil 30.000
skákir inni á kerfínu en mikilvæg-
ara er að safna eigin hugmyndum
saman á einn stað og ég vona að
því verki verði lokið við upphaf
næsta heimsmeistaraeinvígis.
Þú minntist á aðstoðarmenn, ■
móðir þín hefur helgað líf sitt skák-
ferli þínum en hún er ekki með þér
núna?
Nei, það er óþarfí að hún sé að
ferðast með mér á mót af þessu
tagi enda er í nógu að snúast heima
fyrir. Auk þess hlýt ég að geta teflt
án aðstoðarmanns, ég er atvinnu-
maður, segir Kasparov og brosir
breitt. Þegar ég var yngri fylgdi
hún mér jafnan og hún kemur með
mér til Parísar og Madríd í lok þessa
árs. En á meðan á einvígjunum
stendur er heill her manna mér til
aðstoðar og þá heldur hún um
stjómvölinn.
Fær Benz fyrir einvígi
við Hort
Hvar áttu þér heimili?
Ekki í Bakú sjálfri heldur í æf-
ingabúðum rétt fyrir utan. Reyndar
er ég ekki heima nema kannski viku
á ári, ég er ýmist í Moskvu eða í
útlöndum. Ég vil taka það fram að
þó ég sé stöndugur þá vil ég ekk-
ert hóglífí, til dæmis á ég ekki íbúð
í Moskvu.
að skipta við rétta aðila í vestri.
Fyrir utan starf á vegum Stórmeist-
arasambandsins vinn ég að stofnun
nýs skákútgáfufyrirtækis í Moskvu.
Ég er fullur af hugmyndum. Ég vil
lifa starfsömu lífí. Ég á í baráttu
við FIDE og sovéskt skrifræði
vegna þess að þau vilja hindra starf-
semi af þessu tagi.
Þú átt sæti í miðstjóm ungliða-
hreyfingar sovéska kommúnista-
flokksins ekki satt?
Jú, ég var kosinn í hana. Ég
gengst ekki upp í slíkum titlum.
Þetta var nokkurs konar gjöf vegna
stöðu minnar. En ég hef áorkað
mun meiru en nokkur annar sem
ber slíkan titil. Fyrir fimm árum
hefði þetta verið mikill heiður en
núna þakka ég pent. Þessi titill kom
mér ekki að gagni þegar sovésk
íþróttayfírvöld hófu árásir sínar á
mig. Hann nýtist mér heldur ekki
við að koma ungdómnum til hjálp-
ar. Maður verður að treysta á sjálf-
an sig en ekki stuðning meðal hátt-
settra embættismanna. Kannski
fékk ég þessa útnefningu fyrir starf
mitt í þágu æskunnar en það var
á þessum deilum. Ég get ekki tekið
afstöðu með öðrum hvorum því
hvorir tveggja hafa nokkuð til síns
máls. Sem fulltrúi ríkisins hlýt ég'
að segja að það er ekki hægt að
ganga að kröfum Armena því þá
myndu vandræðin hefjast í Eystra-
saltsríkjunum, í Úkraínu og alls
staðar, vegna þess hve landakortið
okkar er undarlegt.
Stórmeistarasambandið
Er það lausn til frambúðar að
starfandi séu tvenns konar hags-
munasamtök skákmanna, FIDE og
Stórmeistarasambandið?
Stórmeistarasambandið á eftir
að standa vörð um atvinnumennsku
í skák. Kannski á það eftir að breyt-
ast í nokkurs konar 1. deild skák-
manna. Skákheimurinn stendur á
tímamótum, hin nýja atvinnu-
mennska er að ryðja sér til rúms.
Fram til þessa höfðum við enga
skiptingu milli atvinnumennsku og
áhugamennsku í skák. En sú þróun
verður ekki stöðvuð. Ég sé fyrir
mér ýmiss konar nýstárlega skák-
viðburði byggða á atvinnumennsku.
Stærstu
bókmenntaverðlaunin
Var bókin þín Child of Change
gefin út í Sovétríkjunum?
Nei, en ég býst við að hún komi
út á næsta ári. Það verður endur-
skoðuð útgáfa. Ég tel fyrstu út-
gáfuna ekki til minna stærri af-
reka. Samt sem áður er ég ósam-
mála fólki sem gagnrýnir hana
mjög harðlega. Allt sem í henni
stendur er satt. En stundum beitti
ég röngum aðferðum við útskýra
mál mitt. Ég hef unnið að brgyting-
um og ég held að nýja útgáfan sé
mun betri. Hún kemur út á miðju
næsta ári í Englandi.
Hvað fór svona fyrir bijóstið á
lesendum bókarinnar?
Menn eru ekki vanir því að skák-
menn skrifí slíkar bækur. Þeim
fannst ég gera lítið úr Karpov og
setja mig á hærri hest en hann.
Karpov var ekki skotmark mitt að
öðru leyti en því að hann er skilget-
ið afkvæmi kerfísins sem ég berst
við. Kannski voru það mistök að
skrifa bókina. En hún var vel meint
og mistök geta líka verið mikilvæg,
einkum manns eigin.
Hvers vegna var bókin ekki gefin
út í Sovétríkjunum?
Þrátt fyrir alla galla bókarinnar
er hún hörð árás á kerfið í Sovétríkj-
unum. Ég held að stærstu bók-
menntaverðlaunin mín, og með-
mæli með bókinni, hafí verið þau
að hún var ekki gefín ut í Sovétrílq'-
unum. Sumir háttsettir menn í Sov-
étríkjunum kunnu að meta þessa
bók, betur en margir í vestri. Hefði
bókin verið skrifuð sem málamiðlun
þá hefði hún verið gefín út með
pomp og prakt til að draga úr áhrif-
um mínum og varpa skugga á
ímynd mína meðal menntamanna
og alþýðu í Sovétríkjunum. Ráða-
menn óttuðust þessa bók og þess
vegna var hún ekki gefin út og ég
er hæstánægður með það.
Þegar þú agnúast út í sovésk
íþróttayfírvöld nær gagmýni þín
þá einnig til hærri þrepa í valdastig-
anum?
Já, en þar á ég einnig mína stuðn-
ingsmenn. Fæstir eru á móti mér
persónulega heldur fremur hugsjón-
um mínum. Sem betur fer vinna
menn með mannlega ásjónu á en
baráttunni er ekki lokið, síður en
svo.
Má skilja þessi orð svo að þú
sért stuðningsmaður Gorbatsjovs
og öfugt?
Ég er fyrst og fremst sonur ætt-
jarðar minnar. Mér er sama hver
það er sem ræður ríkjum ef hann
þjónar ættjörðinni.
Skákin og kveneðlið
Þú lést þau orð falla einhveiju
sinni að eðli kvenna samkvæmt
gætu þær ekki náð hæstu hæðum
í skáklistinni. Hvað með Polgar-
systur?
Sú yngsta er enn of ung til að
hægt sé að spá henni mjög miklum
frama. Sú í miðjunni er ekki gædd
neinum sérstökum skákhæfíleikum.
Sú elsta, sem farin er að nálgast
tvítugt, tók þátt í heimsmeistara-
móti unglinga undir tvítugu nýlega
og lenti í 13. sæti. Mér þykir fyrir
því en þær geta ekki teflt betur en
vel. Ég endurtek það sem ég hef
áður sagt að skák er bardagi og
hentar ekki eðli kvenna.
En er skák holl íþrótt fyrir ung-
menni?
Já, einkum fyrir unga krakka.
Skákin er góður undirbúningur fyr-
ir lífsbaráttuna. Hún agar manninn
og hann verður færari til að leysa
öll önnur verkefni af hendi. Þess
vegna styð ég kennslu skákar í
skólum. Ég minnist þess að skákin
hjálpaði mér mikið í skóla.
Ein sígild spuming að lokum:
Eru skákmenn í sjónmáli sem geta
ógnað veldi þínu?
Ég veit ekki um nokkum skák-
mann sem getur lagt mig að velli
þegar ég er upp á mitt besta. Ég
held mér verði ekki skotaskuld úr
því að veija titilinn árin 1990 og
1993.
Viðtal: Páll Þórhallsson
Hvemig bfl ekurðu?
Eiginlega á ég ekki bfl en ríkið
sér mér fyrir vagni í Bakú. Bflstjór-
inn er góður vinur minn og ég borga
honum vel ofan á launin sem ríkið
greiðir honum. En vegna þess að
ég er sjaldnast heima þá nota
mamma mín og amma bílinn.
Reyndar er ég að fara til Kölnar í
Vestur-Þýskalandi til að tefla sýn-
ingareinvígi við Hort og þar fæ ég
Mercedes Benz að launum.
Ferðu með hann heim?
Ég veit ekki hvort ég fer með
hann til Moskvu eða Bakú. Ég er
ekki viss, líklega til Bakú.
Hve miklar tekjur hefurðu?
Ég veit það ekki. Meiri en nóg
fyrir mig. Þær em mjög miklar
miðað við meðal-sovétborgara. Fyr-
ir einvígin fjögur við Karpov fékk
ég u.þ.b. 150 þúsund rúblur (IIV2
milljón ísl. króna). Ég hef fengið
mikið fyrir bækur sem gefnar hafa
verið út í vestri og í Sovétríkjunum
og auk þess gefa sigrar á skákmót-
um mikið í aðra hönd. Samanlagt
eru þetta nokkur hundruð þúsund
dalir. Andrew Page, umboðsmaður
minn í vestri, sér um þessa hlið
mála. Hann vasast í innkaupum
eins og til dæmis að senda gjafír
til móður minnar. Það er mér mjög
mikilvægt að hafa slíkan umboðs-
mann til að skipuleggja viðskiptin
og framkvæmd allra þeirra hug-
mynda sem ég geng með. Samstarf
okkar hófst fyrir þremur árum og
hefur gengið vel. Margir skákmenn
skilja ekki hversu mikilvægt það
er. Þeir halda að þeir geti séð um
slíkt sjálfír. En ég verð að hafa
umboðsmann til að hrinda hug-
myndum mínum í framkvæmd.
Fyrst og firemst
atvinnumaður
Segðu mér eitthvað frá áhuga-
málum þínum utan skákarinnar.
Ég er ekki hrifínn af orðinu
„áhugamál". Ég er fyrst og fremst
atvinnumaður. Áhugamál eru fyrir
„amatöra". Ég vil gera eitthvað
nýtt í samskiptum fólks. Ég vil
koma einhvenu til leiðar sem skipt-
ir fólk máli. Ég vil til dæmis hjálpa
vinum mínum í Sovétríkjunum við
ekkert annað en skylda mín. Ég
hef lagt eigið fé af mörkum til að
styðja unga skákmenn og Botvinn-
ik-skákskólinn er núna undir minni
stjóm.
Breytingar innan ramma
kerfisins
Líturðu á sjálfan þig sem sósíal-
ista?
Nokkurt hik kemur á Kasparov
og svo svarar hann: Ég held að
eitthvað sé að breytast. Maður get-
ur ekki haldist í sama farinu lengi.
Lífsskoðun mín er ósköp einföld.
Ég reyni að gera allt hið besta fyr-
ir ættjörðina. Eina leiðin er sú að
hjálpa fólki innan ramma kerfisins.
Og þá verður maður líka að starfa
með embættismönnunum. Ég veit
ekki hvort þetta tekst en þetta er
eina leiðin. Landið þokast í rétta
átt en enn er Iöng leið framundan.
Er umbótastefna Gorbatsjovs
eina úrræðið?
Já. Hinar slæmu hefðir eru svo
fastar fyrir að ekki er hægt að
ganga mjög skjótt til verks. Þetta
er eina leiðin í átt til eðlilegs ríkis,
eðlilegra laga, eðlilegs mannlífs,
eðlilegra viðskiptahátta og frelsis
fyrir þjóðina. Ég legg ríka áherslu
á frelsi í viðskiptum. Ég reyni að
beita mér mjög á þessu sviði. Við
sem erum í áhrifastöðu og viljum
breytingar megum ekki missa af
þessu einstæða tækifæri.
En samrýmist fíjálst markaðs-
kerfí sósíalismanum?
Ég veit það ekki, ég vona það.
Ég get komið með samlíkingu úr
skákinni. Ef staðan er góð þá getur
maður leyft sér hitt og þetta. Ef
staðan er mjög slæm þá verður
maður að feta einstigið út úr vand-
ræðunum. Þá tjóir ekki að hugsa
mjög langt fram í tímann heldur
einungis um það að bjarga því sem
bjargað verður.
Nú ert þú hálfur Armeni og býrð
í Azerbajdzhan, hvemig meturðu
deilumar um Nagomo-Karabak?
Þær snerta mig ekki beint en
valda mér sársauka. Á fyrstu ámm
Sovétríkjanna voru gerð mörg mis-
tök. Landamæri lýðvelda em oft á
tíðum undarleg. Ég sé enga lausn
í framtíðinni verða allir atvinnu-
skákmenn undir einum hatti burt-
séð frá þeim titlum sem þeir bera.
Þetta em svipaðar breytingar og
áttu sér stað í tennis fyrir 18 ámm
og knattspymu fyrir aldarfjórð-
ungi. FIDE ætti að sjá um viðburði
eins og Ólympíuskákmótið og út-
breiðslu skáklistarinnar. Atvinnu-
skákmenn munu sjá FIDE fyrir fé
til þessara hluta. Ég skil ekki hvem-
ig áhugamenn, einkum í ljósi spill-
ingarinnar innan FIDE, eigi að geta
séð um skákmót fyrir atvinnumenn.
Við verðum að skapa atvinnu-
mennskunni gmndvöll.
Heimsmeistari
atvinnuskákmanna
Hvað um samskipti þín við sov-
ésk skákyfírvöld?
Ég vil helst ekki eyða orðum á
þá aðila. íþróttayfírvöld ráða jrfír
skáklífínu í Sovétríkjunum. Þau
geta vasast í málefnum skákmanna
án þeirra samþykkis. Þessir menn
em nánir vinir Campomanesar. Þau
samskipti einkennast af baktjalda-
makki. Ég er heimsmeistari og mér
er sama um þessa menn. Ég vil
hjálpa fólki að lifa eðlilegu skáklífí.
í mörg ár barðist ég hatrammlega
gegn þessum mönnum en í ár rann
upp fyrir mér að betra væri að virða
þá að vettugi. Ég.lít frekar á mig
sem heimsmeistara atvinnuskák-
manna en heimsmeistara FIDE. Ég
vil ekki tengja nafn mitt svo
svívirðilegum samtökum. Verksvið
FIDE ætti að vera að huga að undir-
stöðunni. En ég stend ekki einn
meðal sovéskra skákmanna, menn
eins og Júsúpov og Beljavskíj styðja
mig. Ég vil skilja skákina frá opin-
berri stefnu sovéskra íþróttayfír-
valda.
Það er semsagt engin „perestr-
ojka“ á þeim bænum?
Nei, þessir aðilar hafa jafnvel
versnað því nú hafa þeir svo mikil
tengsl við Vesturlönd og geta nýtt
þau sambönd í sína þágu. Til þeirra
streymir fjármagn. Þeir sælq'a völd
sín í einokunina sem er í sínum
ýmsu myndum stærsta vandamál
Sovétrflq'anna. Ég ætla mér að
brjóta þessa einokun á bak aftur.