Morgunblaðið - 25.10.1988, Síða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988
Heimsbikarmótið í skák
Heimsmeistarinn
kominn í form
Skák
Bragi Kristjánsson
og Karl Þorsteins
Það hefur verið allt annað að sjá
til heimsmeistarans Garrý Kasp-
arovs í hinum síðustu umferðum á
Heimsbikarmótinu. Nú loks teflir
hann með hinum kraftmikla og
áhrifaríka stfl sem auðkennt hefur
skákferil hans.
Eistlendingurinn Ehlvest var
andstæðingur heimsmeistarans í
16. umferð. Ehlvest hefur verið
farsæll með hvítu mönnunum í
mótinu til þessa en nú varð heldur
betur breyting þar á. Kasparov fékk
nefnilega strax betri stöðu eftir
byrjunarleikina þótt hann stýrði
svörtu mönnunum og snemma var
ljóst hvert stefndi. Heimsmeistarinn
sleppti hvergi tökunum á andstæð-
ingnum, jók stöðuyfirburðina með
hveijum leik. Lét mann af hendi til
þess að auka stöðuyfirburði sína
og vann sannfærandi sigur eftir 25
leiki.
Að skák lokinni mætti Kasparov
í viðtal á Stöð 2. Glaðbeittur svar-
aði hann spumingum fréttamanns
um skákina. Sagðist hafa teflt vel
og sýndi ógrynpi möguleika sem
fyrir hendi voru í skákinni. Hann
átaldi taflmennsku hvíta liðstjóm-
andans og kvað sigurinn heldur
auðveldan af þeim sökum. Samt er
það nú ómaksins vert að skoða
skákina.
Hvítt: Jan Ehlvest
Svart: Garrý Kasparov
Enskur leikur.
1. c4 - Rf6, 2. Rc3 - e5, 3. Rf3
- Rc6, 4. e3 - Bb4, 5. Dc2 -
0-0, 6. d3
Bitlaust framhald. Skarpara
framhald er 6. Rd5 - He8, 7.
Df5!?. Ehlvest hefur ráðgert að fá
upp rólega stöðu en heimsmeistar-
inn hefur aðrar áætlanir í huga.
6. - He8!, 7. Bd2 - Bxc3, 8.
Bxc3 - d5, 9. cxd5 - Rxd5, 10.
Be2 — Bf5!
„Ég vildi flækja taflið," var skýr-
ing heimsmeistarans á hinum gerða
leik. Leikurinn felur í sér manns-
fóm eftir 11. e4. Áframhaldið þá
gæti orðið 11. — Rf4!, 12. exf5 -
Rd4, 13. Bxd4 - exd4, 14. Rgl -
Dd5, 15. 0-0 og staðan er mjög
óljós. Þetta var hið krítíska fram-
hald en Ehlvest skortir kjark til
þess að flækja tafjið og fær verri
stöðu.
11. Hdl?! - a5!, 12. 0-0 - De7,
13. a3 - a4, 14. Bel?! - Bg6, 15.
Dc4 - Hed8, 16. Rd2?
Taflmennska hvíts hefur verið
ráðleysisleg í síðustu leilqum. Hér
var nauðsynlegt að leika annað-
hvort 16. d4 eða 16. Hcl. Taflið
stendur þó ætíð svörtum í hag.
16. - Rd4!
Margeir sneri á Spasskíj
Það tók heimsmeistarann aðeins
þrjár mínútur að ákveða að fóma
manni hér. Eftir 10 leiki var ég
búinn að ákveða að fóma manni
sagði hann líka eftir skákina. Fórn-
in grundvallast á afskaplega slæmri
staðsetningu liðsmanna hvíts og
þarfnast raunar ekki viðamikilla
útreikninga. Hvíta taflið er tapað
þrátt fyrir ýmis brögð í framhald-
inu.
17. exd4 - Rf4,18. Bf3 - Hxd4!
Best. 18. - Bxd3? 19. Dc5! var
lakara.
19. Db5 - c6! 20. Bxc6
Hvítur gefur manninn til baka.
Hvíta drottningin átti enga undan-
komureiti því eftir 20. Db6? - Ha6
fellur hún.
20. - bxc6, 21. Dxc6 - Db8!
Heimsmeistarinn teflir mjög ná-
kvæmt. 21. — Had8 var þannig
ónákvæmara vegna 22. Rf3 - Be4,
23. Bb4 og hvítur á jafnteflismögu-
leika.
22. Rf3 - Hd6,
22. — Be4 var ekki eins gott
sökum 23. dxe4 - Hxdl, 24. Rxe5
og lengri tíma tekur að innheimta
vinninginn.
23. Db5 - Hd5, 24. Db4 - e4!
Margeir Pétursson hefur staðið
sig vel á mótinu. Hann var í byijuri
mótsins langveikasti keppandinn,
ef miðað er við skákstig, og framan
af virtist hann dæmdur til að verma
neðsta sætið. Þegar fjórar umferðir
voru til loka, hafði Margeir einum
og hálfum vinningi minna en næst-
neðsti maður. Uppgjöf er ekki til í
orðabók Margeirs, og í næstu þrem
umferðum tók hann 2V2 vinning
og náði Spasskíj fyrir síðustu um-
ferð.
Margeir og Spasskíj tefldu byij-
unina fremur rólega. Margeir tók á
sig veikt peð á drottningararmi og
missti það í framhaldi skákarinnar.
Honum tókst að skapa sér sóknar-
færi gegn kóngi andstæðingsins og
í tímahraki missti Spasskíj tökin á
skákinni. Hann lék af sér peði og
missti annað strax eftir að 40 leikja
markinu var náð. Margeir átti auð-
unnið endatafl, sem hann vann ör-
ugglega.
Hvítt: Margeir Pétursson
Svart: Boris Spasskíj
Bogoindversk vörn.
1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3 -
Bd4+, 4. Rbd2 - d5, 5. Da4+
Hvítur getur einnig leikið strax
5. a3 - Be7, 6. Dc2 - 0-0, 7. e4
o.s.frv.
5. - Rc6, 6. a3 - Bxd2+
Önnur leið er hér 6. - Be7, 7.
e3 - Bd7, 8. Dc2 - a5, 9. b3 -
0-0, 10. Bb2 - Ra7, 11. Bd3 - h6,
12. 0-0 - Hc8 með nokkuð jöfnu
tafli.
7. Bxd2 - Bd7
Algengast er að leika hér 7. -
Re4, t.d. 8. Hdl - 0-0, 9. e3 -
Re7, 10. Bcl - b6, 11. Bd3 -
Bb7, 12. 0-0 - Rg6, 13. Dc2 - f5
með flókinni stöðu (Pr. Nikolic —
Kurajica, Júgóslavíu 1987).
8. Dc2 - a5, 9. Bg5 - h6, 10.
Bxf5 - DxlB, 11. e3 - 0-0, 12.
Be2 - Hfc8, 13. cxd5 - exd5, 14.
0-0 - a4, 15. Hacl
Hvítur getur ekki farið á peða-
veiðar: 15. Bb5 - Dd6, 16. Bxa4 -
Rxd4, 17. Rxd4 - Bxa4 o.s.frv.
15. - Ha5, 16. Dd2 - b6, 17. Hc3
- Dd6, 18. Hfcl - Re7, 19. Re5
- f6
Spasskíj veikír hvítu reitina í eig-
in kóngsstöðu með þessum leik, en
hann hefur líklega hvorki verið
ánægður með 19. - Be6, 20. Rc6
- Rxc6, 21. Hxc6 - Dd7, 22. Dc2
- Ha7, 23. Bb5 né 19. - Be8, 20.
Bg4 - f5, 21. Bf3.
20. Rxd7 - Dxd7, 21. Dc2 - c6,
22. b4?!
Til greina kom að leika 22. e4!?,
því í framhaldi skákarinnar verður
hvíta peðið á a3 mjög veikt.
22. - axb3 e.p. 23. Dxb3 - b5,
24. e4?! - Kh8, 25. He3 - Ha4,
26. Dd3
Margeir á í miklum vandræðum
með að valda peðin sín og verður
í framhaldinu að treysta á mátt
biskupsins til að notfæra sér veil-
umar í svörtu kóngsstöðunni.
26. - Hca8, 27. Bf3 - fxe4, 28.
Dxe4 - H8a7, 29. Hcel - Hxa3,
30. H3e2 - Hal, 31. h4 - Hxel+,
32. Hxel - Dd6, 33. h5 - b4, 34.
Dg4 - b3?
Spasskíj gefur Margeiri of mikil
færi í tímahrakinu. Sjálfsagt var
að koma í veg fyrir næsta leik með
34. - f5!
35. Be4 - Kg8?!
Spasskíj leggst í óvirka vörn í
stað þess að gefa peð með . -
f5, 36. Bxf5 - Rxf5, 37. Dxf5 -
Ha8 og frípeðið á b3 ræður úrslitum
í skákinni.
36. Bg6 - Ha8
Hvers vegna ekki 36. - b2?
37. De2 - Kf8, 38. Dc4
Staðan sýnir vel, að Spasskíj
hefur gjörsamlega misst tökin í
tímahrakinu. Hvítur hótar bæði 39.
Df7 mát og 39. Dxb3 og svartur
er rígbundinn við að valda máthót-
anir hvíts.
38. - Dd5?
Hér voru síðustu forvöð að forða
sér í jafnteflishöfn með 38. - Rd5,
39. Dxb3 - Db4, o.s.frv.
39. Db4 - Dd7, 40. Dxb3 - Rxg6,
41. hxg6 - Hd8
Það hefur varla verið mjög
ánægjulegt fyrir Spasskíj að ná 40
leikja mörkunum, aðeins til að virða
fyrir sér ijúkandi rústir sinnar fyrr-
um glæstu stöðu. Hann á tæplega
betri vöm en þá, sem hann nú vel-
ur, t.d. 41. - Dd5, 42. Db7 - He8,
(42. - Hd8, 43. De7+ - Kg8, 44.
De8+ og mátar) 43. Hxe8+ - Kxe8,
44. Dxg7 - Dxd4, 45. Df7+ -
Kd8, 46. g7 og vinnur.
42. He6! - Dd5
Ekki 42. - Dxd4?, 43. He8+
ásamt 44. Df7 mát eða 42. - Dd7,
43. Hd6 — De7, 44. Hxd8+ ásamt
45. Df7 mát.
43. Da3+ - c5
Eftir 43. - Kg8, 44. De7 vinnur
hvítur vegna mátsins í borðinu.
44. Dxc5+
Endataflið er auðunnið fyrir hvít.
Hann á peði meira og slæm kóngs-
staða og veikt peð á g7 gera svarti
erfítt fyrir.
44. - Dxc5, 45. dxc5 - He8, 46.
Hc6 - He7, 47. f4 - Ke8, 48. Kf2
- Ha7, 49. Ke3 - Kd7, 50. Hd6+
- Ke7, 51. g4 - Ha5, 52. Hd5 -
Hb5,
Eða 52. - Ke6, 53. Ke4 - Ha4+,
54. Hd4 - Ha5, 55. f5+ - Ke7,
56. Kd5 og hvítur vinnur.
53. f5 - Ha5, 54. Ke4 - Ha7, 55.
Hd4 - Ha8, 56. Hb4 - Kd7, 57.
Kd5 - Ha7
og Spasskíj gafst upp, áður en
Margeir lék 58. c6+ - Kc7, 59.
Hb7+ - Hxb7, 60. cxb7 - Kxb7,
61. Ke6 — Kc6, 62. Kf7 og hvítur
vinnur létt. Spasskíj tapaði fyrir
báðum Islendingunum á mótinu og
heyrðust þau orð meðal áhorfenda,
að nemendumir væru orðnir kenn-
aranum fremri, en Spasskíj ætlar
að þjálfa íslensku skáksveitina fram
að Olympíumótinu í næsta mánuði.
Glæsileg drottningarfórn var
undirbúin hjá Kasparov eftir 25.
Rd2. Hún byijar á 25. — Dh4! 26.
Rxe4 - Re2+ 27. Khl - Dxh2+!
28. Kxh2 - Hh5 mát! 26. g3 -
Dh3 er engin lausn á vandræðum
hvíts. Ehlvest átti einungis eina
mínútu til ráðstöfunar fram að
tímamörkunum við fertugasta leik
og leikur nú af sér manni.
25. Bc3 - Re2+
og Ehlvest gafst upp. Svartur drep-
ur einfaldlega riddarann í næsta
leik.
Næstsíðasta umferðin:
Baráttugleðin allsráðandi
Baráttugleðin var allsráðandi
í næstsíðustu umferð Heims-
bikarmótsins í Borgarleikhúsinu
á Iaugardaginn. Barist var af
hörku á hveiju borði og úrslitin
hvergi ljós fyrr en við handaband
keppenda að skák Iokinni. Tæki-
færin gefast líka ekki miklu
fleiri fyrir toppsauðina að afla
vinninga né aðra keppendur að
rétta hlut sinn.
Jóhann Hjartarson tefldi drottn-
ingar-indverska vöm gegn Júsupov.
Tefldi byijunina djarft eftir vel-
gengnina í síðustu skákum. Áhorf-
endur vom samt ekki allskostar
ánægðir með stöðuna sem upp kom.
Það stöðumat reyndist rétt því við
athuganir eftir skákina kom upp
úr dúmum að staða Jóhanns var
ekki ýkja traust. Júsupov hafði aðr-
ar skoðanir og þrálék þegar tæki-
færi gafst og jafntefli var samið.
Niðurstaðan varð hin sama hjá Sax
og Tai eftir færri leiki.
Hjá Sokolov hipum sovéska skip-
ast veður fljótt í lofti. Hamingjudis-
imar sem voru honum hliðhollar í
fyrri hluta mótsins eru nú auðsýni-
lega á brott. Heillum horfínn tapaði
hann gegn Nikolic á laugardaginn
og hefur nú þijú töp á bakinu í
síðustu §órum umferðum.
Heimsmeistarinn Gary Kasparov
var í essinu sínu gegn Ehlvest.
Gretti sig og yggldi við taflmennsku
andstæðingsins. Þegar Ehlvest átti
leik hvessti heimsmeistarinn brúnir
og labbaði hratt og í sífellu fram-
hjá borðinu. Mönnum þótti þetta
heldur vafasamt háttemi, minnugir
kæru á hendur Kortsnoj fyrir svip-
aða tilburði í Kanada. Ekkert var
þó aðhafst hér, Ehlvest stýrði hvítu
mönnunum en tefldi heldur bit-
laust. Hann er kunnur snillingur
að handleika hvítu taflmennina og
því kom mönnum spánskt fyrir sjón-
ir leikmáti hans er þekktu með
skiptum litum! Enskur leikur kom
nefnilega upp á borðinu og taflmáti
hvíts er nefnilega kunnur í sikileyj-
arvöm hjá svörtum! Það er skemmst
frá því að segja að Eistlendingurinn
knái sá aldrei til sólar í skákinni
og þegar mannstap var fyrirsjáan-
legt eftir 25 leiki gafst hann upp.
Þá átti hann aðeins mínútu til ráð-
stöfunar fram að tímamörkunum
við fertugasta leik. Það hafa því
orðið heldur betur umskipti hjá
heimsmeistaranum í síðustu umferð
og glaðbeittur mætti hann að skák
lokinni í viðtal hjá Stöð 2 þar sem
stór orð féllu í garð sovéska skák-
sambandsins og Campomanes, for-
seta Alþjóðlega skáksambandsins
FIDE.
Háttemi Beljavskys er annað. í
kyrrð og ró vinnur hann verk sín.
Afskaplega einbeittur við skák-
borðið og stendur sjaldan upp.
Kóngsindversk vöm kom upp í við-
ureign hans við Nunn. Nunn fóm:
aði peði og fékk ágæt færi fyrir. í
framhaldinu missti hann hins vegar
fótanna. Tækifæri til að einfalda
taflið í jafnteflishöfn fór forgörðum
og eftir snilldarlega taflmennsku
Beljavskys mátti undrabamið enska
játa ósigur sinn.
Margeir Pétursson er heldur bet-
ur kominn í form. Tveir sigrar í
síðustu þremur umferðum er til
marks um það. Hann sigraði fyrrum
heimsmeistara, Boris Spassky, í
einkar skemmtilegri skák sem vakti
mikla athygli. Mikið tímahrak kom
til sögunnar og Spassky sem hafði
þá tögl og hagldir í skákinni missti
þá öll tök á taflinu.
Áhorfendur hentu gaman að því
að taflmennska hans bæri það með
sér að það væri ekki hans háttur
að lenda í tímahraki. Venjulega
væri hann búinn að semja um jafn-
tefli miklu fyrr! í áframhaldinu lenti
Spassky í miklum þrengingum.
Missti peð og hróksendataflinu sem
upp kom varð ekki bjargað, áhorf-
endum til mikillar ánægju. Timman
sigraði Kortsnoj í harðvítugri skák
tveggja baráttujaxla. Og Speelman
sigraði Ribli í skemmtilegri skák.
Hann fórnaði nefnilega manni í
miðtaflinu en fékk nokkur peð í
staðinn. Ungveijinn lenti í miklum
hrakningum í framhaldinu, þurfti
sífellt að láta peð af hendi til þess
að veijast hótunum stærðfræðings-
ins snjalla og að lokum hafði Speel-
man fímm peð fyrir manninn. Þá
var sigurinn skammt undan. Ander-
son og Portich sömdu loks um jafn-
tefli eftir rúmlega ijörutíu leiki.
!W»BPTTr
!1 : 11 u j 11
t
-J