Morgunblaðið - 22.11.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.11.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988 Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Reynir GK kominn til Þorlákshafiiar með áhöfii Áskels. Gunnar Sæþórsson vélstjóri klifrar upp á bryggjuna. Selvogsgrunn: Mannbjörger eldur kom upp í Askeli ÞH Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Slökklviliðsmenn fara um borð í Lóðsinn í Vestmannaeyjum. Þorlákshöfn. Mannbjörg varð er mikill eld- ur kom upp í vélbátnum Áskeli ÞH 48 laust fyrir klukkan fimm aðfaranótt mánudags þar sem hann var að veiðum á Selvogs- grunni um 30 sjómílur suðaust- ur af Þorlákshöfii. Skipverjun- um Qórum var bjargað um borð i nálæga báta og farið með þá til Þorlákshafiiar. Báturinn sjálfiir var dreginn til Vest- mannaeyja en hann er mjög mikið skemmdur, jafiivel ónýt- ur. Stokksey ÁR kom fyrst að skip- inu, tók það í tog og sigldi áleiðis til Þorlákshafnar. Skipveijamir urðu fljótlega að yfirgefa brenn- andi bátinn og fóm í gúmbát. Var þeim bjargað um borð í vélbátinn Reyni GK. Síðar var ákveðið að draga bátinn til Vestmannaeyja en áhöfnin fór með með Reyni til Þorlákshafnar. Þangað komu þeir á tólfta tímanum í gær. Guðgeir Helgason skipstjóri á Rejmi sagði að það hefði verið laust fyrir klukkan fimm að beiðni barst frá Áskeli um aðstoð þar sem eldur væri laus í skipinu. „Við vomm staddir um þrettán mflur frá þeim. Þegar við komum að var mikill eldur laus og menn- imir enn um borð en Stokksey kominn með bátinn í tog. Það er erfitt að segja í hversu mikilli hættu þeir vom en hitinn f vélar- rúminu þar sem eldurinn kom upp var orðinn það mikill að olían streymdi upp um yfirfallsrörin þannig að sprengihætta var mik- il. Þetta gekk allt mjög vel enda rennisléttur sjór", sagði Guðgeir. Lóðsinn frá Vestmannaeyjum var mættur á staðinn á níunda tíman- um í gærmorgun með slökkviliðs- menn um borð. Þeim tókst að slökkva eldinn um ellefuleytið. Áskell ÞH 48 er 73 tonna eikar- bátur í eigu Gjögurvíkur hf. í Grindavík. Skipstjóri er Fióvent Jóhannsson, Gunnar Sæþórsson 1. vélstjóris, Bragi Guðjónsson stýrimaður og Jón Halldór Braga- son vélavörður. Áskell hafði vérið á fiskitrolli í þijá sólarhringa er eldurinn kom upp. Um upptök eldsins er ekkert vitað annað en það að hann kom upp í vélarrúm- inu, Gunnar vélstjóri reyndi að fara niður en hann sá ekki handa sinna skil og varð frá að hverfa. Engin slys urðu á mönnum önnur en þau að vélstjórinn meiddist á hendi er hann reyndi að komast niður í vélarrúmið. J.H.S. Drukknandi manni bjargað úr bifreið MAÐUR um fimmtugt liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Reykjavík eftir umferðarslys í Mos- fellssveit á sunnudag. Bifreið, sem hann ók, fór út af veginum og lenti á hvolfi í Köldukvísl, en vegfarendum tókst að losa hann úr flakinu. Slysið varð skömmu fyrir kl. 11 á sunnudagsmorg- un. Maðurinn var ásamt öðrum manni á austurleið í fólksbifreið og var mjög mikil hálka á veginum. Við brúna yfir Köldukvísl missti hann vald á bifreið- inni, með þeim afleiðingum að hún kastaðist út af veginum og lenti á hvolfí út í ánni, eftir 6-7 metra fall. Farþeganum tókst að komast út úr bifreiðinni og upp á veg, þar sem hann stöðvaði umferð. Tveir menn, sem komu að slysstaðnum, fóru niður að bif- reiðinni og reyndu að losa ökumanninn úr flakinu. Það gekk erfíðlega, þar sem hann var fastur í örygg- isbeltinu og þeir þurftu að athafna sig á kafi í vatn- inu. Eftir nokkra stund tókst þeim þó að losa hann. Þeir gerðu á honum lífgunartilraunir, sem báru árangur og var hann síðan fluttur á sjúkrahús, þar sem hann liggur nú þungt haldinn. Morgunblaðið/lngvar Guðmundsson Bifreiðin kastaðist 6-7 metra firam af brúnni. Jón Sigurðsson: Gagn að upplýs- ingum frá OECD JÓN Sigurðsson viðskiptaráð- herra segir að þótt aðal vandamál- ið við OECD-skýrsluna, sem birt var í síðustu viku, sé að hún byggi ASÍ-þing: Ovissa um formennsku ÞING Alþýðusambands íslands, hið 36. í röðinni, var sett í íþrótta- húsinu í Digranesi í Kópavogi í gær. Ásmundur Stefánsson flutti skýrslu forseta, en hann sagði ekki af eða á hvort hann myndi bjóða sig aftur fram til forseta ASÍ. Kjör forseta og varaforseta fer fram á morgun, miðvikudag. Eftir skýrslu forseta var kjörið í nefndir og síðan fór fram fyrsta umræða um lagabreytingar. Eftir kvöldmat voru fyrsta umræða um öryggi og félagslega þjónustu og fjárhagsáætlun Alþýðusambandsins á dagskrá. Alls var kosið í tólf nefndir, en í kjömefnd, sem er eina nefndin sem vinnur fyrir lokuðum dyrum, voru eftirtaldir kosnir: Benedikt Davíðs- son, Trésmíðafélagi Reykjavíkur, Þórður Ólafsson, Boðanum í Þor- lákshöfn, Magnús L. Sveinsson, VR, Sigrún B. Elíasdóttir, Verkalýðs- félagi Borgamess, Þorbjörg Samú- elsdóttir, Framtíðinni í Hafnarfírði, Guðmundur Hilmarsson, Félagi bif- vélavirkja, Magnús Geirsson, Félagi rafvirkja, Ragna Bergmann, Fram- sókn, og Sigurður Óskarsson, Rangæingi. Sjá ennfremur á blaðsíðu 34. Þakkargjörð- arhátíð lækk- ar verð á ýsu ÝSUVERÐ á fiskmörkuðunum lækkaði í gær vegna Þakkar- gjörðarhátíðarinnar i Banda- ríkjunum nk. fimmtudag. Bandaríkjamenn borða kalkún á Þakkargjörðarhátíðinni og því fer lítið af ýsu með flugi vestur þessa dagana. Meðalverðið var 50—60 kr. í síðustu viku en fór niður í rúmar 40 kr. í gær og á einum markaðinum niður í 23 kr. á nokkurra mánaða gömlum upp- lýsingum séu þær engu að síður gagnlegar. Hann er ekki sammála þeirri hörðu gagnrýni sem Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra hefur látið frá sér fara um þessa skýrslu. Hann seg- ir að hann telji ekki rétt að lýsa skýrslunni sem svo að þar sé að finna einhliða skoðanir eða trúar- brögð um ákveðnar stefiiur í efnahags- og stjórnmálum. „í þessum skýrslum OECD hafa oft komið gagnlegar ábendingar þótt ekki sé þar með sagt að ég sé sammála öllu sem þar hefur verið að fínna," segir Jón Sigurðsson. „Ég sé hinsvegar ekki betur en að í þess- ari skýrslu sé að fínna skilning á þeim efnahagsráðstöfunum sem við höfum þurft að grípa til. Það er oft gagnlegt að fá fram álit og skoðan- ir annarra á því sem við erum að gera.“ OECD-skýrslan barst íslenskum stjómvöldum í hendur í síðustu viku og sem fyrr segir hefur Steingrímur Hermannsson gagnrýnt hana harð- lega. Hann hefur m.a. sagt um skýrsluna að í henni sé aðeins að fínna „þýðingar á tillögum og skýrsl- um sem eru ritaðar í kerfinu hér heima af mönnum sem fylgja allt annarri stefnu á þessu sviði en ríkis- stjómin hefur". Eimskip kaupir í Skeljungi EIMSKIP hf. keypti nýlega hlutabréf í Skeljungi hf. og á nú um 5% af hlutafé fýrir- tækisins en átti um 3% af því fyrir kaupin, að sögn Harðar Sigurgestssonar forstjóra Eimskips hf. „Tilgangurinn með þessum kaupum er fjárfesting í traustu fyrirtæki," sagði Hörður í sam- tali við Morgunblaðið. Hann vildi ekki segja af hveijum Eim- skip hefði keypt hlutabréfín, né fyrir hvaða verð. Sjómenn og Gæzla deila um mæling- ar á möskvastærð VERULEGUR ágreiningur er nú milli Landhelgisgæzlunnar ann- ars vegar og sjómanna og út- gerðarmanna hins vegar vegna aðferða við mælingu á möskvum. Tveir togaraskipstjórar eiga yfir höfði sér málssókn fyrir að vera með of smáan möskva í veiðar- færum sínum samkvæmt mæl- ingum Gæzlunnar, en samkvæmt mælingum framleiðenda ne- tanna, Hampiðjunnar, standast möskvarnir mál. Báðir höfiiuðu dómssátt. Þórarni Guðmunds- syni, skipstjóra á Skipaskaga AK, hefúr verið birt ákæra fyrir að vera með 151,05 millmetra möskva að meðaltali í poka í stað 155 millimetra samkvæmt mæl- ingum Gæzlunnar. Hann segist þrumu lostinn yfir þessum að- ferðum. Það sé rosalegt að vegna mismunandi mælinga, sé ekk> lengur hægt að treysta veiðaT' færunum. Mælingar stangast á l Menn frá Gæzlunni fóru um boijð í Skipaskaga síðdegis á föstudag og komust að þeirri niðurstöðu að möskvi í pokanum væri of smár og var skipinu vísað til hafnar á ísafírði. Á laugardag komu menn frá Hampiðjunni vestur og mældu sama poka, sem nú er í gæzlu yfir- valda á staðnum. Mælingar Hamp- iðjunnar sýndu að möskvinn stæðist mál. Skipstjóranum var boðin dómS' sátt í málinu, sem hann hafnaði- Gæzlan notar sérstakan danskap mæli, sem þrýst er inn í möskvann með 5 kílóa þrýstingi, en netagerð- armenn og allir aðrir nota annap mæli, sem samkvæmt reglugerð £
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.