Morgunblaðið - 22.11.1988, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 22.11.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988 59 Nokkuð var rætt um flokksmál, og m.a. samþykkt að sett verði á stofn sameiginleg þjónustumiðstöð í Reykjavík fyrir stofnanir flokksins, og þaðan verði flokksstarfíð um allt land skipulagt. Endurvakinn yrði stjómmálaskóli Framsóknarflokks- ins, og áróðursstarf og kynningar- starf flokksins yrði einnig eflt. Þá haldi þingflokkurinn vinnufundi á haustin áður en þing kemur saman, og undirbúi í sameiningu málflutn- ing og stefnumörkun. Samþykkt var tillaga um nefnd sem endurskipuleggi flokksstarfíð frá grunni í ljósi nýrra viðhorfa, og verða í nefndinni formenn kjör- dæmasambandsanna, Landssam- bands framsóknarkvenna og Sam- bands ungra framsóknarmanna. Talsverð umræða var um jafnrétt- ismál í flokknum. Eiríkur Valsson vakti fyrst athygli á því að Tíminn, málgagn Framsóknarflokksins, hefði á laugardag birt mynd frá þinginu þar sem sáust eintómir karl- menn. Hann spurði síðan hvar kon- umar væru í flokknum og hvort karlar væru hræddir við að missa einhver völd. Magdalena Sigurðardóttir minnt- ist einnig á forsíðu Tímans og spurði hvort þetta væri sú ásýnd sem ætl- unin væri að hafa á flokknum. Steingrímur Hermannsson sagði það ótrúlegt að ekki væri hægt að taka mynd á mörghundruðmanna fundi nema af nokkrum köllum. „Ég trúði þessu ekki þegar ég sá blaðið í morgun," sagði Steingrímur. Eiríkur Valsson lagði síðan fram tillögu um nefnd sem skoðaði jafn- réttismál í flokknum og hefði fjögur ár til að koma því í kring. Nokkrar umræður urðu um þessa tillögu, og sagði Ólafur Þ. Þórðarson m.a. hann treysti sér varla til að eiga heima í þessum flokki, ef flokksþingið sam- þykkti tillögu sem segði að ekki væri jafnrétti í flokknum. Á endan- um var samþykkt að vísa tillögunni breyttri til nefndarinnar, sem á að endurskipuleggja flokksstarfið. GSH Erfiðléikarnir sam- I eina flokkana núna - sagði Jón Baldvin á flokksþingi framsóknarmanna Morgunblaðið/Bjami Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrímur Hermannsson og eiginkon- ur þeirra, Bryndís Schram og Edda Guðmundsdóttir, á flokksþingi Framsóknarflokksins. Bryndís heldur á gjöf sem Steingrímur af- henti Jóni: mjólkurglösum með merki Framsóknarflokksins. Til stóð að gefa Jóni Baldvin skóflu til að moka með út úr framsóknarfjós- inu en af því varð ekki. Jón Baldvin Hannibalsson form- aður Alþýubandalagsins ávarp- aði flokksþing Framsóknar- flokksins sl. laugardag og sagði að erfíðleikarnir væru það sem sameinuðu þessa tvo flokka núna. Eftir að Unnur Stefánsdóttir fundarstjóri hafði beðið Jón Baldvin velkominn í framsóknarfjósið, sagði hann að það hefði þótt saga til næsta bæjar ef hann hefði ávarpað flokksþing framsóknarmanna fyrir tveimur árum, og ekki síður ef sú heimsókn hefði verið endurgoldin. Hann benti þó á, að flokkamir væru greinar af sama meiði og ættu sér sameiginlegan hugmynda- smið, Jónas frá Hriflu. Jón Baldvin sagði að samstarf flokkanna hefði verið hálf stirt við myndun ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar. Síðan héfði margt breyst að fenginni reynslu. „Reynslan af samstarfinu í seinustu ríkisstjóm kenndi okkur það, að Framsóknar- flokkurinn er agaður flokkur, hann er nokkuð rausær flokkur og Fram- sóknarflokkurinn er undir sterkri forustu. Það er hægt að gera sam- komulag við framsóknarmenn, jafn- vel í erfiðum ágreiningsmálum, og hingað til er mín reynsla sú, að það stendur. Þessi reynsla leiddi flokk- ana smám saman sarnan," sagði Jón Baldvin. Hann sagði fráleitt að flokkarnir hefðu leyst sín ágreiningsmál, m.a. í landbúnaðarmálum. En erfiðleik- arnir sameinuðu flokkana sérstak- lega núna. Sjálfstæðisflokkurinn væri lagstur við stjóra og áhöfnin til kojs, á sama tíma og stýra þyrfti skipi af kunnáttu og fagmennsku gegnum brot. Því væri það þjóðar- nauðsyn að flokkarnir vinstra meg- in við miðju efldu með sér samstarf. Jón rifjaði upp að samstarf Ál- þýðuflokks og Framsóknarflokks hefði tekist best í ríkistjóminni á árinum 1934-37, í heimskreppn- unni. „Ég kalla þessa ríkisstjórn einu vinstri stjómina sem rís undir nafni hingað til en nú er vonandi ein önnur i uppsiglingu," sagði Jón Baldvin Hannibalsson. Atvinnu-, gengis- og kjaramál: Viðræður teknar upp við for- ustu launþega og atvinnurekenda -segir Steingrímur Hermannsson STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra segist ætla að taka upp viðræður við forustu launþega og atvinnurekenda, að loknu þingi Alþýðusambands íslands og leggja þar fram upplýsingar um stöðu atvinnuveganna, m.a. með tilliti til gengismála og kjaramála. Hann segir að rikisstjómin muni endurskoða gengismálin upp úr áramótum m.a. með hliðsjón af verðþróun á erlendum mörkuðum, og segir ríkis- stjórnina ekki vera fastgengisstjórn heldur skynsemisgengisstjórn. Á flokksþingi Framsóknarflokks- ins sagði Valur Amþórsson stjómar- formaður Sambandsins að á fast- gengistímum hefðu æðar atvinn- ulífsins verið opnaðar og því látið blæða. Nauðsynlegt væri að fella gengið um 10-20% til að leiðrétta grundvöll útflutningsatvinnuveg- anna. Fleiri tóku í sama streng á þinginu. Þegar Morgunblaðið bar þetta undir Steingrím sagðist hann vilja vekja athygli á því, sem bæði Valur og aðrir hefðu sagt, og kæmi raunar líka fram í ályktun SH, að nauðsyn- legt væri að áhrif gengisfellingarinn- ar yrðu tekin út úr þáttum atvinn- ulífins. „Það þýðir í fyrsta lagi að laun mega ekki hækka. í öðru lagi að verðlagi verði haldið niðri, og í þriðja lagi skil ég það svo, þó að margir séu feimnir við að nefna það, að áhrifin á fjármagnskostnað verði einnig tekin út. Þ.e. þegar verðbólga færi upp myndu kjörin einnig skerðast hjá fjármagnseig- endum og vextir yrðu neikvæðir ein- hveija mánuði. Ég hef sagt að gengisfelling, sem stuðlar að mismun á launum og fjár- magnskostnaði og öllum þeim erfið- leikum sem því fylgja kemur ekki til greina að mínu mati. Ég skal ekkert segja hvað verður í framtíð- inni. Við þurfum að meta þessa stöðu mjög vandlega eftir áramótin m.a. með tillits til verðlags erlendis. Þetta er ekki fastgengisstjóm sem núna situr, heldur skynsemisgengis- stjóm," sagði Steingrímur Steingrímur sagði um flokks- þingið að það hefði fyrst og fremst sýnt góða samstöðu meðal fram- sóknarmanna. „Hún er miklu meiri nú en stðustu mánuðina; við héldum til dæmis miðstjómarfund í apríl þar sem urðu mjög harðar umræður og miklar áhyggjur komu fram vegna stöðu atvinnuveganna., Áhyggjum- ar komu ekki síður fram núna eins og fjölmargar ræður á þinginu báru vitni, en ég held að framsóknarmenn séu samt miklu bjartsýnni og treysta því að ríkisstjórnin muni miklu ákveðnar á þeim málum en sú síðasta. Menn eru ánægðir með þessa ríkisstjóm,u sagði Steingrím- ur. —Gissur Pétursson formaður Sambands ungra framsóknarmanna sagði í ræðu að þetta flokksþing væri marklaust ef ekki kæmi þar skýrt fram, hvemig ríkisstjómin ætlaði að bregðast við þegar verð- stöðvunartímabilinu lyki í vor. Kom þetta fram á þinginu? „Einu sinni starfaði ég ungur maður í flokknum og starfaði alveg eins: hlutirnir urðu að gerast fljótt og helst í gær. Það er alltaf gott að hafa slíkar raddir, til að við höld- um vöku okkar. En staðreyndin er sú að í svona flóknum málum eins og nú eru, þá ákveða menn ekki hvað gert verður í mars-apríl. STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra var endurkjör- inn formaður Framsóknar- flokksins á flokksþinginu um helgina, með 292 atvæðum af 302 eða 96,68% atkvæða. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráð- herra var endurkjörinn vara- formaður, Guðmundur Bjarna- son heilbrigðisráðherra var end- urkjörinn ritari og Finnur Ing- ólfsson aðstoðarmaður heilbrigð- isráðherra var endurkjörinn gjaldkeri. Í formannskjörinu fékk Halldór Ég svaraði Gissuri og benti honum á ýmislegt sem væri verið að gera. Það eru líklega að byija í þessari viku skuldbreytingar í atvinnutrygg- inarsjóði upp á 5-6 milljarða, við borgum 5% uppbót á fryrstinguna, við vinnum að því að lækka vextina og þeir munu lækka, ef ekki með góðu þá með illu. Það er einnig ver- ið að vinna miklu betur að athugun á því hvemig staðan er og það tel ég vera það mikilvægasta," sagði Steingrímur Hermannsson. Ásgrímsson 5 atkvæði, Þorsteinn Ólafsson 2 og Valgerður Sverris- dóttir og Finnur Ingólfsson eitt hvort. I varaformannskjöri fékk Halldór Ásgrímsson 284 atkvæði af 301 eða 94,35%, en átta aðrir fengu einnig atkvæði. Guðmundur Bjamason fékk 276 atkvæði af 298 í ritarastarfið, og Finnur Ingólfsson fékk 211 af 306 atkvæðum í gjald- kerastarfið. Ragnheiður Sveinbjömsdóttir var endurkjörin vararitari flokksins og Sigrún Magnúsdóttir var endur- kjörin varagjaldkeri. Öll flokksstjórn- in var endurkjörin Sigluflörður: Brotist inn í Bíó- barinn Siglufirði. BROTIST var inn í Bíóbarinn aðfaranótt sunnudags. Brotinn var stór sýningargluggi og farið þar inn. Ekki var fullljóst í gær hveiju hafi verið stolið en lögreglan náði þeim sem þama vom að verki strax á sunnudag. — Matthias Viðauki um barnaskóla Húsavíkur í frásögn minni af 80 ára af- mæli bamaskóla Húsavíkur í blað- inu á fimmtudag féll niður að geta þess að einn af forgöngumönnum þessa mikla átaks, sem bygging skólahússins var á þeim tíma, var' þáverandi skólastjóri skólans, Valdimar V. Snævarr. Végna sér- stakra færslna dagbóka hans em til skráðar merkar heimildir um sögu skólans og þróun skólamála á Húsavík frá þeim tíma. Frásögnin er byggð á þeim heimildum. Valdimar var skólastjóri á Húsavík frá 1903 til 1914 að hann fluttist til Norðfjarðar og var skóla- stjóri þar til ársins 1943 og á hann merkan þátt i sögu skólamála okk- ar Islendinga. - Fréttaritari stund í Regn- boganum Regnboginn hefúr tekið til sýn- inga kvikmyndina „Örlagastund" (A Time of Destiny) með William Hurt, Timothy Hutton og Melissa Leo í aðalhlutverkum. Leikstjóri er Gregory Nava. Myndin íjallar um ungan mann, Martin, sem ætlar sér að hefr.a fyrir föður sinn, Jorge, og drepa Jack, til- vonandi mág sinn. Jorge var mót- fallinn ráðahag Martins og dóttur sinnar, Josephine, og fór að ná í Josephineþegar hún og Jack hlupust á brott. Á heimleiðinni veitti Jack þeim eftirför en bifreið feðginanna lenti út af veginum, Jorge dó en Jack bjargaði Josephine. (Fréttatilkynning) ..-.♦ Fóstrur marka stefiiuna Fulltrúaráð Fóstrufélags íslands hefúr markað stefnu félagsins í fag- og kjaramálum. Fulltrúaráðið telur meðal annars að menntun fóstra eigi að vera á háskólastigi og fagnar ákvæði í málefnasamningi ríkisstjórnarinnar um rammalöggjöf um forskólastig- ið. Skorað er á ríkisstjórnina að leið- rétta kjör láglaunafólks og að end- urskoða það mat sem lagt er til grunavallar þegar störf eru metin til launa. Kvikmynd in Orlaga-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.