Morgunblaðið - 22.11.1988, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.11.1988, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988 Gömlu lágu númerín eftirKristin Snæland Senn líður að því að hið nýja númerakerfi á bifreiðir taki gildi. Eftir það munu menn tapa lága eða fallega númerinu sínu við næstu umskráningu eða nýskráningu. Við unnendur gamalla bíla skiljum vel að menn eigi sér uppáhaldsnúmer enda tengjast þau fyrri bílaeign, ýmsum atvikum, eða eru hreinlega ættargripir, ef svo má segja, hafa gengið að bílum sömu ættar í ára- tugi. Mörg dæmi eru um slíkt, allt frá upphafi bílaaldar á íslandi. Börn og bamabörn aka enn á númerum föður eða afa, frá 1913 eða síðar. Reyndar voru bílar í fyrstu skráðir RE eða HF eins og bátar og skip, utan þess að við Eyjafjörð voru Akureyrarbílar með A en bílar í Eyjafjarðarsýslu með E. Þetta breyttist þó fljótt í það kerfi sem nú er verið að leggja niður, og mörgum er sárt um gömlu góðu númerin. Nú eru menn jafnvel sagð- ir kaupa sér nýjan bíl rétt fyrir númerabreytinguna til þess eins að halda sem lengst í gamla númerið sitt. Við hjá Fombílaklúbbi íslands viljum benda á aðra lausn og sýnu endingarbetri, en hún er sú að kaupa sér fornbíl og setja á hann gamla, góða númerið sem þá varð- veitist væntanlega um aldur og ævi, eða hitt að hafa samband við Fombílaklúbbinn og bjóða lága, góða uppáhaldsnúmerið á einhvern fallegan fornbíl. Þetta er lausn sem vVið hjá Fornbílaklúbbi Islands viljum benda á aðra lausn og sýnu end- ingarbetri, en hún er sú að kaupa sér fornbíl og setja á hann gamla, góða númerið.“ báðir gætu orðið ánægðir með, þeir sem eiga lág eða falleg og söguleg númer svo og fornbílamenn sem tækju við þessum ágætu númemm til varðveislu. Formaður Fornbílaklúbbs íslands er Rudolf Kristinsson og klúbburinn hefur síma 25850 þriðjudaga kl. 20.30 til 22.50. Höfúndur er leigubílstjári i Reykjavík. 100 ára afmæli Hvanneyrarskóla 1989: Leitað að fyrri nem- endum og starfsfólki ÞANN 24. júni á næsta ári verð- ur haldið upp á 100 ára afmæli. Hvanneyrarskóla með veglegri hátíð á staðnum. Vegna þessarar hátíðar er nú leitað að fyrri nem- endum og starfsfólki skólans. Skipaður var sex manna undir- búningshópur fyrir hátíðahaldið og það er þessi hópur sem nú leitar fyrri nemenda og starfs- fólks. Starfshópurinn hefur sent bréf eins víða og unnt er samkvæmt námsskrám skólans. Hinsvegar er ljóst að ýmsir verða útundan með þeim hætti og eru það einkum þrír hópar sem leitað er að. í fyrsta lagi fyrrverandi starfsmenn og kennar- ar því'ekki eru til skrár yfir þá. í öðru lagi aldraðir nemendur sem hafa haft búsetuskipti nýlega. Og í þriðja lagi nemendur sem búa er- lendis. Á því tímabili sem skólinn hefur starfað hafa um 3000 nemendur útskrifast úr honum. Rúmlega 2000 þeirra munu vera á lífi hérlendis og um 60 búa erlendis. Starfs- hópurinn hefur ákveðið að efna til fjársöfnunar meðal nemenda og er ætlunin að gefa skólanum sundlaug í 100 ára afmælisgjöf. Allar nánari upplýsingar veita Gunnar Guðbjartsson og Gísli Karlsson hjá Framleiðsluráði land- búnaðarins. Reykjavíkurdeild RKÍ: Námskeið í skyndihjálp er heimil þátttaka. Þeir sem hafa áhuga á að komast á námskeiðið geta skráð sig hjá deildinni. Á námskeiðinu verður kennd blástursmeðferðin, endurlífgun og fyrstahjálp við bruna, blæðingu úr sárum og beinbrotum. Ennfremur verður fjallað um ýmsar ráðstafanir til varnar slysum í heimahúsum og margt fleira. Sýnd verða myndbönd um helstu slys. Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands heldur námskeið i skyndi- hjálp. Námskeiðið hefst þriðjudag 22. nóvember kl. 20 og stendur í 5 kvöld. Kennt verður dagana 22., 23., 28., 30. nóvember og 1. desem- ber. Þetta er síðasta námskeiðið fyrir almenning sem haldið verður fyrir jóh Námskeiðið verður haldið á Öldugötu 4. Öllum 14 ára og eldri alleg mynd er góð jólagjöf Afgreiðum myndatökur og stækkanir fyrirjól nÉiMvi LJÓSMYNDASTOFA GUÐMUNDUR KR JÓHANNESS0N LAUGAVEGI178 SlMI689220 Vönduð vinna og góð þjónusta skiptir máli. NÓVEMBER 1953 STOFNAÐI HJÖRTUR NIELSEN SÉRVERSLUN [ TEMPLARASUNDI Þetta var fyrsta verslun landsins sem sérhæfði sig í kristals- og postulínsvörum. Hjörtur lagði áherslu á að bjóða viðskiptavinum slnum viðurkenndar gæðavörur, enda létu viðbrögðin ekki á sér standa -135 ár hafa fjölskyldur um land allt prýtt heimili sín fallegum kirstal og borðbúnaði frá Hirti Nielsen. í dag, á 35 ára afmæli verslunarinnar', eru nýir eigendur. við búðarborðið. Þær Hlín Kristinsdóttir og Margrét Rögnvaldsdóttir eru staðráðnar í að vinna með sama metnaði að innflutningi á fyrsta flokks kristal og postulíni, og skapa þar með versluninni þann sess, sem sæmir minningu Hjartar Nielsen. MATTA RÓSIN. Handskorinn kristall fré Bohemia. LINDNER. Skartmunir, lampar, vasar, mokkastell o.fl. Framleitt að aldagamalli hefð. Mikið úrval af glösum, Glæsilegt, handmálað postulin frá V-Pýskalandi. karöflum, vösum, skálum o.s.frv. HVÍTA STELLIÐ. Fágað matar- og kaffistell með ýmsum aukahlutum. Sígilt útlit, óhagganleg gæði. Ekta gylling. Gott verð. LAUKURINN. Handmálað matar- og kaffistell frá Keramíka. Petta er sá upprunalegi. Mikið af aukahlutum. Mjög gott verð! Sendum í póstkröfu um land allt. C S É R V E R S L U N Templarasundi 3 • sfmi 19935 Hljóðkútar — púströr — pústklemmur Allt í pústkerfið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.