Morgunblaðið - 22.11.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NOVEMBER 1988
'27
Flugslysið við Bahir Dar:
Kraftaverk að nokkur komst
lífs af úr brunnu flakinu
- segir íslenskur sjónarvottur úr sveit Rauða krossins
UM miðjan ágiist síðastliðinn fórst Boeing 737 þota i i eigu flugfé-
lagsins Ethiopian Airlines i innanlandsflugi. Sjálfboðaliðar frá Rauða
krossi Islands, sem eru í Bahir Dar urðu vitni að þessum atburði.
Hefur Morgunblaðinu nú borist frásögn Sigríðar Kristínar Sverris-
dóttur af því sem þarna gerðist. Fer lýsing hennar hér á eftir:
Það var laust eftir hádegi að flug-
vélin sást fljúga lágt yfir bænum.
Gífurlegur hávaði fylgdi og sá ég
með eigin augum að báðir hreyflar
voru alelda. Stuttu síðar kom ná-
granni okkar og vinnufélagi og bað
okkur að fylgja sér á flugvöllinn.
Vélin nauðlenti á mýrlendi um 30
km frá flugvellinum. Ekki var hægt
að aka nema 10 km frá flugvellinum
í átt að slysstaðnum og gengum
við því og hlupum síðasta spölinn
í fylgd hermanna.
Þegar á slysstaðinn kom blasti
við hrikaleg sjón. Vélin hafði
sprungið í loft upp og brak og
bréfarusl var á víð og dreif um
svæðið. Eitt það fyrsta sem mætti
augum mínum þegar ég nálgaðist
flakið voru tveir kolbrunnir manns-
líkamar í flugvélasæti. Á því augna-
bliki hvarflaði ekki að mér að nokk-
ur maður hefði lifað slysið af. Það
verður að teljast kraftaverk að af
107 farþegum vélarinnar komust
75 lífs af og um 40 farþeganna
hlutu nær engin meiðsli.
Bændur í nágrenni við slysstað-
inn unnu ómetanlegt starf við að
koma fólki í öruggt skjól og hafa
sjálfsagt bjargað mörgum mannslíf-
um með því. Þegar ég kom á stað-
inn þar sem slösuðum hafði verið
safnað saman, ríkti þar gott skipu-
lag og mikið var af skyndihjálpar-
fólki frá sjúkrahúsinu og Rauða
krossinum, sem komu með þyrlu.
Flestir farþeganna voru rólegir, leit-
uðu huggunar hver hjá öðrum og
biðu þögulir eftir að þeir kæmust
burtu. Stunur og hávær grátur
heyrðust varla. Tveir læknar voru
Það þótti kraftaverki líkast að 75 af 107 farþegum skyldu komast
lífs af úr slysinu, þar af 40 nær ómeiddir. Þyrlur fluttu hina slösuðu
á sjúkrahús í Bahir Dar.
þama, framkvæmdastjóri sjúkra-
hússins og ítalskur læknir sem af
tilviljun var staddur í nágrenni við
flugvöllinn. Varð aðdáunarvert að
sjá hversu góða stjóm þeir höfðu á
hlutunum. Ekkert fát eða tauga-
veiklun var á hjálparliðunum og
hlutirnir gengu fljótt og örugglega
fyrir sig. Forgangsröð sjúklinganna
var metin stuttu áður en þyrlam
lenti, en flutningar gengu hægt í
byrjun því aðeins var ein þyrla í
gangi sem flutt gat þrjá farþega.
Um kl. 3.30 bættist við þyrla, sem
flutt gat 20 farþega, þá voru flest-
ir farþeganna fluttir af slysstað og
á sjúkrahúsið í Bahír Dar. Ég fékk
leyfi til að fara á sjúkrahúsið og
fylgjast með aðgerðum þar. Þar
ríkit sama góða skipulagið og á
slysstaðnum. Enda er fólk þar vant
að standa í stórræðum. Alltaf em
til reiðu milli 20 og 30 rúm vegna
stríðsins í norðurhéruðunum og ein
sex manna stofa er alltaf höfð opin
fyrir hermenn.
Tuttugu af þeim þijátíu og tveim-
ur farþegum sem létust voru frá
Bahír Dar, og fjöldi bæjarbúa safn-
aðist saman fyrir utan sjúkrahúsið.
Ættingjar vildu vita um afdrif far-
þeganna og var mikill grátur og
gnístran tanna. Ekki kom þó til
vandræða því stöðugt er vopnaður
vörður við hliðið að sjúkrahúsinu
og engum er hleypt inn sem ekki
hafa þangað erindi. Einungis sext-
án líkanna voru þekkjanleg og var
þeim raðað upp til að aðstandendur
gætu borið kennsl á þau. Við það
tækifæri vorum við beðin um að
taka myndir af líkunum.
Tveim dögum eftir slysið voru
níu lík jörðuð í kirkjugarði við Bahír
Dar. Sú athöfn var vægast sagt
mjög ólík því sem gerist heima á
Fróni. Mikill fjöldi fólks fylgdi hin-
Daihatsu Charade var upphaflega hannaður
til að mæta gífurlegri hækkun bensínverðs í orku-
kreppu og að draga úr útgjöldum heimilanna.
IMú, þegar kreppir að í íslensku efnahagslífi
og bensínverðshækkun liggur í loftinu, ásamt öðrum
auknum álögum, sannar Charade enn einu sinni
ágæti sitt sem einn albesti kosturinn á markaðnum
þegar hugað er að bilakaupum.
Kynntu þór hönnun, útlit og rekstrargrund-
völl Daihatsu Charade áður en þú velur annað.
Daihatsuþjónustan er svo í kaupbæti, sú
besta sem völ er á.
Við eigum fyrirliggjandi árgerð 1988 á besta
verði sem við höfum nokkrum sinni boðiö uppá.
í því eru engar blekkingar um vexti, einfald-
lega lágmarksverð á gæðabíl.
Árgerð 1989 er á leiðinni fyrir
þá sem vilja bíða,
en á töluvert hærra verði.
Innifalið hágæða útvarps- og segulbandstæki.
Við bjóðum kjör við allra hæf i og erum opnir fyrir alls konar skiptum.
Úrvai notaðra bíla.
9-4»
BRIMBORG HF.
SKEIFUNNI 1 5 - SÍMI 685870.
Daihatsu - Volvo - Viðurkennd gæðamerki
NÝ SÍMANÚMER:
Söludeild 685870
Verkstæði: 673600
Varahlutir: 673900
Morgunblaðið/Sigríður Kristín Sverrisdóttir
Stélið á Boeing 737 þotu flugfélags Eþíópíu.
um látnu til grafar. Bæði konur og
karlar grétu hástöfum og margir
voru með myndir af hinum látnu.
Sumir syrgjendanna stigu nokkurs-
konar sorgardans sem minnti helst
á regndans indíána.
Því verður ekki neitað að það tók
nokkra daga að jafna sig eftir þessa
miklu lífsreynslu, bæði líkamlega
og andlega. Til dæmis vorum við
bæði hölt eftir gönguna löngu. En
eftirá hefur komið í ljós að hug-
myndir okkar um Eþíópíubúa og líf
okkar og starf í Eþíópíu eru ger-
breyttar. Allt í átt að meiri bjart-
sýni og jákvæðni.
BÓNUSTALA: 10
Vinningstölurnar 19. nóv. 1988.
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.122.044,-
Þar sem fyrsti vinningur hefur ekki gengið út tvo undanfarna
laugardaga bætist hann við fyrsta vinning á laugardaginn
kemur kr. 5.738.129,-
BÓNUSTALA + 4 tölur réttar kr. 611.046,- skiptast á 3 vinn-
ingshafa, kr. 203.682,- á mann.
Fjórar tölur réttar kr. 1.053.928,- skiptast á 188 vinningshafa,
kr. 5.606,- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 2.457.070,- skiptast á 6.382 vinnings-
hafa, kr. 385,- á mann.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111