Morgunblaðið - 22.11.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988-
25
Frammistaðan í síðustu um-
ferðunum skiptir öllu máli
Skák
Bragi Kristjánsson
Sjö umferðum er lokið á
Ólympíuskákmótinu í Grikklandi,
þegar þessar línur eru ritaðar. Sov-
étmenn hafa örugga forystu, hafa
22 vinninga, en Svíar eru óvænt í
öðru sæti, með 19V2 vinning. í
3.-6. sæti eru Júgóslavar, V-Þjóð-
veijar, Ungverjar og Hollendingar,
allir með I8V2 vinninga. íslenska
sveitin hefur 17 vinninga og jafn-
teflislega biðskák og er í 15. sæti.
Frammistaða okkar manna hefur
valdið nokkrum vonbrigðum, þótt
eina tapið til þessa sé fyrir Sovét-
mönnum í 5. umferð, 1-3. Reyndar
er útlit fyrir IV2—2V2 tap fyrir
Kúbumönnum. í 7. umferð.
íslendingar hafa ekki unnið
nægilega stóra sigra á veikari þjóð-
unum, og má þar nefna 2V2-IV2
sigra á Brasilíu og Kanada. Tapið
gegn Sovétmönnum er nokkuð
stórt, þegar haft er í huga, að
bæði Karpov og Beljavskíj tóku sér
frí í þeirri umferð.
Þegar á heildina er litið er
frammistaða íslendinga ekki eins
góð og búist var við, enn sem kom-
ið er. Um frammistöðu einstakra
skákmanna vlsast til meðfylgjandi
töflu, en rétt að athuga, að of fljótt
er að örvænta, því enn eru 6 um-
ferðir eftir. Það er frammistaðan í
síðustu umferðunum, sem öllu máli
skiptir. í því sambandi er gott að
minnast þess, að okkar menn hafa
þegar teflt við Sovétmenn.
Um frammistöðu annarra þjóða
er það helst að segja, að Svíar hafa
komið mjög á óvart, og gerðu í 7.
umferð 2-2 jafntefli við Sovétmenn.
Kasparov hvíldi, en Karpov vann
Andersson. Ehlvest tapaði fyrir hin-
um „illræmda" Ernst, þeim sem
frægastur er fyrir að láta leigu-
bílinn bíða eftir sér á meðan hann
flýtti sér að tapa fyrir Agdestein í
síðustu umferð svæðamótsins í
Gausdal fyrir tæpum fjórum árum.
Englendingar hafa ekki náð sér á
strik, þótt búist væri við, að þeir
veittu Sovétmönnum keppni um
efsta sætið.
Við skulum nú sjá viðureign Jó-
hanns við heimsmeistarann.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: G. Kasparov (Sov-
étríkjunum)
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4 -
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 —
Stjörnuskoðunarfélag Sel-
fjamarness heldur fræðslufund
í kvöld kl. 20.30 í stofu 20 í Val-
húsaskóla við Melabraut a Sel-
tjarnarnesi.
Einar H. Guðmundsson stjarneðl-
isfræðingur talar um nýju sprengi-
stjömuna SN1987a sem birtist á
suðurhveli himins í fyrra. Sem
kunnugt er telst sá viðburður til
hinna merkustu í stjarneðlisfræði
frá upphafi vega og hefur margt
verið um hann rætt og ritað af
mismiklum efnum. Að loknu máli
Einars verða almennar umræður
um fundarefnið.
Fundurinn er öllum opinn og em
áhugamenn um stjörnufræði og
INNLENT
Jóhann notar byijunamppbygg-
ingu, sem kenna mætti við enska
stórmeistarann, Nigel Short, sem
lagt hefur margan meistarann að
velli með henni, m.a. sjálfan Kasp-
arov!
8. - Rbd7, 9. g4 - h6, 10. 0-0-0
- Bb7, 11. Bd3 - Re5, 12. Hhel
- b4
í skákinni, sem Kasparov tapaði
fyrir Short í Bmssel í desember
1986, lék hann 12. — Hc8 og fram-
haldið varð 13. Kbl - Be7, 14. h4
- b4, 15. Ra4 - Da5, 16. b3 -
Rfd7, 17. g5 - g6, 18. f4 - Rxd3,
19. cxd3 — hxg5, 20. hxg5 — d5,
21. f5! — e5, 22. exd5 — Dxd5,
23. f6 — Bd6 með betra tafli fyrir
hvít. Þessi skák var reyndar síðasta
tapskák Kasparovs gegn öðmm en
Karpov, þar til hann tapaði fyrir
Sokolov á heimsbikarmóti Stöðvar
2 í síðasta mánuði!
13. Ra4
Short gaf í skýringum við fram-
angreinda skák við Kasparov fram-
haldið 13. Rce2 — d5, 14. exd5 —
Rxd5, 15. Rf4 með hugmyndinni
Rfxe6.
13. - d5, 14. exd5 - Rxd5, 15.
Bf2 - Bd6, 16. Bf5
Keppendur hafa fram að þessu
fylgt rannsóknum enska stórmeist-
arans, Johns Nunn, frá lokum
síðasta árs. Englendingurinn taldi
hvít eiga vinningsstöðu eftir 17.
Rxe6, en þessi skák bendir til þess,
að honum hafi skjátlast.
16. - 0-0!, 17. Rxe6 -
Sá, sem sagt hefur A, verður að
segja B líka.
17. - £xe6, 18. Bxe6+ - Kh8,
19. Bxd5 - Rxf3, 20. Bxf3 -
Bxf3, 21. Bb6 -
Engu betra er 21. Dxd6 — Bxdl,
22. Dxd8 — Haxd8, 23. Bc5 —
Bxg4 o.s.frv.
21. - Bxdl!
Ef til vill er þetta leikurinn, sem
menn sáu ekki fyrir.
22. Bxd8 — Haxd8
stjarneðlisfræði hvattir til að mæta.
Kaffiveitingar verða á boðstólum
að loknum fundi.
(Fréttatilkynning)
Listasafii ASÍ:
Sýningu
Kristínar
að ljúka
SÝNING Kristínar Jónsdóttur
frá Munkaþverá í Listasafiii ASÍ
verður framlengd til 27. nóvem-
ber.
Sýningin er opin alla virka daga
kl. 16—20 en laugardag og sunnu-
dag kl. 14—20.
23. Dxdl -
Jóhann ákveður að gefa drottn-
inguna til baka. Eftir 23. Dg2 —
Bf3, 24. Df2 (24. Dfl - Bf4+ 25.
Kbl — Bd2 o.s.frv.) — Bf4+, 25.
Kbl — Bc6 á hvítur í erfiðleikum
vegna veikleika í borðinu. Ekki
gengur 23. Hxdl - Bf4, 24. Dxf4
— Hxdl+, 25. Kxdl — Hxf4 og
svartur vinnur.
23. - Bf4+, 24. Kbl - Hxdl+,
25. Hxdl - Bxh2
Svartur stendur betur í endatafl-
inu, því biskupinn er betri en riddar-
inn, en Jóhanni tekst að finna leið
til jafnteflis.
26. c3 — bxc3, 27. Rxc3 — Hf4,
28. Hhl - Bf2, 29. Hel - Kh7,
30. He2! -
Eftir hrókakaup virðist svartur
ekki eiga vinningsleið, þótt undar-
legt megi virðast.
30. - Hxe2, 31. Rxe2 - Kg6, 32.
Rd4 - Bd6
Ekki 32. - Kg5, 33. Rf3+ ásamt
34. Rxh2 o.s.frv.
33. Rf3 — h5, 34. gxh5+ — Kxh5,
35. Kc2 - g5, 36. Kd3 - g4, 37.
Rel - g3, 38. Ke4 - Kg4, 39.
Rg2 - Kh3, 40. Kf3 — a5
Fyrri tímamörkum er náð og ljóst
orðið, að heimsmeistarinn kemst
ekkert áfram í vinningstilraunum.
41. b3 - Be5, 42. Rel - Bc7, 43.
Rg2 - Bd6, 44. Rel - Kh2, 45.
Rg2 — Be5
Eða 45. - Kgl, 46. Re3 - Bc5,
47. Rf5 — g2, 48. Rh4 og það er
svartur, sem má þakka fyrir jafn-
teflið.
46. Re3 - Kh3, 47. Rg2 - Bd6,
Gljáandi
HARKA
með
Kópal
Geisla
Veldu Kópal
med gljáa vlð hæfi.
a6,6. Be3 - e6, 7. Dd2 - b5,8. f3
Fundur um nýju
sprengistjörnuna
Margeir í þungum þönkum í skákinni við Ivanchuk á föstudag.
48. Rel - Be7, 49. Rd3 - Kh2,
50. Rf4 - Bg5, 51. Re2 - g2, 52.
Ke4 - Be7
Eða 52. - glD, 53. Rxgl -
Kxgl, 54. Kd5 - Kf2, 55. Kc6 -
Ke2, 56. Kb5 - Bd2, 57. a3 -
Kd3, 58. b4 og svartur getur ekki
unnið með einum biskupi og skákin
verður jafntefli.
53. Kf3 — Bb4, 54. Ke4 og Kasp-
arov bauð jafntefli, sem að sjálf-
sögðu var samstundis þegið.
Ólympíuskákmótið í Saloniki 1988
ísland Puerto Rico Kanada Brasiiía Grikkland Sovétríkin Holland Kúba
1. borð: Jóhann Hjartarson — — 0 1 l/2 V2 0
2. borð: Jón L. Amason 1 l/2 1 1 l/2 V2 V2
3. borð: Margeir Pétursson 1 í — V2 0 V2 —
4. borð: Helgi Ólafsson 1 í l/2 i 0 — l/2
1. varam.: Kari Þorsteins — 0 i — — í
2. varam.: Þröstur Þórhallsson 1 — — — ' — — —
4 2V2 2V2 3V2 1 2V2
ÞETJAERHÚN...
„Dásamlegur
dugnaðarforkur! "
SIEMENS MK 4450 hrærivélin er engin venjuleg „hrærivél".
Hún hrærir, hnoðar, þeytir, blandar, brytjar, rífur, hakkar og
sker - bæði fljótt og vel.
Að hætti vestur-þýskra framleiðenda er hún einkar vel
hönnuð. Létt, lipur, hljóðlát og kröftug. Jafnauðveldlega og
að skipta um gír á vestur-þýskum sportbíl, skiptir þú henni úr
hakkavél í hrærivél og í grænmetiskvörn upp í blandara.
Hún ier draumaverkfæri í eldhúsinu. Fáðu þér (-eða
gefðu ) fjölhæfan dugnaðarfork í eldhúsið.
9.650,— krónur er heldur ekki mikið verð fyrir þennan líka
bráðlaglega dugnaðarfork. (tarlegur leiðarvísir og uppskrifta-
hefti á íslensku fylgja með.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • Sfmi 28300