Morgunblaðið - 22.11.1988, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 22.11.1988, Blaðsíða 58
Morgunblaðið/Þorkell Frá flokksþingi framsóknarmanna á Hótel Sögu. Fremst sitja Sigrún Sturludóttir, Gerður Steinþórsdóttir og Asta Ragnheiður Jóhannes- dóttir. Hvatt til breytinga á búvörulögunum Bæði Jónas og Valur lögðu til að búvörulögunum frá 1985 yrði breytt og aftur yrði tekið upp umboðssölu- kerfi, þar sem núverandi kerfi ætti þátt í því að afurðafélögin gætu ekki starfað. Valur sagði að ekki hefði aðeins komið í ljós, að loforð um, að fjármagn yrði tryggt til að staðgreiða bændum afurðir, hefðu verið brotin, heldur hefði komið í Ijós að afurðastöðvamar hefðu klemmst á milli framleiðenda, sem vildu fá sem mest fyrir afurðina og neytenda sem vildu borga sem minnst. „Það var hundruð milljóna tap á sláturhúsunum verðlagsárið 1987-88 og það er bullandi tap á mjólkurstöðvunum á þessu ári, og ég óttast að það sé verulega meira en verðjöfnunarsjóður geti staðið undan. Það þjónar engum hagsmun- um, síst af öllu bænda, að afurðar- stöðvamar veslist upp í taprekstri. Það hryggilega sem gerðist, við setningu búvömlaganna 1985 var það, að bændasamvinnan um úr- vinnslu og sölu sinna afurða var nánast lögð af,“ sagði Valur. Úreldingarsjóður dreifbýlisverslunar Hann sagði einnig að þjóðfélags- þróunin hefði orðið til þess að dreif- býlisverslunin væri að veslast upp. Hann lagði til að stofnaður yrði úr- eldingarsjóður, sem í rynni „örlítið prómill" af verslunarrekstri í landinu, til þess að kaupa upp dreif- býlisverslanir í litlum byggðarlögum sem hefðu engan rekstargmnn leng- ur. Ef verslunarþjónusta þætti nauð- synleg út frá byggðasjónarmiði, gæti sjóðurinn leigt eða lánað hús- næðið undir nauðsynlega verslunar- þjónustu í viðkomandi byggðum. Steingrímur Hermannsson hafði í setningarræðu sinni viðrað hug- myndir um að dreifbylisverslun yrði aðstoðuð af hinu opinbera. Valur sagði að þar, sem dreifbýlisverslun væri á sæmilegum gmnni, þyrfti hún samt á styrk að halda, til dæmis í formi innheimtulauna af söluskatti og vaxtaívilnana. Á flokksþinginu var lítið fjallað um þau viðkvæmu mál, sem uppi em milli ríkisstjronarflokkanna, svo sem um utanríkismál og álmálið. Nokkrir lýstu þó yfír stuðningi við þá stefnu, sem Steingrímur Her- mannsson fylgdi sem utanríkisráð- herra, og í stjómmálaályktun var bætt setningum úr stjómarsáttmál- anum, um endurskoðun vamar- samningsins, og að ekki yrðu gerðir nýir samningar um meiriháttar hem- aðarframkvæmdir. Um stóriðju segir í atvinnumálaá- lyktun: „Stóriðju ber að skoða vand- lega og fordómalaust á hveijum tíma sem hugsanlega viðbótarstoð undir þjóðarbúið. Flokksþingið leggur áherslu á að kannaðir verði vandlega möguleikar á uppbyggingu, úr- vinnslu og samsetningariðnaðar í tengslum við hugsanlega stjóriðju." í upphaflegum drögum var tónninn mun neikvæðari og m.a. bent á að stóriðja væri einhver dýrasta leið sem völ væri á til að skapa ný störf, auk þess sem orkusala til erlendrar stóriðju virtist ekki vera arðbær. Verkalýðsmál hornreka? Á flokksþinginu lýstu nokkrir ræðumenn yfir áhyggjum sínum með stöðu verkalýðsmála í flokknum. Þannig sagði Hrólfur Ölversson að verkalýðsmálum væri sérstaklega illa sinnt í flokknum og Eíríkur Vals- son sagðist skammast sín fyrir að vera framsóknarmaður þegar verið væri að ræða launamálapólitík. Framsóknarkonur í flokknum voru með sérstaka undirskriftarsöfnum þar sem skorað var á Þóru Hjalta- dóttur, forseta Alþýðusambands ís- Iands, að gefa kost á sér í embætti varafoseta Alþýðusambands íslands. í drögum að ályktun um atvinnu- mál var sérstakur kafli um stöðu kjaramála, þar sem segir m.a.: „Þeg- ar ný ríkisstjóm vinstri aflanna í þjóðfélaginu var mynduð nú í haust birti yfír mörgum, sem nú sjá bjart- ari framtíð, Ekki lofuðu fyrstu að- gerðir þó góðu þegar framlengd voru lög um afnám samningsréttarins fram á næsta ár. Skiptar skoðanir eru innan verkalýðshreyfíngarinnar um þetta atriði, en fleiri eru þeir sem telja að ekki sé hægt að búa við slík afarkjör. Samningsrétturinn er heilagur og ekki verslunarvara. Verkalýðshreyfing, sem sífellt stendur frammi fyrir því að samn- ingar eru ógildir eða jafnvel að hún er svipt samningsréttinum er lítið betur á vegi stödd en pólska verka- lýðyhreyfingin." f endanlegri gerð atvinnumála- ályktunar var allur þessi kafli endur- skrifaður, vegna þess að hann þótti stinga í stúf við anda ályktunarinnar í heild, og bar þá yfirskriftina: Mál- efni vinnumarkaðarins. Það voru Þórður Ólafsson, miðstjómarmaður í Alþýðusambandinu, og Þóra Hjaltadóttir sem skrifuðu upphaf- lega kaflann, en samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins sáu m.a. starfsmenn Vinnumálasambands Samvinnufélaganna um endursamn- inguna. Stuðningur við þriðjá sljórnsýslukerfið í drögum að stjómmálaályktun þingsins var lýst yfir stuðningi við þriðja stjómsýslustigið í því skyni að flytja þjónustustarfsemi eins og frekaast væri unnt út á land og auka sjálfstæði sveitarfélaga. Alexander Stefánsson alþingis- maður sagðist hafna því að einhliða væri sett í stjómmálayfírlýsinguna viljayfirlýsing um þriðja stjómsýslu- stigið, áður en farið hefði fram í flokknum nákvæm útfærsla á því hvað við væri átt og hvort það hent- aði hér á landi. Ólafur Þ. Þórðarson sagði að þriðja stjómsýslustigið væri þvert á móti nauðsynlegt til að vinna gegn miðstýringu. Fleiri tóku til máls um þetta, en niðurstaðan varð sú að setningunni í ályktuninni var breytt þannig að talið væri rétt að vinna að því að þriðja stjómsýslustiginu væri komið á fót. Nokkrar umræður urðu um byggðamál, og vildu margir draga úr þeirri togstreytu sem ríkti milli höfuðborgarsvæðisins og lands- byggðarinnar. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi í Reykjavík benti m.a. á að Reykjavíkurborg þyrfti mikið flármagn til að halda uppi félags- legri þjónustu. Hún vitnaði í nýútkomna Árbók sveitarfélaga þar sem taldar eru upp íj'árfestingar á íbúa í ýmsum sveitar- félögum. Þannig væru til dæmis fjár- festingar í Reykjavík 13300 krónur á íbúa, í Grindavík 26600 krónur, í Hvolhreppi 22187 krónur, í Stöðvar- hreppi 23678 krónur, á Siglufjirði 27595 krónur, á Ólafsvík 34000 krónur og á Bíldudal 37526 krónur. Framlag sömu sveitarfélaga til félagsmála en í Reykjavík 17589 krónur á íbúa, Grindavík 8189 krón- ur, Hvolhreppi 6900 krónur Stöðvar- firði _ 13900 kr., Siglufírði 10400 kr., Ólafsvík 9300 kr. og á Bíldudal 10200 krónur. Umhverfísmál í félagsmálaráðuneyti Nokkur umræða varð um um- hverfísmál og upplýsti Steingrímur Hermannsson m.a. að hann myndi á ríkistjómarfundi í þessari viku leggja fram tillögu um það í ríkis- stjóminni, að sérstök deild, sem Qalli um umhverfismál, yrði sett upp í félagsmálaráðuneytinu, sem heiti þá félags- og umhverfisráðuneyti. Steingrímur sagði að samkvæmt tillögum sínum færi Náttúruvemd- arráð til þessa ráðuneytis. Þar yrðu tekjar ákvarðanir um vemdun dýra í útrýmingarhættu, mengunardeildir Siglingarmálastofnunar og Holl- ustuvemdar. Gert yrði ráð fyrir því að um- hverfísmáladeildin geti ákveðið að loka verksmiðjum, eða komið í veg fyrir mengun frá þeim og einnig ákveðið að takmarka þurfi beit á ákveðnum svæðum. Hugmyndin væri að leitað verði umsagnar við- komandi fagráðuneyta í slíkum mál- um, og ef deilur yrðu, mætti vísa þeim til forsætisráðherra. Steingrímur sagði að gert væri ráð fyrir því að landgræðslan og skógræktin yrðu áfram í landbúnað- arráðuneyti, því það væri kappsmál þeirra sem ættu að nýta landið, að bæta þann þátt. Gissur Pétursson formaður Sam- bands ungra framsóknarmanna sagði að landbúnaðarráðuneytið hefði staðið gegn því að landgræðsla og skógrækt flyttust til nýs um- hverfísráðuneytis. „Það er ekkert umhverfísráðuneyti sem hefur ekki einmitt þessar deildir undir sínum hatti. Og þegar þessi skammtíma- sjónarmið verða yfirunnin þá fara þessar deildir þar inn. Öðruvísi getur markviss stjóm umhverfismála ekki orðið," sagði Gissur. 58 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988 20. flokksþing Framsóknarflokksins Frj álshyggj an varð síð- ustu rí kisstj órn að falli -segir í stjórnmálaályktun þingsins 20. FLOKKSÞING Framsóknarflokksins einkenndist öðru fremur af orðinu „frjálshyggja“ og varð þetta orð að einskonar samnefiiara fyrir allt sem flokkurinn berðist gegn. Steingrimur Hermannsson formaður flokksins gaf tóninn í setningarræðu sinni, þegar hann sagði að hin dauða hönd fijálshyggjunnar hefði orðið atvinnuvegunum þung. Einkunnarorð þingsins voru: Fyrirhyggja í stað fijálshyggju, og stjórn- málaályktun þingsins hefst síðan á þessum orðum: Fijálshyggjan varð síðustu ríkisstjórn að falli. Margir ræðumenn lýstu yfir ánægju sinni með myndun núverandi ríkisstjómar og endurnýjaða pólitíska vináttu Framsóknarflokksins og Alþýðuflokks. Sú vinátta var raunar undir- strikuð með þvi að formenn flokkanna heimsóttu flokksþing hvors annars. Eins og rakið var í Morgunblaðinu á laugardag, urðu margir ræðumenn á þinginu til þess að taka undir orð Steingríms Hermannsonar, að fijáls- hyggjan og fyrirhyggjuleysið í síðustu ríkisstjóm hefðu nær gengið frá atvinnuvegunum dauðum og því hefði verið nauðsynlegt að breyta um samstarfsflokka í ríkisstjórií. Margir tóku til dæmis fram, að þeir hefðu í sjálfu sér ekkert á móti Sjálf- stæðisflokknum í sjálfu sér, heldur þeim fijálshyggjuöflum sem þeir sögðu að réðu þar ríkjum og hefðu komið í veg fyrir raunhæfar efna- hagsaðgerðir í síðustu ríkisstjóm. Olafur Þ. Þórðarson alþingismað- ur, sem hætti að styðja síðustu ríkis- stjóm í fyrravor, sagði m.a. að harð- ar deilur hefðu orðið í þingflokki framsóknarmanna hvenær flokkur- inn ætti að fara út úr stjóminni. Ólafur sagði einnig að aðalhættan núna væri ekki fijálshyggjan í Sjálf- stæðisflokknunm, heldur fijáls- hyggjan innan núverandi ríkisstjórn- ar. Hann benti á að æðsti maður viðskiptamála í landinu réði því umfram alla aðra hvað bankamir gerðu varðandi fyrirmæli ríkistjóm- arinnar í vaxtamálum, og spurði hvers vegna þeir drægju lappimar í þeim efnum. Hert upp á stjóm- málaályktun Stjómmálaályktun þingsins tók talsverðum breytingum frá upphaf- legum drögum, eftir því sem leið á þingið, og varð talsvert harðorðari í garð „fijálshyggjuaflanna" endan- legri mynd, en í upphaflegri. Á ein- um stað var þó orðalaginu: „blasir við þjóðargjaldþrot", sem Steingrím- ur Hermannsson hafði áður notað í ræðu sinni, breytt í „blasir við efna- hagslegt hrun“. Umræða um atvinnumál var nokkuð áberandi á þinginu en hún var nokkuð almenns eðlis. Málefni sjávarútvegsins voru nokkuð rædd, eins og m.a. var gert grein fyrir í blaðinu á laugardag. Þá hvatti Níels Ámi Lund deildarstjóri til þess, snemma á þinginu, að ræddir yrðu þeir miklu erfíðleikar, sem sam- vinnuhreyfíngin ætti við að etja, en þau mál voru samt ekki mikið til umræðu. Valur Amþórsson stjómar- formaður Sambandsins lýsti þó mikl- um erfíðleikum, sem bæði afurðasöl- ur landbúnaðarafurða og dreifbýlis- verslun ættu við að stríða, og Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri hafði áð- ur sagt að kaupfélögin og afurða- sölufélögin væru unnvörpum að fara á höfuðið. Miðsljórn Framsóknarflokksins: Þóra Hjaltadóttir fékk flest atkvæði Valur Amþórsson og Guðjón B. Ólafsson með jafnmörg atkvæði ÞÓRA Hjaltadóttir forseti Alþýðusambands Norðurlands varð efst i miðstjórnarkjöri Framsóknarflokksins á flokksþinginu um helgina. Þóra fékk 324 atvæði en Jóhann Pétur Sveinsson lögmaður fékk 279 atkvæði. í þriðja og flórða sæti voru Valur Amþórsson stjómarformað- ur Sambandsins og Guðjón B. Ólafsson forstjóri Sambandsins með 263 og 260 atkvæði. Flokksþingið kaus 25 manns í miðstjóm og 14 þeirra sem nú voru kosnir sátu ekki í síðustu miðstjóm. í sætum 5-25 voru: Drífa Sigfús- dóttir, Haukur Halldórsson, Jónas Jónsson, Hafsteinn Þorvaldsson, Sigrún Magnúsdóttir, Ingvar Gísla- son, Þórunn Guðmundsdóttir, Pétur Bjamason, Magnús Ólafsson, Krist- inn Finnbogason, Helgi Bergs, Sverr- ir Sveinsson, Hrólfur Olversson, Þórdís Bergsdóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Níels Ámi Lund, Guðrún Alda Harðardóttir, Guðrún Jóhannsdóttir, Gerður Steinþórsdótt- ir, Sveinn Bemodusson og Oddný Garðarsdóttir. Guðlaug Bjömsdóttir var með fleiri atkvæði en Oddný en vegna reglu um að minnsta kosti 7 mið- stjómarmenn skuli vera úr hópi yngri flokksmanna, fór Oddný upp. Yfir 70 atkvæði voru ógild í kjörinu vegna þess að ekki var merkt við nægilega marga af yngri kynslóðinni. Við miðstjómarkjör á síðasta flokksþingi bundust landsbyggðar- menn samtökum þannig að 15 af 25 fulltrúum komu í þeirra hlut. Þá náðu Sigrún Magnúsdóttir, eini borg- arfulltrúi framsóknarmanna, Helgi Bergs bankastjóri og Erlendur Ein- arsson þáverandi forstjóri Sam- bandsins ekki kjöri. í kosningunum nú höfðu landshlutamir einnig bandalag sín á milli, og konur og yngri menn reyndu að auka sinn hlút. Niðurstaðan varð sú að flestir hópar fengu nokkumveginn sama fulltrúa- flölda, og bæði Sigrún og Helgi kom- ust í miðstjóm aftur. Sjö af fímmtán, sem sóttust eftir endurkjöri í miðstjómina, féllu. Þar má nefna Ragnheiði Sveinbjöms- dóttur vararitara flokksins, Jón Sveinsson aðstoðarmann forsætis- ráðherra og Markús Á Einarsson veðurfræðing.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.