Morgunblaðið - 22.11.1988, Qupperneq 26
MORGUNBLAÐÍÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
r26
NATO:
Nýr yfirmaður Atlants-
hafsher slj órnar innar
FRANK B. Kelso flotaforingi tekur í dag, þriðjudag, við stöðu yfir-
manns Atlantshafsherstjórnar Atlantshafsbandalagsins. Hann tekur við
starfinu af Lee Baggett flotaforingja sem hyggst setjast í helgan stein
í Kaliforníu í Bandarikjunum.
Kelso mun formlega taka við starf-
inu við hátíðlega athöfn sem fram
fer um borð í bandaríska flugvéla-
móðurskipinu „USS America" í Nor-
folk í Virginíu í Bandaríkjunum en
þar eru höfuðstöðvar Atlantshafs-
herstjómarinnar. Viðstaddir athöfn-
ina verða m.a. Frank Carlucci vam-
armálaráðherra Bandaríkjanna og
Paul D. Manson, forseti hermála-
nefndar Atlantshafsbandalagsins.
Herstjómin á Norður-Atlantshafi
annast vamir á svæði er nær frá
Norðurheimskauti að hvarfbaugi
krabbans apnars vegar og frá strönd-
um Norður-Evrópu að ströndum Evr-
ópu og Afríku hins vegar, að Erma-
sundi og Bretlandseyjum undanskild-
um. Á friðartímum er það hlutverk
yfirmanns Atlantshafsherstjómar-
innar að gera vamaráætlanir, skipu-
leggja heræfingar og fleira. Á
stríðstímum er honum ætlað að
tryggja öryggi á samgönguleiðum
yfir Atlantshaf og veija þær óvinum
svo að hægt sé að flytja vopn, mann-
afla og vistir frá Norður-Ameríku til
Evrópu.
Frank B. Kelso mun einnig taka
við stöðu yfirmanns herstjómar
Bandaríkjamanna á Atlantshafi en
þeirri stöðu hefur Lee Baggett gegnt
fram til þessa.
Kelso hefur starfað á vegum
Bandaríkjaflota undanfarin 32 ár. Á
þessum tíma hefur hann stjómað
kafbátum og kafbátadeildum, verið
yfirmaður sjötta flota Bandaríkjanna
á Miðjarðarhafí auk þess sem hann
hefur stjómað Atlantshafsflotanum.
Reuter
Mótmæli íPóllandi
Um 300 ungmenni efhdu til mótmælafundar við bækistöðvar
kommúnistaflokksins í Gdansk í Póllandi á sunnudag. Báru þau
borða með slagorðum, m.a. þann sem á myndinni sézt, en á hon-
um stendur: „Drepum kommana".
MÆLIR MEÐ SER SJALF
LJÓSRITUNARVÉLAR ÍSÉRFLOKKI
MITA CC-10: Lítil og nett vél sem hentar
alls staðar. Litamöguleikar og 8 eintök á
mínútu. Ódýr og handhæg.
MITA DC-1655: Lítil um sig en stór i
hugsun. Sjálfvirk, minnkar og stækkar.
Mötun úr tveim bökkum. Litamöguleikar.
16 eintök á mínútu.
MITA CC-20: Einföld en fjölhæf. Lita-
möguleikar og 8 eintök á mínútu. Ódýr og
handhæg vél sem hentar allstaðar.
MITA DC-2585: Ótrúlega fjölhæf. Gerir
allt sem góð Ijósritunarvél þarf að gera.
Flokkar hratt og örugglega. 25 eintök á
minútu. Tveggja lita prentun.
MITA DC-1205: Föst plata sem þýðir
minna pláss. Litamöguleikar. 12 eintök á
minútu. Þolin og örugg.
MITA DC-4085: Stiglaus minnkun og
stækkun. Mötun úr þrem bökkum. Sjálf-
virk Ijósritun á báðar hliðar. 40 eintök á
mínútu.
Hafðu samband - Við eigum Ijósritunarvélina sem hentar þinum þörfum
FJÖLVAL HF.
Ármúla 23 Sími 688650
Bandaríkin:
Hulunni svipt af tor-
séðu sprengjuþotunni
Washington. Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Bandarískir fjölmiðlar keppast nú við að lýsa torséðu sprengjuþo-
tunni, sem Bandaríkjamenn nefiia „Stealth", og á að geta flogið i
gegnum ratsjárvarnir og þannig gert árásir á óvinastöðvar fyrirvara-
laust. Hulunni verður svipt af sprengjuþotunni í dag, þriðjudag, i
flugvéiaverksmiðjum Northrops félagsins i Palmdale í Kaliforniu.
Fullyrt er, að með byggingu tor-
séðu sprengjuþotunnar hafi Banda-
ríkjamönnum tekist að gera ratsjár-
vamir tilgangslausar í framtíðinni
og héðan í frá muni allar banda-
rískar árásarflaugar, flugvélar og
herskip, verða búnar á sambærileg-
an hátt. „Við getum nú einbeitt
okkur að því, sem er mestum vert,
spjótsoddinum í stað spjótskafts-
ins,“ er haft eftir Donald A. Hicks,
sem er rannsóknaframkvæmda-
stjóri bandaríska vamarmálaráðu-
neytisins.
HEFUR ÞÚ
KYNIMTÞÉR
HAMAX
SIMJÓÞOTUR
í
KAUPFÉLAGINU
OG
SPORTVÖRUVERSLUNUM
VERSLUNARDEILD
HOLTAGÖRÐUM SlMI 6812 66
Yfirmaður flugflota Banda-
ríkjanna, Larry D. Welch, skýrir svo
frá, að sprengjuþotan kosti 450
milljónir dollara (rúma 20 milljarða
ísl. kr.) og leggur áherslu á fæling-
armátt hennar. Vopnabúnaður sem
þessi muni fæla Sovétmenn frá að
því að hefja styijöld þar sem torséð-
ar sprengjuþotur muni í framtíðinni
geta gert árásir á höfuðstöðvar
óvinanna og komið þeim algjörlega
á óvart. „Engin þjóð myndi láta sér
koma til hugar, að hefja styijöld
gegn ríki, sem ræður yfir slíku
vopni sem B-2 sprengjuþotunni,"
sagði Welch hershöfðingi, um B-2,
eins og hún hefir verið nefnd opin-
berlega.
Smíði B-2 hófst í stjómartíð
Jimmy Carters, fyrrum Bandaríkja-
forseta. Vélin minnir að útliti til á
hinar svokölluðu fljúgandi vængi,
sprengjuflugvélar frá 1940, YB35
og YB49, sem teiknaðar vom af
hinum kunna flugvélasmið John
Knudsen Northorp. Þessi gerð flug-
véla var fyrirboði nútíma þotna.
Bandaríski flugherinn pantaði 30
vélar af þessari gerð, en hætt var
við smíðina sökum ljárskorts.
Bandaríkjamenn ráðgera smíði
fleiri torséðra vígtóla. Líkt og þeir
Jimmy Carter og Ronald Reagan
hefur George Bush, hinn nýkjömi
forseti Bandaríkjanna, lýst því yfir,
að hann sé hlynntur smíði torséðra
sprengjuvéla og langdrægra eld-
flauga með ratsjárvörnum.
Það er nokkur andstaða gegn
B-2 sprengjuþotunni. Margir telja
hana of dýra og segja að smíði
slíkra vopna muni aðeins hvetja
Sovétmenn til að fínna upp vöm
gegn B-2.
22-27- nóvember:
VILLIBRÁÐAR
JVÖLD_
kl ^.30-22_00.
pönnusteiktar ^ Wj^ubringur me^3 ~ALPJÓÐA
/vícðal rétia:
\**sS*m 2SS*
1neð lerkisvep} \ jninancjssósu, \ \artöflum
\nSSnr\ XjS \ SmJ$T, \
1 með appftsim50S V 1 með týtuberjasósu
feáéá-. I viSS<.\ zJt_ |BBSa» ,
r^*mnrðapant‘inir. sím ~ - J