Morgunblaðið - 22.11.1988, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
29
Pakistan:
Forsetinn frestar útnefti-
ingu forsætisráðherra
Islamabad. Reuter.
GHULAM Ishaq Khan, forseti Pakistans, hefur tekið sér nokkurra
daga frest til þess að útnefiia forsætisráðherra. Hefur hann hvatt
Benazir Bhutto og Nawaz Sharif, leiðtoga tveggja heiztu stjórn-
málafyikinga landsins, til skrafs og ráðagerða í dag og aðra ieiðtoga
siðar i vikunm.
Mirza Aslam Beg, hershöfðingi,
yfirmaður heraflans, óskaði Bhutto
til hamingju með sigurinn í kosning-
unum um helgina. Við það tækifæri
hvatti hann til myndunar sam-
steypustjómar stærstu stjómmála-
fylkinganna. Bhutto hafnaði í gær
myndun stjómar með Islömsku lýð-
raeðisfylkingunni, samtökum Sha-
rifs, en útilokaði ekki myndun stjóm-
ar með einhveijum hinna átta flokka,
er að henni standa.
Sharif gaf einnig til kynna að
hann væri andvígur stjóm af þessu
tagi þar sem hann taldi hugmynda-
fræði samtaka sinna og Þjóðarflokks
Bhutto of ólíka. Á fundi í borginni
Lahore um helgina skýrði hann frá
tilraunum sínum til að mynda meiri-
hlutastjóm með ýmsum smáflokk-
um. Hvatti hann forseta landsins til
að bíða með að útnefna forsætisráð-
herra fyrst um sinn.
í kosningunum sl. miðvikudag
hlaut flokkur Bhutto 92 sæti og
vantaði 17 til þess að fá meirihluta.
Islamska lýðræðisfylkingin hlaut 55
sæti og óháðir þingmenn og fjöldi
smáflokka hlutu samtals 68 sæti.
Tvennar aukakosningar eiga eftir
að fara fram. ,
Flokkur Bhutto fékk hins vegar
ekki jafn mikið fylgi í fylkiskosning-
um, sem fram fóm í Pakistan á laug-
ardag, eða 40% fylgi þegar á heild-
ina er litið. • Beið hann lægri hlut
fyrir Islömsku lýðr'æðisfylkingunni í
Punjab og í Norðvesturhéraðinu en
í báðum fylkjum ráða óháðir og full-
trúar smáflokka úrslitum. Þjóðar-
flokkurinn vann hins vegar yfír-
burðasigur er hann hlaut 67 af 100
sætum á fylkisþinginu í Sind. í íjórða
héraðinu, Baluchistan, skiptust
þingsætin 40 milli sjö flokka og sex
óháðra þingmanna.
Bandaríkin:
Fyrrum ráðherrar
halda stöðum sínum
Washington. Reuter.
Reuter
1.000 daga við völd
Corazon Aquino, forseti Filippseyja, hélt upp á það í gær að þá
voru liðnir eittþúsund dagar frá því hún var kjörin forseti. í til-
efhi dagsins gróðursetti hún m.a. tré i útborg Manillu, höfuð-
borgar landsins, og var myndin tekin við það tækifeeri.
GEORGE Bush, hinn nýkjörni
forseti Bandarikjanna, skýrði frá
því í gær að hann hefði ákveðið
að skipa Richard Darman fjár-
lagasijóra í hinni nýju ríkisstjórn
sinni. Þá gerði Bush og heyrin-
kunnugt að þeir Richard Thom-
Gísl grip-
inn á flótta
í Líbanon
New York. Reuter.
ALANN Steen, einn þeirra níu
bandarisku gisla sem enn em i
haldi öfgahópa i Líbanon, var
gripinn á flótta og mátti sæta
barsmiðum, að þvi er segir í nýj-
asta hefti bandaríska vikuritsins
Newsweek.
Að sögn vikuritsins frétti banda-
ríska lejmiþjónustan af flóttatilraun-
inni í gegnum Mithileshwar Singh.
Singh, sem er Indveiji með banda-
rískan ríkisborgararétt, var sjálfur
gísl um langt skeið en var látinn
laus í Damaskus í Sýrlandi í síðasta
mánuði.
burgh dómsmálaráðherra og
Lauro Cavazos menntamálaráð-
herra myndu halda stöðum
sinum.
George Bush sagði á fundi með
blaðamönnum í Washington í gær
að hann hefði ákveðið að skipa
menn þéssa vegna „framúrskarandi
hæfíleika" þeirra. Bush hafði áður
skýrt frá því að Nicholas Brady
yrði áfram fjármálaráðherra og
helsti talsmaður stjómarinnar á
vettvangi efnahagsmála. Með því
að velja þá Thomburgh og Cavazos
hefur Bush þar rpeð ákveðið að
þrír ráðherrar Reagan-stjómarinn-
ar haldi stöðum sínum. Þá hefur
Bush einnig ákveðið að fela vini
sínum og samstarfsmanni, James
Baker, embætti utanríkisráðherra.
Bush tekur við forsetaembættinu
af Ronald Reagan í janúar á næsta
ári.
Búist hafði verið við því að Dar-
man, sem er 45 ára að aldri, hreppti
embætti fjárlagastjóra. Hann hefur
starfað sem embættismaður í fjár-
málaráðuneytinu og verið í ráð-
gjafanefnd forsetans. Bush lét þess
getið að starf flárlagastjóra væri
sérlega erfítt en Darman og Nich-
olas Brady munu þurfa að leita leiða
til að draga úr gífurlegum flárlaga-
halla Bandaríkjanna.
Klippimynd PicassosT
Starfsmaður Drouot-uppboðsfyrirtækisins í Paris heldur á loflt
klippimynd eftir Pablo Picasso. Myndin var seld á 1,87 milljónir
Bandaríkjadala (85 milljónir ísl.kr.) í gær. Ríkisstofiianir buðu í
mörg verk á uppboðinu og ollu þannig miklum verðhækkunum.
Fundur Gorbatsjovs og Gandhis:
Samvinna á sviði eftia-
hags- og afropnunarmála
Nýju Delhf. Reuter.
HEIMSÓKN Míkhaíls Gorbatsjovs
Sovétleiðtoga til Indlands lauk á
sunnudag. Þetta var Smmti fimd-
ur Rajivs Gandhis, forsætisráð-
herra Indlands, og Gorbatsjovs
frá því árið 1985 og talið er að
leiðtogarnir hafi styrkt enn frek-
ar tengsl þjóðanna á* þessum
fimdi.
í yfírlýsingu sem gefín var út að
loknum fundinum er meðal annars
að fínna sameiginlega afstöðu
ríkjanna til afvopnunar og fækkunar
langdrægra kjamorkuvopna. í yfir-
lýsingunni segir að ríki eigi „hvorki
að hafa herstöðvar né vígbúnað utan
landamæra sinna". Einnig er mælst
til þess að komið verði á nýrri skip-
an efnahagsmála í heiminum.
Leiðtogamir hvöttu báðir til þess
að Sameinuðu þjóðimar beittu sér
fyrir viðræðum um myndun nýrrar
ríkisstjómar í Afganistan auk þess
sem Sameinuðu þjóðimar ættu að
efna til ráðstefnu um málefni Afgan-
istans ef þörf krefur. Einnig hvöttu
leiðtogamir til þess að Sameinuðu
þjóðimar efndu til ráðstefnu um
ástandið fyrir botni Miðjarðarhafsins
„með þátttöku hlutaðeigandi þjóða
á jafnréttisgrundvelli".
Leiðtogamir lýstu yfir ánægju
sinni með friðarviðræður milli
Kóreuríkjanna og í Kampútseu. Þá
sögðust þeir styðja að Indlandshaf
verði lýst kjamorkuvopnalaust
svæði.
Gorbatsjov fullvissaði Rajiv Gand-
hi um að batnandi samskipti Kína
og Sovétríkjanna kæmu ekki niður
SHIMON Peres, utanríkisráð-
herra ísraels, sagði í gær að ólík-
legt væri að Verkamannaflokk-
urinn tæki þátt í þjóðstjóm með
Likúd-flokknum.
Talið er að Yitzhak Shamir for-
sætisráðherra og leiðtogi Líkúd
hafi hafnað þeirri kröfu Verka-
mannaflokksins að hann fengi tvö
á samskiptum Sovétmanna og Ind-
veija. Þjóðimar hyggjast taka upp
aukna efnahagssamvinnu og hafa
Sovétmenn fallist á að veita Indveij-
um lán upp á 3,2 milljarða rúblna
(um 243,8 milljarða króna). Lánið
hyggjast Indveijar nota til að byggja
orkuver þar á meðal kjamorkuver,
sem reist verða með aðstoð Sovét-
manna.
af þremur áhrifamestu ráðherra-
embættunum. Shamir sagði á
sunnudag að horfur á samstjórn
Líkúd-flokksins og Verkamanna-
flokksins væm litlar en stjómar-
myndunarviðræðum flokkanna sem
setið hafa saman í stjóm undanfar-
in flögur ár var samt fram haldið
í gær.
Litlar líkiir taldar á
þjóðstjórn í ísrael
Jerúsalem. Reuter.
Átti að myrða Conn-
ally en ekki Kennedy?
New York. Reuter.
í BÓKINNI Great Expectations ofJohn Connally (Framadraumar
Johns Connallys) eftir James Reston yngra, sem kemur út snemma
á næsta ári, leiðir höfundurinn líkur að þvi að Lee Harvey Os-
wald hafi í raun ætlað að myrða John Connally, ríkissijóra i
Texas, en ekki John F. Kennedy forseta. í dag, þriðjudag, eru 25
ár liðin frá þvi forsetinn var myrtur i Dallas í Texas.
Fullyrðingar þessar koma fram
í útdrætti úr bókinni sem vikuri-
tið Time birti síðastliðinn sunnu-
dag. Connally, sem var í sömu
bifreið og Kennedy, særðist í skot-
árásinni en forsetinn lést.
Reston segir að dvöl Oswalds
f Sovétríkjunum, en þangað fór
hann að eigin ósk, hafí leitt til
þess, að yfirmenn í langönguliði
flotans hafí breytt mati sínu á
honum í opinbemm skjölum. Þeir
hafí hætt að kalla hann „heiðvirð-
an“ og sagt hann þess í stað
„óæskilegan". Þetta segir Reston
að hafi lagst þungt á Oswald og
hafi hann leitað á náðir Connallys
og mælst til þess í bréfí til hans,
að hann beitti áhrifum sínum tií
að þessari einkunn yrði breytt í
skjölum landgönguliðsins. Taldi
Oswald að Connally færi með yfír-
stjóm landgönguliðanna. En sex
vikum áður hafði Connaily látið
af störfum sem flotamálaráðherra
Bandaríkjanna. Skrifstofa hans
sendi Oswald staðlað málamynda-
svar.
Þegar Reston las vitnisburði
sem gefnir vom fyrir Warren-
nefndinni, en sú nefíid vann að
rannsókn morðsins árið 1963,
komst hann að því að nokkur vitn-
anna höfðu sagt að Oswald hefði
John Connally Reuter
greinilega verið í nöp við Conna-
lly. Hins vegar benti ekkert til
þess svo óyggjandi væri að Os-
wald hefði borið kala til Kenned-
ys. Reston nefíiir einnig til sög-
unnar mann sem taldi sig hafa
orðið vitni að samtali milli Os-
walds og Jacks Rubys, sem síðar
myrti Oswald. Vitnið sagði að
þeir hefðu rætt um að myrða
Connally.