Morgunblaðið - 22.11.1988, Qupperneq 33
t
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
33
Ný efnalaug
í Kópavogi
EFNALAUGIN Hreint og klárt í
Laufbrekku 26 (Dalbrekkumeg-
in) í Kópavogi var opnuð í ágúst
sl.
Jafnframt er þar nú starfrækt
þvottahúsið Rullan sem var áður til
húsa í Auðbrekku 32.
Eigendur efhalaugarinnar
Hreint og klárt í Laufbrekku,
Kópavogi.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 21. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verö verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 54,00 30,00 48,26 90,449 4.365.146
Undirmál 15,00 15,00 15,00 1,934 33.018
Ýsa 51,00 21,00 43,48 27,468 1.194.318
Ýsa(ósl.) 23,00 23,00 23,00 0,575 13.225
Undirmálsýsa 15,00 ' 10,00 11,26 0,981 10.915
Ufsi 10,00 10,00 10,00 0,152 1.525
Karfi 15,00 .15,00 15,00 1,110 16.650
Steinbítur 22,00 15,00 18,23 1,842 33.583
Langa 23,00 15,00 17,07 0,159 2.385
Lúöa 290,00 80,00 147,81 2,967 438.575
Skata 50,00 50,00 50,00 0,019 973
Keila 21,00 12,00 15,16 8,826 133.821
Samtals 45,74 136,485 6.244.1'29
Selt var aðallega úr Núpi ÞH og Stakkavík ÁR. í dag verða
meðal annars seld 7 tonn af ýsu, 15 tonn af þorski og 2 til 3
tonn af blönduðum afla.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 45,00 30,00 42,03 2,021 84.940
Þorskur(ósL) 45,00 34,00 36,28 3,449 125.115
Undirmál 10,00 10,00 10,00 0,082 820
Ýsa 29,00 18,00 22,99 0,977 22.459
Ýsa(ósl.) 39,00 15,00 28,44 9,162 260.551
Ýsa(umálósL) 10,00 10,00 10,00 2,236 22.360
Ufsi 18,00 15,00 15,80 80,064 1.265.295
Steinbitur 15,00 15,00 15,00 0,011 165
Hlýri+steinb. 12,00 12,00 12,00 0,106 1.296
Langa 10,00 10,00 10,00 0,031 310
Smálúöa 190,00 150,00 174,85 0,103 18.010
Smálúða(ósL) 190,00 150,00 174,31 0,116 20.220
Keila 6,00 6,00 6,00 0,241 1.446
Hnýsa 10,00 10,00 10,00 31,00 310
Blandað 47,00 47,00 47,00 0,058 2.726
Samtals 18,34 98,587 1.808.014
Selt var úr Ottó N. Þorlákssyni og bátum. ( dag verða meðal
annrs seld 40 tonn af þorski, 6 tonn af ufsa og 1,5 tonn af
steinbít úr Ásbirni RE og ýsa úr dagróðrabátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 52,00 27,00 44,98 75,674 3.403.826
Undirmál 10,00 10,00 10,00 0,020 200
Ýsa .61,50 15,00 43,62 24,916 1.086.770
Ufsi 21,00 5,00 16,71 24,451 408.569
Karfi 30,00 15,00 19,93 27,915 556.424
Steinbítur 32,50 10,00 31,69 3,952 125.222
Langlúra 6,00 6,00 6,00 0,090 540
Blál.+langa 21,50 19,00 20,29 2,130 43.220
Skarkoli 35,00 35,00 35,00 0,017 595
Langa 30,50 10,00 22,10 4,988 110.210
Síld 8,30 8,23 8,26 248,620 2.054.161
Lúöa 209,00 65,00 125,42 0,316 39.699
Keila 18,00 9,00 14,94 7,141 106.654
Skata 62,00 61,00 61,74 0,271 16.732
Skötuselur 109,00 109,00 109,00 0,030 3.270
Samtals 18,92 420,542 7.956.333
Selt var aðallega úr Bergvík KE ög Eldeyjar-Hjalta GK. I dag
verða meöal annars seld 60 tonn af þorski, 8 tonn af ýsu, 6
tonn af ufsa, 25 tonn af karfa, 4 tonn af steinbít og 2 tonn af
hlýra. Einngi verður selt úr dagróörabátum ef á sjó gefur.
SKIPASÖLUR í Bretlandi 14,- 18. nóvember.
Þorskur 75,27 377,240 28.395.552
Ýsa 85,57 62,965 5.387.706
Ufsi 43,72 20,615 901.328
Karfi 53,46 4,670 249.668
Koli 65,62 22,375 1.468.194
Grálúöa 49,60 0,020 992
Blandað 108,16 9,874 1.068.010
Samtals 75,28 497,759 37.471.451
Selt var úr Erlingi SF i Hull á þriöjudaginn, Þorláki ÁR í Grimsby
á þriðjudaginn, Eini HF í Grimsby á miðvikudaginn, Garðey SF
í Hull á miðvikudaginn, Ottó Wathne í Grimsby á fimmtudaginn
og Álftafelli SU í Hull á föstudaginn.
GÁMASÖLUR í Bretlandi 14.- 18. nóvember.
Þorskur
Ýsa
Ufsi
Karfi
Koli
Grálúöa
Blandað
Samtals
71,50 467,415 33.422.466
100,67 160,836 16.190.743
53,23 7,820 416.254
45,90 11,300 518.675
83,44 122,905 10.255.370
90,92 3,650 331.858
106,81 35,363 3.776.966
80,21 809,289 64.912.333
SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 14.- 18. nóvember.
Þorskur
Ýsa
Ufsi
Karfi
Grálúða
Blandaö
Samtals
63,66 27,590 1.756.418
75,16 0,630 47.354
60,20 36.726 2.210.786
65,40 521,345 34.097.240
103,77 2,810 291.581
50,15 23,258 1.166.412
64,62 612,359 1.509.026
Selt var úr Vigra RE í Bremerhaven á mánudaginn, Hegranesi
SK í Cuxhaven á þriðjudaginn og Skafta SK í Cuxhaven á föstu-
daginn.
Verð á loðnuafurðum
FÉLAG fSLENSKRA FISKMJÖLSFRAMLEIÐENDA
Cif-verð fyrir prótineininguna af loðnumjöli er nú um 9,50 Banda-
ríkjadalir, eða 30.300 krónur fyrir tonnið, en meðalverð fyrir
tonnið af loðnulýsi er um 340 Bandaríkjadalir (15.500 krónur).
Hins vegar hefur lítið veriðselt af loðnuafurðum að undanförnu.
Of seiiit að svara áróðri Grænfriðunga í Vestur-Þýskaiandi?
Uppákomur sem
þessar óþolandi
- segir framkvæmdastjóri ALDI
Zurich, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
19.000 borgarar í Vestur-Þýskalandi skrifuðu undir áskorun
Grænfiriðunga á innflytjendur og verslunarstjóra um að hætta að
versla með íslenskar sjávarafurðir á laugardag. Undirskriftunum
var safinað í 59 borgum á þremur og hálfúm tíma, að sögn Græn-
friðunga. Þeir voru ánægðir með undirtektir fólks og athyglina sem
barátta þeirra gegn hvalveiðum íslendinga vakti. Þeir munu senda
fyrirtækjum undirskriftalistana til að reyna að fá þau til að hætta
viðskiptum við ísland.
Grænfriðungar stilltu sér víða
upp fyrir framan verslanir þar sem
íslenskar sjávarafurðir eru á boð-
stólum og hvöttu fólk til að sneyða
hjá íslenskum vörum. ALDI, sem
verslar með vörur frá Sölustofnun
lagmetisins, varð meðal annarra
fyrir barðinu á Grænfriðungum.
„Okkar ákvörðun að versla með
íslenskar vörur hefur ekki breyst,"
sagði Gunter Thiemann, fram-
kvæmdastjóri hjá ALDI, í samtali
við Morgunblaðið í gær. „En uppá-
komur eins og á laugardag út af
einhveijum rækjum eru óþolandi.
Við munum hugsa þetta mál vand-
lega og láta viðskiptasjónarmið
ráða ákvörðunum okkar. Það er
ekki í verkahring okkar að útskýra
hvalveiðistefnu Islendinga.“
íslensk sendinefnd átti fundi i
síðustu viku með flestum sem flytja
inn íslenskar sjávarafurðir í Vest-
ur-Þýskalandi. Framkvæmdastjór-
ar fyrirtælga Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og Sambandsins í
Hamborg sögðu báðir í gær að
þeir gætu ekki séð að fundir nefnd-
arinnar hefðu borið mikinn árang-
ur. Starfsmaður Nordsee, sem er
hætt að kaupa frosinn, íslenskan
fisk, tók í sama streng. „Ég sé
ekki að nefndin geti verið ánægð
með fundinn með okkur," sagði
hann. „Hún vildi að við snerum við
blaðinu og ákvæðum að kaupa
áfram frosinn fisk frá íslandi. Það
gerðum við ekki."
Nordsee kaupir áfram ferskan,
íslenskan fisk. Frosinn fisk getur
það keypt annars staðar frá. Fersk-
ur fiskur ber ekki með sér hvaðan
hann er en fisksölum fyrirtækisins
hefur verið uppálagt að segja neyt-
endum hvaða fiskur í verslununum
er íslenskur ef þeir spyija. Nordsee
ákvað að hætta að versla með fros-
inn fisk til að sýna samstöðu með
neytendum, Grænfriðungum og
öðrum sem eru á móti hvalveiði-
stefnu íslendinga. Því hefur borist
flöldi áskorana frá almenningi um
að hætta að versla með íslenskar
að koma sjónarmiðum íslenskra
stjómvalda á framfæri við v-þýska
neytendur. „Ég skil ekki að það
muni borga sig héðan i frá fyrir
þessa hvali.“ Og Benedikt taldi að
nú væri orðið alltof seint að svara
áróðri Grænfriðunga. „Þijóska
stjómvalda hefur verið of mikil í
þessu máli,“ sagði hann.
Grænfriðungar hvöttu fólk til að
Grænfriðungar dreifðu blaði með myndum af karfa-, ufsa- og
þorskflökum frá Iglo, Miramar, Almare Island, Iceland Waters
og Almare Island-rækjum til að hjálpa fólki að þekkja vörumar.
Strikað var yfir mynd af vörumerki Nordsee vegna þess að fyrir-
tækið er hætt að kaupa frosinn karfa frá íslandi.
sjávarafurðir og sumir verslunar-
stjórar þeirra hafa hvatt stjóm fyr-
irtækisins til að hætta að vera með
íslenskar vörur.
„Grænfriðungar vömðu okkur
við baráttu sinni snemma á þessu
ári og þeir hafa staðið við það sem
þeir sögðu,“ sagði starfsmaður
Nordsee. „Ég vona að þetta líði hjá
og við getum aftur tekið upp eðli-
leg viðskipti við íslenska útflytjend-
ur.“
Benedikt Guðmundsson, hjá SH,
og Helgi Sigurðsson, hjá Iceland
Seafood, dótturfyrirtæki Sam-
bandsins og hraðfrystihúsa þess, í
Hamborg sögðust báðir óttast að
önnur fyrirtæki myndu feta í fót-
spor Nordsee. Iglo og fleiri fyrir-
tæki hafa lýst yfír áhyggjum af
baráttu Grænfriðunga við þá. Vel
upplýst fólk veitir áróðri umhverfis-
hreyfingarinnar helst athygli en
það er sama fólkið og veit að fisk-
ur er holl fæða og einn líklegasti
viðskiptahópur fisksölufyrirtækja.
Framkvæmdastjórar beggja
íslensku fyrirtækjanna sögðust
vona að hvalarannsóknum íslend-
inga yrði lokið án þess að fleiri
hvalir yrðu drepnir. Helgi sagðist
álíta að það yrði mjög dýrt að reyna
hringja og skrifa í íslenska sendi-
ráðið í Bonn og mótmæla hvalveið-
um íslendinga í vor. Páll Ásgeir
Tryggvason, sendiherra, sagði að
símakerfi sendiráðsins hefði verið
undirlagt í þijá mánuði í sumar.
„Það er liðið hjá og við getum aft-
ur notað símana eðlilega," sagði
hann. Það berast enn um 70 mót-
mælabréf í sendiráðið daglega.
Flest þeirra eru fjölrituð sem Græn-
friðungar hafa dreift til almennings
en sum eru frá einstaklingum sem
lýsa yfir undrun og hneykslun á
athæfi íslendinga.
Páll Ásgeir telur að herferð
Grænfriðunga hafi ekki borið sama
árangur og þeir vonuðust til. „Að-
eins tvö fyrirtæki, Tengelmann og
Nordsee, hafa ákveðið að hætta
viðskiptum við ísland og Nordsee
ekki nema að hluta til. Ég á von
á að þetta verði að mestu liðið hjá
innan fjögurra vikna." Hann sagði
að mótmæli Grænfriðunga að und-
anfömu hefðu „sem betur fer“ ekki
vakið mikla athygli í v-þýskum fjöl-
miðlum. „Það hefur svo margt ver-
ið að gerast hér í stjómmálunum
að athæfi Grænfriðunga hefur
varla komist að. Það hefur bjargað
okkur."
Sjávarútvegsráðherra
svaraði ekki boði í fyira
ZUrich, frá Önnu Bjaraadóttur, fréttaritara MorgunblaðsinB.
Aðstoðarlandbúnaðarráðherra Vestur-Þýskalands, dr. Wolfgang
von Geldern, sagðist hafa reynt að bjóða Halldóri Ásgrímssyni, sjáv-
arútvegsráðherra íslands, til Sambandslýðveldis Þýsklánds í fyrra
en án árangurs i samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég reyndi að
bjóða sjávarútvegsráðherra hingað fyrir rúmu ári en það tókst
ekki,“ sagði von Geldem. „Boðinu var ekki svarað. Það stóð ekki
á svari í þetta sinn. Ég er feginn að ráðherrann ætlar að koma og
hlakka til að heimsækja ísland sjálfur.“
Dr. von Geldem fer með sjávarút- því feginn að sjávarútvegsráðherra
vegsmál í landbúnaðarráðuneyti
Ignaz Kiechles. Hann hefur átt
sæti í ráðherranefnd Evrópubanda-
lagsins um sjávarútvegsmál í sex
ár. Hann bauð Halldóri Ásgríms-
syni til V-Þýskalands á fundi með
íslenskri sendinefnd í Bonn í
síðustu viku. „Ég er þingmaður
Cuxhaven og þar er íslenskur fisk-
ur mikilvægur þáttur í efnahagslíf-
inu. Mér er því mjög í mun að
gott samstarf og samkomulag
haldist á milli íslands og Vestur-
Þýskalands. Barátta Grænfriðunga
gegn hvalveiðistefnu íslendinga
truflar nú þetta samstarf. Ég er
hefur þegið boðið. Ég mun taka á
móti honum hér í Bonn og á von
á að hann fari einnig til hafnar-
borga."
Von Geldem sagði að margir
V- Þjóðveijar létu tilfinningar ráða
afstöðu sinni til hvalveiðimála.
Hann sagði að það væri undir því
komið hvemig Halldór Ásgrímsson
skýrir málstað íslendinga í ferð
sinni hvort að hún mun hafa áhrif
á skoðanir almennings eða ekki.
„Það er nauðsynlegt fyrir íslend-
inga að reyna að útskýra afstöðu
sína. Rök þeirra með vísindaveiðum
em góð. Þeir hefðu líklega átt að
byija fyrr — um leið og herferð
Grænfriðunga fór af stað — að
kynna málstað sinn fyrir almenn-
ingi.“
Vestur-Þjóðveijar flytja 75% af
fiski sínum inn. Þeir kaupa 60%
frá Evrópubandalagslöndum og
40% frá öðrum þjóðum. ísland er
stærsti viðskiptaaðilinn af þessum
þjóðum. Von Geldem sagði að v-
þýska stjómin væri á móti hvers
kyns viðskiptaþvingunum og þar
af leiðandi einnig á móti kaup-
bannsherferð Grænfriðunga gegn
íslenskum sjávarafurðum. „Það er
röng leið til að leysa pólitísk vanda-
mál,“ sagði hann. Hann benti á að
Grænfriðungar em samtök ein-
staklinga og v-þýsk stjómvöld
gætu ekki haft nein afskipti af frið-
samlegri starfsemi þeirra. Hann
sagðist ekki álíta að herferð þeirra
myndi bera mikinn árangur. „Fólk
getur ekki dæmt um hvort fiskur
er íslenskur eða ekki.“