Morgunblaðið - 22.11.1988, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSMPn/iflVimiUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
35
Tryggingar
TRYGGINGAR — Nú orðið er hægt að tryggja sig fyrir nærri því öllu sem hugsast getur, m.a.
fyrir verðbréfaáföllum eins og því sem varð í verðbréfahruninu mikla á Wall Street í október 1987. Þá
misstu hins vegar margir aleigu sína.
Milljarða gróði á
óöryggi fólks
Einungis takmarkað hugmyndafiug sem tefur þróun búnaðar
fyrir fólk í öryggisleit
m Kaupmannahöfh. frá Grimi Friðgeirssyni, fréttaritara Morg-unblaðsins.
ORYGGI kostar milljarða, gæti verið slagorð vörusýningar í Dan-
mörku, sem veita á yfirsýn yfir það sem í boði er til að tryggingja
öryggi fólks. Vöxtur fyrirtækja sem hanna, framleiða og setja upp
ýmis konar öryggiskerfi hefur verið hreint ótrúlegur á síðustu árum.
Það virðist eingöngu vera háð hugmyndaflugi framleiðenda, hvað
fundið er upp til að tryggja öryggi og vernda hrædda Dani, sem hér
á öldum áður voru eins og við íslendingar, víkingar sem ekkert
hræddust.
Öryggis- og hræðslumarkaðinn
er erfítt að skilgreina nákvæmlega,
en samsteypan Baltica sem rekur
m.a. stórt tryggingafélag hefur
reynt það og gefið út skilgreiningu
á því. Markaðurinn spannar yfir,
að þeirra mati, vörur og þjónustu,
sem stuðla að því að tryggja við-
skiptavininn persónulega og ijár-
hagslega, og til að vemda og auka
verðmæti skuldabréfa, hlutabréfa
og annarra verðmætra pappíra í
eigu viðskiptavinanna.
Klókindi
Aðferðir við markaðssetningu
þessarar þjónustu verða að teljast
klókindalegar. Sumar tegundir
þjónustunnar eru hefðbundnar, eins
og t.d. líf- og slysatryggingar, aðr-
ar ekki, og má þar t.d. nefna fjár-
mögnun bílakaupa með tryggingu
fyrir því að ef um meiriháttar við-
gerðarkostnað verði að ræða meðan
á kaupum stendur, greiði trygg-
ingafélagið þann kostnað án þess
að mánaðar- eða ársgreiðslur
hækki.
Fjármagnsstofnanir og trygg-
ingafélög hafa farið hvert inn á
yfirráðasvæði annars til að tryggja
sér nýja viðskiptavini og þar af leið-
andi nýjar fjáröflunarleiðir, og virð-
ist samkeppnin vera hörð. Eitt
dæmi er hægt að taka frá þeim tíma
þegar samvinna íjármagnsstofnana
og tryggingafélaga var valin frekar
en samkeppni, en það voru launa-
reikningar með innifalinni líftrygg-
ingu.
Húsnæðismál
Geysilegt óöryggi ríkir á hús-
næðismarkaðnum, og er fólk tilbúið
að borga talsverðar upphæðir til
að tryggja sér öryggi á þeim vett-
vangi. Baltica-félagið hefur nýlega
stofnað byggingarfélag sem nefnist
Baltica Bolig og er því ætlað að
styrkja hinn ótrygga húsnæðis-
markað í Danmörku, en hann er
ótrúlega stór.
40 milljörðum danskra króna er
varið í íbúðabyggingar árlega.
Stofnfé hins nýja byggingarfélags
var 60 milljónir danskra króna og
er ætlunin að byggja húsnæði sem
selst auðveldlega. Búast má við að
ýmsar tryggingar hinna nýju kaup-
enda fylgi í kjölfarið, en þau við-
skipti eru þó aðeins aukaviðskipti
í heildarbyggingardæminu.
Ymis önnur tryggingafélög eru
nú þegar í byggingariðnaðinum og
er ekkert nema gott um að það að
segja, félögin eru fjársterkir aðilar
sem fólk getur treyst.
Það má bæta því við hér að
Baltica-félagið hefur nýlega keypt
Falek-fyrirtækið, en það sér um
sjúkraflutninga í Danmörku, rekur
nokkurs konar hjálparsveit, er með
viðgerðarþjónustu svipað og FÍB,
dráttar- og brottflutningsþjónustu,
ásamt ýmsu fleiru og allt þetta
þurfa að sjálfsögðu neytendur að
borga.
Sparifé
Að leggja fé til hliðar er einnig
hluti af örygginu. Það eru lífeyris-
sjóðirnir sem sjá um bróðurpartinn
af því sem sparað er. Bankar bjóða
upp á ýmsa möguleika til að spara.
Sérstakir sparisjóðsreikningar eru
fyrir börn, aðrir til húsnæðiskaupa,
til menntunar og enn aðrir sérstak-
lega fyrir lífeyrisþega, svo að dæmi
séu tekin um hina ýmsu innláns-
reikninga.
Talið er að í Danmörku séu á
milli 4 og 5 milljónir innlánsreikn-
inga og að heildarupphæð þeirra
sé um 60 milljarðar danskra króna.
Stöðugt koma auglýsingar um nýja
reikninga með hærri vöxtum og
ýmsum öðrum nýjungum.
A seinni árum hefur borið tals-
vert á fjárfestingartilboðum í hluta-
bréfum, skuldabréfum, verðbréfum
og er ýmsu lofað. Fyrir um ári,
nánar tiltekið þann 19. október,
urðu margir sem töldu sig vera
búna að tryggja sig fyrir ellina fyr-
ir áföllum, en slíkt var hrunið í
kauphöllunum eins og menn muna,
að margir urðu öreigar á auga-
bragði. Tryggingafélögin hafa
hagnast talsvert á hruninu fræga,
því nú er hægt að tryggja sig fyrir
hruni eins og varð 19. október 1987.
Securitas
ISS Securitas a/s er dæmigert
fyrirtæki sem þrífst á öryggisþörf-
um einstaklinga og fyrirtækja, og
þeir Securitas-menn gera það gott.
A tveimur árum, frá 1985 til 1987,
jókst velta fyrirtækisins í Dan-
mörku úr 474 milljónum 1619 millj-
ónir danskra króna.
Það liggur greinilega mikið fé í
að vakta eigur annarra, en aðallega
er um brunavarnakerfi og þjófa-
varnakerfi að ræða.
Talið er að enn sem komið er sé
aðeins um upphaf þróunar að ræða.
Tæknilegar framfarir eru svo örar
á sviði öryggis- og tryggingamála
sem annars staðar og sífellt er leit-
að nýrra leiða. Hér má benda á
tækni sem er í örri þróun og verður
útbreidd fyrr en varir, en það er
stýring rafmagnstækja heimilanna
gegnum síma, t.d. með tölvunni á
vinnustað eða í bílnum, og þar virð-
ast möguleikarnir vera óendanlegir.
Það eru ótal aðferðir til við að
tryggja sér öryggi. Til dæmis er
hægt að leigja sér lífvörð, og ef
maður vill spara, fer maður á nám-
skeið í sjálfsvöm, en þetta kostar
að sjálfsögðu allt saman peninga.
Dýrt spaug
Öryggistilfinning kostar sitt,
þannig að eftir á er auðvitað hægt
að rökræða um það hvort það hafi
verið peninganna virði að tryggja
sig í bak og fyrir. Þegar litið er á
velgengni fyrirtækjanna sem þjóna
þessum þörfum fólks er hægt að
fullyrða að mögulegt er að hagnast
á óöryggi og hræðslutilfinningu
fólks.
Þörfin fyrir öryggi á hinum ýmsu
sviðum er orðin vani. Að minnsta
lkosti er nóg af viðskiptavinum og
íjöldi þeirra vex stöðugt og þarfirn-
ar aukast að sama skapi.
EB-markaðurinn
Dagblað helgað sam-
einingu Evrópu
Brusscl, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttarita Morgunblaðsins.
BRESKI fjölmiðlakóngairinn, Robert Maxwell hefiir í þessum
mánuði tilraunaútgáfu á nýju dagblaði, sem verður dreift um
Evrópubandalagið allt. Þetta fyrsta tölublað kemur út í tilrauna-
skyni og verður dreift ókeypis í fimm milljónum eintaka með
öðrum dagblöðum og m.a. í flugvélar. Regluleg útgáfa hefst í
byijun næsta árs.
Blaðið sem heitir Evrópubúinn,
The European, er með höfuðstöðv-
ar í París og verður prentað á
ensku. Ritstjórnarstefna blaðsins
er mjög skýr, blaðið mun styðja
alla viðleitni til að sameina Evr-
ópu, en berjast gegn sundrungar-
öflum og þjóðrembu í álfunni.
Jafnramt því sem Maxwell hyggst
gefa út Evrópubúann ætlar hann
að opna gagnabanka um EB-
markaðinn sem miðaður verður
við upplýsingaþarfir einstaklinga
og fyrirtækja.
Portúgal
Fram- mmmmmmmmmmmmmmm
kvæmda- Framkvæmda-
stjórn Evr- stjórnEB
ópubanda- samþykkir
lagins hefur styrki til skipa
samþykkt smíðastöðvar.
áætlun portúgalskra stjórnvalda
um styrki til skipasmíða í landinu.
Samkvæmt áætluninni verða
styrkir til skipasmíðastöðva vegna
nýsmíði allt að 9,5% af kostnaði
við hvert verkefni. Áætlunin gerir
jafnframt ráð fyrir styrkjum og
hagstæðum lánum til stöðvanna
og útgerðarmanna. Samanlagt
mega fyrirgreiðslurnar ekki fara
yfir 28% af smíðakostnaði skips.
Flug
Sætanýting
evrópskra Sætanýtingí
flugfélaga í septembergóð.
september
var 73% samkvæmt upplýsingum
Evrópusambands flugfélaga,
AEA, í Brussel. Þetta hlutfall er
nánast óbreytt frá því í september
1987, þrátt fyrir 5,7% auknkingu
á sætaframboði. Farþegum fjölgar
á öllum flugleiðum aðildarfélag-
anna en nminnst á Norður-Atl-
antshafsleiðinni. í september urðu
22% allra áætlunarferða fyrir
meiri seinkun en 15 mínútum, í
ágúst var þetta hlutfall 17,9% en
á sama tíma í fyrra 14%.
Bladid sem þú vaknar vió!
NEWS
FROMICELAND
Mánaðarlegt fréttablað.
Eina reglubundnafréttaþjónustan
á ensku frá íslandi.
Við sendum þér
OKEYPIS
kynningareintak af október-
tölublaðinu, ef þú hringir.
Þá sérðu hvort
NEWS FROM ICELAND
er ekki einmitt blaðið,
sem viðskiptamenn þínir
erlendis ættu að fá til þess
aðfylgjast með því,
sem hérgerist.
Hringdu ídag ísíma
84966, eða 84913
— og þú færð eintak
í pósti ívikunni.
NEWS FROM ICELAND er gefið út af ICELAND REVIEW