Morgunblaðið - 22.11.1988, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1988
L
ffclk f
fréttum
SKÍFAN HF.
Suðrænt kynningar-
kvöld
Ólafur Skúlason dómprófastur t.v., Guðni Þ. Guðmundsson og Karl Jónatansson.
Morgunblaðið/Ami Helgason
STYKKISHÓLMUR
Hótelstjóri í eina helgi
Hótelið í Stykkishólmi hefur und-
anfarið haft þann hátt á að
leyfa utanaðkomandi áhugamanni
að vera hótelstjóri eina helgi og hef-
ir þetta verið mjög vinsælt. Helgina
29. október tók Guðni Þ. Guðmunds-
son, hljómlistarmaður í Reykjavík og
organisti Bústaðasóknar, að sér að
stjóma umferðinni. Hann sá meðal
annars um fjörið á laugardagskvöld-
ið og var af því tilefni dansleikur í
félagsheimilinu.
Guðni mætti á staðinn með 18
manna kabarettkór og 14 manna
hljómsveit sem síðan var skipt í þijár
og léku þær fyrir dansi. Stórhljóm-
sveit Karl Jónatanssonar, sem sá um
borgar-
COSPER
harmonikkumúsíkina, _ dixieland-
hljómsveit Þórarins Óskarssonar,
sem sá um sitt hlutverk og unga
fólkið. Og svo auðvitað tríó Guðna;
Hljómsveitin Neisti og með henni
söng Mjöll Hólm.
Karl Jónatansson sagði fréttarit-
ara að hann væri mjög hrifinn af
undirtektum bæjarbúa og sagðist
hafa áhuga á að endurtaka þetta.
„Við erum að reyna að koma betri
blæ á dansleikinn og það gerum við
með því að lækka hávaðann. Við
höfum t.d. engan hljóðnema, nema
fyrir söngvara og einleikara og það
gerir sitt því þótt dixieland og harm-
onikkan séu nokkuð háværar og sér-
staklega þegar þær eru margar sam-
an þá stillum við þær þannig að
hávaðinn verður í algjohi lágmarki
og íjörinu stillum við j hóf, hægjum
á og tökum spretti. Ég er viss um
að hægt er að setja góðan blæ á
dansleikina þar sem engum dettur í
hug að haga sér öðruvísi en sómi er
að. Og ég fann það svo vel á ballinu
í Hólminum að þetta er hægt, að við
sáum tæpast vín á"nokkrum manni
en þó var vel sótt.“
Fréttaritari átti svo tal við nokkra
Hólmara sem tóku þátt í þessum
fagnaði þeirra félaga. Þeir sögðust
ekki hafa skemmt sér jafn vel áður,
hljómlistarmennimir hefðu kunnað
réttu tökin á þessum hlutum. „Það
verður ábyggilega troðfullt hús þeg-
ar þeir koma næst," sagði einn. „Þú
misstir af miklu," sagði annar virðu-
legur borgari við fréttaritara.
Þegar Guðni var spurður sagði
hann: „Ég varð ekki fyrir vonbrigð-
um, sfður en svo. Það var virkileg
upplifiin að koma hingað og ég hélt
að þetta myndi ekki takast svona
vel. Ég var kvíðinn, en þetta gekk
ágætlega. Við hugsum til ykkar
seinna."
í sambandi við för þessara félaga
kom sóknarprestur Bústaðasóknar,
Ólafur Skúiason dómprófastur, og
prédikaði í kirkjunni okkar við prýði-
lega aðsókn og þar söng kórinn og
Guðni spilaði undir. „Jú, þetta var
dýrmæt reynsla," sagði sr. Ólafur
og Guðni lét vel af því en „orgelið
hefði mátt vera betra," sagði hann.
Þetta var semsagt viðburðarík
helgi hér í Hólminum og sennilega
hefur hótelið ekki tapað á þessari
góðu heimsókn.
- Ami
skóla
w
Arleg skemmtun Flens-
borgarskóla var haldin
í Bæjarbíói fyrir skömmu.
Bar hún yfirskriftina „Hvað
má’ða vera langt?" Þar voru
sýnd skemmtiatriði af ýmsu
tagi, „indverskur gúru“
mætti á svæðið, „gamla
gufan" var með tilkynning-
ar og fréttalestur í léttari
kantinum, „harmleikjafé-
lagið" sýndi síamstvíbura
og hljómsveitin Rattatt-
atttríóið spilaði. A myndinni
má sjá atriði frá fégurðars-
amkeppni karla þar sem
Amar Borgar Atlason var
kosinn herra Flensborg.
Lengst til vinstri er Amar
Borgar, þá Heiðar og Finn-
ur.
— Þetta úr er ekki tryggt — en þetta er tryggt úr.
að var lff og fjör á kynningar-
kvöldi Skífunnar hf. á Hárd
Rock Café þar sem 7 nýjar hljóm-
plötur útgáfunnar voru kynntar.
Það væri hvorki ýkt né logið að
segja stemninguna þar inni suð-
ræna en ekki norræna eins og ætla
mætti hér á norðurslóðum. Við inn-
ganginn fengu gestir „villta" Ha-
vanavindla, og meðan að sötraður
var kokteillinn stigu hinir ýmsu
hljómlistarmenn á svið. Meðal ann-
arra kynntu þijár hljómsveitir tón-
list af nýjum hljómplötum og „popp-
að sól“ hljómaði um sali. Geiri Sæm
og Hunangstunglið veltu þar fyrir
sér hvort ást væri í tunglinu, en
nýja platan þeirra ber einmitt heitið
„Er ást í tunglinu". Hljómsveitin
Strax boðaði bjarta tíma og blóm
í haga í tónlist af hljómplötunni
„Eftir Pólskiptin". Menn tóku vel
undir bjartsýnistóninn, enda era
íslendingar sem og aðrir orðnir
langeygir eftir paradís á jörð.
„Síðan skein sól“ kynnti þar efni
af nýjustu plötu þeirra félaga og
vakti söngvari hljómsveitarinnar
mikla athygli er hann stóð uppi á
borðum og söng hugljúft lag fyrir
áheyrendur.
Eftir að hijómsveitimar fluttu sig
af á sviðinu stigu aðrir menn á
stokk. Skipt var nokkram sinnum
um trommu- og bassaleikara og
stundum stóðu allt að 12 manns á
sviðinu og létu ljós sitt skína. Jón
Ólafsson, forsfjóri Skífunnar hf. var
einn þeirra. Vakti hann mikla at-
hygli fyrir hæfileika síná á sviði og
hermir sagan að honum hafí verið
boðinn útgáfusamningur!
Morgunblaðið/Þorkcl!
Ragnhildur Gísladóttir í hljómsveitinni Strax boðar pólskipti með
miklum tilþrifuni. Með á myndinni er Sigurður Gröndal.
Cliff Richard er hér með móður sinni og systur.