Morgunblaðið - 03.01.1989, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
KLM í umræðunni
- ekki Flugleiðir
— segja forráðamenn Arnarflugs
Hollenska flugfélagið KLM er
í umræðunni um eignaraðild með
auknu hlutafé i Amarflugi, að
sðgn Harðar Einarssonar stjóm-
arformanns Amarflugs. Hvorki
hann né Kristinn Sigtryggsson
forstjóri vildu staðfesta að sendi-
menn frá KLM sem komu hingað
til lands í gær hafi komið til við-
ræðna um eignaraðild KLM. Báðir
segja þeir tilhæfulaust með öllu
Faxamarkaður:
Ýsan seld á
124 krónur
ÝSA seldist á Faxamarkaði í
Reykjavík á hærra verði en
nokkra sinni fyrr í gær, á 124
krónur kílóið. Seld vora 4,7 tonn
að meðaltali á 114,50 krónur kíló-
ið. „Við urðum að kaupa ýsu á
þessu háa verði í gær vegna þess
að við höfðum skuldbundið okkur
til að selja ákveðnum kaupendum
ýsuna í dag. Við töpum um 11.500
krónum á tonninu,“ sagði Guð-
mundur J. Óskarsson í fiskbúðinni
Sæbjörgu í samtali við Morgun-
blaðið.
Guðmundur sagði, að hann keypti
ýsuna ekki á þessu verði aftur. Verð
á henni hefði verið mjög hátt, 85 til
100 krónur í nokkrar vikur, en nú
keyrði um þverbak. Leyfilegt verð á
ýsuflökum út úr búð hefði verið
hækkað upp í 300 krónur kílóið rétt
fyrir áramót og hefði það átt að
dekka innkaupsverð upp á 85 krón-
ur. Þetta hefði sloppið nokkum veg-
inn f flestum tilfellum, „en stundum
stóðum við aðeins uppi með
ánægjuna, engan hagnað,“ sagði
Guðmundur.
að rætt hafi verið nm að Flugleið-
ir yfirtaki Arnarflug.
Þeir voru spurðir hvort viðræður
stæðu við KLM um eignaraðild og
aukið hlutafé í Amarflugi. Hvomgur
vildi segja að þær viðræður stæðu,
þótt málið hefði borið á góma. Hörð-
ur sagði rétt, að Amarflug óskaði
eftir að af því gæti orðið. Félögin
hafa haft samstarf á liðnum árum.
„Það er okkur ákveðinn styrkur að
vera í nánu samstarfi við þá. Það
samstarf hefur aukist," sagði Hörður
Einarsson.
Þeir vom spurðir álits á fregnum
um að Flugleiðir muni yfirtaka rekst-
ur Amarflugs með aðstoð ríkisstjóm-
arinnar. Báðir sögðu það vera til-
hæfulaust. „Við teljum að verið sé
að leita leiða til að halda áfram sjálf-
stæðum rekstri," sagði Hörður.
Kristinn Sigtryggsson sagðist vera
bjartsýnn á að takast muni að bjarga
Amarflugi frá rekstrarstöðvun, en
300 til 350 milljónir króna munu
þurfa að koma inn í fyrirtækið ef
það á að takast, að sögn hans. „Ég
hef ekki trú á að menn vilji sjá að
einn aðili hafi með höndum alla loft-
•flutninga á landinu ogtil útlanda."
Frá slysstaðnum í Svínahrauni.
Morgunblaðið/JúlíU8
Banaslys í Svínahrauni
Selfossi.
FULLORÐIN kona lést og sjö
voru fluttir á slysadeild eftir
árekstur þriggja bifreiða á Suð-
urlandsvegi, f Svínahrauni, um
hálfQögurleytið á nýársdag.
Ein bifreiðanna, Subam-bif-
reið, var á leið til Reykjavíkur og
hinar tvær, Suzuki- og Toyota-
jeppar, komu úr gagnstæðri átt.
Konan sem lést var í Subaru-
bifreiðinni. Hún hét Helga Þór-
oddsdóttir, 78 ára að aldri, til
heimiiis í Hörðalandi 2 í
Reykjavík. Auk hennar vom í bif-
reiðinni ökumaður og þrír far-
þegar. Þrír vom í hvorri hinna
bifreiðanna.
Áverkar annarra sem meiddust
í slysinu em ekki lífshættulegir.
Ekki er vitað um nánari tildrög
slyssins, en hált var og krapi á
veginum.
— Sig. Jóns.
* >
Atök innan Ferðaskrifstofimnar Utsýnar:
Ingólfí Guðbrandssyni sagt
upp sem stj órnarformanni
Valur tekur
við af Helga
VALUR Arnþórsson tekur við
starfi bankastjóra I Landsbank-
anum í dag. Hann kemur í stað
Helga Bergs, sem hætti um ára-
mót.
Helgi hefur verið bankasijóri
Landsbankans síðastliðin 19 ár.
„Mér hefur líkað ákaflega vel í
Landsbankanum og kann vel að
meta þá stofnun sem helstu §ár:
málastofnun íslendinga," sagði
Helgi Bergs í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Samstarfssamningur til þriggja ára
var fjarlæg“ður úr hirzlum mínum
þegar ég var erlendis, segir Ingólfiir
INGÓLFI Guðbrandssyni, stjórnarformanni Ferðaskrifetofunnar Út-
sýnar, var í gær meinaður aðgangur að skrifetofu sinni og aðgangur
að fundi með starfefólki. Skipt hafði verið um skrá að dyram skrif-
stofu hans. Sagt var upp samstarfssamningi við hann þess efnis að
hann sinnti stjórnarformennsku og ákveðnum störfum fyrir ferðaskrif-
stofuna. Andri Már Ingólfeson, sonur Ingólfe, hefur sagt upp starfi
sínu sem framkvæmdastjóri hjá Útsýn og hafið störf hjá Ferðamiðstöð-
inni. „Það hlýtur að vera eðlilegt þar sem þessir menn starfa ekki
lengur hjá fyrirtækinu að þeir hafi ekki aðgang að því og trúnaðar-
skjölum innan veggja þess,“ sagði Ómar Kristjánsson, eigandi Útsýnar,
f samtali við Morgunblaðið. Engin ákvörðun hefur verið tekin af hálfu
starfefólks um hugsanleg viðbrögð við atburðum þessum.
Ingólfur Guðbrandsson Iét af starfi
forstjóra Útsýnar fyrir rúmu ári, en
hann hafði þá seit helming hlutar
síns í fyrirtækinu Ómari Krisljáns-
syni framkvæmdastjóra Þýzk-
islenzka. Ómar hefur síðan keypt
hlut Ingólfs allan í þremur þrepum,
þann síðasta í lok síðasta árs. Þegar
Ingólfur lét af forstjórastarfinu var
gerður við hann samningur um
stjómarformennsku og ákveðin störf
í þágu fyrirtækisins og friðindi sem
þeim fylgdu gegn því að hann færi
ekki í samkeppni við Útsýn með
/
Lítið meiddur efitir
útafikeyrslu á Oshlíð
ísafírði.
STÓR jeppabifreið lenti út af Óshliðarvegi á milli ísaQarðar og
Bolungarvíkur f fyrrinótt. Ökiunaðurinn var einn í bifreiðinni.
Hann fótbrotnaði og hlaut fleiri meiðsli og lá ósjálfbjarga f aftursæt-
inu, þegar ungur lögreglumaður úr Bolungarvík fann hann um sjö-
leytið um morguninn.
Að sögn lögreglumannsins, Guð-
mundar Páls Jónssonar, var hann
á leið til vinnu sinnar, en hann er
í lögregluliði ísafjarðar, þótt hann
búi í Bolungarvík. Mikinn skaf-
renningsbyl gerði á hann á leiðinni
inn Óshlíð, svo við lá að hann yrði
að stöðva bifreiðina.
Rétt utanvert við innri vegskál-
ann á Hlíðinni sá hann bflför sem
virtust liggja út af veginum. Hann
ók að lögreglustöðinni á ísafirði
og fékk þar lögreglubfl með fiar-
skiptatækjum og ljóskösturum og
hélt til baka.
Eftir skamma leit fann hann
bflinn í flæðarmálinu og í honum
einn mann. Hann lét lögregluna á
ísafirði strax vita og kallaði hún
út varalið ásamt sjúkrabfl og hjálp-
arsveit skáta, þar sem vitað var
að erfitt gæti verið að ná mannin-
um upp. Hafði lögregluvarðstjórinn
á ísafirði samband við Elías Sveins-
son leigubílstjóra, sem er með
jeppabifreið með spili, en slíkan
útbúnað á lögreglan á ísafirði ekki.
Björgunarsveitarmennimir komu
hinum slasaða ökumanni fyrir á
sleðabörum, sem síðan voru dregn-
ar upp af leigubflnum.
Líkur benda til að ekki hafi lang-
ur tími liðið frá því slysið varð þar
til lögreglumaðurinn kom á slys-
staðinn. Ökumaðurinn var fluttur
í Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði,
þar sem gert var að sárum hans.
Maðurinn er talinn hafa sloppið
ótrúlega vel.
- Úlfar
Morgunblaðið/Úlfar Ágústason
Guðmundur Páll Jónsson lög-
reglumaður hefur starfað um
þriggja mánaða skeið í lög-
regluliði ísafjarðar. Telja má
líklegt að gætni hans og at-
hygli hafi bjargað lífi hins slas-
aða ökumanns.
starfi fyrir aðrar ferðaskrifstofur.
Ingólfur sagði ? samtali við Morg-
unblaðið, að sá samningur hefði ver-
ið gerður til þriggja ára. Þegar hann
hefði verið staddur erlendis hefði sá
samningur verið íjarlægður úr hirzl-
um hans og samrit af honum hefðu
ekki fundizt. Uppsögnin væri því
fyrirvaralaus og hann hlyti að líta á
hana sem verulega röskun á högum
sínum og þeirri ímynd, sem hann
hefði skapað sér vegna starfa að
ferðamálum.
„Þegar ég kom á vinnustað minn
á mánudagsmorgun var búið að
skipta um skrá á skrifstofu minni
og mér meinaður aðgangur að henni.
Mér var jafnframt meinaður aðgang-
ur að fundi með starfsfólkinu þar sem
ég hugðist skýra fyrir því gang mála.
Eg og Andri sonur minn höfum ver-
ið málsvarar starfsfólksins, þegar á
það hefur verið hallað af eiganda
fyrirtækisins og er það kannski
ástæðan fyrir uppsögn minni. Starfs-
fólki hefur án tilefnis og án samráðs
við stjómarformann og fram-
kvæmdastjóra verið sagt upp. Fram-
kvæmdastjórastöðu Andra sonar
míns fylgdi, þegar á reyndi, ekkert
umboð til ákvarðanatöku og vegna
þess sagði -Andri starfí sínu lausu
og hefur hafið starf fyrir Ferðamið-
stöðina. Ég hygg að Andri hafi hug
á því að skapa því fólki, sem að tilefn-
islausu hefur verið sagt upp hjá Út-
sýn, vinnu að ferðamálum við hag-
stæðari skilyrði en ríktu hjá Útsýn.
Ég hef ekki neytt fógetaréttar til að
komast inn á skrifstofu mína, þar
sem ýmsar einkaeignir mínar eru,
einkaskjöl og verðmæti af ýmsu tagi,
en á auðvitað rétt á því. Eigi þetta
eftir að verða síðustu afskipti mín
af ferðamálum eftir þriggja áratuga
starf, langar mig til að koma á fram-
færi þökkum til þeirra fjölmörgu ís-
lendinga, sem hafa treyst mér og
fyrirtæki mínu til að sjá um skipu-
lagningu ferða sinna til annarra
landa," sagði Ingólfur.
Setið á svikráðum
„Þýzk-íslenzka á nú nær öll hluta-
bréf í Útsýn. Andri Már Ingólfsson
sagði starfí sínu lausu á föstudags-
kvöldið og um helgina kom í ljós að
hann hafði um nokkurt skeið þjónað
tveimur herrum og reyndist ófáan-
legur til þess að starfa löglega ums-
amdan upþsagnartíma þar sem hann
væri á förym til útlanda til samninga
fyir hinn nýja vinnuveitanda. Eigend-
ur Útsýnar gerðu sér þá ljóst að
menn höfðu um tíma setið á svikráð-
um við fyrirtækið og þar sem ljóst
er að Andri Ingólfsson er undir mikl-
um áhrifum frá föður sínum, Ingólfi
Guðbrandssyni, þótti að sjálfsögðu
ekki annað hægt en að endumýja
ekki útrunninn samstarfssamning
við Ingólf. Fullyrðing Ingólfs um að
samstarfssamningurinn við hann
hafi gilt til þriggja ára er ekki svara-
verð,“ sagði Omar Kristjánsson.
Uppspuni frá rótum
Andri Már Ingólfsson hafði eftir-
farandi að segja er Morgunblaðið
ræddi við hann á Spáni í gærkvöldi:
„Yfirlýsing Omars Kristjánssonar
um að við höfum setið á svikráðum
við sig og Útsýn er uppspuni frá
rótum. Frá þvf að ég tók við starfi
framkvæmdastjóra Utsýnar þegar
fyrirtækið var í öldudal hef ég ein-
beitt kröftum mínum af öllum mætti
að því að reisa fyrirtækið við og
koma á andrúmrúmslofti innan þess
sem starfandi er við. Ég vann að því
heils hugar allt fram að uppsagnar-
degi mínum.
Tildrög uppsagnar minnar voru
fundir og samtöl við Ómar Kristjáns-
son í desembermánuði er hann setti
mér ný skilyrði fyrir starfinu. Upp
komu ágreiningsefni varðandi starfs-
mannamál meðal annars þar sem
hann virti skoðanir mínar, röksemdir
og beiðnir að vettugi. Það má segja
að mælinn hafi fyllt þegar hann tjáði
mér að til að starfa sem framkvæmd-
arstjóri hans yrði ég að læra að hugsa
og breyta eins og hann, sem er krafa
sem ég hvorki get né kæri mig um
að uppfylla. Hann hefur borið upp á
mig að hafa fjarlægt gögn úr skrif-
stofu minni í Utsýn. Þar hef ég ekki
fjarlægt neitt úr eigu Útsýnar og
raunar heldur hann ennþá persónu-
legum eigum mínum á fyrri skrif-
stofu minni, sem mér hefur verið
meinaður aðgangur að.
Væntanlegt starf mitt hjá Ferða-
miðstöðinni bar mjög brátt að og var
fyrst rætt á fundi á gamlársdag eft-
ir að ég hafði skilað inn uppsögn
minni. Um tryggð mína við Útsýn
undanfama mánuði getur starfsfólk
Útsýnar best borið vitni."