Morgunblaðið - 03.01.1989, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
19
Hámark á grálúðuafla sóknarmarksskipa:
Tekjuskerðing Venusar 50-60 milljónir
HÁMARK á grálúðuafla sókn-
armarksskipa á þessu ári skerð-
ir afkomu þeirra, sem mesta
grálúðu veiddu á þessu ári og
verða áfiram á sóknarmarki,
verulega. Tekjuskerðing frysti-
togarans Venusar frá Hafiiar-
firði nemur vegna þessa 50 til
60 milljónum króna, en mögu-
leikar eru á því að vega þá
skerðingu að einhveiju leyti
upp. Venus aflaði 1.550 tonna
af grálúðu á árinu 1988, en fær
aðeins að veiða 550 á þessu ári
samkvæmt reglugerð sjávarút-
vegsráðuneytisins. Fleiri togar-
ar veiddu svipað magn af grá-
lúðu í fyrra.
Kristján Loftsson, útgerðar-
maður Venusar, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að auðvitað
væri þetta verulegt kjaftshögg.
Heildaraflaverðmæti togarans í
fyrra væri um 300 milljónir króna
svo 50 til 60 milljónir væru um
fimmtungur þess. Hins vegar
mætti ekki gleyma því að mögu-
leiki væri á því að vinna þetta tap
að einhverju upp með aukinni
áherzlu á veiði annarra fiskiteg-
unda.
„Þetta mál er eitt af dæmunum
um það hve búið er að misnota
kvótakerfíð og klúðra því,“ sagði
Kristján. Eitt af aðalmarkmiðum
kerfisins átti í upphafi að vera
bætt fiskfriðun. Útkoman er hins
vegar sú, að hægt er að veiða
langtum meira en áætlað er í upp-
hafi árs vegna allt of rúmra heim-
ilda til að færa veiðina milli teg-
unda. Þess vegna veit enginn neitt
í upphafí árs hve mikið verður
veitt þrátt fyrir útgefnar heimild-
ir. Svo er þessi vitleysa orðin svo
flókin að nánast enginn maður
skilur hana og kerfíð verður vænt-
anlega orðið anzi skrautlegt þegar
gildistími þess er útrunninn eftir
tvö ár. Það getur varla dugað leng-
ur nema mikið breytt," sagði
Kristján.
■fcilboí
ALNAVARA
—1CBS
fwoHastykki
Baðmottusett,
3 hlutir
100% bómull.
>*3 o)
BÓMOU. /\tí>UZA£.
| m lcogri
Röndótt
handklæði
Nú iOsik.
JliMTEPPI
ImOUtl >2300('
AUÐBREKKU 3
200 KÓPA VOGU R
5.4 04 6 0 - 40461
HAFÐU
ALLT
Á
VÍSUM
STAÐ
í
PAS-
RAÐEININGUM
Bréfábindi.
Grunn skúffa.
Djúp skújfa.
PAS-raðeiningar
• er fallegt og nýstárlcga
hannað geymslukerfi sem
auðvelt er að breyta og
stœkka
• henta öllum fyrirtœkjum,
stofnunum og heimilum
• eru níðsterkar og hafa
reynst afar vel á íslandi
• rúma mikið en taka lítið
pláss
• má setja saman á ótal
vegu eftir þörfum hvers
og eins
Söludeild
Hötðabakka 3 • Siml 83366