Morgunblaðið - 03.01.1989, Síða 22
2861 flAUVIAl. .« It JÍVvOtnxr'JM U'U AjnuuunoH
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
Reuter
Beðið fyrir Japanskeisara
Búddhistar biðja fyrir Hirohito Japanskeisara fyrir framan höll hans
á sunnudag meðan lögreglumenn halda þeim í hæfilegri fjarlægð frá
höllinni. Hirohito hefur verið alvarlega veikur í þijá mánuði.
Dómsúrskurður í Svlþjóð:
Danmörk og WEU:
Skrifstofutæknir
Eitthvað
fyrir þig?
Innritun er hafin í námið sem hefst íjanúar 1989.
Á skrifstofu Tölvufræðslunnar er hægt að fá bækling um námið,
bæklingurinn er sendur í pósti til þeirra sem þess óska.
Nánari upplýsingar veittar í símum 687590 og 686790.
Qi
mnttarxxcsM !fg
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28.
Meintur morðingi Palme
í tveggja vikna varðhald
framganga Hans Holmers lögreglu-
stjóra, er áður stjómaði rannsókn-
inni á morðmálinu, ekki gleymst.
Einn af núverandi stjómendum
rannsóknarinnar ritar grein í tíma-
rit lögreglunnar og ræðst þar
harkalega á Holmer. Segir hann
Stokkhólmi. Frá Claes von Hofsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
HÓPUR lögreglumanna, er rannsakar morðið á Olof Palme, fær að
hafa 41 árs gamlan mann, sem grunaður er um glæpinn, í varðhaldi
i tvær vikur í viðbót. Það var dómstóll i Stokkhólmi sem komst að
þessari niðurstöðu á gamlársdag. Maðurinn neitaði að taka sjálfur
þátt í samningum málsaðila um varðhaldið enda þótt til þeirra væri
stofnað að ósk hans. Veijandi hans sagði að fyrir því væru ýmsar
ástæður en vildi þó aðeins nefna eina; andúð mannsins á þvi að
ræða við fjölmiðla.
Áhugi fjölmiðla á málinu fyrir
hádegi á gamlársdag var þó ekki
mikill borið saman við fjaðrafokið
er maðurinn var handtekinn fyrir
tveim vikum. Lítið er um að vera
hjá fréttamönnum í Svíþjóð á gaml-
ársdag og nefna má að enginn frétt-
atími var í sjónvarpinu um kvöldið.
Viðræður málsaðila fóru fram bak
við luktar dyr. Ekkert hefur því enn
verið sagt af hálfu yfírvalda um
árangurinn af tveggja vikna þrot-
lausum yfirheyrslum yfir hinum
grunaða.
Veijandi mannsins sagði að hann
myndi kæra þennan varðhaldsúr-
skurð en það gerði hann sömuleiðis
eftir fyrri úrskurðinn. Hann neitaði
því ekki að vissar upplýsingar gæfu
til kynna sekt umbjóðanda síns en
hélt því fram að aðrar upplýsingar
styddu staðhæfingar hans þess efn-
is að hann hefði hvergi komið nærri
morðinu.
Mjög erfitt er að meta hve traust-
ar vísbendingar lögreglan hefur um
sekt mannsins. Að sögn dagblaða
þokast rannsókn lögreglunnar fram
á við, þótt löturhægt gangi, en það
virðist vera afar fátt um eitthvað
sem hægt sé festa hönd á. Hins
vegar hefur verið hægt að staðfesta
að hinn grunaði hefur mörg gróf
afbrot á samviskunni frá fyrri tíð
og þau hafa óspart verið dregin
fram í dagsljósið. Einnig hefur
margsinnis verið bent á það hve
maðurinn hefur í fyrri tilvikum ver-
ið tregur til að viðurkenna sekt sína
fyrr en í lengstu lög.
Enda þótt athyglin hafí mjög
beinst að umræddum fanga hefur
Meirihluti fyrir aðild
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgnnblaðsins.
NÚ þegar jafhaðarmenn hafa vent sínu kvæði í kross virðist vera
meirihluti fyrir því, að Danir gangi i WEU, Vestur-Evrópusamband-
ið eða vamarbandalag Vestur-Evrópuríkja. Aðildarríki þess eru
Bretland, Frakkland, Holland, Belgía, Luxemborg, Vestur-Þýska-
land, Ítalía og nú síðast Spánn og Portúgal.
Fyrir ári voru danskir jafnaðar- dagblaðið BT, að þegar svo mörg
menn andvígir aðild að WEU og
sögðu þá, að það legði allt of mikla
áherslu á nauðsyn kjamorkuvopna.
Ole Espersen, fulltrúi jafnaðar-
manna í öfyggismálanefnd þings-
ins, segir hins vegar nú í viðtali við
Vestur-Evrópuríki eru orðin aðilar
sé ekki rétt, að Danir standi utan
sambandsins. Þá nefnir hann, að
afstaða þess til kjarnorkuvopna
hafi breyst auk þess sem flokkur
hans vilji, að Danir séu ekki bara
áheyrendur í umræðum um af-
vopnunarmál, heldur þátttakendur.
Björn Elmquist úr flokknum
Venstre og formaður öryggismála-
nefndarinnar segir, að það sé
ánægjulegt, að jafnaðarmenn skuli
hafa áttað sig og bendir á, að Spán-
veijar hafi ákveðið að vera með
þótt þeir vilji ekki kjamorkuvopn í
landi sínu. Þá upplýsti hann einnig,
að Norðmenn væm að hugsa um
að gerast aðilar að WEU.i
lögreglustjórann hafa skaðað rann-
sóknina þar sem hann hafi í bók,
er hann skrifaði um málið, skýrt
frá ýmsum smáatriðum varðandi
upplýsingar lögreglunnar og jafn-
framt hafi hann sagt frá nöfnum
margra vitna. I grein í Sænska
dagblaðinu fyrir skömmu var sagt
að Holmer hefði hróflað við segul-
bandssnældum með upptökum á
samtölum félaga í PKK, smáflokki
útlægra Kúrda. Þannig hafi hann
reynt að skjóta stoðum undir til-
gátu sina um aðild flokksins að
morðinu á forsætisráðherranum.
Svíþjóð:
S AS-flugfélaginu ber-
ast sprengjuhótanir
Stokkhólmi. Reuter.
SAS-FLUGFÉLAGIÐ hefúr hert öryggisgæslu á flugvöllum i kjölfar
upplýsinga frá alþjóðalögreglunni Interpol um að ótilgreind hryðju-
verkasamtök hyggist sprengja í loft upp eina af flugvélum félags-
ins, að sögn talsmanns flugfélagsins í gær. Þetta var þriðja sprengju-
hótunin sem flugfélaginu barst á þremur dögum því að á gamlárs-
dag skýrðu talsmenn flugfélagsins frá því að hótun hefði borist um
að ein af innanlandsvélum flugfélagsins yrði sprengd innan þriggja
vikna. í gær hringdi síðan enskumælandi maður og sagði að spjöll
yrðu unnin á flugvél í innanlandsflugi frá Gautaborg á mánudags-
morgun. Miklar seinkanir urðu á innanlands- og millilandaflugi á
mánudag vegna hertrar öryggisgæslu en ekkert fannst sem bent
gæti til að skemmdarverka.
Sænska dagblaðinu Aftonbladet
barst sprengjuhótun á föstudag og
var hún birt í laugardagsútgáfu
þess: „Innan þriggja vikna verður
SAS-flugvél í innanlandsflugi
sprengd í hefndarskyni fyrir heim-
sókn Arafats til Svíþjóðar". John
Herbert, talsmaður SAS-flugfé-
lagsins, sagði ekkert benda til þess
að sprengjuhótunin tengdist flug-
slysinu í Suður-Skotlandi í síðasta
mánuði þegar 271 fórst með Boeing
747 þotu bandaríska Pan Am-flug-
félagsins.
í gær barst sænsku leynilögregl-
unni sprengjuhótun fyrir milligöngu
lögreglunnar í Búdapest. „Við tök-
um hótununum alvarlega og örygg-
isgæsla hefur verið hert á öllum
flugvöllum," sagði Herbert. „En við
vitum ekki hveijir standa að baki
þeim. Lögreglan hefur ekki veitt
okkur upplýsingar í smáatriðum,"
sagði Herbert.
Sænsk dagblöð hafa leitt líkur
að því að írönsk öfgasamtök hyggi
á hryðjuverk í Svíþjóð vegfna hlut
sænskra stjómvalda að viðræðum
Reuter
Farþegar benda á farangur sinn á flugvelli í Svíþjóð. SAS-flugfélag-
inu bárust þrjár sprengjuhótanir um og eftir helgina og öryggis-
gæsla var hert á sænskum flugvöllum. Miklar tafir urðu á flugi í
Svíþjóð vegna sprengjuhótananna.
leiðtoga Frelsissamtaka Palestínu-
manna (PLO), Yassers Arafats, og
bandarískra gyðinga í Stokkhólmi
í síðasta mánuði.
Herbert kvaðst engar upplýsing-
ar hafa um þann þátt málsins. „Á
þessari stundu vitum við ekki hveij-
ir standa að baki hótununum. En
Interpol hefur ráðlagt okkur að taka
þær alvarlega," sagði hann.
DREPTUISIGARETTUNNIAÐUR
ÞER
DREPUR
HUN
EN
Reyklaust
Island
RIS
2000
ariö
2000