Morgunblaðið - 03.01.1989, Side 27
27
.....MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJIÍBAGUft B. -JANUAR11989''«" «r *' <: 51 ‘ :
ieiri
Irækt
ids á nýársdag
í heiminum. Hún birtist í mörgum
myndum — í eflingu stórra við-
skiptaheilda eins og Evrópubanda-
lagsins, í hliðstæðri þróun í Norð-
ur-Ameríku og Austurblokkinni.
Hún kemur fram í því að mat á því
hvað telst eftirsóknarvert færist
undir alþjóðlegan staðal. Hún sést
í því að öll tækni er meira eða minna
af alþjóðlegum toga, að ekki sé
minnst á afdrifaríkt áhrifavald
þeirrar fjölmiðlunar sem háþróuð
tækni breiðir yfir heiminn á enskri
tungu. Lífsgæðakapphlaupið svo-
nefnda ræður ríkjum í vestri og
austri — þótt sýnist hvetjum um
leiðir til að öðlast efnisleg gæði.
| Og ekki verður betur séð en þessi
eftirsókn eftir tæknitryggðri velferð
leiði til þess að tilfinningin fyrir
þeim gildum sem tengjast þjóðemi
og þjóðmenningu sé á undanhaldi.
Framfarir reistar á tækni og vísind-
um virðast eftirlæti stjórnmálaskör-
unga, en svo er sem menn ætli
öðmm hliðum menningar að fylgja
sjálfkrafa á eftir. Hugsunin snýst
um tæknilegar og hagrænar fram-
farir meðan þrengist um þann
gmndvöll sem tilvera okkar sem
sérstakrar þjóðar er reist á, þreng-
ist um „land, þjóð og tungu“, þá
þrenningu sanna og eina sem Snorri
skáld Hjartarson hefur um kveðið
fyrir okkur.
Skáld eiga sín fögm svör við því
hvað þjóð er. Orðabók Menningar-
sjóðs gefur okkur líka ágæta skýr-
ingu. Þjóð, stendur þar, er „stór
hópur fólks sem á sér að jafnaði
sameiginlegt tungumál og menn-
ingu, stundar sameiginlega sögu-
lega arfleifð og minningar og býr
oftast á samfelldu landsvæði við
gagnkvæm innri viðskiptatengsl".
Eins og að líkum lætur leggur skil-
greiningin þungar áherslur á það
sem er sameiginlegt því fólki sem
kallar sig þjóð: þjóð er samstaða
um hvaðeina — um tungu, um minn-
ingar, um siði og atvinnuhætti. Því
er það með nokkmm hætti aðför
Vigdís Finnbogadóttir
forseti íslands.
að tilveru þjóðar, þegar umræða
okkar um lífskjör og efnahagsmál
þróast á síðari missemm í þá átt
að þjóðinni er skipt í tvo flokka, —
dreifbýlisfólk og þéttbýlisfólk. Það
er augljóst að dreifbýlisfólki finnst
það eiga á brattann að sækja, það
sé að nokkm leyti afskipt, það sé
t.d. ekki viðurkennt í verki að í
dreifbýlinu er rekinn mestur hluti
þess sjávarútvegs sem tryggir
lífskjör okkar. Dreifbýlismönnum
finnst einatt að þjóðarauður sogist
um of til höfuðstaðarins og týnist
þar í hringrás viðskiptanna. A móti
koma ýmsar athugasemdir af höf-
uðborgarsvæði. Það er ekki nýtt
að einhver slík togstreita sé uppi.
En það er á okkar valdi hvort við
ölum á tortryggni eins og alltof oft
er gert, tortryggninni milli höfuð-
staðar og dreifbýlis, sem geta ekki
hvort án annars verið eða hvort við
neytum allra bragða til að kveða
hana niður. Og þá í þeim anda, að
það er reyndar eitt lykilatriði í
menningu okkar að halda uppi
byggð í landinu öllu, — því fari stór
byggðalög í eyði er hafinn upp-
blástur í íslenskri menningu og
íslensku þjóðlífi og hann verður að
stöðva alveg eins og uppblástur
landsins sjálfs.
Við verðum einnig að forðast
það, að þjóð okkar skiptist í tvo
flokka eftir öðmm mælikvarða —
þá sem búa við ömgga atvinnu og
þá sem enga eða stopula atvinnu
hafa. Við eigum okkur vonandi það
markmið sameiginlegt að vilja vetja
í verki sem í hugsjón það jafnrétti,
sem talið er vera eitt helsta ein-
kenni íslensks mannlífs. Við viljum
vetja þá siðmenningu sem Sigurður
Nordal ræðir um í frægum fyrir-
lestri, þegar hann segir meðal ann-
ars: „I vel siðuðu þjóðfélagi á að
vera séð fyrir því að enginn sé beitt-
ur ofbeldi eða rangsleitni fyrir að
vera minnimáttar, allir hafi nóg
fyrir sig að leggja og að enginn
þurfi að kvíða komandi degi vegna
skorts á brýnustu nauðsynjum."
Og þetta felur þá væntanlega í sér
að við gemm þá kröfu til okkar
sjálfra að við beitum öllum tiltækum
ráðum til að bægja frá auðmýkingu
atvinnuleysis. Réttur allra vinnu-
færra manna til verka er helgur
réttur í augum Islendinga og hann
hlýtur að halda áfram að vera helg-
ur, eins þótt það geti kostað okkur
að draga um skeið úr þeirri miklu
neyslu á öllum sviðum sem við höf-
um leyft okkur um stund.
Takist okkur að gera sjálfum
okkur grein fyrir því hvað felst í
því að vera þjóð, þá hljótum við
þvínæst að vilja átta okkur á því,
hvert við viljum stefna, hvers kon-
ar þjóðfélag við viljum hafa hér í
framtíðinni. Við þurfum að snúa
okkur að því sem við látum alltof
oft sitja á hakanum: að skilgreina
markmið okkar. En hvernig sem
okkur kann að miða í þeirri við-
leitni er jafnan hollt að hafa í huga
hvað við eigum, á hvetju við getum
staðið. Við eigum landið sem við
göngum á, þetta land sem „var
fengið sál vorri til fylgdar" eins og
Hannes skáld Pétursson kvað:
Ó dunandi eyja
sem á dögum sköpunarinnar
ennþá í smiðju
elds, kulda og vatns
engan stað á jörðu
eigum vér dýrari
því þetta land
var sál vorri fengið til fylgdar.
Og enginn getur tekið þetta land
frá okkur nema við sjálf glutrum
niður þeim frumburðarrétti sem við
eigum til þess.
Við eigum land sem að sönnu
hefur verið illa leikið í aldanna rás,
en við eigum líka þekkingu og
sterkan vilja til að stemma stigu
við uppblæstri þess.
Þetta land er laust við mengun.
Við erum ein fárra þjóða sem
andar að sér hreinu lofti.
Við eigum hreint vatn og hvort
tveggja eru forréttindi í heimi
sem hefur þungar áhyggjur af
afleiðingum efnaiðnaðar og ann-
arrar tækniþróunar.
Við eigum orkulindir sem enn eru
ekki nýttar nema að litlu leyti.
Við eigum fengsæl fiskimiÖ og
að þá mikilvægu þekkingu í góð-
um mönnum sem þarf til að nýta
þau skynsamlega.
Það eru fríðindi hve fámenn þjóð-
in er, hve nálægt við stöndum
. hvert öðru, við getum komið
skilaboðum hvert til annars hrað-
ar en nokkur önnur þjóð.
Við erum hraust og þokkalega
af guði gerð.
Við eigum með öðrum orðum
mikið í sjóði. Við höfum nóg föng
og þurfum ekki að koðna niður í
eijum eða vanmetakennd. Það er
meðvitund um siðmenningu okkar
sjálfra sem fyrr og síðar er og verð-
ur okkur uppspretta til fijórra fram-
fara. Við skulum muna að menning
er að gera hlutina vel, hvert sem
verkefnið er. Menning er einnig að
beita sér fyrir því að leggja gott
til mála með staðfestu og hæfilegu
umburðarlyndi, — og gæta þess
ætíð að staðna ekki í fari hins nei-
kvæða. Við sitjum í flokki menning-
arþjóða, — óskum þess sjálf að fá
að sitja við sama borð og hámenn-
ingarþjóðir.
Allar stundir höfum við verk að
vinna í þessum vanda. Við munum
það vonandi vel að íslensk tunga
er okkar besta sameign, okkar
stærsta hnoss, ein helsta réttlæting
tilveru okkar — sjálfur virðingarlyk-
ill okkar að heiminum. Og við vitum
það vonandi að þessi eign okkar
má ekki rýma. Við höfum á síðustu
misserum séð gleðilega vakningu
hjá íslenskri þjóð. Það hefur tekist
að opna augu hennar fyrir því hve
alvarleg gróðureyðing hefur átt sér
stað í landinu um aldir og breiða
út skilning á því með hvaða ráðum
er skynsamlegast að mæta þessum
vanda. En til þess er nýr fróðleikur
og ný sannfæring ævinlega faílin
að hvetja til umhugsunar og lær-
dóma: þegar við höfum lært að
glíma við einn vandann ættum við
þessvegna ávallt að spyija okkur,
hvort þær aðferðir sem þar dugi
kunni ekki að eiga við á öðrum
sviðum einnig. Og þar með vísa ég
beint til uppblásturs í þeim hluta
þjóðemis okkar sem tungan er og
er mörgum áhyggjuefni. Fyrir
nokkm sendi ágætur samtíðarmað-
ur okkar, sem hefur meðal annars
fengist við að finna orð til að hægt
sé að tala um verkmenningu á
íslensku, mér lista þar sem hann
ber fram ýmsar áleitnar spuming-
ar. Nokkrar þeirra vil ég nefna hér
okkur öllum til umhugsunar:
Ef tungunni hrakar ár frá ári,
eins og margir vilja halda fram,
vita stjómvöld af því?
Ber þeim einhver stjórnarfarsleg
skylda til að bregðast við?
Hvemig metum við það hvort
tungunni hrakar?
Hver getur helst metið breyting-
una?
Hvort er mikilvægara í því efni,
mál hinna eldri eða yngri?
Getur tungunni hrakað svo mjög
að hún glatist?
Þýðir hnignun tungunnar að
sjálfstæði þjóðarinnar sé í hættu
og þarf þá að gera sérstakar
ráðstafanir?
Hvaða ráðstafanir hafa verið
gerðar á síðastliðnu ári?
Eru ráðstafanir í undirbúningi á
þessu ári sem nú fer í hönd?
Svo mætti áfram halda. Eg ætla
mér ekki þá dul að svara þessum'
spurningum. Hitt er okkur ljóst að
hér er um alvarlegt mál að ræða.
Við vitum að það þarf meira til en
að slá á slettur eins og hæ hæ og
bæ bæ, sem unglingar, liðsmenn
mínir, em nú að reyna að kenna
ungviðinu, grænjöxlum, að er
hlægileg kveðja á íslensku. Ungl-
ingamir em áreiðanlegt fólk sem
vert og hyggilegt er að treysta. Það
er þar á ofan ekki nóg að leggja
sig fram við að varðveita gömul
orðatiltæki og réttar beygingar
orða — þannig að píta sé ekki seld
með egg eða físk heldur eggi og
fiski á skyndibitastöðum. Umfram
sjálfa varðveislu hins talaða og rit-
aða máls þarf að smíða ný orð af
glöggskyggni, svo íslendingar geti
talað saman um sín eigin mál á
öllum sviðum á sinni eigin tungu.
Hér er þörf stórra átaka sem kosta
vinnu og fé. Sú er samábyrgð okk-
ar. Einkaábyrgð hvers og eins er
að hafa löngun og vilja til að taka
til í málfari sínu, vanda orðfæri sitt
og auðga, rétt eins og menn vilja
ganga vel um hús sín og fara góð-
um höndum um eignir sínar.
Héðan frá Bessastöðum sendi ég
Islendingum öllum hlýjar kveðjur
og góðar nýársóskir.
Það hefur verið rætt um það
undanfarið að illa sé komið fyrir
þessu sögufræga húsi. Og það er
satt og rétt, þótt það blasi ekki við
augum gesta og gangandi, því allir
þeir sem setið hafa þennan stað
fyrir hönd þjóðarinnar, síðan lýð-
veldið var stofnað, hafa haft metn-
að til að hér sé komið að vistlegu
þjóðarheimili sem sórhi sé að. A
síðasta ári var lokið við miklar og
löngu brýnar viðgerðir á neðri hæð
Bessastaðastofu og fylgdi þeim
umfangsmikill uppgröftur fomleifa.
Bessastaðastofa er gamalt hús, 225
ára, og hún er meðal þjóðargersema
okkar. Nú skal tekið til við að hlú
að efri hæð hússins og þaki, því
lofti sem skólasveinar á Bessastöð-
um höfðu að vistarverum fyrir hálfri
annarri öld, þar sem margt hefur
verið skrafað um sjálfstæði íslands
og sjálfsvirðingu.
Aldimar hafa ekki skilað okkur
miklum auði í mannvirkjum og því
ber okkur að sýna öllum fomum
gersemum virðingu og alúð.
Gleðilegt nýtt ár.
\ Megi farsæld og guðsblessun
fylgja íslandi og þjóðinni allri
á árinu sem nú fer í hönd
og um alla framtíð.
Ríkisspítalar:
Einkarekstur lækna ekki
umiram það sem eðlilegt er
DAVÍÐ Á. Gunnarsson, forstjóri Rikisspítalanna, segir að hjá stofii-
uninni starfi ekki læknar i fullu starfi, sem sér vitanlega hafi einka-
rekstur umfram það sem eðlilegt geti talist. Rekstur lækna á einka-
stofum komi heldur ekki niður á viðveru þeirra hjá Ríkisspítölum,
enda sé gott eftirlit hjá stofiiuninni hvað slíkt varðar.
igæti
krónur
un framfærsluyísitölunnar,“ sagði
Gísli.
Tollar af bílum voru 85—90% fram
á árið 1985. Á því ári og á árinu
1986 voru tollamir lækkaðir veru-
lega, eða niður í 10%, meðal annars
til að lækka verðbólguna og liðka
fyrir gerð kjarasamninga. Frá því í
október hefur innflutningsgjald af
bifreiðum hækkað og er nú orðið
16—66% eftir stærð bílanna. Gísli
Guðmundsson segir að það hafi
ákaflega slæm áhrif á bílainnflutn-
ingsfyrirtækin og markaðinn þegar
svona væri rokkað með bílverðið.
Þá stönguðust þessar breytingar á
við heilbrigða skynsemi og það sem
yfirleitt væri talið eðlilegt því gjöldin
væri hækkuð þegar innflutningurinn
væri lítill en lækkuð þegar salan
væri góð.
Þá vildi Gísli koma því að, vegna
umræðna um mikinn bílainnflutnig
á undanförnum ámm, að undanfarin
þijú ár væri búið að henda um 40
þúsund bíluin. Það sýndi að þörf
hafi veri orðin fyrir endurnýjun.
„Það er kveðið á um það í kjara-
samningum lækna, að læknar sem
ekki em í fullu starfi megi vinna
ótakmarkað utan stofnunar,“ sagði
Davíð. „Mér er hins vegar ekki
kunnugt um að neinn af okkar
læknum í fullu starfí sé með einka-
rekstur sem ég hef fengið upplýs-
ingar um að sé óeðlilegur."
Davíð sagði að Ríkisspítalar
hefðu töluvert eftirlit með læknum
sinum. Nú væri til dæmis verið að
ganga frá starfstímasamningi við
læknana, þar sem nákvæmlega
væri kveðið á um hvenær þeir ættu
að skila sinni vinnu. „Við hjá
Ríkisspítölum höfum lengi verið að
vinna í því, í góðri samvinnu við
okkar læknaráð, að svona hlutir
geti ekki gerst hjá okkur," sagði
Davíð. „Það væm þá slys ef eitt-
hvað slyppi í gegn um það eftirlit.“
Davíð sagði að nokkrir menn,
sem væm í hlutastörfum, hefðu
mikinn einkarekstur. Við það gæti
hann ekki gert athugasemdir, enda
væri vel fylgst með því að læknar
skiluðu umsömdum vinnutíma.
„Mér finnst að læknar vilji sjálfir
að það sé eftirlit með því að þessi
mál séu í lagi, og við gætum ekki
fylgst með án þeirra hjálpar," sagði
Davíð.