Morgunblaðið - 03.01.1989, Page 29
h í bj;'}/ji.mi/AT/rntom
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
29
Lög um bann gegn við-
skiptum við S-Afríku
tóku gildi um áramót
LOG um bann gegn viðskiptum við Suður-Afríku og Namibíu tóku
formlega gildi um áramótin, en þau voru samþykkt 20. mai s.l. Sam-
kvæmt lögunum er óheimilt að flytja hingað til lands vörur sem eru
upprunnar í þessum löndum, og einnig er óheimilt að flytja þangað
vörur frá Islandi. Brot gegn ákvæðum laganna varða sektum eða
allt að þriggja mánaða fangelsi þegar sakir eru miklar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu íslands hafa undanfarin
ár verið fluttar hingað til lands
vörur fyrir um 30 milljónir króna
að meðaltali frá S-Afríku á ári
hveiju. Þar er að langmestu leyti
um að ræða ávexti og grænmeti,
en einnig hefur eitthvað verið flutt
inn af kaffi, pappír, málmum, fatn-
aði o.fl. Á fyrstu átta mánuðum
ársins 1988 höfðu^verið fluttar inn
vörur fyrir tæplega 34 milljónir
króna frá S-Afríku, þar af ávextir
og grænmeti fyrir rúmlega 32 millj-
ónir.
Útflutningur frá Íslandi til S-
Afríku hefur verið óverulegur, en
þangað hafa helst verið fluttar út-
gerðarvörur og lýsi. Á fyrstu átta
mánuðum s.l. árs höfðu verið flutt-
ar út þangað útgerðarvörur fyrir
tæplega eina milljón króna, en árið
þar á undan voru fluttar út útgerð-
arvörur og lýsi fyrir rúmlega fjórar
milljónir króna til S-Afríku.
Flateyri:
Þrumur og eld-
ingar vöktu fólk
Flateyri.
Þrumuveður gekk yfir Flat-
eyri milli kl. 1 og 2 aðfaranótt
2. janúar. Þær upplýsingar
fengust hjá Veðurstofu Islands
Auðnutittl-
ingar á
Fljótsheiði
Húsavík.
VEÐRÁTTAN það sem af
er vetri virðist hafa trufl-
að lífríki náttúrunnar því
alltaf eru að sjást fuglar
á stöðum þar sem þeir
hafa ekki sést áður.
Fram við Engidal, framar-
lega á Fljótsheiði, upp af
Bárðardal, veitti húsfreyjan
þar, Kristlaug Pálsdóttir, at-
hygli stórum hópum auðnu-
tittlinga, eða svo hundruðum
skipti. Héldu þeir sig þar í
lyngi og fjalldrapa en snjólétt
hefur verið á heiðinni í vetur.
í fuglabók Fjölva segir að
auðnutittlingur hafi löngum
verið eftirlætisfugl Þingey-
inga og Eyfirðinga. Þar segir
og að hann sé víðast farfugl
sem leiti suður til Miðjarðar-
hafs þó til sé íslenskt afbrigði
sem sé staðfugl. Þó hann hafi
sést hér að vetri til er sjald-
gæft eða einstakt að sjá
auðnutittlinga í hópum svo
hundruðum skipti og ekki síst
að hann sjáist fram á- heiðum
eins og nú, 360 m yfir sjávar-
máli.
— Fréttaritari
að éljaský hefðu raðast upp
vestur í hafi og hefðu náð eitt-
hvað inn á Vestfirði. Eldingu
sló niður á Klofiiingsjalli þar
sem rafinagnslína liggur yfir i
Súgandaíjörð með þeim afleið-
ingum að Flateyri og Suðureyri
urðu rafinagnslausar í smátima.
Fólk varð skelfingu lostið þegar
ósköpin dundu yfir. Þeir sem voru
sofnaðir vöknuðu upp, rúður ti-
truðu í húsum og var sem fjörður-
inn nötraði. Á tímabili var eyrin
alveg upplýst. Þrumur og eldingar
eru mjög sjaldgæft fyrirbrigði hér
um slóðir og áttaði fólk sig ekki
strax í upphafí á því hvað var um
að vera. Sumir héldu jafnvel að
um jarðskjálfta væri að ræða eða
að þriðja heimsstyijöldin væri
skollin á.
— Magnea
Nanna VE kemur til hafnar i Eyjum.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Nánast nýr bátur til Eyja
Nanna VE komin heim eftir endurbyggingu í Portúgal
Vestmannaeyjum.
NANNA VE sem verið hefiir
síðustu 16 mánuðina á endur-
byggingu í Portúgal er komin
til heimahafiiar í Vestmannaeyj-
um. Báturinn er hinn glæsileg-
asti og er fátt sem minnir á þá
gömlu Nönnu er héðan sigldi
fyrir einu og hálfu ári.
Nanna var smíðuð í Hollandi
1955 og er því rúmlega þrítug.
Það er þó fátt sem minnir á þenn-
an aldur nú því báturinn er sem
nýr að sjá. Að sögn Leós Óskars-
sonar, skipstjóra og útgerðar-
manns Nönnu, þá var skipt um
nánast allt í bátnum nema hluta
af skrokknum, aðalvélina og tog-
spilin, en þau voru yfírfarin. Ný
brú var byggð. Skipt um allar inn-
réttingar og rafmagn og báturinn
lengdur um tæpa 6 metra. 4,5
metrar voru settir inn í miðju
skrokksins, hann lengdur aftur um
1,3 metra og skutnum slegið út.
Þá var byggt yfir bátinn og ný
spil sett upp.
Ekki liggur enn fyrir endanlegur
kostnaður vegna breytinganna en
hann mun sennilega verða eitthvað
nálægt 35 milljónum.
Nanna var 9 sólarhringa á leið-
inni heim og lenti í aftaka veðri
sunnan við Færeyjar. Leó sagði
að skipið hefði reynst mjög vel á
heimleiðinni og hefði fengið mikla
eldskím í óveðrinu en þeir þurftu
að halda sjó í einn og hálfan sólar-
hring meðan verst lét.
Unnið er að þvi núna að gera
Nönnu klára til veiða en hún mun
halda til togveiða um miðjan jan-
úar. Grímur
Stjarnan:
Ollu starfsfólki sagt upp
vegua skipulagsbreytinga
ÖLLU starfsfólki útvarpsstöðv-
arinnar Stjörnunnar var sent
uppsagnarbréf á föstudaginn
og haldinn var fiindur þar sem
þessi ákvörðun var tilkynnt.
Veðrið á árinu 1988:
Hálfii til einu stigi
kaldara en í meðalári
HITASTIG á landinu öllu á árinu 1988 var uin hálfu til einu
stigi lægra en í meðalári. Úrkoma var nálægt meðallagi í
Reykjavík en um 5% umfram meðallag á Akureyri. Sólskins-
stundir í Reykjavík voru 50 færri en í meðalári og sólskins-
stundir í Reykjavík í júní aðeins 72 og hafa aldrei verið færri
síðan mælingar hófust árið 1923.
Að sögn Öddu Báru Sigfús-
dóttur, veðurfræðings, var frerpur
kalt fyrstu §óra mánuði ársins,
en ekki mikill snjór og ekki mikið
um stórviðri. Mesta frostið mæld-
ist rúmlega 30 gráður á Norð-
Austurlandi seinni hlutann í jan-
úar.
Apríl var óvanalega kaldur fyrri
hluta mánaðarins og í júní ríktu
þrálátar vestanáttir með hvas-
sviðri og rigningu. Fádæma sólarl-
Fiskverð ð uppboðsmörkuðum 2. janúar.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Hæsta verft Læg8ta verA Meðal- verð Magn (lestir) Heildar- verð (kr.)
Þorskur 54,00 46,00 50,64 19,444 984.567
Þorskur(ösl. dbl.) 34,00 34,00 34,00 4,253 144.602
Ýsa v Samtals 124,00 79,00 114,45 58,81 4,754 28,451 544.104 1.673.273
Seldur var fiskur af netabátum og svo verður einnig í dag. f
gaer var ekkert selt ó öðrum fiskmörkuðum.
ítið var sunnan og vestanlands,
aðeins 72 sólskinsstundir mældust
í Reykjavík en síðan 1923 hafa
þær ekki nema tvisvar verið færri
en 100. Veðrið breyttist í júlí og
voru norð- og austlægar áttir
ríkjandi það sem eftir var sumars
og mjög úrkomusamt austan og
norðanlands.
Haustveðrið var frekar meinlítið
þótt úrkomusamt væri sunnan-
lands í október. Síðustu tveir mán-
uðir ársins voru fremur hlýir fen
mjög umhleypingasamt í desem-
ber.
Ástæðan er fyrirhugaðar skipu-
lagsbreytingar sem taka eiga
gildi 1. febrúar nk. Ólafúr
Hauksson, útvarpsstjóri Stjörn-
unnar, mun senn láta af störfúm
og eigendur fyrirtækisins taka
við stjórninni í staðinn. Þorgeir
Ástvaldsson verður nýr út-
varpsstjóri Stjörnunnar, Jón
Axel Olafsson, framkvæmda-
stjóri og Gunnlaugur Helgason,
Olafur Hauksson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að gert væri
ráð fyrir því að flest allt starfs-
fólkið yrði endurráðið. Það hefði
hins vegar verið talið rétt að eig-
endumir tækju við algjörlega
hreinu borði, án neinna skuld-
bindinga, og hefði starfsfólkinu
því verið sagt upp. „Þetta er þann-
ig bransi að mér fannst nauðsyn-
legt að þeir hefðu frítt spil í þeirri
sókn sem framundan er. Það á að
hrista upp í dagskránni og koma
ennþá nær hlustandanum en nokk-
ur önnur útvarpsstöð hefur gert.“
Ólafur sagði að nauðsynlegt
væri að lífga upp á heildardag-
skrána mjög reglulega. Útvarps-
rekstur á Islandi stæði nú á vissum
tímamótum. Það væri kominn á
stöðugleiki þrátt fyrir samkeppn-
ina. Menn væru famir að vita
hvaða möguleikar væm fyrir hendi
varðandi auglýsingar og annað.
Ólafur sagðist einnig vilja taka
það fram að þessar breytingar
tengdust ekki á neinn hátt orðrómi
um sameiningu Bylgjunnar og
Stjömunnar. Allar sameiningar-
viðræður hefðu verið lagðar á hill-
una.
Yitni vantar
Rannsóknarlögreglan í Hafnar-
firði lýsir eftir vitnum að því er
ekið var á rauða Lada-bifreið,
sem stóð mannlaus við félags-
heimilið Gárðaholt í Garðabæ.
Þetta átti sér stað um miðnætti
að kvöldi 30. desember.
Tjónvaldur, ökumaður blásanser-
aðs japansks stationbíls, Datsun að
talið er, fór af staðnum án þess að
gera vart um tjónið. Er skorað á
hann eða vitni að óhappinu að hafa
samband við lögregluna enda er
Lddan stórskemmd, jafnvel ónýt
eftir ákeyrsluna.
Hagstofa Islands:
Húsaleiga óbreytt
LEIGA fyrir íbúðarhúsnæði og
atvinnuhúsnæði sem samkvæmt
samningum fylgir vísitölu hús-
næðiskostnaðar eða breytingum
meðallauna skal haldast óbreytt
í janúar, febrúar og mars 1989,
frá því sem hún var í desember
1988.
Húsavík:
Flugeldar
fyrir milljón
Húsavík.
I HAGSTÆÐU veðri skutu
Húsvíkingar upp flugeldum fyrir
eina milljón króna á gamlárs-
kvöld svo mörg fögur ljós sáust
á lofti. Vonandi boðar það birtu
á komandi ári og ekki er þetta
merki kreppu sem um er talað.
Fjölmennur dansleikur var í fé-
lagsheimilinu og fór hann vel fram.
Ekki er kunnugt um nein óhöpp eða
ólæti hér um áramótin.
- Fréttaritari