Morgunblaðið - 03.01.1989, Qupperneq 31
C8Ci
n.aiíM Tt(iigajíimuosom
MORGUNBLAÐIÐ VlDSKlPn/AIVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
31
Orka
Rannsóknir á vetni
sem orkugjafa aukast
VESTUR-ÞJÓÐVERJAR veija nú jafiivirði um tíu milljarða íslenskra
króna á ári í rannsóknir og tilraunir á notkun vetnis sem orku-
gjafa. Helstu ástæður þessa eru væntanlega áhyggjur Þjóðveija af
þeirri mengun sem hlýst af notkun flestra annarra orkugjafa. Víða
annars staðar binda menn nú síauknar vonir við vetni. Vetni hefúr
þann kost helstaii að við bruna þess verður ekki til neitt hættulegra
en vatn.
Talsvert var rætt um notkun
vetnis sem orkugjafa í kjölfar olíu-
kreppunnar í byijun síðasta áratug-
ar en nú virðist sem áhugi á notkun
vetnis sé aftur að aukast. Þýsku
bílaframleiðendurnir Benz og BMW
hafa báðir reynsluekið vetnisknúð-
um bílum og er sá fyrrnefndi nú
að gera tilraunir með langferðabíla.
I Sovétríkjunum hafa einnig verið
gerðar tilraunir til að láta vetni
knýja ýmsar gerðir farartækja.
Sovétmenn hafa flogið þotu sem
knúinn var af vetni að hluta og
bandaríska geimferðastofnunin og
flugherinn hafa einnig rannsakað
notkun vetnis í svipuðum tilgangi.
Raunar gerðu Bandaríkjamenn til-
raun sem tókst til að knýja flugvél
með vetni að hluta fyrir rúmum
þremur áratugum. Þá má geta þess
að eldflaugarnar sem koma sovésku
og bandarísku geimskutlunum á
loft brenna vetni.
Sólarorka notuð til að
framleiða vetni
Þó eru ýmis ljón í veginum. Þótt
yfrið nóg sé til af vetni á jörðu er
það nær allt bundið súrefni sem
vatn og þarf jafnmikla orku til að
losa það frá súrefninu og vetnið
skilar þegar það er brennt. Það
þarf því að nota einhvern annan
orkugjafa til að gera vetnið not-
hæft.
Andstaða við kjarnorkuver hefur
valdið því að V-Þjóðveijar telja ekki
fýsilegt að nota kjarnorku til að
vinna vetni úr vatni og Jíta helst
til sólarorku sem heppilegs orku-
gjafa. Nokkur þýsk iðnfyrirtæki
ætla að reisa 500 kílówatta sólar-
orkuver fyrir ríflega milljarð
íslenskra króna í tilraunaskyni í
Bæjaralandi og nota orkuna til að
vinna vetni.
Hnattstaða Þýskalands gerir það
þó óhentugt til vinnslu orku úr sól-
arljósi og hafa þeir því einnig litið
til suðlægari landa. I tilraunaskyni
hafa V-Þjóðveijar samið við Saudi-
Araba um að reisa 350 kílowatta
sólarorkuver í nágrenni Riyadh og
er einnig ætlunin er að nýta orku
þess til að framleiða vetni.
Enn hefur vísindamönnum ekki
tekist að hanna sólarrafhlöður sem
ná að breyta nema um það bil 15%
af þeirri orku sem á þær fellur í
raforku og enn eru ekki komnar á
markað rafhlöður sem ná að nýta
nema um 7%. Það þarf því talsvert
landrými til að vinna raforku úr
sólarljósi svo að einhveiju nemi og
hafa vísindamenn við Princeton
háskóla í Bandaríkjunum til að
mynda áætlað að til að framleiða
nægilegt rafmagn til að búa til
nægt vetni til að knýja öll ökutæki
Bandaríkjamanna þyrfti að þekja
ríflega 60 þúsund ferkílómetra með
rafhlöðum, það samsvarar ríflega
hálfu flatarmáli íslands.
í Bandaríkjunum eru menn einn-
ig að þróa aðrar aðferðir til að vinna
vetni úr vatni og vísindamenn þar
hafa náð góðum árangri við að láta
frumstæðar lífverur vinna vetni
með aðstoð orku frá sólinni. Við
Texasháskóla hafa verið gerðar til-
raunir til að láta bakteríur sem
nærast á lífrænum úrgangsefnum
framleiða vetni.
Erfitt að geyma vetni
Annað vandamál blasir við þeim,
sem vilja nýta vetni sem orkugjafa.
Við eðlilegar aðstæður er vetni eld-
fim lofttegund og dýrt er að geyma
hana undir það miklum þrýstingi
að hún verði að vökva. Vísindamenn
hafa því gert tilraunir til að binda
vetni ýmsum málmum en enn hefur
ekki tekist að finna geymsluaðferð
sem er það árangursrík að vetni sé
meira en 1% blöndunnar. Það er
nógu gott fyrir suma notendur vetn-
is en ekki aðra.
Þannig hafa tæknimenn hjá Benz
verksmiðjunum áætlað að það elds-
neyti sem þarf til að knýja fóksbíl
200 kílómetra vegi vel á fjórða
hundrað kílóa. Það getur engan
veginn talist nothæft fyrir vélknúin
ökutæki.
Japönum hefur orðið nokkuð
ágengt við að bæta úr þessu og
þarlendir spá því að innan þriggja
ára muni þeim takast að þróa þre-
falt afkastameiri geymsluaðferð.
Heimild: Business Week
m
Virðisauka-
skatti mótmælt
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
HOTELA- og veitingahúsasam-
band Evrópubandalagsins sam-
þykkti á þingi sínu áskorun gegn
þeirri stefiiu EB að selja á þessa
þjónustu samræmt virðisauka-
skattstig á bilinu 14—20%. Það
er álit þeirra sem að ályktuninni
stóðu að þessi ráðstöfun mundi
leggja iðnaðinn í rúst.
Sambandið lagði til að skattur á
framreidd matvæli verði samræmd-
ur þannig að ekki verði munur á
þeim mat sem neytt er á staðnum
og þeim sem tekinn er í burtu í
hveiju formi sem er. Jafnframt
mælist sambandið til þess að hótel-
um og veitingahúsum verði ekki
mismunað eftir flokkum og að lok-
um þess að afsláttar skattstig verði
látið gilda um þessa þjónustu innan
EB.
Á þessu ári hyggst sambandið
gangast fyrir ráðstefnu í Hollandi
um ferðamannamarkaðinn og tóm-
stundir í Evrópu eftir 1992. Ráð-
stefnan verður miðuð við áhugaefni
hótel- og veitingahúsaeigenda.
Iðnaður
Velgengni
gnenlenskrar
prentsmiðju
Kaupmannahöfh. Frá Grími Friðgeirssyni
fréttaritara Morgunblaðsins.
EITT best rekna fyrirtæki á
Grænlandi er Suðurgrænlenska
prentsmiðjan, og fyrirtækið
stækkar stöðugt. Velta fyrirtæk-
isins hefiir aukist um 24 % á
milli ára í 26,2 milljónir danskra
króna. Síðustu þijú árin hefur
aukningin verið svipuð frá ári
til árs.
Hagnaður 1987 var 789.000
d.kr. meiri en árið á undan, sem
er um 25 % aukning. Prentsmiðjan
prentar m.a. tvö dagblöð, Sermits-
iak og Atuagagdliutit, bækur blöð,
póstkort, umslög ásamt ýmsu öðru.
Prentsmiðjan fjárfesti árið 1987
fyrir um 2,4 milljónir danskra
króna, m.a. í nýrri fullkominni
prentvél, og í nýbyggingum fyrir
stjórnun og aðstöðu fyrir starfsfólk.
Fyrirtækið hlúir vel að starfs-
mönnum, og hefur nýlega sent 8
lærlinga í iðnskóla til Danmerkur.
Um það bil 45 manns starfa við
Suðurgrænlensku prentsmiðjuna.
Vetur í Portúgal
4, 6, 8,
og 10 vikur
Ferðaskrifstofurnar EVRÓPUFERÐIR, RATVÍS OG FERÐAVAL
bjóða ykkur upp á 4, 6, 8 og 10 vikna ferðir til Portúgal ívetur.
Hægt er að velja um gistingu á Madeira,í Algarve eða á Lissa-
bon-ströndinni. Verð frá kr. 53.200,-
Lissabon
Algarve
Einnig standa ykkur til boða styttri ferðir (3-30 dagar) með gist-
ingu í íbúðum eða 3 til 5 stjörnu hóteium víðsvegar um
Portúgal. Þið getið heimsótt heimsborgirnar Lissabon og
London í einni ferð, spókað ykkur á strönd ALGARVE eða leik-
ið golf á einhverjum bestu golfvöllum Evrópu.
Madeira
Þeir sem vilja hvílast og slappa af ífögru umhverfi býðst úrval
af gististöðum á hinni margrómuðu eyju Madeira.
Ef þig vantarferðafélaga, þá er hann
e.t.v. á skrá hjá okkur.
Nánari upplýsingar fúslega veittar á skrifstofum okkar
evrópuferðir
KLAPPARSTlG 25-27
101 REYKJAVÍK,
SÍMI 628181.
HAMR4B0RG 1-3,
211RÖPAV06I SiMI 641522.
FERÐAmVALHF
TRAVEL AGENCYV3EÍ7
HAFNARSTRÆTI18,
101 REYKJAVÍK, SÍMI 14480.
Innritun nýrra nemenda
hefst í dag milli kl. 14 og
18 í símum 68-74-80 og
68-75-80
í DANSSKÓLA HERMANNS RAGNARS
Síðastliðin 30 ár hafa þúsundir íslendinga lært sín fyrstu
spor í DHR og margir þeirra eru enn að. I DHR er ekki ein-
göngu lögð áhersla á holla og góða hreyfingu, heldur létt
og skemmtilegt andrúmsloft.
Það sem við kennum í vetur:
• Jazzleikskólinn
• Jazzdans
• Jazzballett
• Stepp
O Barnadansar
• Suður-ameriskir dansar
• Samkvæmisdansar
• 10 hagnýtir dansar
og gömu dansarnir
Börn 3ja-6 ára.
Börn 6-8 ára
9 ára og eldri
9 ára og eldri
Börn 3ja-6 ára
7 ára og eldri
7 ára og eldri
T rygging fyrir réttri tilsögn
ídansi
Fyrir fullorðna
Endurnýjun skírteina fer fram laugardaginn
7. janúar milli kl. 14 og 18.
Kennsla hefst mánudaginn 9. janúar.
VERTU MEÐ Á 30.
AFMÆLISÁRINU!
VISA’
~BOLHOLTI 6. SIMAR 68 74-80 OG 68-75-80.