Morgunblaðið - 03.01.1989, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
37
Vídeódagur
í Bolholti
á laugardag
í Kaupmannahöfn
. Hraunberg kl. 2-4
s Suðurver kl. 2-4
Bolholt kl. 4-6
Innritun nýrra nemenda í síma
83730 og 79988 alla daga.
Guðmundur Jónsson
00
Okrum — Mhming
Hinn 25. desember sl. lést á
Landspítalanum Guðmundur Jóns-
son eftir stutta sjúkrahúslegu á 85
aldursári. Jarðarför hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Guðmundur er fæddur 6. mars
1904 á Háreksstöðum í Borgar-
firði. Foreldrar hans voru Jón Ey-
jólfsson og Ragnhildur Þórðardótt-
ir. Þau hjónin, Jón og Ragnhildur,
eignuðust þrettán böm sem eru nú
öll látin. Guðmundur ólst upp í for-
eldrahúsum fram að fermingu en
þá réð hann sig í vinnu að Síðu-
múla í Borgarfirði hjá Andrési Eyj-
ólfssyni og Ingibjörgu Guðmunds-
dóttur. Vann hann þar við land-
búnaðarstörf og var því lítið um
menntun hjá Guðmundi þar sem
menntun var aðeins að fá í farskól-
um.
Árið 1928 urðu þáttaskil í lífi
Guðmundar þar sem hann kynntist
eftirlifandi konu sinni, Önnu G.
Bjamadóttur, sem var þá kaupa-
kona í Síðumúla. Foreldrar hennar
voru Bjami Sigurðsson og Valgerð-
ur Jónsdóttir ættuð frá Skagafirði.
Guðmundur og Anna vom gefín
saman 29. desember 1929.
Fyrstu hjúskaparár sín bjuggu
þau í Reykjavík og vann Guðmund-
ur í fyrstu hjá Kol og salt en flutti
sig síðan yfir til Pósts og síma þar
sem hann vann við símalagnir.
Vorið 1940, í byijun stríðsins, fluttu
þau að Fjalli í Sæmundarhlíð í
Skagafírði og hófu búskap í sam-
býli við Halldór Benediktsson. Þar
sem jörðin var ekki næg fyrir tvær
fjölskyldur tóku þau jörðina Botna-
staði í Svartárdal á leigu af Klem-
ensi Guðmundssyni frá Bólstað-
arhlíð. Dvaldist Klemens hjá þeim
lengst af. Seinustu árin er þau vom
með búskap vom þau einnig hús-
verðir í samkomuhúsinu Húnaveri.
Árið 1960 bmgðu þau búi og flutt-
ust aftur til Reykjavíkur þar sem
þau festu kaup á íbúð, Ökmm
v/Nesveg. Hóf Guðmundur sitt
fyrra starf hjá símanum og vann
hann þar á meðan heilsan leyfði,
eða til ársins 1980, er hann var 76
ára að aldri.
Með Guðmundi er genginn góður
maður. Hann var jarðbundinn og í
sínum frítíma undi hann sér best
við lestur góðra bóka. Fyrir okkur
sem fengum að kynnast honum
verður hann ímynd þrautseigju,
heiðarleika og samviskusemi. Hann
var hlédrægur maður en góður vin-
ur vina sinna.
Ég kveð hér Guðmund tengda-
föður minn með djúpum trega en í
þeirri vissu að hann eigi vísa góða
heimkomu hinumegin tjaldsins
mikla.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V.B.)
María Sveinsdóttir
Guðmundur og Anna eignuðust
§óra syni og em þrír þeirra á lífí.
Elsti sonurinn, Oskar, sem var
prentari að iðn, f. 1930; lést af slys-
förum 1956; Bjami Valgeir, bif-
vélavirki, f. 1934; Gunnlaugur,
múrari, f. 1942; og Jón Eyjólfur,
húsasmiður, búsettur í Ástralíu.
Synimir hafa allir kvænst og em
bamabömin 12 og bamabamabörn-
in 9.
Kennslustaðir:
REYKJAVÍK, Brautarholt 4, Drafnarfell 4, Ársel, Foldaskóli,
Ölduselsskóli.
HAFNARFJÖRÐUR - M0SFELLSBÆR - SELF0SS - HVERAGERÐI
Innritun daglega frá kl. 13-19 í símum 91 -74444 og 91-20345
KEFLAVÍK, GRINDAVÍK, GARÐUR, SANDGERD/
Innritun daglega frá kl. 21-22 í síma 68680.
Kennsla hefst mánudaginn 9. janúar
Síðasti innritunardagur er laugardagur 7. janúar.
DAIMSSKÓLI HEIÐARS - DAIVISSKÓLINIM YKKAR
FÆST
í BLADASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁDHÚSTORGI
OANSSKOiI
BÖRIM (yngst 4 ára) - UNGLINGAR
Samkvæmisdansar - Discodansar
FULLORÐIMIR (einstaklingar og pör)
Samkvæmisdansar - nýir og gamlir
ROCK’N ROLL
Sértímar í rokki og tjútti
EIIMKATÍMAR
(einstaklingar, pör, smáhópar)
ASTVAIPSSONAR
w
Kennslahefst9.jan.
Endurnýjun skírteina laugardaginn
7.janúarsemhérseqir: