Morgunblaðið - 14.01.1989, Page 11

Morgunblaðið - 14.01.1989, Page 11
og vanda af sýningunni að þessu sinni og mun svo verða framvegis, hvaða stefna sem verður nú annars tekin. Dómnefnd skipuð einum full- trúa veflistamanna frá öllum Norð- urlöndum svo og fulltrúa listamið- stöðvarinnar ( Svíavirki og til við- bótar einum frá Menningarhúsinu í Stokkhólmi (af hveiju?) og ritara Þríæringsins valdi 81 verk af 600 innsendum. Hvergi kemur fram hvers kyns verkum var hafnað né út frá hveiju var gengið, en skyldi ekki einhvem gruna, að meðal þeirra hafi verið heilmikið af sígildum vefjarlistaverk- um, en þau dæmd úr leik? Einmitt sú staðreynd gerir þörfina meiri, og raunar brennandi, að sigla undir réttu flaggi og breyta nafni Þríæringsins og hér væri t.d. „Form og vefur“ strax öllu réttari skilgrein- ing en veflist. Það hefur meira verið vandað til uppsetningar þessarar sýningar en annarra, sem ég hef haft spumir af frá Norrænu listamiðstöðinni í Svíavirki. Þannig ferðast arkitekt með henni milli landanna og setur hana upp en ekki fylgir sögunni, hvort þetta sé venjulegur húsaarki- tekt eða sýningararkitekt, en það er tvennt ólíkt og ber ekki að rugla saman. Starfsheitið sýningararki- tekt er nefnilega til. Það er skemmst frá að segja, að sýningin er fagmannlega sett upp og mjög vandað til hennar og vafa- lítið kostar þetta allt drjúgan skild- ing, sem ekki ber að sjá eftir, nái sýningin tilgangi sínum. En þá er spumingin, hver sá tilgangur sé, og þeirri spumingu er lítið svarað í annars veglegri sýningarskrá, en hins vegar hlaupið til goðafræðinnar hátt upp í skýjunum og sagt frá Penelópu og vefúm hennar, sem er skemmtileg ritsmíð. En það má ef- ast um að þetta sé vænlegasta leiðin til að ná til fjöldans né að kalla hann til veflistarþings, þar sem lítill er vefurinn og í sumum tilvikum nákvæmlega jafn mikill og í nýju fötum keisarans. En það er skýrt tekið fram að þetta er eins konar tilraun og upp- stokkun og það var einmitt tilefiii til þessara hugleiðinga. En einnig má hér koma fram, að það eru afar fáir, sem fram að þessu hafa ratað á sýninguna á Kjarvals- stöðum, en skyldi aðstreymið ekki aukast í framtlðinni, ef viðkomandi koma til dyranna eins og þeir eru klæddir? Þá er sýningartíminn alltof stuttur til að slík sýning geti unnið sig upp og eiginlega hálfu styttri en á hinum Norðurlöndunum, að Fær- eyjum undanskildum. Um listgildi verkanna er varla til- efni til að ræða hér, þótt að sjálf- sögðu sé það upp og ofan sem á öðrum stórsýningum og innan um eru gullfallegir hlutir. Syningin í heild er þó frekar jöfn og allar þjóð- imar virðast jafn langt á veg komn- ar í hinum nýju viðhorfum eftir sýn- ingunni að dæma, sem þó er frekar -n. gluggi að viðhorfum dómnefndar. En meginmáli skiptir hér sem á öðrum alþjóðlegum sýningum, að undirstaðan sé réttleg fundin og stefnan mörkuð samkvæmt því. . . af þessu tagi. Hins vegar vaxa ribs- beijarunnar villtir á Nýfundnalandi og í Kanada, þar sem Leifur heppni Eiríksson fór um og dvaldi á sínum tíma. Hann gaf landinu nafnið Vínland hið góða í samræmi við landkosti þess eins og þá var hátt- ur, samanber Helluland, þar sem lítið sást annað en berar klappir, og Markland vegna mikilla skóga. Það fer ekki á milli mála, að þeim Leifi heppna og félögum hafi, eftir mánaðalanga útivist á sjó við fjör- efnalítinn kost, þótt matur í að komast síðla sumars til lands, þar sem allt var fullt af ribsbeijarunn- um með þroskuðum rauðum vín- beijum (ribsbeijum) á hverri grein. Þar var hin fjörefnaríka næring, sem þá vanhagaði mest um, og auk þess möguleikinn að gera sér glað- an dag eftir gifturíka ferð. Ekki er vitað með vissu, hvemig norrænir menn brugguðu úr þessum beijum á þeim tíma, en vísast hefur það verið með ýmsu móti og ýmislega til tekizt... MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1989 l 11 Doktorsvörn í Lundi; Þrjár nýjungar í rann- sóknum á tíðarverkjum ARNAR Hauksson, kvensjúk- dómalæknir, hefúr varið dokt- orsritgerð sína við Háskólann í Lundi í Svíþjóð. Ritgerðin sam- anstendur af sex sjálfstæðum en samtengdum rannsóknum, sem greint hefúr verið frá í lækn- atímaritum og unnar voru í Svíþjóð og hérlendis frá 1982- 1987. í doktorsritgerðinni koma fram þijár nýjungar: ný rann- sóknaraðferð til að mæla blóð- flæði í lifandi líffæri, nýtt lyf við tíðarverk og nýjar skýringar á lækningaráhrifum getnaðar- vamapilla á tíðarverk. Ritgerð Amars ber heitið Prim- ary Dysmenorrhoea, influence of vasopressin and oxytocin analogues on uterine contractibility and blo- od-flow and effects of oral contrac- eptives in dysmenorrhoea. Rann- sóknir Amars beindust að orsökum og orsakavöldum tíðarverkja kvenna, aðferðum til að meta og mæla orsakaþætti sem og að prófa lyf til lækninga tíðarverkja. Luku andmælendur lofsorði á rit- gerðina. Niðurstöður Amars þykja kollvarpa fyrri hugmyndum um lækningaráhrif p-pilla. í nýjasta hefti breska Kvensjúkdómalækn- atímaritsins er ijallað um blóð- flæðirannsóknir hans í leiðara en Amar hefur í samvinnu við breska og sænska lækna þróað nýja aðferð til að mæla og skrá blóðflæði í leg- vöðva kvenna. Þessi aðferð gerði kleift í fyrsta skipti að mæla samtímis magn og styrk samdrátta í legvöðva og skrá breytingar á blóðflæði samfara þvf. Amar Hauksson er sonur hjón- anna Hauks Oddsonar, sjómanns, og Sigríðar A. Magnúsdóttur. Faðir hans lést árið 1968. Amar varð stúdent frá VÍ árið 1968 og lauk læknaprófi frá HÍ árið 1975. Hann stundaði framhaldsnám í kvensjúk- dómum og fæðingahjálp, fyrst við Landsspítalann en frá 1979 í Lundi. Þaðan varð hann sérfræðingur í Amar Hauksson. grein sinni 1983. Amar Hauksson kom til starfa hérlendis 1986. Hann starfar nú meðal annars við Kvennadeild Landsspítalans og mæðravemd heilsuvemdarstöðvar Reykjavíkur. Hann er kvæntur Elínborgu J. Bjömsdóttur og eiga þau tvö böm. Ný matvæla- lög undirbúin HEILBRIGÐIS- og trygginga- málaráðuneytið hefúr skipað nefnd til að gera tillögur að nýj- um matvælalögum. í fféttatilkynningu segir að nefndinni sé sérstaklega falið að huga að löggjöf annarra Norður- landa með það fyrir augum að kanna hvort hagkvæmt sé og æski- legt að samræma íslenska löggjöf á þessu sviði löggjöf annarra Norð- urlanda eins og gert er ráð fyrir í samþykktum norrænu ráðherra- nefndarinnar'um málefni á þessu sviði. í nefndinni eiga sæti: Ingimar Sigurðsson, lögfræðingur, formað- ur, Jón Gíslason, næringEifr. tiln. af Hollustuv. ríkisins, Elín Hilmars- dóttir, matvælafr.,'tíln. af iðnaðar- ráðuneytinu, Páll Á. Pálsson, yfir- dýralæknir, tiln. af landbúnaðar- ráðuneytinu, Edda Magnúsdóttir, fulltrúi, tiln. af sjávarútvegsráðu- neytinu, og Valgerður Hildibrands- dóttir, næringafr., tiln. af Neyt- endasamtökunum. ■■ ■ JL í VÖRUHÚSINU, EIÐISTORGI fm Bókamarkaður. Barna-, kven- íslenskar og og herrafatnaður erlendar bækur, ásamt úrvali ritföng og margt, heimilisvara. margt fleira á 25-70% afsláttur. frábæru verði. ■> . C 7 'tr “1 Tr% ’fi. Y - ■“p' " f t olvv> v q HI TTSJKí A I? . L, LJiN i N r\ Iþróttavörur og Skór á alla sportfatnaður frá fjölskylduna. Hummel, Puma, Mikið úrval — Lutha ofl. ofl. gott verð. Úlpur í úrvali. 20-50% afsláttur. 20-70% afsláttur. OTRULEGA LAGT VERÐ VÖRUHÚSIÐ EIÐISTORGI OPNUNARTIMI: MÁN.- FÖST. 10 - 18.30 LAUGARDAGA 10 - 16 SUNNUDAGA 13 - 18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.