Morgunblaðið - 14.01.1989, Qupperneq 11
og vanda af sýningunni að þessu
sinni og mun svo verða framvegis,
hvaða stefna sem verður nú annars
tekin. Dómnefnd skipuð einum full-
trúa veflistamanna frá öllum Norð-
urlöndum svo og fulltrúa listamið-
stöðvarinnar ( Svíavirki og til við-
bótar einum frá Menningarhúsinu í
Stokkhólmi (af hveiju?) og ritara
Þríæringsins valdi 81 verk af 600
innsendum.
Hvergi kemur fram hvers kyns
verkum var hafnað né út frá hveiju
var gengið, en skyldi ekki einhvem
gruna, að meðal þeirra hafi verið
heilmikið af sígildum vefjarlistaverk-
um, en þau dæmd úr leik?
Einmitt sú staðreynd gerir þörfina
meiri, og raunar brennandi, að sigla
undir réttu flaggi og breyta nafni
Þríæringsins og hér væri t.d. „Form
og vefur“ strax öllu réttari skilgrein-
ing en veflist.
Það hefur meira verið vandað til
uppsetningar þessarar sýningar en
annarra, sem ég hef haft spumir
af frá Norrænu listamiðstöðinni í
Svíavirki. Þannig ferðast arkitekt
með henni milli landanna og setur
hana upp en ekki fylgir sögunni,
hvort þetta sé venjulegur húsaarki-
tekt eða sýningararkitekt, en það
er tvennt ólíkt og ber ekki að rugla
saman. Starfsheitið sýningararki-
tekt er nefnilega til.
Það er skemmst frá að segja, að
sýningin er fagmannlega sett upp
og mjög vandað til hennar og vafa-
lítið kostar þetta allt drjúgan skild-
ing, sem ekki ber að sjá eftir, nái
sýningin tilgangi sínum. En þá er
spumingin, hver sá tilgangur sé, og
þeirri spumingu er lítið svarað í
annars veglegri sýningarskrá, en
hins vegar hlaupið til goðafræðinnar
hátt upp í skýjunum og sagt frá
Penelópu og vefúm hennar, sem er
skemmtileg ritsmíð. En það má ef-
ast um að þetta sé vænlegasta leiðin
til að ná til fjöldans né að kalla
hann til veflistarþings, þar sem lítill
er vefurinn og í sumum tilvikum
nákvæmlega jafn mikill og í nýju
fötum keisarans.
En það er skýrt tekið fram að
þetta er eins konar tilraun og upp-
stokkun og það var einmitt tilefiii
til þessara hugleiðinga.
En einnig má hér koma fram, að
það eru afar fáir, sem fram að þessu
hafa ratað á sýninguna á Kjarvals-
stöðum, en skyldi aðstreymið ekki
aukast í framtlðinni, ef viðkomandi
koma til dyranna eins og þeir eru
klæddir? Þá er sýningartíminn alltof
stuttur til að slík sýning geti unnið
sig upp og eiginlega hálfu styttri en
á hinum Norðurlöndunum, að Fær-
eyjum undanskildum.
Um listgildi verkanna er varla til-
efni til að ræða hér, þótt að sjálf-
sögðu sé það upp og ofan sem á
öðrum stórsýningum og innan um
eru gullfallegir hlutir. Syningin í
heild er þó frekar jöfn og allar þjóð-
imar virðast jafn langt á veg komn-
ar í hinum nýju viðhorfum eftir sýn-
ingunni að dæma, sem þó er frekar -n.
gluggi að viðhorfum dómnefndar.
En meginmáli skiptir hér sem á
öðrum alþjóðlegum sýningum, að
undirstaðan sé réttleg fundin og
stefnan mörkuð samkvæmt því. . .
af þessu tagi. Hins vegar vaxa ribs-
beijarunnar villtir á Nýfundnalandi
og í Kanada, þar sem Leifur heppni
Eiríksson fór um og dvaldi á sínum
tíma. Hann gaf landinu nafnið
Vínland hið góða í samræmi við
landkosti þess eins og þá var hátt-
ur, samanber Helluland, þar sem
lítið sást annað en berar klappir,
og Markland vegna mikilla skóga.
Það fer ekki á milli mála, að þeim
Leifi heppna og félögum hafi, eftir
mánaðalanga útivist á sjó við fjör-
efnalítinn kost, þótt matur í að
komast síðla sumars til lands, þar
sem allt var fullt af ribsbeijarunn-
um með þroskuðum rauðum vín-
beijum (ribsbeijum) á hverri grein.
Þar var hin fjörefnaríka næring,
sem þá vanhagaði mest um, og auk
þess möguleikinn að gera sér glað-
an dag eftir gifturíka ferð. Ekki er
vitað með vissu, hvemig norrænir
menn brugguðu úr þessum beijum
á þeim tíma, en vísast hefur það
verið með ýmsu móti og ýmislega
til tekizt...
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1989
l 11
Doktorsvörn í Lundi;
Þrjár nýjungar í rann-
sóknum á tíðarverkjum
ARNAR Hauksson, kvensjúk-
dómalæknir, hefúr varið dokt-
orsritgerð sína við Háskólann í
Lundi í Svíþjóð. Ritgerðin sam-
anstendur af sex sjálfstæðum en
samtengdum rannsóknum, sem
greint hefúr verið frá í lækn-
atímaritum og unnar voru í
Svíþjóð og hérlendis frá 1982-
1987. í doktorsritgerðinni koma
fram þijár nýjungar: ný rann-
sóknaraðferð til að mæla blóð-
flæði í lifandi líffæri, nýtt lyf við
tíðarverk og nýjar skýringar á
lækningaráhrifum getnaðar-
vamapilla á tíðarverk.
Ritgerð Amars ber heitið Prim-
ary Dysmenorrhoea, influence of
vasopressin and oxytocin analogues
on uterine contractibility and blo-
od-flow and effects of oral contrac-
eptives in dysmenorrhoea. Rann-
sóknir Amars beindust að orsökum
og orsakavöldum tíðarverkja
kvenna, aðferðum til að meta og
mæla orsakaþætti sem og að prófa
lyf til lækninga tíðarverkja.
Luku andmælendur lofsorði á rit-
gerðina. Niðurstöður Amars þykja
kollvarpa fyrri hugmyndum um
lækningaráhrif p-pilla. í nýjasta
hefti breska Kvensjúkdómalækn-
atímaritsins er ijallað um blóð-
flæðirannsóknir hans í leiðara en
Amar hefur í samvinnu við breska
og sænska lækna þróað nýja aðferð
til að mæla og skrá blóðflæði í leg-
vöðva kvenna. Þessi aðferð gerði
kleift í fyrsta skipti að mæla
samtímis magn og styrk samdrátta
í legvöðva og skrá breytingar á
blóðflæði samfara þvf.
Amar Hauksson er sonur hjón-
anna Hauks Oddsonar, sjómanns,
og Sigríðar A. Magnúsdóttur. Faðir
hans lést árið 1968. Amar varð
stúdent frá VÍ árið 1968 og lauk
læknaprófi frá HÍ árið 1975. Hann
stundaði framhaldsnám í kvensjúk-
dómum og fæðingahjálp, fyrst við
Landsspítalann en frá 1979 í Lundi.
Þaðan varð hann sérfræðingur í
Amar Hauksson.
grein sinni 1983. Amar Hauksson
kom til starfa hérlendis 1986. Hann
starfar nú meðal annars við
Kvennadeild Landsspítalans og
mæðravemd heilsuvemdarstöðvar
Reykjavíkur. Hann er kvæntur
Elínborgu J. Bjömsdóttur og eiga
þau tvö böm.
Ný matvæla-
lög undirbúin
HEILBRIGÐIS- og trygginga-
málaráðuneytið hefúr skipað
nefnd til að gera tillögur að nýj-
um matvælalögum.
í fféttatilkynningu segir að
nefndinni sé sérstaklega falið að
huga að löggjöf annarra Norður-
landa með það fyrir augum að
kanna hvort hagkvæmt sé og æski-
legt að samræma íslenska löggjöf
á þessu sviði löggjöf annarra Norð-
urlanda eins og gert er ráð fyrir í
samþykktum norrænu ráðherra-
nefndarinnar'um málefni á þessu
sviði.
í nefndinni eiga sæti: Ingimar
Sigurðsson, lögfræðingur, formað-
ur, Jón Gíslason, næringEifr. tiln.
af Hollustuv. ríkisins, Elín Hilmars-
dóttir, matvælafr.,'tíln. af iðnaðar-
ráðuneytinu, Páll Á. Pálsson, yfir-
dýralæknir, tiln. af landbúnaðar-
ráðuneytinu, Edda Magnúsdóttir,
fulltrúi, tiln. af sjávarútvegsráðu-
neytinu, og Valgerður Hildibrands-
dóttir, næringafr., tiln. af Neyt-
endasamtökunum.
■■
■
JL
í VÖRUHÚSINU, EIÐISTORGI
fm
Bókamarkaður. Barna-, kven-
íslenskar og og herrafatnaður
erlendar bækur, ásamt úrvali
ritföng og margt, heimilisvara.
margt fleira á 25-70% afsláttur.
frábæru verði. ■> .
C 7 'tr “1 Tr% ’fi. Y - ■“p' " f t
olvv> v
q HI TTSJKí A I? . L, LJiN i N r\
Iþróttavörur og Skór á alla
sportfatnaður frá fjölskylduna.
Hummel, Puma, Mikið úrval —
Lutha ofl. ofl. gott verð.
Úlpur í úrvali. 20-50% afsláttur. 20-70% afsláttur.
OTRULEGA LAGT VERÐ
VÖRUHÚSIÐ EIÐISTORGI
OPNUNARTIMI:
MÁN.- FÖST. 10 - 18.30
LAUGARDAGA 10 - 16
SUNNUDAGA 13 - 18