Morgunblaðið - 05.02.1989, Blaðsíða 25
MORGUNBLÁÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1989
C 25
Sigrún Jónatans-
dóttir - Minning
Fædd 6. desember 1925
Dáin 12. janúar 1989
„Margs er að minnast
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð
Margs er að minnast, margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð."
(Valdimar Briem.)
Fyrir liðlega 40 árum lágu leiðir
okkar fyrst saman. Það var 1.
mars 1948 að 12 ungar glaðar og
áhugasamar stúlkur hófu hjúkr-
unamám í Hjúkrunarskóla íslands.
Námsárin voru ánægjuleg og við-
burðarík enda liðu þau fljótt. Hóp-
urinn var samstilltur og allar höfð-
um við valið hjúkrunamámið vegna
þess, að við trúðum að lífsfylling
væri fólgin í hjúkrunarstarfinu. Trú
okkar reyndist rétt, þvf allar höfum
við síðan unnið við hjúkran á einn
eða annan hátt. Sigrún Jónatans-
dóttir var ein af okkur í hópnum.
— Oft er gildi hins lifaða lífs hug-
leitt, þegar aflvakinn, sem knúði
huga og hönd er hættur að starfa
í þessum heimi sem við skynjum.
Því vekja hugleiðingar við lát Sig-
rúnar Jónatansdóttur margar ljúfar
minningar. Minningar um sterkan
persónuleika, hennar góðu mann-
legu eiginleika, starfsáhuga og
þrek, hennar mörgu áhugamál,
glaðværð og hjálpsemi á alla lund.
Með örfáum orðum langar okkur
skólasystur Sigrúnar frá Hjúkr-
unarskóla íslands að minnast henn-
ar með þakklæti fyrir vináttu og
tryggð, fyrir hinar mörgu gleði-
stundir sem við höfum átt saman
og fyrir framlag hennar til hjúkr-
unarinnar.
Sigrún var fædd 6. desember
1925 í Vestmannaeyjum, yngst af
fimm börnum hjónanna Jónatans
Snorrasonar og Steinunnar Brynj-
úlfsdóttur, sem lengst af bjuggu í
Breiðholti í Vestmannaeyjum. Þar
ólst hún upp ásamt bræðram sínum.
Sigrún var gædd þeim eiginleika,
þeirri list að veita birtu og yl hvar
og hvenær sem hún gat komið því
við. Hún var foreldram og fjölskyld-
um bræðra sinna gleðigjafi, stoð
og styrkur alla tíð og fékk hún það
endurgoldið á marga lund en tengsl
Ijölskyldnanna era sterk og traust.
Sigrún lauk námi við Hjúkranar-
skóla íslands 1951, stúdentsprófi
utan skóla frá Menntaskólanum á
Laugarvatni 1957, lauk prófi frá
Heimspekideild Háskóla íslands
1958, var við framhaldsnám í rönt-
genhjúkran á Landspítalanum
ÚTSALA - ÚTSALA
20-50% afsláttur
á öllum vörum verslunarinnar.
Glugginn,
Laugavegi 40, (Kúnst-húsinu).
Málmiðnaðarmenn
Stór-Reykjavíkursvæðið
Á næstunni verða eftirfarandi námskeið í ensku:
Enska I. Byrjar 16. febrúar.
Enska II. Byrjar 6. mars.
Nánari upplýsingar og skráning eru hjá Fræðslu-
ráðinu í síma 621755 og hjá M.S.Í. í síma 83011.
1957—58 og lauk Hjúkranarkenn-
araprófi í Noregi 1974.
Hjúkranarstörfm vann hún af
alúð og einlægni á ýmsum sjúkra-
stofnunum, á Landspítalanum,
Sjúkrahúsi Vestmannaeyja, Borg-
arspítalanum, The Royal Infírmary,
Aberdeen, Södersjukhuset í Stokk-
hólmi og Sahlgrenska Sjukhuset í
Gautaborg. Lengst af vann hún við
Geisladeild Landspítalans. Þá
kenndi hún um tíma við Nýja hjúkr-
unarskólann.
Allir sem þekktu Sigrúnu, kynnt-
ust fljótt hinum fjölbreyttu hæfí-
leikum hennar, þekkingu og leikni
í starfí, alúðlegri framkomu, trú-
mennsku, glaðværð og frásagnar-
list. Hún var farsæl í starfi enda
ætíð með velferð sjúklinganna að
leiðarljósi og var virt af sjúklingum
og samstarfsfólki. Sigrún var vel
lesin, átti mikið og gott bókasafn
og hafði yndi af tónlist. Hún var
mikill ferðagarpur, útivist heillaði
hana, énda var hún fróð um sögu
og náttúra okkar fagra lands. Það
var eins þegar hún dvaldi erlendis,
þá lagði hún sig fram við að kynn-
ast landi og þjóð.
Hún unni allri fegurð og hún sá
hana víða — úti í náttúranni, í
málverkum, bókmenntum og í öðr-
um listgreinum — og ekki síst sá
hún hið fagra og góða í fari sam-
ferðafólksins. Sjálf skapaði hún hin
fegurstu listaverk, en handavinna
hennar var einstök að fegurð og
fjölbreytni, enda féll henni aldrei
verk úr hendi.
Nú er Sigrún horfín — farin yfír
móðuna miklu. Við skólasystur
hennar drúpum höfði við andlát
hennar, fullar þakklætis fyrir að
hafa kynnst henni, fyrir hennar vin-
áttu og tryggð og alla samverana,
sem hefur verið dýrmæt og aukið
okkar eigið manngildi.
Við vottum bræðram hennar og
fjölskyldum þeirra dýpstu samúð.
F.h. skólasystra frá HSÍ,
Sigurlín Gunnarsdóttir.
LÆRIÐ A KYPUR
DIDACTAINTERNATION AL COLLEGE
★ Flugfreyjunám - 'með Cyprus Airways
★ Nám í ferðaþjónustu í flugi - sem leiðir til IATA
réttinda
Sendið úrklippuna og fáið nánari upplýsingar
og umsóknareyðublöð hjá:
DIDACTA
BOX 271,114 21 STOCKHOLM, SWEDEN
Nafn: ........
Heimilisfang:
Sími: ........
RAFVERKTAKAR HÖNNUÐIR RAFVIRKJAR
Kynnið ykkur verð MÍIMIA-PI AQT
og gæði á
NOWA-PLAST
rennum
NOWA-PLAST
Tengla- og kapalrennur i
ýmsum breiddum og litum
JNÝJUNGÁ ÍSLANDI
ndiunrí tannkremid
Munnvatniö inniheldurensim sem eru vörn sjálfrar náttúrunnar gegn bakteriu- og sveppavexti í munninum.
Matarvenjur ínútímaþjóðfélagi brjóta niðurþessa vörn. Hið mikla sykurinnihald fæðunnar veitir bakteriunum
góð vaxtarskilyrði. Þeim fjölgarogsetjastsem lag á tennurnar.
Árangurinn eru holurítönnum og tannholdsvandamál.
ZENDIUM með ensímum verkargegn hömlulausum vexti bakteria og sveppa og hjálpar til að endurvekja
hið náttúrulega jafnvægi í munninum.
ZENDIUM með ensímum og flúor er nýjung: Tannkrem með tvöfaldri vörn fyrir tennur og tannhold.
1. Ensímin í Zendium hjálpa ensímunum í munnvatninu til að endurvekjajafnvægi í munni.
2. FluoriZendium herðirglerung tannanna.
ZENDIUM-TANNKREMIÐ MEÐ ENSÍMUM OG FLUOR.
Einnig eru sérstakar vörur fyrir falskar tennur: pæst f apótekum.
ENZYDENT með ensímum og fluor tannkrem. Heildsölubirqðir
ENZYDENT tannlím. " '
ENZYDENT tannhreinsitöflur. ARS.,
Reykjavikurvegi 12, Hafnarfirði, simi 652690.
Leiðbeiningar um skattframtal:
LEÐRÉTTING
Vakin er athygli á því að í Leiðbeiningum um
útfyllingu skattframtals einstaklinga árið 1989, sem
munu hafa borist flestum um leið og skattframtöl
þeirra, er villa í upplýsingum um verðgildi
spariskírteina ríkissjóðs á blaðsíðu 17 í
leiðbeiningunum. Samkvæmt upplýsingum frá
Seðlabanka íslands var margföldunarstuðull
nafnverðs spariskírteina, sem einkennd eru
1987-I.A.2ARog 1987-I.A.4AR, 1,8677. Síðarkom
í Ijós að réttur margföldunarstuðull fyrir þessi
spariskírteini er 1,6492 og ber því að margfalda
nafnverð þeirra með þeim stuðli.
RSI<
RÍKISSKATTSTJÓRI
llTSALA - BÚTASALA
30 - 5B % afsláttur
Cluggatjaldaefni, storesefni, ýmis fataefni og fleira.