Morgunblaðið - 11.02.1989, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1989
fólk í
fréttum k
FEGURÐARSAMKEPPNI I MOSKVU
Okur við innganginn og dóm-
arinn eftirlýstur glæpamaður
Miklar deil-
ur hafa
blossað upp í
Moskvu vegna
fegurðarsam-
keppni sem þar
var haldin á dög-
unum og skýrt
var frá í þessum
dálki. Sovéskir
fjölmiðlar hafa
gagnrýnt skipu-
lag keppninnar
en þó tók stein-
inn úr þegar í
ljós kom að aðal-
dómarinn var
ekki annálaður
kunnáttumaður
á sviði kvenlegr-
ar fegurðar held-
ur eftirlýstur
glæpamaður í
höfuðborginni.
Keppnin var
haldin í Kosm-
os-hótelinu sem
þykir eitt hið
glæsilegasta í
Moskvu þótt það
sé raunar lokað
þessa dagana
vegna kaka-
lakkaplágu sem
herjað hefur á
hótelgesti, ef marka má frásögn
fréttaritara breska dagblaðsins The
Independent. Sovéskir fjölmiðlar
hafa gagnrýnt þá staðreynd að
óbreyttur almúginn fékk ekki að
fylgjast með sýningunni og ljós-
myndarar þurftu að greiða stórfé
fyrir að fá að mynda fegurðardísim-
ar.
28 stúlkur frá 11 löndum tóku
þátt í keppninni en samvinnufélagið
Moskvufréttir
Hakarar Meltem, sem kjörin var „ungfrú yndis-
þokki“ í fúrðulegri fegurðarsamkeppni sem fram
fór fyrir skemmstu í Moskvu. Hún hélt frá Sov-
étríkjunum, hlaðin gimsteinum, en stúlkan sem
varð í öðru sæti, fegurðardís frá ísrael, fékk að
launum sovéska bifreið af Tavría-gerð.
Kaskad frá borginni Dneprop-
etrovsk í Sovétlýðveldinu Úkraínu
skipulagði hana. Fréttaritari ‘sov-
éska vikuritsins Moskvufréttir,
Mark Vodovozov, segir skemmtun-
ina hafa verið dapurlega og að
brandarar kynnisins, Alexanders
Maslíjakovs, hafi verið í þynnra
lagi. Kveðst hann sjá eftir rúblunum
25 (um 2.000 kr. ísl.) sem hann
greiddi við innganginn. „Við ákveð-
um miðaverðið, við höfum nefnilega
leyfi,“ sagði einn forráðamanna
keppninnar er fréttaritarinn kvart-
aði yfir aðgangseyrinum.
Vodovozov gagnrýnir einnig hvem-
ig staðið var að vali sovésku kepp-
endanna en enginn þeirra vann til
verðlauna. Stúlkumar hafi ekki
komið nægilega vel fyrir enda sé
það alkunna að erlendis fari fegurð-
ardísir í strangar þjálfunarbúðir
áður en þær sýna sig á sviði. „Flas
er ekki til fagnaðar á sviði skemmt-
anaiðnaðar," segir Vodovozov í lok
greinarinnar.
Fegurðarsamkeppnin þótti sem
sagd; ekki heppnast sem skyldi en
skipulagið virðist fyrst hafa farið
úr böndunum er dómnefndin var
valin. Dagblaðið Komsomolskaja
Pravda, málgagn ungliðahreyfíngar
sovéska kommúnistaflokksins,
skýrði frá því á dögunum að for-
maður dómnefndarinnar, sem
kepptist við að veita íjölmiðlum við-
töl og sagðist vera „sendimaður
Sameinuðu þjóðanna", hefði ekki
verið franskur sérfræðingur á þessu
sviði heldur eftirlýstur glæpamaður
frá Moskvu. Sagði í fréttinni að
sakaskrá „dómarans", Míkhaíls
Potemkins, væri lengri en skáld-
saga Tolstojs „Stríð og friður“ auk
þess sem hann kynni ekki orð í
frönsku. Gengi hann undir nafninu
„faðir Roman" í undirheimum
Moskvuborgar þar eð hann færi
oftlega um borgina dulbúinn sem
prestur.
Sovétborgarar íhunu vafalítið
vera sem límdir við sjónvarpskjáinn
er keppnin verður sýnd í ríkissjón-
varpinu á kvennadaginn, 8. mars
en ekkert hefur spurst til „föður
Romans" sem fékk væna summu í
vasann fyrir vel unnin störf.
BJÖRN BORG
Beisluðu ítalskir lyga-
merðir skáldafákinn?
Fréttir af sj álfsmorðstilraun merki um eðlislæg-
an óheiðarleika blaðamanna, segja vinir hans
Vinir sænsku tennisstjörnunn-
ar Bjöms Borgs segja fréttir
þess efnis að hann hafí reynt að
fremja sjálfsmorð rakalausan
þvætting, óhróður og lygi. Bjöm
var sem kunnugt er fluttur í
skyndingu í sjúkrahús á þriðjudag
eftir að hann hafði tekið of stóran
skammt af svefnlyfjum. Hann
fékk að fara af sjúkrahúsinu sam-
dægurs en ítalskir blaðasnápar
fullyrtu í fréttum sínum að ekki
hefði verið um slys að ræða; Bjöm
Borg hefði verið ákveðinn í að
ganga á fund feðra sinna. Var
látið að þvi liggja að Borg væri
niðurbrotin maður sökum erfið-
leika í einkalífínu. Eitt blaðið
sagði Borg hafa gleypt 60 svefnp-
illur og kvaðst hafa heimildir fyr-
ir því að skömmu áður hefði hon-
um og unnustu hans, ítölsku söng-
konunni Loredana Brete, lent
heiftarlega saman. Vinir Borgs
sögðu að ítölsku blaðamennimir
hefðu greinilega beislað skáldaf-
ákinn og sögðu skrif þeirra merki
um siðblindu og eðlislægan óheið-
arleika manna í þessari stétt.
Læknar kváðu fyrir sitt leyti úti-
lokað að hann hefði tekið svo stór-
an skammt og vísuðu til þess að
Borg hefði aðeins dvalist í þijár
klukkustundir í sjúkrahúsinu.
Katólska kirkjan hefur neitað
að gefa Bjöm og unnustu hans
saman á þeirri forsendu að bæði
séu þau fráskilin og er haft fyrir
satt að þessi afstaða kirlqunnar
manna hafí verið þeim báðum
þungt áfall. Hjónaleysin búa sam-
an í Mflanó á Ítalíu en myndin
var tekin á dögunum er útsendari
Reuters-fréttastofunnar rakst á
þau á fömum vegi og var svo
stálheppinn að hafa myndavélina
meðferðis.
^TEPPALANDS
UTSALAN
Teppi, dúkur, parket og flísar
AIH að 50% afsláttur
Urvalið hefur aldrei verið meira og glæsilegra
af gólfteppum, gólfdúk,
parketi og flísum, með allt að
50% afslætti.
Opið til kl. 14:00 laugardag.
allt á gólfið á einum stað
Teppaland • Dúkaland
Grensásvegi 13, sími 83577, 105 Rvk.
uiiidt mi >«4