Morgunblaðið - 19.02.1989, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B/C
42. tbl. 77. árg.
SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stúdentar
hóta Rushdie
Nikósfu. Reuter.
ÚTVARPIÐ I Te-
heran skýrði frá
því í gær að sam-
tök islamskra
námsmanna i Evr-
ópu hefðu heitið
því að reyna allt
sem í þeirra valdi
stæði til þess að
uppfylla þá ósk
Ayatollah Ru-
hollah Khomeinis,
erkiklerks, að myrða Salman Rush-
die, höfund bókarinnar „Söngvar Sat-
ans“. Frakkar frestuðu í gær för
sendiherra síns í íran til Teheran
vegna hótana írana um að myrða
Rushdie. Vestur-Þjóðveijar hafa kall-
að sendifulltrúa sinn í Teheran heim
til ráðagerða vegna Rushdie-málsins.
Bilað útvarp
olli morði
London. Reuter.
SHIRLEY Freeman, 74 ára prestur,
var í gær dæmdur til ævilangrar betr-
unarvistar f klaustri fyrir morð á 85
ára konu sinni, Clarindu. „Ég er brjál-
að illmenni. Ég mun aldrei sjá konu
mina framar þvl hún fór til himna en
ég fer til helju,“ sagði klerkur. Missti
hann stjórn á skapi sínu og lúbarði
konuna með alls kyns bareflum eftir
að hafa mistekist að stilla útvarpstæki
á vinsælan tónlistarþátt.
Efiiahags- og þróunarstofiiunin, OECD, um árið 1987:
Morgunblaðið/RAX
KONUDAGURINN
Konudagurinn er í dag og allir eiginmenn sem enn eiga til snefil að uppfylla kurteisiskyldur sínar í framtíðinni og sést hér æfa
af riddaraskap hafa að sjálfsögðu munað eftir að færa konu sinni sig með aðstoð systra sinna sem kunna vel að meta framtakið.
blóm í tilefni dagsins. Ungi maðurinn á myndinni er staðráðinn í
Færri án vinnu
í Bretlandi
Islenska krónan næst-
sterkastí gjaldmiðillinn
- og kaupmátturinn sá fímmti mesti í heimi
Lundúnum. Reuter.
ATVINNULAUS-
UM í Bretl&ndi
fækkaði í janúar-
mánuði og voru
þeir í fyrsta sinn í
átta ár innan við
tvær milljónir.
Norman Fowler,
vinnumálaráð-
herra Thatcher-
stjórnarinnar, seg-
ir að 1,99 milljónir
Breta hafi verið atvinnulausar i jan-
úar, eða sjö prósent af vinnufærum
mönnum. Atvinnulausum fækkaði um
1,15 miiyónir frá því á árinu 1986 og
sagði Fowler að stjórnin hefði náð
„merkum áfanga“. Stjórnarandstaðan
rengir tölur stjórnarinnar og segir 2,5
miiyónir vera nær lagi.
Á ÞVÍ herrans ári 1987 var íslenska
krónan næststerkasti gjaldmiðillinn í
aðildarríkjum OECD og þar með raunar
í öllum heimi. Aðeins gengi svissneska
frankans var hærra skráð en krónunnar
en kaupmáttur hennar var þá sá fimmti
mesti. Kemur þetta fram í Hufvudstads-
bladet, sem sænskumælandi Finnar gefa
út, og er byggt á upplýsingum frá OECD.
Igreininni í Hufvudstadsbladet er að sjálf-
sögðu aðallega fjallað um stöðu Finna í
þessum samanburði og er henni gefin ein-
kunnin 100 og gengi og kaupmáttur ann-
arra gjaldmiðla síðan miðaður við það. Sam-
kvæmt því var gengi sterkustu gjaldmiðl-
anna 1987 þetta: Svissneskur franki 145;
íslensk króna 122; norsk króna 111; dönsk
króna 111; japanskt jen 109; sænsk króna
106; vestur-þýskt mark 103; Bandarfkja-
dollari 102; finnskt mark 100; Luxemborg-
arfranki 93; Kanadadollari 90 og franskur
franki 89.
Ef litið er á kaupmátt gjaldmiðlanna eft-
ir ríkjum 1987 kemur fram, að þá var hann
mestur í Bandaríkjunum, 143. Síðan í
Kanada 134; Sviss 126; Noregi 123; íslandi
121; Luxemborg 116; Svíþjóð 109; Dan-
mörku 104; Vestur-Þýskalandi 104; Japan
103; Frakklandi 101 og Finnlandi 100.
í greininni segir einnig, að framleiðni á
hverja vinnustund í Finnlandi hafi aukist
um 42% á síðustu 10 árum en samt sem
áður sé Finnland að sumu leyti mjög dýrt
land fyrir atvinnurekstur. Kenna finnskir
iðnrekendur því um, að gjaldskrárhækkanir
innan sumra lokaðra greina, tij dæmis
bankakerfisins, hafi orðið miklu meiri en
svarar til framleiðniaukningar í opnum
greinum.
JOHN
MJjYALL
14
DVERGUR l|
RISAUUIDI
ÞVÞIG
TVISVAjk
VM? *